Alþýðublaðið - 28.07.1945, Blaðsíða 6
Laugai-dagur 28. júlí 1945,-
4 ár í loftvamabyrgjum
ALÞYDUESLAStO
Bing (rosby og synir hans.
í>etta er hinn heimsfrægi skopleikari, iBng Crosby, ásamt sonum sínum fjórum. Elzti son-
urinn' er ellefu ára gamall, en sá yngsti sex.
HVAÐ SEGJAHIN BLÖÐIN’
Framhald af 4 sáðu.
I
gegn frambjóðanda Alþýðu-
flokksins. Hvilikur sluðningur!
Þjóðviljinn birtir í gær langa
grein urn „Kvenfrelsi og ástir“
eftir Einar Braga nokkurn Sig
urðsson, þekktan farandpi'édik
ara kommúnista. Þar segir, í
nafni þeirra:
„Við viljum reyndar sízt af öllu
að konur hætti að eignast börn,
Jjví að öll börn eru okkur kær,
enda ekki um aðra aðferð að ræða
til að viðhalda byggð á hnettinum.
En við viljum heldur ekki missa
af sérhæfileikum slikra kvenna
sem Sigríðar Undset, Selmu Lag-
arlöf og Pearl S. Buck, aðlisfræð-
ingsins heimsfræga, Madame Curie
eða jafn mikilhæfra kvenna ís-
lenzkra sem Ólafíu Jóhannsdóttur,
Sigrúnar Blöndal, Theódóru Thor
oddsen, Bríetar Bjarnhéðinsdótt-
ur, Katrínar Thoroddsen og Lauf-
eyjar Valdimarsdóttur, svo að
nokkrar afbragðskonur séu nefndar
Þess vegna komum við málum svo
fyrir, að við þurfum hvorki að
verða af hæfni kvenþjóðárinnar til
heimilisstarfa né heldur láta barn
eignir stöðvas . . .“
Það er sennilega rétt athugað
hjá þessum boðbera kommún-
ismans, að ekki verði viðhaldið
byggð á hnettinum, ef konur
hætti að eignast 'börn. Og því
mun öllum létta við að heyra,
að kommúnistar ælla ,,að koma
málum svo fyrir,“ eins og hann
kemst að orði, að barneignir
stöðvist ekki!
íþröttamót Ung-
mennasamhands
Borgarfjarðar.
IÞRÓTTAMÓT UNG-
MENNASAMBANDS BORG
ARiFJARÐAR var haldið hjá
Ferjukoti í þessum mánuði.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
100 m. klaup:
Jón Berþórsson, Hv. 12,2
Sveinn Þórðarson, R. ‘12,5
Óttar Þorgilsson, R. 12,7
400 m. hlaup:
Jón Bergþórsson, Hv. 57,2
Sveinn Þórðarson, R. 57,2
Aðalbj. Benediktss., Hv. 58,5
Hástöbk:
Jón Þórisson, R. 1.65
Guðbr. Skarphéðinss., Hv. 1.60
N
Óttar Þorgilsson, R. 1.55
Langstökk:
Kári Sólmundarson, Sk. 5.79
Sveinn Þórðarson, R. 5.75
Birgir Þorgilsson, R. 5.54
Þrístökk:
Jón Þórisson, R. 12.59
Birgir Þorgilsson, R. 12.54
Sveinn Þórðarson. R. 11.92
Spjótkast:
Guðm. Magnússon, R. 40.22
Sigurður Eýjólfsson, H. 37,64
Frðrik Jónasson, í . 37,51
Kringlukast:
Pétur Jónsson, R. 33.00
Sigurður Eyjólfsson, H. 31.26
Kristófer Helgasqn, í. 28.75
Kúluvarp:
Kristófer Helgason í. 11.27
Björn Jóhannesson, R. 10,95
Kárj Sóimundarson, Sk. 10.89
100 m. bringusund:
Bened. Sigvaldason í. 1:29,2
Kristl. Jóhannesson, R. 1:32,7
Sig. Eyjólfsson H. 1:37,3
100 m. frjáls aðferð:
Jón Þórisson, R. 1:29,1
Kiistján Þórisson, R. 1:37,1
Kristl. Jóhannesson, R. 1:38,8
50 m. frjás aðferð
(konur): j
Stemþóra Þórisdóttir, R 43,8
Sigrún Þorgilsdóttir, R. . 45,8
Margrét Sigvaldad., í 49,4
Sundið var þreytt í Hrepps-
laug, sem er 25 m. löng.
Mótið vann Umf. Reykdæla
með 39V2 stigi. íþróttafélag
Hvanneyrar fékk 9 Vz, Umf. ís-
lendingur 8, Umf. Haukar 5, og
Umf. Skallagrímur 4 stig.
DRENGJAMÓT
80 m. hlaup:
Guðmund. Þórðarson, R. 10,3
Kári. Sólmundarson, Sk. 10,4
Björn Jóhannesson, R. 10,5
2000 m. ihlaup:
Kári Sólmundarson, Sk. 7:31,0
Jón Eyjólfsson H. 7:31,2
Ólafur Ásgeirsson, 9k. 7:48,6
Hástökk:
Björn' Jóhannesson, R. 1.55
Birgir Þorgilsson, R. 1.52
Sigurður Helgason, í. 1,48
Langstökk:
Birgir Þorgiisson, R. 6,08
Kári Sóimundarson, Sk. 6.02
Guðm. Þórðarson, R. 5.45
Þrístökk:
Kári Sólmundarson, Sk. 12.05
Birgir Þorgilsson, R. 11.64
Kristófer Helgason, í. 11.09
Kringlukast: ■
Kristófer Helgason, 1 33.98
Sigurður Helgason, í. 32.01
Andrés Jóhannesson, R. 31.44
Andrés er aðeins 13 ára og
er afrek hans því ágætt.
Kúluvarp:
Kári Sólmundarson, Sk. 13.07
Krisíófer Helgason, í. 12.77
Jón Ólafsson, Sk. 12.73
50 m. sund frjáls aðferð:
Kristján Þ. Þórisson, R. 37,1
Hel’gi Jakóbsson, D. 38,1
Sigurður Helgason, í. 39.5
Sigurður synti bringusund
og má tími hans teljast góður.
Drengjamótið vann Umf.
Reykdæla á 19 stigum. Umf.
Skaliagrímur hlaut 15. Umf. ís
ilendingur 10, Umf. Dagrenn-
ing 2 og Umf. Haukur 2 stig.
40 þúsund mál síldar
iil Kjalleyrar.
SÍLDARBRÆÐSLUYERK-
SMIÐJAN Á HJALTEYRI
hefur nú tekið á móti 40, þús.
málum síldar. En frá Hjalteyri
stunda 15 bátar veiðar í sum-
ar. Síldveiði hefur verið mjög
treg síðustu daga.
Tilkynning:
6295
er símanúmer mitt fram-
vegis
Fatapressan
P. W. Biering
Afgreiðslan: Traðakots-
sundi 3
(tvílyfta íbúðarhúsið).
Hinningarspjöid
Barnaspítalasjóðs Hrings
ins fást í verzlun frú
Ágústu Svendsen. Aðai
stræti 12 iffiil
Framh. af. 5. síðu
hjálpar á þessum miklu neyð-
artímum, víkkuðu starfssvið
sitt smátt og smátt. Innan
skamms höfðum við tekið við
yfirstjórn í loftvarnabyrgjum,
sem voru í næsta 'nágrenni við
okkur. Samt sem áður hélt
kjallarinn undir kirkjunni
minni áfram að vera hötfuð-
bækistoð okkar, — og hið
raunverulega heimili mitt.
Svo opnuðum við neðanjarð-
ar-skemmtistað, sem alls var
opinn í 1688 nætur. Startfræksl-
an hófst þ. 9. september 1940.
Þarna var ekki mikið um
verðlagsbreytingar. Ekkert
kaupgjald var að borga, — eða
rekstrartap. Ristarbrauð ásamt
kjöti og fiski kostaði hálft
penny og brauðsneiðar með all-
góðum osti ofan á fengust fyrir
eitt penny.
Hið fórnfúsa og vingjarnlega
fólk, sem aflaði matarins, bjó
hann til og framreiddi hann í
háift-fimmta ár, tók aldrei á
móti minnsta smáskildingi fyr-
ir ómakið, hvað þá heldur
drykkjupeningum. —- Að gefa
sig í sjálfboðaliðsvinnu um sex
rnánaða tíma er annað en að
vinna dag eftir dag árum sam-
an og taka sér aldrei frí um
nokkra helgi eða á hátíðum. —
Eg sé það á dagbókum min-
um, að sýndaf hafa verið 656
kvikmyndir ókeypis í loftvarna
byrginu, sem ég starfaði við. —
Myndirnar hjálpuðu mikið til
við að stytja þeim stundir, sem
verst leið.
Allmargt, næsta ótrúlegt,
hefur komið fyrir í lotftvarna-
byrgjunum. Þar getur manni
lærzt a'ð bera virðingu fyrir
þeirn, sem maður hafðd jafnvel
ógeð á áður. Þar hef ég séð
þreyttan og jafnvel skelfdan
aðmírál stytta sér stundirnar
við að ræða við umrenninga og
ræfla, sem engrar mannvirð-
ingar. nutu. Þar hef ég einnig
séð þreytta daglaunakonu ganga
úr rúmi fyrir konu af háum
stigum.------
Enda þótt starf mátt liggi í
því að útbreiða kristna trú,
fannst mér það aldrei viðeig-
andi að láta fólk hlusta á trú-
arræður jáfnvel nauðugt. Fyrsta
boðorð mitt var þetta: „Hjlálp-
arstarf í lof tvarn abyr gjum
gangi fyrir guðsþjónustum í
loftvarnabyrgjum.“ 1
„Bíðum bara þangað til fólk-
:ð fer bess á leit, að yfir þvi
sé prédikað,“ hugsaði ég með
mér. „Bezt að þvinga engan til
ems eða neins.“
Enda fór svo, að í hverju
loftv arnabyrginu á fætur öðru,
æskti fólkið þess, að lesnar
væru kvöldbænir, — og ýmsar
kirkjur mættu vera hreyknar
af því, hversu almenn sú þátt-
taka var í hinum reglulegu
kvöldbænum, þar sem guði var
þakkað fyi’ir vernd hans á liðn-
um degi og hann beðinn um að
vaka yfir fóikinu á komandi
nóttu,
I loftvarnabyrgjunum voru
oft hin merkilegustu augnablik
í Mfi sumra einstaklinganna.
Tvísvar sinnum var útvarpað
frá aðalbyrginu mínu undir
kirkjunni, — í annað skiptið var
það á jólum. Margf merkra
manna kom þangað í heimsókn.
þeirra á meðal Wendell
Willkie.
Manni tamdist að taka jafnt
þátt í gleði og sorgum. Þrír vin-
ir mínir létust í loftvarnabyrgj-
um þeim, sem ég sá uim. En
hér hittust líka mörg ung-
mennin í fyrsta skipti, — ung-
ir menn og konur felldu hér
hugi saman og heitbundust; —
það féll oft í minn hlut að gefa
þau saman að iokum,
Við, sem lengst höfum lifað
saman í loftvarnabyrgjunum,
hötfum mörg hve: svarizt í eins
konar fóstbræðralag. Marga -
nóttina vorum við undir það
búin að taka dauðanum á sarnri
stund. En eftir að loftárásar-
hættan er um garð gengin,
mumm við þó ekki slíta vin-
áttuíböndin; það skyldi enginn
halda. Þau munu vara, og
jafnvel hnýtast æ fastar á ó-
komnum tíma.
Ur álögum.
tfrh. aif 4. sóðu.
þeirra eigin músarholu-útsýn-
is, en almenningur hér á landi
virðist hafa svo rótgróna and-
úð á þessu þröngsýna ofstækí,
að það nær engu fylgi. Þessí
frelsisþrá á sér sterkar rætur
í Ynenningu vorri. Höft á mál-
og skoðanafrelsi einstaklings-
ins myndu hér ekki einungÍE
bitna á hinum svokölluðu
menntamönnum, heldur jafn-
framt á hverjum þeim alþýðu-
manni, sem koma vill opin-
berlega fram í ræðu eða riti.
Og þeir eru margir á íslandi,
miklu fleiri að tiltölu en með
stórþjóðunum, þar sem mikið
djúp er staðfest mill'i háimenn-
ingar og alþýðumenningar. ís-
lenzka menningin er fastar
byggð, gáfaður og fróðleiksfús
aíþýðumaður getur vel mynd-
að sér skoðun á henni, og þess
vegna stendur honum ekki á
sama um þau verðmæti, sem í
henn'i felast og sem tryggja
þróun hennar. Áf þeim ódæð-
um nazismans, sem þýzku
menntamennirnir vissu um,
sveið þeim víst ekkert sárar
en skoðanákúgunin. Atftur á
móti talaði ég við marga al-
þýðumenn, sem fannst það
engu máli skipta, þó að þekkt-
um vísindamönnum og rithöf-
undum væri bannað að koma
opinberlega fram í ræðu eða
riti. Sumum hefur víst ekki
fundizt það nema máfulegt á
þessa skýjaglópa. Alþýðan
þjáðist að vísu undir oki naz-
ísmans, en tafemarkanir hans á
andlegu frelsi skildi hún ekki,
af því að hún átti lít'il ítök í
þeirri menningu, sem þannig
var dæmd til dauða. Við shic
skdyrði veitist ofbeldisöflun-
um hægra að múlbinda
menntamenn en þar sem al-
þýðan á jafn ríkan þáttt í
menningu þjóðarinnar og 'hér
á landi. Og eins og oss er um
það hugað að gæta frelsis út á
við, eins verðum vér að
standa vörð um mál- og skoð-
anafrelsið. Vér þurfum að
leggja svo tryggan grundvöll
að Jdví, að það sé öruggt um
alla framtíð. Bezta tryggingin
er sú, að láta tengslin milli
hinnar svokölluðu men.nta-
mannastéttar og fróðleiksfúsr-
ar, sjálfmer ntaðrar alþýðu.
ekki rofna. Öll þjóðin barf aö’
gcta litið á menninguna sem.
sína ei.gn, svo að'hún sé reiðu-
búin að verja hana. ef með
þarf. Þegar andlegt freisi ein-
hverrar þjóðar er skert, þá er
menning hennar í veði, og
hættan er þá m'est. ef kúgun-
in stafar frá öflum innan
þjóðarinnar sjálfrar. Eg nýt
bess með ósegjanlegri gleði, að
þetta frelsi er nú með öllu ó-
skert hér hjá oss, og ég á mér
enga betri ósk íslandi til
handa, þegar ég hverf nú heim
aftur etftir 15 ára dvöl erlend-
is, en að menningarlegt og
stjórnimálalegt frelsi megi
verða ævarandi eign þjóðar-
innar.
Matthías Jónasson.