Alþýðublaðið - 28.02.1945, Page 2
t
—.i , —»...—---
Hafa mörg fyrirtæki, sem ekki hafa af-
hent skjöl sín, verið svipt innfí.leyfum?
VIÐSKJPfTAlRÁI) isendi í (fyrradag sakadómaranum í
Reykjavfk kæru á 3 heildsölufyrirtæki til viðbótar
þeim sex, /sem áður höfðu verið kærð fyrir grunuð brot á
ákvæðum um álagningu á vörur, sem bessi fyrirtæki hafa
keypt í Banda ríkj xmiun og flutt (hingað til lands.
Þessi þrjú heldsölufyrirtæki eru: • Guðmundur Ólafs-
son & Co, Heiidverzlunin Berg og Jóhann Karlsson & Co.
Sakadómari imxm þegar hafa hafið yfirheyrslur út af
þessum kærum, jjafn^rajmt |]því sejm hann heldur áfram
rannsókn sinni á ihendur hinum sex fyrirtækjunum.
Eins og kunnugt er, gaf Viðskiptaráð út tilkynningu í
vetur lum, iað heildsölufyrirtæki skyldu fyrir 20. fehr. hafa
skilað því frumriti 'yfir vörur, sem þau jhafa flutt til landsms
síðan ákvæðin um 5% hámarksálagningu á vörurnar gengu
í gildi.
Alþýðubliaðið hefir spurzt fyrir um það, hvort öll fyrir
tæki hafi orðið við þessari kröfu. En blaðinu hefur ekki {
tekist að fá neitt |ákveðið svar jvið því. Hafi hins vegar ein- |
hver heildsölufyrirtæki þverskallast, er þess að vænta, að
þær refsiaðgerðir séu komnar til framkvæmda, sem Við-
skiptaráð ihoðaði, en (það var, að svifta viðkomandi fyrirtæki
innflutningsleyfum.
Þráfl ffrir karföflur frá Bref-
landi verður skorfur á þeim
Samtal vð forstjóra Grænmetisverzlunar-
innar, lón ivarsson
MJÖG tilfinnanlegur kartöfluskortur er nú hér á landi
og er ekki fyrinsjáanlegt 'hvenær úr muni rakna.
Von er bó á kartöflum frá Bretlandi. en búizt er við. að bað
verði svo lítið. að bað fullnægi hvergi nærri börfinni.
f gær átti Jón ívarsson for-
stjóri Grænmetisverzlunar rík-
isins tal við blaðamenn og
ræddi við þá um þessi mál, og
orsakir að þeim kartöfluskorti,
sem nú væri í landinu.
Kvað hann það í fyrsta lagi
stafa af lítilli kartöflufram-
leiðslu í ár, og í öðru lagi vegna
þess að erfiðlega hefði gengið
að fá kartöflur innfluttar, eftir
að séð varð, að skortur yrði á
kartöflum í landihu.
Fer hér á eftir útdráttur úr
greinargerð forstjóra Gænmeí-
isverzlunarinnar:
„Skýrslur eru ekki ennþó
fyrir hendi um kartöflumagn-
ið á landinu nema úr sumum
hlutum lándsins og verður þvi
ekki unnt til fullnustu að gera
grein fyriir uppskerumagninu,
en ætla má þó, að það hafi
numið um eða yfir 80 þús.
tunnum. Er það svipað og var
1942, en miklu meir^ en 1943,
en þá er uppskeran talin að
hafa numið 55 þús. tunnum.
Á öndverðu hausti sendi Bún-
aðarfélag íslands í samráði við
Grænmetisverzlunina eyðublöð
til hreppstjóra og bæjarstjóra
um allt land undir skýrslur um
uppskeruna, með beiðni um að
þeim væri skilað hið fyrsta.
Gekk all greiðlega að fá þær úr
sumum sveitum, en annars
staðar seint, þannig vantar enn
skýrslur úr 62 hreppum og 5
kaupstöðum. Þessi seinagangur
um skýrslugerðir er hinn hvim-
leiðasti hvort sem um þessar
eða aðrar er að ræða.
Svo mu-n miega telja, að árs-
þarfir landsmanna af kartöfl-
um séu 100—120 þús. tunnur,
að meðtöldu útsæði, en það
mætti ætla allt að 20 af hund-
raði, eða um 20 þús. tunnur.
Til neyzlu væri þó 80—100
þús. tunnur. Ef uppskera síð-
asta árs væri 80—90 þús. tunn
ur, færi af henni til útsæðis að
eðlilegum hætti upp undir 20
þús. tunnur, og yrði þá eftir til
neyzlu 60—70 þús. tunnur, en
það svarar til 50—60 kg. á hvern
landsbúa, sem er of lítið. Ef vel
ætti að vera, þarf uppskeran að
nema 100 kg. á mann, að út-
sæði meðtöldu. Þegar hún nær
því marki, þarf engan innflutn-
ing á kartöflum. En þegar upp-
skeran er ekki meiri en húa
vi'rðist hafa verið á síðasta ári,
vantar mikið á þarfirnar, senni
lega ekíki minna en 15—20 þús.
þús. tunnur.
Á síðasta hausti, að loknum
uppskerutímanum leitaðist
Grænmetisverzlunin við að fá
skýrslur um, hversu mikið væri
til af kartöflum umfram þarfir
heimilanna sj'álfra, þ. e. það
magn, sem væntanlega yrði til
sölu einhvern tíma frá haust-
nóttum til næsta vors. Samkv.
því sem niðurstaðan varð af
þessari skýrslusöfnun, mátti
Frh. á 7. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐID
Launalögin voru afgreidd frá
neðri deild í gær
2 sjálfstæSismenn úr stuóningsliói stjórn-
arinnar sögðu nei og einn sat hjá
T AUNALÖGIN korrnx til atkvæða á fundum neðri dei'ld-
T-J ar í gær. Voru breytingartillögur fjárhagsnefndar
samþykktar allar nema ein, en hins vegar náðu aðeins sár-
fáar breytingartfflögur ernstakra þingmanna fram að ganga.
Var frumvarpið því næst samþykkt í heild með seytján at-
kvæðum gegn fjórtán og þannig endursent efri deild.
Sú breytingartillaga fjárhags*
nefndar, sem ekki náði fram að
ganga, fjallaði um að laun
skipulagsstjóra skyldu hækka
úr 10200 í 12000, og var hún
felld með sextán atkvæðum
gegn sextán. Þær breytingartil
lögur einstakra þingmanna, er
náðu fram að ganga, var tillaga
frá Sigurjóni Á. Olafssyni, Sig
urði Kristjánssyni, Sigurði
Thoroddsen og Sgurði Guðna-
syni um að orðin „I. flokks“ í
grein þeirri, er fjallar um laun
símritara, loftskeytamanna og
símvirkja falli niður, svo og að
orðin „símritarar II. flokks,
símvirkjar II. flokks, loftskeyta
menn II. flokks“ og orðin „I.
flokks“ á eftir „línumenn“ falli
niður, einnig að orðin „línu-
menn II. flokks“ falli niður.
Auk þess var samþykkt breyit-
ingartillaga frá sömu þingmönn
um um, að póstafgreiðslumenn
í Reykjavik skuli vera í einum
flokki í stað tveggja. Einnig var
samþykkt tillaga frá Svein-
birni Högnasyni um, að söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar skuli
hafa sömu laun og vígslubiskup
ar, prófastar og biskupsritari.
Sömuleiðis var samþykkt breyt
ingartillaga frá Sigurjóni Á.
Ólafssyni, Skúla Guðmundssyni
og Sigurði Kristjánssyni um, að
eftir tveggja ára starfstíma fær
ist aðstoðarmenn skipaskoðun-
arstjóra og bifreiðaefftirlits-
menn í X. launaflokk og njóti
þá aldurshækkana þess flokks.
Breytingartillaga frá Páli Zóp-
hóníassyni um, að laun tilrauna
stjóra skyldu ákveðin í lögun-
um 6000—8400 náði og fram
að ganga.
Frumvarpið var að þessu
loknu samþykkt í heild með
seytján atkvæðum gegn fjórtán
að viðhöfðu nafnakalli. Þeir
þingmenn, sem nei sögðu voru:
Bjarni Ásgeirsson, Eysteinn
Jónsson, Hermann Jónasson,
Helgi Jónsson, Ingólfur Jóns-
son, Jón Pálmason, Jörundur
Brynjólfsson, Páll Þorsteinsson,
Páll Zóphóníasson, Pétur Otte-
sen, Sigurður Bjamason, Sig-
urður Þórðarson, Skúli Guð-
mundsson og Sveinbjörn Högna
son.
Jakob Möller sat hjá við
atkvæðagreiðsluna og gerði
grein fyrir afstöðu sinni, að
hann teldi Sjálfstæðisflokk-
inn óbundinn af þessu fnun
varpi, þrátt fyrir það ákvæði
í málefnasamningi stuðnings
flokka ríkisstjómarinnar, að
ný launalög skyldu afgreitt
þegar á þessu þingi, því að
forustumenn þessarar laga-
setningar hefðu breytt frum
varpinu til stórfelldrar hækk
unar frá því að það hefði
verið lagt fyrir alþingi.
Fríkirkjan
Föstumessa í kvöld kl. 8.15. Sr.
Árni Sigurðsson.
Sendinefnd Islands á
Ier3 um Svíþjóð
I SLENZKA SENDINEFNDIN
í Svíþjóð hefur að undan-
fömu ferðast nokkuð inn Sví-
þjóð og meðal annars skoðað
skipasmíðastöðvar þar.
Ýmis blöð í Svíþjóð hafa átt
viðtöl vio nefndarmennina, og
láta þau í ljós áhuga fyrir aukn
um verzlunarviðskiptum milli
íslands og Sviþjóðar. i
Norræna félagið í Stdkkhólmi
hafði íslenzkt kvöld nýlega og
flutti Stefán Jóh. Stefánsson
alþingismaður þar ræðu.
Ennfremur hélt íslenzka
stúdentafélagið í Stokkhólmi ný
lega samkvæmi og var nefndar
mönnunum og ýmsum fleiri
gestum boðið þangað, og fiutti
Stefán Jóh. Stefánsson þar er-
indi um íslenzk stjórnmál.
Maður bfður bana al
völdum bílslyss
O ÍÐASTLTOINN föstudag
kJ varð það slys á Suðxu-lands
braut, að Oddur Snorrason, til
heimilis á Sjónarhóli varð fyrir
áætlunarhifreiðinni G 201 og
slasaðist hann mjög mikið á
höfði.
Var Oddur strax fi/uttur í
sjiúlkrahiús, en þar andaðist hann
í fyrradag.
Oddur Snorrason var 58 ára
gama'll.
Sendiherra Breta
þakkar íslenzka
hjálp er breik fiu§-
vél hrapaði
TANRÍKISRÁÐHERRA
hefur horizt bréf frá sendi
herra Breta á íslandi, þar sem
hann f. h. foringja flugliðs
Breta hér á landi þakkar ómet
anlega aðstoð, sem íslendingar
sýndu í sambandi við slys, er
varð þegar ein af flugvélum
Breta hrapaði nálægt Vífilfeiíi
þann 6. þ. m.
Áhöfn’ vélarinnar voru þrír
menn. Einn þeirra slasaðist svo
að það varð að skilja hann e£t-
ir á slýsstaðnum, hinir tveir
lögðu af stað til þess að Ieita
hjálpar og komu eftir 7 klukku
(Frh. á 7. síðu.)
Miðvikudagur 28.. Jeþirúfar 1945
Fulilrúaráð
ilokksins
áríðandi iuna
annað kvöld
O ULLTRÚABÁÐ Alþýðu
* flokksins héldur áríðandi
fund annað kvöld kl. 8.30 í
fundarsal Alþýðubrauðgerð-
arinnar við Vitastíg.
Á dagskrá fundarins eru
félagsmál, flokksstarfið og
þingmál.
Allir fulltrúar svo og hverf
isstjórar félagsins eru >eðnir j
að mæta á fundinum.
Préfessor Ólafur
Lárusson heiðurs-
doklor í heimspeki
/k FUNDI 15, febrúar s. I.
samþykkti heimspekideild
Háskóla íslands, að sæma pró
fessor Ólaf Lárusson doktors-
nafnbót í heimspeki á sextugs-
afmæli hans, sem var 25. þ. m.
í rökum heimspekideildar seg-
ir svo:
Óláfur prófessor Lárusson er
efalaust einn fremstur þeirra
manna, er tekið hafa ástfóstri
við sérstök viðfangsefni ís-
lenzkrar sagnfræði og varið
égætu starfi til þess að gréiða
úr vafaatriðum og kanna ónum
in svið. Með athugunum sín-
um og rannsóknum á byggðar-
sögu landsins hefur hann í
rauninni fyrstur vakið athygli
á mikilsverðu söguefni og varp
að nýju ljósi. á almenna sögu
þjóðarinnar, hagsögu hennar og
menningarsögu. Höfuðverk
hans um þetta efni eru rit-
gerðasafnið Byggð og saga og
Landnám i Skagafirði, og eru
þá ótaldar ýmsar ritgerðir um
svipuð og önnur söguleg efni.
Allar rannsóknir hans hera
vitni um frábæra þekkingu,
vandvirkni og glöggskyggni á
stór atriði. sem smá. Má kalla
þetta því meira afrek sem hann
hefur jafnframt gegnt háskóla
kennslu í lögfræði og getið sér
mikinn orðstír fyrir lærdóm
sinn og ritverk um þau efni.
Þó að kennsla í íslenzkum fræð
úm hafi farið fram í heimspeki
deild, síðan háskólinn var stofn
aður, er deildinni fyllilega ljóst,
hver þörf þessum fræðum er
sem flestra góðra liðsmanna, og
telur hún sér sæmd að því að
votta þessum gagnmerka vís-
indamaijni þakklæti sitt og virð
ingu með því að kjósa hann
heiðursdoktor í heimspeki.
Malfundur Bruna-
vaflalélags
Reyhjavtkur -
AÐALFUNÐUR Brunavarða-
félags Reykjavikur var
'haldinn þam 26. febrúar.
í stjórn vcru kosnir: Formað
ur Sigurbjörn Maríusson. Rit-
ari Guðmundur Karlsson. Gjald
keri Þórðu’- J'ónsson. Varafor-
rnaður Léo Sveinsson. Fjár-
máiaritari Fínnur Richter.
Félagið var stofnað á síðast-
liðnu ári, og hefur átt miklum
vinsældum að fagna meðal
brunavarða.