Alþýðublaðið - 27.07.1945, Síða 2
2 ,
Miklir erfiSíeikar að
fá fiugfar frá
Svíþjóð fil íslands.
Verst fyrir þá, sem
koma frá Dan-
mö'rku og Noregi.
SENDIRÁÐ ÍSLANDS 7
Stokkhólmi hefur til-
kynnt að það sé miklum
örðugleikum bundJið að út-
vega öðrum flugfar til ís-
lands en þeim, sem fengið
hafa fiugfar frá íslandi til
Svíþjóðar. Erfiðast er að
greiða fyrir þeim, sertx koma
frá Danmörku og Noregi og
er viðbúið að þeir þurfi að
bíða talsverðan tíma eftir
flugferð heim til íslands.
Fundur í þingmanna-
sambandi Norður-
lastda í Kaupmanna-
hðfn.
INGMANNASAMBAND
Norðurlanda heldur fund í
Kaupmannahöfn 10.—11. ágúst
Sækja fund þennan fjórir ís-
Ienzkir alþingismenn þeir
Bernhard Stefánsson, Guð-
mundur í, Guðmundsson, Gunn
ar Thoroddsen og Kristinn
Andrésson. í för með þeim
Vterður Jón Sigurðsson frá
Kaldaðarnesi, skrifstofustjóri
alþingis, og verður hann ritari
nefndarinnar.
Síðasti ráðsfundur •þing-
mannasambandóins var háður
í Oslo, en fulltrúafundur þess
var fyrirhugaður á íslandi ár-
ið 1940, en af honum gat ekki
orðið vegna Evrópustyrjaldar-
innar.
51 þáttfakandi frá 9 íþróftafé-
lögum keppa á drengjameistara-
;v■ ■, ; ' [' ■■■'. . " •: .. . ■■'■'."■ . % •*• ■ ■ ■ '
♦
Mótið verður háð á laugardag og sunnudag
------4------
DRENGJAMEISTARAMÓTIÐ í ár hefst klukkan 5 næst
komandi laugardag og heldur áfram á sunnudag. Eru
þátttakendur þess 51 frá 9 félögum og samböndum. Keppt
verður í fjórtán greinum. Knattspyrnufélag Reykjavíkur sér
um mótið að bessu sinni.
í 10þ metra hlaupi eru sextán
þátttakendur skráðir til leiks
og má af þeim nefna sem lík-
legasta til sigurs þá Hall
Símonarson, Hauk Clausen
og Örn Clausen frá í. R., Hall-
dór Sigurgeirsson frá Ármanni
og Braga Friðriksson, Björn
Vilmundarson og Stefán Pét-
ursson frá K. R.
í 400 metra hlaupi eru
skráðir sjö þátttakendur og
munu þeir Hallur Símonarson
Í.R., Sveinn Björnsson, KR og
Svavar Gestsson, ÍR þar líkleg-
astir til sigurs.
í 1500 metra hlaupi eru
skráðir átta þátttakendur og
má þar telja láklegasta til sig-
urs þá Stefán Gunnarsson, A.,
Gunnar Gíslason, Á., Aage
Steinsson, ÍR og Einar Markús-
son KR.
í 3000 metra hlaupi eru
skráðir átta þátttakendur, m.
s. þeir Gunnar Gíslason, Á,
Stefán Gunnarsson Á, Aage
Steinsson, ÍR og Einar Markús-
son KR.
í 4x100 metra boðhlaupi
keppa sveitir frá Ármanni og
KR.
í 110 metra grindarhlaupi
eru skráðir sex keppendur, m.
a. Ólafur Níelsen Á, Svavar
Gestsson ÍR, Haukur Clausen
ÍR, Björn Vilmundsson KR og
Ásgeir Einarsson KR.
í hástökki eru skráðir sex
keppendur, þeir Kolbeinn
Kristinsson, Selfossi, Árni
Gunnlaugsson FH, Björn Vil-
mundsson KR, Haukur Clausen
ÍR, Örn Clausen ÍR og Halldór
Lárusson, Aftureldingu.
í þrísitökki keppa fimm, og
munu þeir Björn Vilmundarson
KR og Halldór Sigurgeirsson Á
þar líklegastir til sigurs.
í langstökki eru skráðir átta
þátttakendur, m. a. Björn Vil-
mundsson KR, Bragi Friðriks-
son KR og Halldór Sigurgeirs-
son Á.
í stangarstökki keppa fjórir
þátttak., tveir frá Selfos'si og
tveir frá Hafnarfirði, og mun
Kolbeinn Kristinsson frá Sel-
fossi þar líklegastur til sigurs.
í kúluvarpi eru skrásettir
ellefu þátttakendur, m. a.
Bragi Friðriksson KR, Vilhjálm
ur Vilmundarson KR, Guð-
mundur Guðmunclsson KR,
Sigurjón Ingason, Hvöt, Ás-
björn Sigurjónsson, Á og Hall-
dór Lárusson, Aftureldingu.
í kringlukasti eru skráðir
tólf þátttakendur, og munu þar
líklegastir til sigurs þeir Bragi
Frlðriksson KR, Vilhjálmur
Vilmundarson KR, Sigurjón
Ingason, Hvöt, Ásbjörn Sigur-
jónsson Á, Halldór Sigurgeirs-
son Á, Örn Clausen ÍR og Sig-
urður Kristjánsson FH.
í spjótkasti eru skrásettif
ellefu þátttakendur, og munu
þar líklegastir til sigurs þeir
Ifalldór Sigurgeirsson Áí Hall-
dór Lárusson, Aftureldingu,
Sveinn Halldórsson, Selfossi
og Örn Clausen ÍR.
í sleggjukasti eru skráðir
fimm keppendur, þeir Pétur
Kristbergsson FH, Guðmundur
Guðmundsson KR, Þórður Sig-
urðsson KR, Bragi Friðriksson
KR og Sigurjón Ingason, Hvöt.
Eins og sjá má, taka margir
af efnilegustu drengjum lands
ins þátt í móti þessu, en þó eru
nokkrir fjarverandi eða komn-
ir af drengjaaldri. Vestmanna-
eyingar mæta t. d. ekki til
mótsins og ekki Austfirðingar,
en þeir hafa efnilegum drengj-
um á að skipa. Tveir af efni-
legustu drengjunum frá í fyrra
eru komnir af drengjaaldri og
taka því ekki þátt í mótinu, en
methafarnir í stangastökki og
þrístökki, þeir Torfi Bryngeirs-
Framhald á 7. aíthi.
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Föstudagurinn 27. júlí 1945
Fiskiðnaður Islendinga og fram
ViÓtal við Bergstein A. Bergsteinsson
freðfiskmatsstfóra, nýkominn að vestan.
IIIÐ íslendingar höfum
* mjög góða aðstöðu til
þess að geta framleitt fyrir
freðfiskmarkaðinn, ef okkur
tekst að ná jafnmikilli full-
komnun í tækni og sérstak-
lega útbúnaði varanna fyrir
markaðinn og Bandaríkja-
menn hafa. Hráefni okkar
fiskurinn, kemur oftast nær
alveg nýr í frystihúsin og það
er mikils virði. Við verðum
að aíla okkur allra fullkomn
ustu tækja og vanda betur
til umbúða og útbúnaðar var
anna en við höfum áður gert.“
Þetta • sagði Bergsteinn Á.
Bergsteinsson, freðflsksmat-
stjóri í samtali við Alþýðublað-
ið í gær, en hann er f yrir
nokkru kominn heim frá
Bandaríkjunum. Þar dvaldi
hann í tæpa fjóra mánuði, ferð-
aðist til allra helztu fiskveiði
og fiskiðnaðarstaða á vestur-
og austurströndinni og kynnti
sér eftir föngum fiskiðnað
Bandaríkjamanna, en þeir hafa
eins og kunnugt er náð mikilli
fullkomnun í hraðfrystingu og
niðursuðu alls konar matvæla
og þá ekki hvað sízt fiskjar og
fiskafurða.
Bergsteinn Á Bergsteinsson
sagði ennfremur:
„Ég fór út 15 marz fyrir at-
beina atvinnumálaráðuneytisins
og kom heim 6. júlí. Markmið
með för minni var að kynnast,
eins og mér væri frekasl unnt
á nokkrum mánuðum, fiskiðn-
aði Bandarikjamanna og þá í
fyrstu röð því sem beinlínis
sriertir starf mitt: vöruvöndun
þeirra og útbúnaði hraðfrystra
fiskiflaka, bera saman aðferðir
okkar og fyrirkomulag og kynn
ast nýjungum í verksmiðjunum
vestra. Ég vona að árangur
verði af för minni, svo að það
sem ég kynntist og lærði geti
orðið til góðs fyrir þennan þýð
ingarmikla atvinnuveg okkar
Islendinga. — Ég fór til þeirra
borga, þar sem þessi iðnaður
er stórfelldastur, en mér var
að ýmsu leiðbeint af stofnun-
inni: „Fish and wildlives ser-
vice“, en hún hefur skrifstofur
í öllum helstu fiskiðnaðarborg-
um Bandaríkjanna. Aðallega
var ég í New York, Boston og
Gloucester á austuríftröndinni,
en á vesturströndinni í San
Pedro, Los Angeles, San Frans-
isco, Astoria, Seattle, Chicagö
o. s. frv. Annars kom ég og til
,margra annara borga, þar á
meðal Washington. — í öllum
þessum bæjum og borgum er
mjög mikill fiskiðnaður. Sums-
staðar er aðallega niðursuða
fiskjar og fiskafurða, en annars
staðar hraðfrysling. Ég kynnti
mér hvorttveggja iðnaðinn eftir
þvi sem föng voru á, en þó
lagði ég að sjálfsögðu aðalá-
herzluna á að kynnast sem bezt
öllu því sem lýtur að haðfryst-
ingunni. Hraðfrystingiin er að-
allega í bæjum og borgum á
vesturströndinni, á svæðinu
frá Astoria og til landamæra
Kanada. — Lengst vax ég í
Boston, Glouchester og Seattle.
Eins og ég hef drepjð á áður
leggja Bandaríkjamenn ákaf-
lega mikla áherzlu á snyrlilega
Bergsteinn A. Bergsteinsson.
meðferð vörunnar, og þá fyrst
og fremst umbúðirnar, enda
eru þær þannig, að þær tryggja
vöruna gegn því að spillast,
jafn vel þó að hún þurfi að
flytjast langar leiðir og geym-
ast. Þeir hafa íþað og ríkt í huga
að umbúðirnar séu sem hag-
anlegastar fyrir húsmæðurnar
log leggja áherslu á að hús-
móðurin geti, er hún gengur
í búðir, farið í matvöruverzlun
og keypt sér pakka af frystum
fiski og látið hann í lösku sína,
jafn vel hversu fín sem taskan
er. .Er það yfirleitt skoðun
Bandarikjamanna, að eftir styrj
öldina þegar heimilislif og
heimiiishald færist aftur í fast-
ar skorður, þá muni kveða
miklu meira að þvi en áður að
húsmæður kaupi matvörur, sem
eru næstum albúnar,. i umbúð-
unum, á eldhússborðið. Þetta
tel ég ákaflega mikilsvert og ég
álít að á þessu verðum við ís-
lendingar að hafa mjög vak-
Framhald á Í. síðu.
Ferðafélag Vesf-
mannaeyjar efnsr tii
farar á Kerlingarfjöfl.
Félagið var stofnað fi
vor og telur urn #®
félaga.
FERÐAFÉLAG Vestmanna-
eyja var stofnað sl. vor og
hefur það starfað í sumar. Fé-
lagið hefur aðallega starfað aS
því að efna til ferðalaga um
úteyjar og hefur verið góð
þáttitaka í þeim.
Síðastliðinn laugardag efndii
félagið til skemmtifarar fyrir
félaga sína í Hvítanes, á Hvera
velli og i Kerlingarfjöll. Tók
fcrðin fjóra daga og var henni
lokið að Selfossi. Fóru flestir
þaðan heimleiðis til Eyja, en
nokkrir fóru hingað til Rvíkur.
í Ferðafólagi Vestmanna-
eyja eru um 80 félagar, en
stjórn þess skipa: Haraldur
Guðnason formaður, Jónas St.
Lúðvíksson ritari, Þorsteinn
Johnson gjald'keri og með-
stjórnendur Vigfús Olaf sscm
og Hermann Guðjónsson.
Frá íslendingum og
féiagi þeirra í Van-
eouver.
ISLENDINGAFÉLAGIÐ f
Vancouver fór í skemmti-
för þann 17. júní í tilefni af
þjóðhá'tíðinni. —- Fyrir milli-
góngu L. H. Thorlákssonar
vararæðismanns íslands þar í
borg hafa ríkisstjórninni borizt
kveðjur félagsins og heilla-
óskir i tilefni dagsins. Kveð-
ast íslendingar stoltir af þeim
framförmn sem orðið hafa á.
fyrsta ári lýðveldisins og þeirri
viðurkenningu, sem ísland hafi
hlotið.
Einar Krisfjánsson óperusöngvarí
sppr nú fyrlr brezka
Hasin hefur átf helma í Hamhorg öll sfríös-
árin eg alltaf starfað við éperur.
|P NGAR fregnir höfðu bor
izt af Einari Kristjáns-
syni óperusöngvara í nokkur
undanfarin ár, þar til síðustu
daga* að faðir hans, Kristján
Helgason verkamaður fékk
nokkrar fregnir af honum
með Esjufarþega og í g'ær um
utanríkismálaráðuneytið.
Einar Krisljánsson var bú-
settur i Hamborg, er styrjöldin
brauzt út og þar hefir hann
verið búsettur síðan. Þegar hin
mikla loftárás var gerð á þá
'borg og hún næstum því lögð í
rústir var Einar með fjölskyldu
sina í Tyrol. Síðan lenti Einar
og fjölskylda hans í mikilli loft
árás, stóð Einar á götu meðan
loftárásin stóð, en kona hans
og börn hans tvö voru í loft-
varnaskýli. í þessari loftárás
hrundi hús 'það, er Einar bjó í
og hann missti alla búslóð sína.
Er hann nú aftur búinn að koma
sér upp heimili.
Einar hefir ætíð síarfað á
stríðsárunum sem fyrsti tenór
óperunnar í Hamborg, en hún
Einar Kristjánsson.
hefír starfað þrisvar í viku. —
Nú hefir Einar verið ráðinn til
að syngja fyrir brez'ka hermennt
í Norður-Þýzkalandi. Einar
Kristjánsson mun ekki geta
fengið brottfararleyfi frá Þýzka
landi, eins og stendur, en 'harm
mun þó hafa fullan hug á að
koma heim til íslands, þó að
ekki væri nema í stutta kynnis-
för.