Alþýðublaðið - 09.06.1945, Qupperneq 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardasjinn 9. júní 1945
Hrakfarir kommúnisla
í Kaupfélagi
Siglfirðinga
Úrslit kosninganna
urðu 14 kommúnist-
ar og 46 andstæðing-
ar þeirra
Tillaga Þingvallanehtdar:
OSNINGUM
aðalfund
Kaupfélags Siglfirðinga er
tnú lokið með þeim úrslitum að
kommúnistar gjörtöpuðu ]>eim.
Fengu þeir aðeins 14 fulltrúa
kjörna, en andstæðingar þeirra
46. Óvíst er um kosningu
þriggja fulltrúa, sem fengu
jöfn atkvæði áf tveimur list-
um.
Aðalfundur félagsins átti að
koma saman í fvrrakvöld, en
honum mun hafa verið frestað
vegna mikilla anna við ýmsar
framkvæmdir í bænum.
Það er jafnvel búizt við því,
að kommúnistastjórnin í kaup-
félaginu segi af sér á aðalfund-
inum, eftir að hafa fengið á sig
þetta ótvíræða vantraust' frá
meðlimum félagsins.
Bein iénasar Hallgrímuon
heim og jarðsett á Þmgvöllumi
I
Þingyallanefnd skorar á ríkisstjérnina að hefja
undirbúning þess sfrax.
Viðtal við Harald Guðmundsson um fyrir-
hugaðar framkvæmdir á ÍÞingvöllum.
Haraldur Guðmundsson skýrði
Alþýðublaðinu frá þessu í gær,
er það sneri sér til hans og
Samningar við Breta;
Slæðing tundur
svæðanna hér vi
En óvíst hvenær því verki verður lokið.
UNDANFABNA DAGA hefur ríkisstjórnin samkvæmt
upplýsingum, sem Alþýðublaðið fékk í gær hjá sam-
göhguímálaráðherra, stasðið í samningáumleitunúm við
hrezku flotastjórnina um slæðingu tundurdufla hér við
landi, og hefur flotastjórnin tekið mjög vel í að takast það
nauðsynjaverk á hendur svo fljótt sem unnt sé.
Ekki mun þó liggja rveitt fyrir um það enn, hve langan
tíma það muni taka að slæða upp tundurduflin og hreinsa
siglingaleiðirnar svo afr öruggar séu.
INGVALLANEFND, en hana skipa alþingismennirnir
Haraldur Guðmundson, Jónas Jónsson og Sigurður
Kristjánson, ritaði forsætisráðherra bréf á 100 ára greftrun-
arafmæli Jónasar Hallgrímisonar. Skoraði nefndin á ríkis-
stjómina að gera ráðstafanir til þess að leifar Jónasar Hall-
grímssonar verði fluttar hingað heim svo fljótt sem kostur
er á og jarðsettar í grafreitnum á Þingvelli.
spurði hann um störf Þingvalla
nefndar og framkvæmdir á
Þingvelli.
Haraldur Guðmundsson sagði
ennfremur: Aðalframkvæmdin,
sem nú fer fram á Þingvélli, er
að byrjað er að vinna að veg-
arlagningu frá þjóðveginum við
Kárastaði niður í Kárastaðanes,
þar sem norræna félagið hef-
ur fengið land undir hina vænt
anlegu norrænu höll, en gert er
ráð fyrir, að því sem mér hef-
ur verið sagt, að eitthvað verði
byrjað á byggingarframkvæmd
um á þessu sumri. Vegur þessi
verður um 2 km- á lengd og
liggur hann meðfram sumarbú
(staðalSöndunum, sem úthlutað
hefur veri.ð ofan til við Kára-
staðanes og þar í grennd. Þá er
gert ráð fyrir þvi, að gangstíg-
urinn, sem í fyrra var lagður í
brekkunni milli Almannagjár
og Þingvallavatns, verði fram-
lengdur að þessum nýja vegi.
Þá sagði Haraldur Guðmunds
son ennfremur: Jarðirnar Kára
staðir, Brúsastaðir, Svartagil
og Arnarfell eru allar í eigu
hins opiribera og liggja. að
þjóðgarðinum. En auk þess
liggur land jarðarinnar Gjá-
bakka einnig að þjóðgarðinum.
Byrjað vsrður á bygg-
ingu síldarverksmfðju
á Skagasfrönd innan
skamms
U
M ÞESSAK MUNDIR er
vinna að hefjast ,við síld-
arverksmiðjú, sem reist verður
á Skagaströnd.
Verksmiðjan verður byggð
þannig, að auðvelt verði að
stækka hana, en fyrst til að
byrja með er gert ráð fyrir að
hún geti unnið úr 5000 málum
á sólarhrinig.
Gert er ráð fyrir, að verk-
srniðjan verði fullgerð í byrjun
síldveiðitímans 1946. Vélar og,
annað til verksmiðjunnar héfur
verið pantað frá Svíþjóð.
Hjónaband
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af séra / Jón Thoroddsen,
Hólmfríður Pálmadóttir og Bjárni
Ólafsson rafvirki. Heimil brúð-
hjónanna er á Hringbraut 182.
Þetta mál er nú að vonum
mjög rætt á meðal manna hér á
landi, enda um brýna og að-
kallandi nauðsyn að ræða eins
og sjá má á viðburðum siðustu
dlaga, þegar tveir togarar hafa
fengið tundurdufl í vörpur
sinar.
í gær sneri Farmanna- og
fiskimannasamband íslands sér
bréflega ti.l ríkisstjórnarinnar
út af þessu máli og brýndi fyr-
ir henni nauðsyn þess að haf-
izt yrði banda um slæðingu
tunduflasvæðanna sem allra
fyrst.
Bréf sambandsins er svo-
hljóðandi:
„Vér viljum allra virðingar-
fyllst vekja athygli hins háa
ráðuneytis á því, að oss var
tjáð í viðtali við ráðuneytið í
dag, að eigi væri vist hvenær
eða hvort tundurduflabelti þau,
er lögð voru hér við land á
striðstímanum af hernaðaraðil-
um þeim, er hér höfðu bæki-
stöðvar, yrðu tekin upp, og þar,
eð nýlega hefur verið tilkynnt,
að Þjóðverjar hefðu lagt hér
duflum á tveipi stöðum, háðum
i alfaraleið skipa, og ennfrem-
ur fneð því, að nýlega hefur
legið við stórslysi á svæði þvi,
er Bretar lögðu á duflum fyrir
Vestfjörðum, viljum vér benda
á, að hér getur verið mjög al-
Frfi. á 7. sáðu.
Margt bendir til þess, að heppi'
legt væri áð umráð allra þess-
ara jarða yrðu i höndum eins
aðila með tilliti til afnota þjóð-
garðsins milli Öxarár og Hrafna
gjár fyrir almenning og ýmsar
framkvæmda í sambandi við
hann-
Allmarg^ir sumarbústaðir hafa
verið byggðir í umhverfi Þing-
valla á undanförnum árum Og
eftirspurnin eftir lóðum er mik
il og fer sífellt vaxandi.
Miklar framkvæmdir
Vinna við liina nýju
síldarverksmiðju
er að hefjast
MIKLAR OG MARGVÍSLEG
AR firaimlkvæmdir enu niú á
Siglufirði. Aðalverkið, bygging
nýrra síldiarverjkEimiðju með 10
þúsinnd miáila aiftköstiuim er að
hefjast. Þá er og uminið að ‘því
að auka vatnsvei.tuna og er vatn
ið leitt úr Skarðsdal og niðaar
í bæinn. Mun þessi framkvæmd
kosta um 500 þúsundir króna.
Þá er nú luminið af ikappi að
því að uindiiirbúa' síMarverksmiðj
urnar undir síMarverítiðina.
Haraldur Guðmundsson
Deilan um síldveiöi-
kjörin:
Varasáitasemjari,
Torfi Hjarlarson,
reynir sæflir
Kennaraskólanum
ætlaður staður á
Skólavörðuholfinu
OÆJARRÁÐ hefur sam-
þykkt að ætla lóð und-
ir kennaraskóla og æfinga-
skóla í sambandi við hann
á Skólavörðuholtinu, vest-
an Barónsstígs og norðan
Eiríksgötu, norður að lóð
fyrirhugaðrar gagnfræða-
skólabyggángar. Lá fyrir
bæjarráði bréf frá kennara-
skólastjóranum, þar sem
falast var eftir þessum stað.
F
ÉLAGiSMÁLARÁÐH'ERRA
betf'ur íalið varasátit-aisieimj-
'ara rfikáisins, Torfa Hjiartarísymi
tollát-jióra, að -taika deiluimlál sjó
manna og útgerðarmanna um
kjörin á sildveiðunum til með-
ferðar-
Mjun isiáttarsemjlariinai ræða
við fiulOitrúa útger-ðanmainna og
sjómanna nú um helgina.
Guðmundi Jénssyni
sðngvara boðin skóla-
vist í Ameríku.
él UÐMUNDI JÓNSSYNI
* söngvara liefur nýlega
borizt bréf frá Miss Samoiloff,
dóttur Lazar Samoiloff söng-
kennara, sem er látinn fyrir
skömmu, en hann var kennari
Guðmundar, er hann dvaldi í
Ameríku í fyrra. í bréfi þessu
er Guðmundi boðin ókeýpis
kennsla við söngskólann.
Miss Samoiloff hefur nú tek
ið við rekstri söngskóla föður
síns og hefur hún ráðið nokkra
nýja kennara að honum til við-
bótar þeim, sem fyrir voru.
Guðmundur hefur ákveðið að
taka boðinu og fer hann vænt-
anlega utan í haust.
Auk söngnámsi.ns mun Guð-
mundur stunda tungumálanám
og eýmig kynna sér leiklist.
Tiíraunir með niðursuðuvörur
úr úrgangsfiski
Árangur af sfarfi dr. Jakobs SigurÖssonar
í þjónustu fiskimálanefndar.
Þ
Fiskimálanefnd hefur nú
nýlega sent ríkisstjórninni
eftirfarandi greinargerð.
AÐ SORGLEGA ÁSTAND
hefur ríkt á undanförnum
árum, að piestum hlutanum af
úrganginum frá flökunarstöftv-
um og. hraðfrystihúsum á ís-
landi hefur annað hvort verið
■beinlínis fleygt, eða þá að mjög
ófullnægjandi verkunaraðferð-
ir háfa verið notaðar til þess
að gera úr honum mjöl og á-
burð. Efnatap það, sem af þessu
hefur leitt, hefur verið gífur-
legt, og verðmæti, sem svara
mörgum milljónum, hafa farið
forgörðum.
í sambandi vi.ð nýtingu þessa
úrgangs hefur helzt verið gert
ráð fyrir að framleiðsla á fóður
mjöli mundi gefa beztu úrlausn
ina. Vélar til þessa eru þó víð-
ast ekki til. Auk þess má gera
ráð fyrir að úr hinum mikla og
ágæta fi.ski, sem skilinn er eftir
á hausum og þunnildum og á
hryggjum við flökunina, mætti
tilreiða vörur til manneldis, ef
hæfilegar verkunaraðferðir
fyndust- Undanfaríð hafa verið
gerðar nökkrar tilraunir til
þess að framleiða niðursuðTÍr
vörur til manneldis úr þessu
hráefni. Árangri þessara til-
rauna er i stuttu máli lýst hér
á eftir.
Magn af hráefni:
Það er almenn reynsla, að
þegar slægður þorskur með
haus er tekinn til flökunar, verð
ur þyngd flakanna hér um bil
40% af þyngd fi.sksins sjálfs.
60% fara þess vegná forgörð-
um með úrganginum, þ. e- haus,
Fryggjum, þunnildum o. s. frv.
Ef fryst væru árlega 30,000 af
flökum, yrði því úrgangurinn
hér um bil 45,000 tonn- Þessi
vara er að 'því leyti frábrugðin
tilsvarandi úrgangi víða annars
staðar, að fiSkurinn er yfirleitt
stærri. Þunnildin eru þvi til-
tölulega þykkari, og hausarnir
og dálkarnir matarmeiri. Verk
un er þess vegna auðveld'ari.
Verkunaraðferðir:
Hingað ti.1 hefur ekki þótt
ráðlegt að reyna að ná fiskinum
úr þunnildunum eða úr haus-
unum vegna þess, hve gífnrlega
seinlegt það mundi vera. Kostn
aðurinn við þetta yrði þess
vegna alltof hár, og miklu
Frh. á 7. síðu.