Alþýðublaðið - 09.08.1945, Síða 2
ALÞTOUBLAÐIÐ
Fimmtufíagíur 9. ' ágúst 1945
Gtsli Guðmundsson
segir af sér þing-
mennsku
Fréttatilkynning frá
ríkisstjórninni.
Gísli guðmundsson
alþingismaður hefir
sagt af sér þingmennsku sak
ir vanheilsu, og skal kosning
alþingsmanns í hans stað fyr
ir Norður-Þingeyjarsýslu
fara fram þriðjudaginn 18.
septemher n, k. Framboðs-
frestur er til 17. þ. m.
Notaðar hafa verið heim-
ildir í lögum til að fella nið-
ur auglýsingafrest, og frest-
ur til að leggja fram kjör-
skrár hefir verið styttur,
þannig að þær skulu fram
lagðar 5 vikum fyrir kjör-
dag. Lagt hefir verið fyrir
hlutaðeigandi yfirkjörstjórn
að undirbúa kosninguna, og
sjá um að hún fari fram lög-
um samkvæmt.
Fjórir bátar frá Akra-
nesi slunda síldveið
ar í Faxaflóa
Hafa aflað samtals
’1089 tunnur
Q ÍÐUSTU daga hefur veri.ð
allgóð veiði hjá þeim fjór-
um bátum, sem stunda síldveið
ar héðan í Faxaflóa, og hafa afl
að samtals 1089 tunnur. Eru bát
air þessir með reknet og hafa
aflað sem hér segir. hver um
siig.
Aldan, hefur farið 5 róðra og
aflað 181 tunnu, Ármann hef
ur farið 4 róðra, aflað 187 tunn
ur, Haraldur, hefur farið 7
óðra og aflað 410 tunnur og
Ægir hefur farið 6 róðra og
aflað 311 tunnur.
Aðal síldveiðin hefur verið
síðustu viku. Verður afli þess-
ara báta frystur til beitu.
Svbj.
Hörmulegt brunaslys h véSbít á
Olafsvík
------------
Fimm menn brenndnst mikið við véiaspreng
ingu, og einn þeirra mjög hættulega
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins Ólafsvík í gær.
ÞAÐ slys varð í Ólafsvík síðdegis í fyrradag, er verið var að
setja í gang vélbát þar á höfninni, að sprenging varð í vél-
inni og varð vélarhúsið brátt alelda. Maður sá, sem við vélina
var, Pétur Hjartarson að nafni, brendist mjög hættulega í andliti
og á höndum og verður fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Enn
fremur brendust fjórir menn aðrir, sem um borð voru í bátnum
er sprengingin varð, en brunasár þeirra eru ekki eins alvarleg og
Péturs. — Skemmdir á bátnum urðu talsverðar.
Tvelr færeyskir sfjórn-
málaleiélogar um
sjáifslæðismál ís-
leudlnga
Mótmæla ummælum
t dönskum blööum,
sem höfö eru eftir
Færeyingum
Frá Færeyingafélaginu hef
ur Alþýðublaðinu borist
eftiirfarandi tiiDkynining,
sem er skeyti, sem félag-
inu barst í gær frá for-
mönnum tveggja stjórn-
málaflokka.
17 EGNA ÞESS að færeysk-
V ur stjórmálamaður A.
Samuelssen og færeyskur blaða
maður Louis Zachariassen hafa
í viðtali við danska blaðið
Politiken 17. júlí sagt, að allir
Færeyingar teldu, að íslending
ar hefðu átt að bíða með að
Frh. á 7. síðu.
Nánari atvik að þessu slysi
voru þau, að þegar Pétur Hjart
arson, var að setja vél bátsins í
gang, en þetta var opin vélbát-
ur, sem hann átti, varð mikil
sprenging í véiinni um leið og
hún tók við sér og varð vélair-
húsið þegar. alelda. Varð Pét-
ur fyrir loganum og brendist
tmiki.ð í .andidii og á höndum og
handleggjum. Þegar sprenging-
in varð stóðu fjórir menn aðrir
fyrir utan vélarhúsi'ð og lutu að
dyrum þess, og urðu þeir allir
fyrir nokkum brunasárum,
bæði. í andliti og á höndum.
Þar sem enginn iæknir var
viðstaddur i þorpinu, varð að
vitja læknisins til Sykkis'hólms
Ólafs Ólafssonar, og kom liann
til Ólafsvíkur kl. 1 um nótt-
ina og með honum Jón Hjalta-
lín prófessor.
Á meðan hafði verið búið um
s'ár mannanna til bráðabirgðar,
og önnuðust það, þau Húlda
Snæibjörnsdóttir hjúkrunar-
kona og Sverrir Einarsson hót-
elstjóri.
Eru brunasár Péturs Hjartar
sonar, það alvarleg, að flytja
verður hann á sjúkrahús' í
Reykjavík.
OTTÓ
Samninaar hafnir milli
usam
Ríkissljórnin skoraði á þessa aðlla að reyna
ná samkomulagi
AUKA Búnaðarþmg kom saman hér í bænmn í fyrradag til
þess að ræða um verðlag á landbúnaðarafurðum. Ákvað síð-
asta Búnaðarþing að boða saman aukaþing síðla þessa sumars til
þess að ræða þessi mál. Þingið sækja allir búnaðarþings fulltrúar,
25 að tölu.
Nýtt ársril helgað bók-
mennium kvenna
Ríkisstjórnin snesri. sér ný- ♦
lega til stjórnar Alþýðusam-
bands íslands og Búnaðarfélags
íslands og fóru fram á að fulÞ
trúar þessara tveggja sambanda
neytenda og framleiðenda hæfu
samræður um verð landbúnað
arafurða og kaupgjald í sam-
ræmi við það og munu þessar
viðræður hafa hafist í gær.
F'ulllrúar Alþýðusambands-
ins, sem taka verður skýrt
fram, að eru 'tilnefndir af stjórn
Alþýðusamlbandsins einni, eru:
Hermann Guðmundsson, Gunn
ar Benediktsson og Þorsteinn
Pétursson.
Fulltrúar Búnaðarfélagsins
eru: Sigurður Jónsson frá
Arnarvatni, Þorsteinn Þorsteins
son, Búðardal og Hafsteinn
Pétursson á Gunnsteinsstöðum.
Ef samkomulag verður um
verðið á liandbúnaðarafurðum
milli þessara aðila mun ríkis-
stjórnin taka tillögur þei.rra til
athugunar og — ef hún sam-
þykkir niðurstöður þeirra,
leggja þær fyrir alþingi, sem á
tað koma saman 1. oklöber næst
komandi. *— Hinsvegar, ef Al-
þýðusambandið og Búnaðarfé-
lagið komast ekki að samkomu
lagi1, kemur til úrskurðar ríkis-
stjórnar og alþingis um mál-
íð.
Líklegt er að búnaðariþingið
sta’ndi ekki nema í fáa daga og
ljúki', þegar niðurstöður eru
fengnar um afstöðu þess til af-
urðaverðsins.
Kjötverðlagsnefnd hefur þó,
eins og kunnugt er fullt vald
til þess að ákveða verð á kjöti,
áður en hin raunverulega slát
urtíð hefst.
Síldarsöilun byrjuð
Dalvík
Frá fréttaritara Alþýðu-
blaðsins Dalvík í gær.
O YRSTA síldin á þessu
*• sumri barst hingað í gær-
kvöldi og nótt. Var síldin sölt
uð og var um 400 tunnur.
Es Caring, fyrsta erlenda
skipið, sem h'ingað kemur frá
Norðurlöndum, eftir stríðslok-
in, lagðist hér við hafnargarð-
ínn um síðustu helgi og af-
fermaði hér 4000 síldartunnur.
Kristján.
Embla bðrtir l|óö, sög
ur, frásageiðr @g
myfidir eftir ís-
lenzkar konur
N
ÝTT TÍMARIT hefur haf-
ið göngu sína. Embla, sem
á að verða ársrit heigað ís-
lenzkum skáldkonum, ungum
um og gömlum og flytur Ijóð
þeirra, sögur og frásagnk, —
Útgefendur Emblu eru þrjár
konur og segja þær í formáls-
orðum, að tilgangur ritsins sé
að „birta, sem fjölbreyttastar
ritsmíðar kvenna, fornar og nýj
ar. Einkum munum við gera
okkur' far um að ná til þeirra,
sem annars myndu ekki koma
verkum sínum á framfæri . . .
Við vitum, að ísland á margar
vel ritfærar konuir, og vonum,
að sem flestar þeirra sendi rit
inu eitthvað til birtingar, svo
að efni þess geti orðið fjölreytt
og vandað. Þótt ekki ,sé um
kvæði eða sögur að ræða, eig'a
flestar konur í fórum sínum
minningar, ferðasögur, frásög-
'ur úr daglegu lífi o. fl., sem þær
gætu fært í skemmtilegan bún-
ing.“
Framhald á 7. síðu.
Fyrslu orlofsferðir
Verfcafýðsféfags
ákraness
Almenn ánægja með
ferðirnar
Frá fréttaritara Alþýðu-
blaðsins Akranesi.
\T ERKALÝÐSFÉLAG
™ Akraness hefur í sumar
gengist fyrir tveim hópferðum,
(orlofsferðum). Var önnur ferð
in farin austur í Fljótshlíð, en
hin til Norðurlands.
í ferð þeirri, sem farin var
austur í Fljóts'hlíð voru 22 þátt
takendur og stóð ferðin yfir í
3 daga. Farið var lengíst, austur
að Múlakoti, en víða komið við
Framhald á 7. sí&tL
Einn binna tíu látinn laus
I haldi hjá hernaðaryfirvöldum
Brefa í 1 ár og 4 mámiði
------------------*------
Hann var lengst af á eynni Mön
Viötal vié Pál Sigurösson, rafmagnsverk-
fræðing
-------«-------
Ð ÁLL SIGURÐSSON rafmagnsverkfræðingur, einn hinna 10
íslendinga, sem hernaðaryfirvöld bandamanna afhentu okk-
ur sem fanga fyrir nokkru var látinn laus úr gæsluvarðhldinu f
gærmorgun.
Páll Sigurðsson hefur verið
fángi brezkra hernaðaryfir-
valda í 1 ár og 4 mánuði. Hann
nam verkfræði við háskólann í
Kaupmannahöfn, en fékk leyfi
meðan á hernámi Danmerkur
stóð til að fara til Svíþjóðar.
Þaðan ætlaði hann að fljúga
beim yfir England, en þegar
hann kom þangað var hann
kyrrsettur þar
Páll Sigurðsson eir sonur Sigurð
ar heitins Magnússonar prófess
ors, sem er ný látinn. Tíðinda
maður Alþýðublaðsins átti í
gær viðial við Pál og fer það
hér á éftir sem hann segir:
,,Ég fór lil •Kaupmannahafn-
ar í oklóber 1939 og stundaði
nám við Poliytekniska háskol-
ann þar til vorsins 1943, að ég
lauk þaðan prófi. Þá fór mig að
langa til að komst heim, og fékk
ieyfi igegnum dönsk yfirvöld til
þess að fara til Svíþjóðar. Raun
ar gerði ég ráð fyriir að það
hafi einnig orðið að ganga í
gegnum herstjórn Þjóðverja í
Danmörku að útvega brottfarar
leyfið.
Páll Sigurðsson.
Til Sviþjóðar kom ég 22. á-
gúst 1943 og\ dvaldi í Stokk-
hólmi í rétta 7 mánuði1. Þaðan
flaug ég með sænskri flugvél
22. marz 1944 til Skotlands.
Þar varð ég að hafa tal af ensk
um heryfirvöldum og báðu þau
mig að koma til London, vegnia
nánari athugunar á ferðal'agi
mínu.
Kom ég til London 24. marz
Framhald á 7. síðu.