Alþýðublaðið - 06.06.1945, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 6. juni. 1945. ________ALÞYÐUBLAÐI**___________________________- ' ' 7
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu mér vináttu og
hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins xníns,
Magnúsar Benediktssonar,
verkstjóra, Hafnarfirði.
Sérstaklega færi ég Verkstjórafélagi Hafnarfjarðar hu^hefilar
þakkir fyrir þann höfðinglega samúðarvott, sem það sýndi mér
viö þetta tækifæni.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Hjartans þakkir til hinma fjölmörgu, innan lands og utan,
sem auðsýndu okkur hluttekningu og vinarhug við andlát og
jarðarför
Kjartans Sigurjónssonar, söngvara.
'Guð blessi ykkur öll og launi aðstoð ykkar og ástúð. í
Bára Sigurjónsdóttir. Halla Guðjónsdóttir.
Sigurjón Kjartansson.
HJARTANS ÞAKKIR
færi ég öllum vinum mínum og vandamönnum, sem
sendu mér hlýjar kveðjur og sýndu mér margs konar vin-
semd á sextugs afmæli mínu, 1. júnl
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
Eyrarbakka.
Tilkynning
um
hljóðfæri
Hljóðfæraverzlun Tónlistarfélagsins hefur nú fengið ný
sýnáshorn af hljóðfærum frá hinni kunnu Knight-píanó-
verksmiðju í London, sem mjög góð reynsla er fengin á
síðastliðin fimm ár.
Hljúðfærin eru til sýnis í nokkra daga í Helgafelli, Lauga-
vegi 100.
Yfir 500 manns hafa nú þegar pantað hljóðfæri hjá fé-
laginu og daglega bætast nýjar pantanir við. Áætlað verð
hljóðfæranna er
4950.00 og 5050.00
en það þýðir, að verðið verður ekki hærra. Hins vegar er
ekki óhugsandi, þar sem þessi hljóðfæri eru framleidd á
stríðstíma, að verðið lækki og því hefur félagið ákveðið að
láta fara fram verðjöfnun á 6 mánaða fresti, í fyrsta sinn
31. des. n.k., og endurgreiða þá þeim, sem fengið hafa hljóð-
færá á tímabilinu, ef verðið reynist lægra en nú.
Hljóðfæraverzlunin mun leggja kapp á að afgreiða allar
pantanir svo fljótt, sem verða má.
Nýjum pöntunum verður veitt móttaka daglega í síma
3594 (Björn Jónsson, ritari Tónlistarf.). ,
Tónlislarfélagið.
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30J16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Óperulög.
20.00 Fréttir.
20.25 Útvarpssagan: „Herragarðs
saga“ eftir. Selmu Lagerlöf;
þýð. Björns Jónssonar (H.
Hjv.).
21.00 Hljómplötur: Sænsk lög.
21.15 Þýtt og endursagt (Her-
steinn Pálsson ritstjóri).
21.35 Hljómplötur: ÍÞjóðkórinn
syngur (Páll ísólfsson stjórn
ar).
22.00 Fréttir. (
Dagskrárlok.
Fyrirspum frá utanrikismálaráðu-
neytinu.
Þeir, sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um Einar Guðmunds
son, sem fæddux er 9. febrúar 1926
í Hollandi; eða aðstandendur hans
eru vinsamlega beðnir að láta það
utanríkisráðuneytinu í té..
Trúlofun
Síðastliðinn laugardag opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Svein-
sína Guðmundsdóttir, Bergstaða-
stræti 43, og stud. eceon. Vilberg
Skarphéðinsson, Freyjugötu 7.
Kjartan Bergmann
ráðinn framkvæmd-
arstjóri ÍSÍ.
ANN 1. júní s. 1. réði sam-
bandsstjórn ÍSÍ Kjartan
Bergmann Guðjónsson, glímu-
kennara, fyrir framkvæmdar-
stjóra sambandsins til 1. októ-
ber n.k. Skifstofa Í.S.f. á Amt-
mannsstíg 1 verður opin, fyrst
um sinn, þrisvar í viku, á
mánud., miðv.d. og fimmtud.
ki. 7 til 8 síðdegis.
—...... ..... ...1.. —
Félagslíf.
FARFUGLAR.
Ekið og hjólað að Kleifarvatni
á laugardag og tj'aldað þar. —
Sunnudag gengið á Keili og
Trölladyngju. Hr, rektor Pálmi
Hannesson verður með í för-
inni og útskýrir fyrir okkur
grasa- og jarðfræði um þessar
slóðir. Þessi ferð gefur gott
tækifæri fyrir þá, sem vilja
kynnast náttúru- og gróð'Urfari
landsins. Farmiðar verða seld-
ir í skrifstofunni á miðviku-
dagskvöld kl. 8.30—10 e. h., og
í Bókabúð Braga Brynjólfs-
sonar á föstudag kl. 9—3.
Allar upplýsingar varðandi
ferðina verða gefnar í skrif-
stofunni á miðvikudagskvöld.
Ferðanefndin.
Lönd
undir sumarbústaði til leigu
eða sölu. Uppl. í síma 3799.
Yerkakvennafélagið
Framtíðin opnar á ný
dvalarbeimili fyrir
börn í Hafnarfirði.
GÆR tók til starfa í
, Hafnarfirði dvalarheimili
fyrir börn, undir forystu verka
kvennafélagsins Framtíðin.
Árið 1932 hóf Vkf. Fram-
tíðin í Hafnarfirði fyrst að reka
dagheimili fyrir böm og starf-
aði það til að byrja með í leigu
íbúð, en 1935 lét félagið
byggja hús fyrir starfsemina
við Hörðuvelli.
Þar var heimilið síðan starf-
rækt þar til stríðið skall á og
alltaf við vaxandi vinsældir.
Af völdum ófriðarins voru að-
standendur barna hvattir til að
senda börn sín burtu úr bæn-
um á stríðsárunum og lagðist
starfsemi heimilisins þá niður.
Nú hefur heimálið aftur hafið
starfsemi sína og í gær, þegar
það tók til starfa, voru 32 börn
á aldrinum 3—7 ára skráð á
heimilinu. Verða þau í heirn-
ilinu daglega frá kl. 8.30 á
morgnana til kl. 5.30 á daginn.
Forstöðukona heimilisins er
ungfrú Guðlaug Ágústsdóttr, en
auk hennar vinna tvær aðrar
stúlkur við heimilið.
Bœjarsjóður Hafnarfjarðar
styrkir félagið til þessarar
starfsemi.
Slúikur frá Isafirði
sýna fimleika í Rvík
Nemendur Gagn-
fræöaskólans á
feröalagi um landiö
RJÁTÍU OG TVEIR
nemendur frá Gagn-
íræðaskóla ísafjarðar eru
staddir hér í bænum ásamt
skólastjóra sínum Hannibal
.Valdimarssyni og íþrótta
kennara skólans.
1 kvöld ikil. 6,30 íhailida 10 stúJk
ur úr islkólanium iþróttasýiningiu
í Xðinió luimdir stjórn Miairíu Guð
mundisidólbtir.
iÞann 25. mai lögðu nemend-
urniir áf ,stað frá ísafirði tiíl Siglu
Æjiarðar og héldu þar íþrótta-
sýnin.gu. A Akureyri hélt flokk
uri.nn tvær isýninigar fyrir fullu
hiúsi. Bá fór skúlinn til Mýrvaitns1
o|g íHlúsiavikur og isfcoðaði. marga
faigra isitaðd. Til Ákraneas komu
nemendumir 2. jlúná og höfðiu
þar iþróittaisýningiu oig isóttu
hana á þriið'jia, humdrað manns.
Á iaiugaridíaginin fór jskólinn til
Gfuilifioisis, iGeystiis og Þingvalla.
Til íisaffjarðar mun Ihann fara
núna í váku!lokm.
Fram vaim 3. fl. molið
RIÐJA flokks móti í
knattspyrnu laúk síðast
liðinn laugardag. Fram vann
mótið með 6 stigum, vann öll
hin félögin. Val, KR og Víking.
Valur og KR voru jöfn með
3 stig hvort félag, en Víkingur
fekk ekkert stig.
í kvöld verða úrslit í 2. flokks
mótinu. Keppa þá KR og Valur,
sem eru með 4 stig hvort og
er það hinm raunverulegi úr-
slitaleikur. Fram og Víkingur
keppa hins vegar um þriðja og
fjórða sætið á rnótinu.
35 ára fimleikaflokkur
Í.R.
GÆR voru 35 ár liðin frá
því íþróttafólag Reykja-
víkur hélt fyrstu fimleikasýn-
ingu sína hér í bænum. Var
sýningarflokkúrinn þá þrettán
manns — ög eru allir á lífi
nema einn.
í gær mðettu 9 menn úr
þessum 35 ára fimleikaflokki
ásamt fyrsta stjórnanda flokks
ins, A. J. Bertelsen, stórkaup-
.nanni, til miðdegisveðar, sem
formaður og varaformaður ÍR
buðu þeim til.
Var A. J. Bertelsen sæmdur
gullmerki ÍSÍ við þetta tæki-
færi, en hann var eins og áð-
ur segir stjórnandi fimleika-
flokksins fyrir 35 árum.
Bilanir efráffarvagns-
ins í Siippnum.
Alþýðublaðið hefir verið
beðið um rúm fyrir eftir-
farandi athugasemd:
ÍALÞÝÐUBLAÐINU í gær
er fregn undir fyrirsögn-
inni „Dráttarvagn Slippsins bil
ar í annað sinn.“ Þar er þess
getið, að Júpíter hafi xunnið af
dráttarbrautinni vegna þess að
vagninn hafi brotnað. Sama er
gefið í skyn að skeð hafi með
v. is. Esjiu. Það er eikki rétt. Við
uppsetningu Esju brast biti í
vagninum, en að öðru leyti
gekk ekkent úr iskorðum. Þegar
er þess var vart, var dráttar-
vél vagnsins stöðvuð og skipið
síðan sett á flöt á venjulegan
hátt.
Enn fremur segir í sömu
fregn, að það sé talið einstakt
að ekki skyldi hljótast slys af
þessum atburðum. Væntanlega
er þá átt við slys á mönnum.
En það er misskilningur. Jafn-
vel þó vagninn hefði brotnað
svo, að Esja hefði nunnið í sjó
fram, má fullyrða að það myndi
ekki hatfa orðið mtöinniulm að
slysi, því þess er jafnan gætt,
að menn séu ekki aftan við vagn
inn eða í honum er skip eru
dregin á land-
Slippfélagið hefir s. 1. 40 ár
tékið á land skip svo þúsund-
um skiptir og er mér ekki kunn
ugt um að á því tímabili hafi.
orðið eitt einasta alvarlegt slys
þó bilun á tækjum hafi eðlilega
komið fyrir.
ReykjavOi, 3. júní 1945.
Sig. Jónsson.
I
GOLFIÐ:
Firmakeppnin langt
komin
AÖeins sex keppend-
ur eftir af áttatíu
TWj Ú er fjórðu umferðmni í
firmakeppni Golfklúbbs-
ins lokið, og lauk henni á
mánudagskvöldið. Eru nú því
aðeins eftir ósigruð sex firmu,
eða óleiknar 3 umferðir. Þau
^firmu, sem nú eru eftir og
keppa saman í 5. og næstu
uinferð, eru þessi:
L. Storr (Ásgrímur Ragnars)
gegh Helgi Magnússón & Co
(Helgi Eiríksson). Hljóðfærav.
Sigríðar Helgadóttur (Sigurður
Guðjónsson) gegn Heildverzl.
Berg (Dr. Halldór Hansen). A1
menna byggingafélagið h.f.
(Hans Hjartarson) gegn Tjarn-
arcafé (Jakob Hafstein).
Þessi umferð verður leikin í
dag og á morgun, en 6. og
næstsíðasta umferð fer fram
; á fostudag eða laugardag. Úr-
slitin sennilega náestk. sunnu-
dag.
Veðrið að undanförnu hefur
verið sérstaklega hagstætt
fyrir keppni þessa, endur hef-
ur hún farið prýðilega fram og
leikir yfirleitt verið mjög
jafnir.
Vanalega fer Keppnin fram
á tímabilinu frá kl. 5 til 7 sd.
og ættu menn nú að nota tæki
færið og fylgjast með úrslit-
unum, sein óðum nátgast.