Alþýðublaðið - 01.02.1945, Side 3

Alþýðublaðið - 01.02.1945, Side 3
flatm&adag 1. Fe4>ni«r 1945. LJófur iéafll BLAÐIÐ .JFEIT DANMARK“, sem út er gefið í London af Dönum þeim, sem tekizt hef Ir að sleppa úr vitinu heima fyrir og DönUm, sem í Lond on búa, birti nýlega þá fregn, að 149 danskir menn hefði látúrt i þýzkum fangelsum og fangabúðum. Þessi frétt, jþótt ef ti'l vill fari litið fyrir henni, er merkileg. Hér er um að ræða fólk, flevst á bezta aldri, sem flutt hefir verið nauðugt viljugt til þýzkra fangelsa eða fanga- búða, en munurinn á þessum mun aðeins vera sá, að á öðr um staðnum er meðferðin og pyntingarnar djöfullegri. HÉR ER EKKI um að ræða fólk, sem deyr úr lungna- bólgu, herklum, eða krabba aneini, eins og venja er til um fólk í venjulegum og friðsömum löndum. Að vísu er það oft látið í veðri vaka i tilkynningum nazista um «lík dauðsföll að svo sé, en dánartalan er svo grun- samlega há, að þvi trúir eng inn vitiborinn maður, sem ekki hefir öðlazt náðargjöf „nýskipunarinnar“, sem nú er raunar orðið hlægilegasta hugtak, sem sögur fara af. SAMA SAGA er um alla þá norsku stúdenta og önnur norsk ungmenni, sem látizt bafa í Oranienburg eða Buc- henwald með grunsamlegum hætti og á grunsamlega skömmum tíma. Hvernig stendur á því, að allir þessir unglingar, sem sumir hverj ír hafa aldrei kennt sér meins, skuli allt í einu látast úr lungnabólgu (en það er ein „vinsælasta“ dauðaorsök in, sem nazistar gefa upp við slák tækifæri)? Þetta mun sjálfsagt verða éitt af þeim rannsóknarefnum, sem banda menn velja sér í striðslokin og mun það vart ofmælt, að þá muni margt undarlegt og óhugnanlegt koma í ljós. ÞAÐ ER TÆPAST í frásögur færandi á þessUm tímum hörmunga og þjáninga, að um 15% af dönskum Gyðing um skuli hafa farizt í Bæ- heimi. Að sjálfsögðu hafa þeir dáið „eðlilegum dauð- daga“ samkvæmt tilkynning um nazista. En allar líkur benda til þess, að ef styðjast mætti við 'hagskýrslur um langlifi manna, að þetta fólk hefði átt sér lengri Jífdaga auðið. Það er svo að sjá, sem þeir, sem lenda i klóm „yfir þjóoarinnar“ og fluttir eru úr landi, fái ekki að kemba hærumar. Við vitum ekki, í bili að minrísta kosti, hvern ig lát þeirra hefir borið að höndum, en við getum farið nærri um það. ÞAÐ HEFIR BORIÐ VIÐ, að maður, sem fjuttur hefir ver ið í fangabúðir Þjóðverja (fyrir hverjar sakir er oft næsta ókunnugt um), hafi Frh. á 7. síðu. AU»YOUBLAÐ>P Hersveifir Zhukovs nú 100 km frð Berlín De Gaulle í Moskva j Tóku borgina Landsberg við Warlhe í gær Þessi mynd er tekin í för de Gaulles, forsætisráðherra Frakka til Moskva ekki alls fyrir löngu. Sést hann til vinstri á-myndinni, en Molotov, utanríkisráðherra Rússa til hægri. Þar gerðu Frakk- ar og Rússar bandalag, eins og kunnugt er. Vesturvígstöðvarnar: Frakkar sækja á við Sfrassburg, Bandaríkjamenn við Monschau . ■■■: i»ti' -»•: ■ Frumkvæðið yfirleitt í höndum bandamanna FRANSKAR hersveitir hafa sótt fram báðiun megin Strass- burg, þrátt fyrir harða mótspymu Þjóðverja. Virðist sóknar- máttur Þjóðverja þar gersamlega þotinn. Þá sækir ameríski her- inn fram við Monscliau og hefir tekið allmildð herfang og þýzka hermenn höndum. Á Elsassvígstöðvimum er þriðji ameríski her- inn einnig í sókn og verður yfirleitt vel ágengt. Loftárásir á vest- urvígstöðvunum hafa ekki vcrið í mjög stórum stíl undanfarinn sólarhring. Stjórn Benes viðúr- kennir Lublin- nefndina TÉKKNESKA stjómin í London hefir ákveðið að viðurkenna stjórnarnefndina í Lublin sem stjórn Póllands. Samtímis er tilkynnt, að Ben- es forseti Tékkóslóvakíu og stjórn Tékka, muni bráðlega fara til þess hluta Slóvakíu, sem Þjóðverjar hafa verið hraktir úr og muni hafa þar aðsetur sitt. BANDAMENN hafa kosið sér forseta í nefnd þeirri, er fjalla á um stríðsglæpamenn og varð Ástralíumaður fyrir | valinu. Bandamenn virðast nú hafa tekið frumkvæðið á vesturvíg- stöðvunum víðast hvar. Að vísu heyrist lítið frá öðrum brezka hernum, en vitað er, að hann heldur víðast hvar velli og hef ir á sumum stöðum sótt nokkuð fram. Þjóðverjar segja, að banda- menn hafi dregið að sér mikið lið milli Liége og Aachen, sem búist nú til sóknar. Tilkynnt er í London, að Frakkar hafi stofnað nýjan öfl- ugan flugher, sem mun nefnast Atlantshafsflugherinn og muni hann þegar byrjaður starfsemi sína. Annars er fremur lítið að frétta af vesturvígstöðvunum og litlar breytingar hafa orðið á vígstoðunni undanfarinn sól- arhring. Hörðum loftárásum vár hald ið áfram á Þýzkaland í gær og fullyrt að ægiiegt tjón hafi orð ið. ' Þær hafa sótt fram um 400 km vegarlengd á 18 dögum C TALIN gaf enn í gær út dagskipan um hina hröðu ^ sókn Zhukovs og var þar sagt, að Rússar hefðu tekið borgina Landsberg 1 Brandenburg. Síðar í gærkveldi var sagt, að þeir nálguðust á þessum slóðum nú mjög Oder og ættu ekki nema 100 km, ófama til Berlín. í annari dagskipan sagði Stalin frá því, að hersveitir Rokossov- skys hefðu tekið Heilsberg, sem er mikilvæg borg um 65 km. suður af Königsberg. Þjóðverjar óttast mjög, að borgimar Stettin og Danzig falli í hendur Rússum og hafa gert ýmislegan viðbúnað til þess að flytja á brott borgarana og verja þær til hins ítrasta. Ekkert lát virðist á sókn Rússa inn í Brandenburg, sem virðist stefnt gegn Berlín og í gær var tilkynnt í Moskva með dynjandi fallbyssuskothríð, að þeir hefðu tekið samgöngumið stöðina Landsberg, aðeins 112 km. frá höfuðborg Þýzkalands. Eru það hersveitir Zhukovs, sem þar sækja fram. Auk þess hafa Rússar tekið þrjá bæi aðra, sem mikilvægir eru frá hernaðarsjónarmiði en ekki nefndir í dagskipan Stalins. Eru Rússar komnir að minsta kosti 38 km. vestur fyrir þýzku landa mærin, en Þjóðverjar segja í tilkynningum sínum, að þeir muni komnir miklu vestar. án þess þó, að það hafi verið stað fest í Moskva. Rússar eru nú sagðir skammt frá Frankfurt við Oder. Þjóðverjar segjast enn hafa opna samgönguleið til Königs- berg og Elbing, en játa þó, að sókn Rokossovskys sé mjög hættuleg og segjast hafa allan viðbúnað til þess að mæta henni. í Lundúnafréttum segir, að um 5 milljónir manns sé nú á hrakn ingi undan Rússum, sem sæki fram miskunnar laust. í Berlínarfréttum segir, að Þjóðverjar hafi getað hörfað Skipulega frá Kalisz í Lodzhér- aði í Póllandi og valdið Rúss- um miklu tjóni á undanhald- inu. Víða hafi þeir gert skæðar gagnárásir og meðal annars eyði lagt 230 skriðdreka þeirra. Þá segja Þjóðverjar, að Rússar hafi unnið lítið á í Austur-Prúss landi og héraðsstjórnin í Breslau í Slésíu hefir gefið út ávarp, þar sem segir meðal ann. ars, að Þjóðverjar muni ekki síður stöðva framsókn banda- manna að austan en að vestan. Er fundur hlnna „jtriggja stóru” aS hefjast! EIR Stettinius utanrikisráð herra Bandaríkjanna og Harry Hopkins, ráðgjafi Roose velts, sem að undanförnu hafa verið á Ítalíu og rætt við áhrifa menn þar, eru farnir þaðan, en ekki er þess getið hvert. Talið er, að för þeirra sé í sambandi Zhukov marskálkur Ký fantabrögð nazisfa í Noregi C AMKVÆMT fregnum, sem borizt hafa frá Óslo yfir Stokkhólm, hafa um það bi'l 30 merkir norskir borgarar verið fluttir frá fangabúðunum í Grini til aðalbækistöðva Gesta po á Victoria Terrasse í Oslo. Eru menn þessir teknir sem gislar til tryggingar Gestapo- mönnum við loftárásir, sem kunna að verða gerðar. Af gisl um þessum má nefna: C. J. S. Marstrander, prófessor við Osló háskóla í keltneskum málum, próf. Eiliv Skard, próf. Carl J. Arnholt, fyrrum dómsmálaráð- herra, Gunnar Jahn, forstjóri HagStofu Noregs, Asgaut Stein nes, skjalavörður, F. Mathie- sen yfirverkfræðingur, dr. phil. Sigurd Jebsen Grieg, fom- minjavörður við safnið í Oslo, Einar Gerhardsen, áður oddviti í Oslo og um langt skeið ritari norska Alþýðuflokksins og var í fangelsi í Þýzkalandi um tveggja og hálfs árs skeið og Haakon Evejenth, lögfræðing- ur og rithöfundur frá Bodö. Má geta nærri, að þetta hef- ir vakið hina mestu gremju x Noregi. En ógnarstjórn Þjóð- verja í Noregi verður ægilegri og ægilegri, því nær sem dreg ur ósigrinum. við fund þeirra Churchills, Roosevelts og Stalins, sem þeir munu eiga að sitja.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.