Alþýðublaðið - 21.08.1945, Síða 2
2
ismm ALÞYBUgLAÐiÐ
\
Þriðjudagur 21. ágúst 1945.
íyrsta íslenzka farþegaflugið
til Norðurlanda
------»■ -..
Flugbátur FiugféSagsins flýgyr £ dag fil
SkotBands og Ðasimerkur með 1® farþega
-------♦---------
CATALINA flugbátur Flugfélags íslands á að fljúga í dag
til Skotlands og Kaupmannahafnar.
Er þetta fyrsta flug fslendinga með farþega tii Dan-
merkur eða Norðurlanda.
Farþegarnir með flugbátnum til Skotlands eru 5 að tölu:
Brynhildur Sörensen, fulltrúi, Axel Axelsson, kaupmaður,
Eirílcur Hjartarson, kaupmaður, Stefán Eggertsson prestur
og Sigurgeir Sigurjónsson lögfræðingur.
Til Kaupmannahafnar verða og 5 farþegar: Fríða Svane
frú, Ingeborg Johansen frú Kaj Ólafsson, matsveinn, Lárus
Gunnlaugsson, kaupmaður og Skafti Þóroddsson.
Áhöfn flugvélarinnar verða 5 menn, tveir flugmenn, Jó-
hannes Snorrason og Magnús Guðmundsson og loftskeyta-
maður, vélamaður og siglingafræðingur. — Flugbáturinn
flýgur héðán til bæjarins Largs, sem er skammt frá Glas-
gow í Skotlandi. Þar mun hann verða í nótt, en fljúga síðan
á morgun til Kaupmannahafnar. Talið er að hann verði tun
8 tírna til Skotlands, en um 7 til Danmerkur. Hefur Flug-
félagið fengið leyfi fyrir þessar flugferðir til Kaupmanna-
hafnar. — Frá Kaupmannahöfn mun flugbáturinn taka 12—
15 farþega.
*
BræðslusíldarafSinn 450 þús.
hekfólíltar — 1290 þús. í fyrra
---------------- >
BúiH a® saifa 45 S78 funnur síSdar
-------4.-------
UM SÍÐUSTU helgi nam bræðslusíldaraflinn hjá síldarverk-
smiðjunum 450.599 hektólítrum og er það nálega þrisvar sinn
um minni afli en á sama tírna í fyrra, en þá var hann orðinn 19.
ágúst 1290.205 hektólítrar. Hins vegar liefur nokkuð verið salt-
að af síld síðustu tvær vikur. Um helgina sem leið var búið að
salta samtals 45.678 tunnur síldar á landinu. Hefur bræðslusíldar-
aflinn aukizt um 60 þús. hektólítra síðastliðna viku.
Aflahæsta síldveiðiskipið er
n,ú Dagný frá Siglufirði, með
6045 hektólítra. Annað í röð-
inni er Freyja frá Beykjavík,
þriðja Snæfeil frá Akureyri,
fjórða Eldborg frá Borgamesi
og fimmta Narfi frá Hrísey.
Bræðslusí'ldaraflinn skiptist,
sem hér segir milli verksmiðj-
anna. talið á hektóliitrum.
H. f. Ingólfur, Ingólfsfirði
38467, Djúpavík, Djúpavík
44905, Rík i,s verksmi ð j urn ar,
Siglufirði 133329, Sildarverk-
smiðja Siglufjarðarkaupstaðar
20161, H. f. Kveldúlfur, Hjalt-
eyri 81163, Sildarbræðsíustöðin
Dagverðareyri h. f. 21031, Rík-
isverksmiðjan, Raufarhöfn
97272, H. f. Síldarbræðslan,
Seyðisfirði. 14271.
Hin einstöku skip hafa aflað,
sem hér segir, bræðsluaflinn tal'
inn í hektólitrum,, i svigum salt
síldaraflinn talinn i tunnum.
BOTNVÖRPUSKIP:
íslendingur, Reykj avík 2791
(203), Óláfur Bjarnas. Akranesi
4333.
GUFUSKIP:
A'lden, Dalvik 3811 (147), Ár
mann, Reykjaýík 2580 (159),
Bjarki, Siglufjörður 3264, Eld-
ey, Hxúsey 3074 (506), Elsa
RÍeykjavík 2496 (514), Huginn,
Reykjavik 4754 (24), ,Jökull
Hafnarfjörður 3039, Sigríður,
Garður, 1174 (159).
Framhald á 7. #á®u.
Guðjón Magnússon, K.
V. meistari í lug-
þrauf _____
Seffi iiýft mef í stang
arstökki, 3.67 metra
EISTARAMÓTINU Iauk á
sunnudag með keppni í síð
ara hluta tugþrautarinnar.
Fóru leikar bannig, að meistari
í tugþraut varð Guðjón Magnús
.son, K. V., sem hlaut 4862 stig.
Guðjón setti í keppni þessari
nýtt íslandsmet í stangarstökki,
stökk 3,67 metra.
Næstur Guðjóni varð Jón Ó1
afsson, K. R., sem hlaut 4835
stig, þriðji Brynjólfur Jónsson,
K. R., sem hlaut 4771 stig,
íjórði Jón Hjartar, K. R., sem
hlaut 4597 stig og fimmti Sig-
fús Sigurðsson, Selfossi, 4337
stig.
Fyrra metið í stangarstökki
átti Guðjón sjálfur, 3,65 metra,
sett í bæjarkeppni Hafnfirðinga
og Vestmannaeyinga í Hafnar-
firði í fyrrahaust. Er þetta nýja
met Guðjóns ágætur áranguf,
þegar að því er gætt að það er
unnið eftir keppni í tveim öðr-
um greinum og við mjög óhag-
stæð veðurskilyrði.
---------4---------
Mjólkursölunefnd, mjélkurverölagsnefnd, kjöf
verðlagsnefnd og verðlagsneSnd garðávaxfa
afnumdar
---------4---------.i
RÍKISSTJÓRNIN gaf út í gær ný hráðabirgðalög, sem mæla
svo fyrir, að stofna skuli 25 manna stjórnskipað bxinaðarráð
til að hafa með höndum verðlagsmál landbúnaðarins og gera tii-
lögur um reglur um gæðaflokka og verðflokkun landbúnaðaraf-
urða, ákvörðun verðjöfnunarsvæða, vgrðjöfnunargjalda og hag-
nýta verkun og meðferð landbúnaðai'afurða.
Jafnframt afnema bráðabirgðalögin lögin um mjólkursölu-
nefnd, mjólkurverðlgsnefnd, kjötverðlagsnefnd og verðlagsnefnd
garðávaxta.
Bráðabirgðalögin fara í heild
hér á eftir:
Forseti íslands gjörir kunnugt:
Landbúnaðarráðherrsr hefur
tjáð mér 'að með því að í lög-
um nr. 42, 1943, um dýrtíðar-
ráðslafanir sé ákveðið, að með-
an ófriðarástandið haldist skulá
verð á landbúnaðarvörum á-
kveðið í samræmi við vísitölu
framleiðslukostnaður landbún-
aðarafurða, en lagaákvæði
þetta sé nú úr gildi fallið við
lok styrjaldar’innar og beri því
fyrir 15. septemfoer n. k. að á-
kveða að nýju verð landfoúnað-
arafurða, sé nauðsynlegL að
koma nú þegar nýrri skipan á
þessi mál. Jafnfram þyki rétt,
til þess að tryggj,a fýllsta sam-
ræmi í verðlagi Íandbúnaðaraf-
urða að breyta gildandi lögum
á þann veg að einn aðili. ákveði
útsöluverð mjólkur, kjöts og
garðávaxta í stað jþeirra þriggja
nefnda, sem nú ákveða verðið.
Með því að ég fellst á að forýn
nauðsyn sé á því að verðla'gn-
ingu landbúnaðarafurða sé nú
þegar skipað með lögum gef ég
út bráðafoirgðalög samkvæmt
23. gr. stjórnarskrárinnar á
þessa leið:
1. gr. Landbúnaðarráðherra
skipar til eins árs í senn nefnd
25 manna, er nefnist „Búnaðar-
ráð“. Nefndin skal skipuð bænd
um eða mönnum, sem á einn
eða annan hátt starfa í þágu
landhúnaðarins. Heimilt er að
tilnefna jafnmarga varamenn.'
Ráðherra tilnefnir foi'mann
ráðsins og kallar hann það
saman ti'l fundar í síðasta lagi
5. september ár hvert. Það er
boi'garaleg skylda að taka sæti
í búnaðarráði og mæta á fund-
um þess, nema lögleg forföll
hamli.
2. gr. Fundir húnaðárráðfe
eru því aðeins lögmætir, að all-
ir nefndarmenn eða varamenn
þeirra séu mættir. Nú stendur
svo á, að hvorki aðalmaður né
varamaður geta mætt á fundi
og skipar þá ráðherra mann í
þeiri'a stað, meðan á forföllum
stendur.
3. gr. Á 1. eða 2. fundi sín-
um sfcal búnaðarráð kjósa 4
menn í nefnd, er nefnist „Verð
lagsnelfnd landbúnaðarafurða“.
Nefndarmenn skulu að jafnaði
vftldir innan vébanda búnaðar-
ráðs, en heijnilt er þó að víkja
frá því, ef heppilégra er talið.
Verðlagsnefnd skal kosin meiri
hluta kosningu og er enginn lög
Lega kjörinn nema hann hafi
hlotið atkvæði meiri hluta bún
aðarráðsmanna. Ef ekki næst
meiri hluti ’við endurtekna
frjálsa kosningu, skal kosið
hundinni kosningu milli þeirra,
er flest hafa fengið atkvæði.
Kjósa skal tvo menn til vara í
nefndina og taka þeir þar sæti
í forföliuim aðalmanna.
4. gr. Búnaðai'ráð gegnir enn-
fremur iþessum störfúm:
1. Gerir tillögur til landbún-
aðarráðuneytisins um setning
reglna um gæðaflokkun og verð
flokkun landfoúnaðarafurða.
2. Ákveður verðjöfnunar-
svæði samkvæmt 1. gr. laga nr.
1, 7.janúar 1935 og verðlags-
svæði. samkvæmt 9. gr. laga nr.
2, 9. janúar 1935.
3. Ákveður verðjöfnunar-
gjald á kindakjöt, mjólk og
mj ólkurafurðir .■
4. Stuðlar að hagnýtri vei'k-
un og meðferð landbúnaðaraf-.
urða og hagkvæmri nýtingu
markaða fyrir þær, jafnt innan
Iiands sem utan.
5. Verðlagsnefnd landfoúnað-r
arafurða skal skipuð fimm
mönnum. 4 kosnum samikvæmt
ákvæðum 3. gr. laganna, en for
maður búnaðarráðs er sjálfkjör
inn formaður néfndarinnar. For
maður kveður nefndina til
funda og stjórnar störfum henn
ar.
6. gr. Störf verðlagsnefndar
eru:
1. Að ákvéða verðlag á land
foúnaðarafurðum á innanlands-
markaði. (kjöti allskonar, mjólk
og mjólkurafurðum, garðávöxt-
um).
2. Að annast aðrar fram-
kvæmdir, sem hingað til hafa
verið í höndum mjölkursöiliu-
nefndar, mjólkurverðlagsnefnd
ar, kjötverðlagsnefndar og verð
lagsnefndar garðávaxta, sbr. þó
ákvæði 4. gr.
7. gr. Verðlagsnefnd ræðxxr
isér framkvæ'darstjóra og annað
starfsfólk. Framkvæmdarstjóri
sér um daglega afgreiðslu mála
og annast önnur störf, ér verð-
lagsnefnd felur honum.
8. gr. Á fundum verðlags-
nefndar ræður afl atkvæða úr-
sljtum.
9. gr. Allur kostnaður, er leið
ir af störfum húnaðarráðs og
verðlagsnefndar greiðist úr rík
issjóði, eftir reikningi er ráð-
therra úrskurðar.
10. gr. Með lö.gum þessum eru
Frainihídd á 7. síðu.
i herra í Kaup-
| itiaonahöfn
Jakob Möller.
JAKOB. MÖLLER alþingis-
maður var skipaður sendi-
hei'ra í Kaupmannahöfn á rík-
isráðsfundi í gærmorgun. —■
Mun serídihfei’rann fara áleiðis
til Kaupmannahafnar næstkom
andi laugardag, en hann á einn
ig sæti í nefnd beii’ri, sem fer
!utan sama dag til viðræðna við
dönsk stjórnarvöld.
Jakob Möller hefur um fjölda
ára haft mikil afskipti. af
íslenzkum stjórnmálum.
Enn mun( ekki ákveðið hvaða
dag hinn nýi sendiherra tekur
við embætti sínu.
Dauðaslys í Hafnaffirði
í gærmorgun
IGÆRMORGUN vildi það
slys til í Hafnarfirði, að
máðvir féll niður í lest á skipi,
sem hann var að vinna við og
beið bana af nokkru síðar.
.Maður þessi hét Sæmundur
Sigurðsson til héimilis á Haðar
stíg 6, Hafnarfirði.
Var hann að vinna við útskip
un á ísuðum fiski i skipið Balt-
hara. Mun slysið hafa borið að
með þeim hætti að krókur úr
uppskipunarvindu hafi kráekst
í iúguhlerá, sem Sæmundur
stóð á. Lyftist hlerinn upp og
hrapaði maðurinn af honum nið
ur í lestina.
Mun höfuðkúpa Sæmundar
hafa bi’otnað og auk þess hafði
hann lemstrast mikið að öðru
leyti. Sæmundur lézt rúmum
tveim klukkustundum eftir að
slysið skeði.
Fyrjfa MíertSin kring-
um Snæfellsjöfeul
Frá fréttaritara Alþýðu-
blaðsins á Sandi.
O ÍÐASTLIÐINN laugardag
^ var bifreið ekið frá Sandi
fyrir framan Snæfellsjökul og
er þetta í fyrsta sinn, sem sú
Frh. á 7. síðu.
/