Alþýðublaðið - 09.08.1945, Qupperneq 7
®*immtudagur S. águsl 1943
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Bœrinn í dag.
Naeturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
Næturakstur annast Hreyfill,
®ími 1633.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morg'unfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miödegisútvarp.
19.25 Hljómpjlötur: Söngdansar.
19.40 Lesin dagiskrá næstu viku.
19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
30.20 Útvarpsihljómsveitin (Þórar
inn CJuðmundsson stjórnar)
a) Titus-forleikurinn eftir
Mozart. ib) „Þúsund og ein
nóitt“, vals eftir Jóhann
Strauss. c) Ástarsaga eftir
Becce. d) Marz eftir Schild.
26.50 Frá útlöndum (Björn Franz
son).
21.10 Hljómplötur: Fiðlusónasta
eftir Tartini. '
21.25 Upplestur (Jón Norðfjörð
leikari).
21.45 Hljómplötur: Marion And-
erson syngur.
22.00 Fréttir.
Oríofílerðir
Frh. af 2. síðu.
á leiðinni. M. a. var farið að
Gullifossi, Geysi til Þingvalla og
að Laugarvatni og ekið um
Kaldadal á leiðinni heim.
Hin ferðin stóð yfir í 5 daga
og tók þátt í henni 37 manns.
Farið va:r til Áshyrgis og Mý-
vatns, en aðrir helztu viðkomu
staðir voru, Húsavík, Akureyri,
Vagiaskógur, 1 Sauðarlkrókur,
Hólar í Hjaltadal, auk mairgra
fleiri.
Veður var ágsett, þegar bæði
þessi íerðalög voru farin, og
vcru þátttakendur mjög ánægð
ir með ferðirnar.
Er þetta fyrsta sumarið, sem
Verkalýðsfélag Akraness,
gengst fyrir slíkum hópferðum
fyrir meðli’mi sína og mælast
þær mjög vel fyrir og verður á-
veiðanlega haldið áfram næstu
sumur.
Sveinbj.
frá Félagi Suðurneija
manna
Viðial við Pái Sigurðs-
son
Framhaid af 2. siðu.
og þar dvaldi ég í skóla, og var
í eilífum yfirheyrslum út af
ferð minni frá Danmörku til
Svíþjóðar. Aðbúð öll var hinj
bezta meðan ég dvaldi þarna, og
yfirheyrrslurnar mjög prúð-
mannlegar.
Ég vonaði aiiltaf að máli mínu
væri' lokið og mér veitt leyfi
til heimfarar, en 7. júli var mér
tilkynnt, að ég yrði kyrsettur,
og var ég þá fluttur ti-1 eýjar-
innar Mön.“
— Voruð þér þar í fangahúð
um?
,,Já, fangabúðir voru það sjáilf
sagt, þó ekki í venjulegum
skilningi og ólíkar þvá, sem
stríðsglæpamenn munu eiga að
venjast. Aðhúð var þarna á-
gæt. Þeir sem vildu' vinna,
fengu það, aðrir gátu lesið og
yíirleitt eytt dögunum eins og
joeir vildu. Maður gat keypt sér
þar ýmsar, vörur, t. d. tóbak
og öl. Við máttum skrifa heim,
gátum fengið keypt ensk blöð,
og íslenzk blöð fékk ég alltaf
send frá Birni Björnssyni for-
manni íslendíingafélagsins í
London.
— Voru fleiri íslendingar en
þér á Mön?
Við vorum tveir, hinn var
Lárus Þorsteinsson, hann var
kominn þangað þrem vikum á
undan mér. Við bjuggum í
sama húsinu. í okkar camp
vóru mörg smá hús og voru 18
manns í flestum húsunum. Með
■okkur Lárusi var einn Dani;
hitt voru allt Hollendingar. í
X Camp, en svo nefndist okkar
campur voru 200 manns.
Segja má að þarna hafi verið
rnenn frá öllum Evrópu þjóð-
urn, nema Svíþjóð, þaðan var
enginn, og svo auðvitað ekki frá
Þýzkalandi „ og Ítalíu, én þeir
voru í sér camp annars staðar.“
— Hvernig var daglegt líf
ykkar þarna í campinum?
Það var mismunandi. Sum-
ir annu flesta daga við búgarða
á eyjunni og fóru þangað
snemma á morgnanna og komu
aftur heirn á kvöldin. Bænd-
urnar sóttu þá oftast í bifreiðum
og skiluðu þeim aftur á kvöld-
dn. Ég vann um tíma á búgarði,
og eins unnum við stöku sinn-
um við fiskinn. Annars notaði
ég tímann mikið til lesturs. Með
al annars í frönskunni, sem mig
langaði lil að fullnuma mig í.
Yfirleitt var þarna mjög gott
tækifæri til málanáms, því
þarna voru flestar tungur talað
FÖSTÚDAGINN 3. þ. m.
birtist grein i hlaðinu 'með
yfipskriftinni Húsmæðraskóli á
Suðurnesjum.
í grein þessaxi, sem segir frá
aðalfundi Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu, er
haldinn var í Grindavík 22. júli
s. 1., segir meðal annars: „Hug
myndin um húsmæðraskóla á
Suðuirnesjum kom fyrst fram á
aðalfundi. sambandsins i fyrra,
er þá var haldinn að Reynivöll
um i Kjós.“
Stjórn Félags Suðurnesja-
manna i Reykjavík vill með liín
um iþessum vekjatathygli á því,
að hugmyndin um húsmæðra-
skóla á Suðurnesjum kom fyrst
fram þegar við stofnun fólags-
ims í oktöber 1943, og í skýrslu
stjórnarinnar á aðalfundi þess
11. maí 1944 var skólamállð
talið eitt af þeim velferðarmál
um Suðurnesja, er félagið vildi
leggja áherzlu á að hrinda í
framkvæmd, enda hafði félags
stjómin þá þegar kynnt sér all
ítarlega ýmsar hliðar málsins.
Fyrir 'hönd stjórnao- Félags
Suðumesjamanna í Reykjavík
Egil'l Hallgrímsson form.
— Hvernig var fæðið?
„Heldur gott. Hvert hús
hafði sérstakan matreiðslu-
mann, hjá okkur var það Hol-
lendingur, sem matreiddi, og
iþéir eru vanip að hafa súpur
tvisvar á dag. Á morgnanna kl.
8 horðuðum við venjulegast
hafragraut, mjólk fengum við
eins og við vildum, svo og
brauð. Síðan var hádegismatur
kl. 12, og kaffi eða te um miðj
an daginn og síðan kvöldmat-
ur. Venjulegast voru allir komn
ir i campinn kl. háilif sex !á
kvöldin og var bá slegið tölu á
mannskapinn, hins vegar komu
camir, oft seinna einkanlega
'þeir, sem unnu á búgörðunum.
Á morgnanna um kl. 9 var líka
taldð í campinum.
Þeir, sem litu eftir cömpun
um voru lögreglumenn frá
London og komu þeir mjög vel
fram. Um áramótin síðustu
voru lögreglumennirnir kallað
ir brott, en við tók hervörður
og var sama um þá að segja að
framkoma þeirra við okkur var
ágæt. Við
hlýða settum reglum og vera
komnir til rólegheita kl. 11 á
kvöldin, en þá voru Ijósin
slökkt. í hverjum campi var
útvarp og hátalarar frá því í
hvert hús og gátum við hlust-
að á það þegar við vildum. Enn
fremur gátum við horft á kvik
mvncLir tvisvar í viku í bæn-
um Leel. Þá gerðu menn sér
vmislegt til skemmtunar, iðk-
uðu meðal annars knattspyrnu
og fleira."
— Hvenær fenguð þið svo
vitneskju um að þið mættuð
fara heim?
Nokkru eftir ófriðarlok í Ev
rópu fóru mikið að fækka áMön!
Þá voru ýmsir sendir heim til
sín, og vonuðum við íslending
arnir tveir, að röðin kæmi brátt
að okkur, og .þann 26. júní,
fengum við að vita að við ætt-
um að fara til London og þótt-'
umst vita að það boðaði, að við
værum lausir. Þann 2. júlí
komum við svo til London, og
vorum látnir þar í skóiaíhús,
þar sem við vorum geymdir,
þar t'il hinn langþráði daguír
rann upp að okkur var tilkynnt
að við ættum að fara heim á
morgun. Það var 2. ágúst, sem
við fengum að vita það, og fór
sá dagur í það að pakka niður
dóti okkar. Hins vegar máttum
'við ekki hafa meðferðir nema
65 pund, en ég hafði áður kom
ið nokkru af bókum, sem ég átti
til sendirá’ðs lslands í London,
en þeim, myndi ég ekki hafa
komið með mér ella.
Um morguninn þann 3. ágúst
lögðum við svo af stað kl. 3.30
í bifreið til flugvallap í Lond-
on og voru þá hinir 8 íslending
arnir, sem setið hafa hér í
gæzluvarðhaldi með okkur Lár
usi, fyrir í bifreiðinni. Yið viss
um ekkert um það fyrr, annað
en við værum bara tveir, sem
áttum að fara heim með þess-
ari ferð. Kl. 7 var svo tflogið frá
London en staðnæmst á flug-
vellinum í Prestwick í Skot-
landi og farið í aðra flugvél,
en þaðan iögðum við af. stað kl.
11 20 og komum til Reykjavík
ur kl. rúmlega 4 s. d.
A leiðinni í flugvélinni var með
okkur hervörður, en þegar >við
komum til flugvallarins hér
tóku á móti okkar fulltrúar frá
sakadómara og lögregluþjónar.
Var farið með okkur Ibeina leið
í skrifstofu sakadómara, og þar
tilkynnti Ragnar Jónsson full-
trúi sakadómara okkur, að við
værum úrskurðaðir í gæzlu-
'varðhald. Og verð ég að segja
það að ég varð fyrir nokkrum
vonlbrigðum út af móttökunum.
Síðan vorum við fluttir á
Skólavörðustíg 9, og er það í
fyrsta skiptið, sem ég hef kom
ið í fangaklefa allan þennan
tíma. — Áð lokinni yfirheyrzlu
í morgun var ég svo látinn laus
og fagna nú óségjanlpga að
vera kominn heim. Ég er bú-
inn að vera lengi á leiðinni,
en nú þegar ég er raunverulega
staddur heima hjá mér, og get
væntanlega byriað á starfi því,
sem ég hefi lært til, býst ég vi
að fyrnist yfir tafirnar.11
Innilega þakka ég öllum, sem sýndu mér samúð og vináttu
við fráfall og jarðarför sonar míns
JéSianns Kr. Jóhannssonar
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Lovísa Brynjólfsdóttir.
Framhald af 2. síðu
í þessu fvrsta hefti Emblu
eiga þessar konur ljóð, sögur,
frásagnir og minningar Theo-
dóra Thoroddsen, Hulda, Halla
Loftsdóttir, Torfhildur Hólm,
Valdís Halldórsdóttir, Fanney
Jónsdóttir, Friða Einars, Björg
Pétursdóttir, Elínhorg. Lárus-
dóttir, Vigdís frá Fitjum, Ingi-
björg Benediktsdóttir, Arnfríð-
ur K. Jónatansdóttir, Þórunn
Magnúsdóttir, Halldóra B.
Björnsson, Halldóra Jónsdóttþ
ir, Sigríður Einars frá Munaðar
nesi, Valborg Bents, Ingunn
Bjarnadóttir, Guðrún Halldórs
dóttir, Li'ba Einarsdóttir og Elín
borg Brynjólfsdóttir. Þá er
urðum að vísu> að margt fleira í ritinu. Það efnir
til verðlauna samkeppni um
‘beztu smásöguna, sem því þerst
og er verðlauna upþhæðin 1009
krónur.
Nýjar bækur, ódýrar
Síðustu dagana hafa aftirtaldar bækur komið í bóka-
verzlanir:
1. ísland í myndum, endurprentun síðustu útgáfu. Það er
öllum kunnugt, og ekki sízt íslenzkum kaupsýslumönn-
um, að þessi bók hefir á undanförnum árum verið bezti
landkynnirinn, sem-ísland hefir haft á að skipa, og hefir
gert Íslendingum ómetanlegt gagn. Upplag bókarinnar er,
vegna pappírseklu, mjög lítið að þessu sinni.
2. Lífsgleði njóttu. Eftir Sigrid Boo. Bækur Sigríðar Boo
(svo sem „Við, sem vinnum eldhússtörfiin,“ „Allir hugsa
um sig“ o. fL), eru orðnar svo kunnar hér á landi, að ekki
þarf að mæla sérstaklega með þessum höfundi. En hdtt er
flestra dómur, að bókin „Lífsgleði njóttu“ sé ein af beztu
bókum hennar, og þýðing Axels Guðmundssonar er af-
burða góð.
3. Kímnisögur. Þorlákur Einarsson frá Borg á Mýrum safn-
aði og tók saman. Þorlákur og faðáx hans, séra Eirmr á
Borg, voru áður þjóðkunnár fyrir skemmtilega frásögn
og ótæmandi birgðir skemmtilegra sagna Hér kemur í
dagsljósið fyrsta hefti Kámnisagna, sem mun verða lesið
með óblandinni ánægju um land allt.
4- Kennslubók í sænsku, önnur útgáfa kennslubókar þeirra
Péturs G. Guðmundssonar og Gunnars Leijström. En
þessa útgáfu bjó Jón Magnússon fil. cand, uridir prentun.
5. Hjartarfótur. Indíánasaga eftir Edward S. Ellis, en hann
og Cooper er utaldir slvngustu höfundar Indíánasagna nú
á tímum.
6. Meðal Indíána. Spennsndi sagá eft'ir Falk Ytter. Sá, sem
byrjar að lesa þessar bækur, leggur þær ógjarna frá sér,
fyrr en hann hefir lokið bókinni.
7. Dragonwyck) eftir Anya Seton. Þessi saga og
8. í leit að lífshaniingju, eftir W. Sommerseth Maugham,
birtust neðanmáls í Morgunblaðinu, en mikill f jöldi kaup-
enda blaðsins óskaði þess, að þær væru sérprentaðar, enda
er hvort tveggja ágætar bækur.
9. Grænmeti og ber, fjórða útgáfa, eftir Helgu Sigurðardótt-
ur, forstöðukonu Húsmæðrakennaraskóla íslands, er nú
komin í bókaverzlanir. Bókin hefir verið uppseld um tíma,
en hana þarf hver húsmóðir að eiga.
10. Lísa í undralandi. Eftir Lewis Carrol. Prentuð með stóru
og fallegu letri og prýdd fjölda mynda. Bókin er prentuð
1937, en dálítið af upplaginu var geymt óbundið, og því
er bókin nú svo ódýr, að þótt hún sé 200 blaðsíðar, prent-
uð á fallegan pappír og í laglegu bandi, kostar hún aðeins
10 krónur. Lísa í undralandi er barnabók, sem prentuð
hefir verið oftar og ef til vill fleiri eintök, en af nökkurpi
annarri barnabók í enskumælandi löndum.
Fást hjá bóksöLum um allt land.
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
IkS al «e(Hýu f AlþýSiibiaSlBB.