Alþýðublaðið - 18.07.1946, Blaðsíða 7
Fimmtudágur, 18. júlí 1946.
-----*--——----r--rr--—-------»
Bærinn í dag.
♦---------------------------—I
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
N æturvörður er í Lauigavegs-
apótefei.
Næturafestur annast Litla bíl-
stöðin, sími 1380.
ÚTVAHPIÐ:
8,30—8.45 Morgunútvarp.
12,10—13,15 Hádegitsútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Söngdansar (plötur).
19.35 Lesin dagsferá næstu vifeu.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar):
a) Lög úr „Meyjaskemm-
unni“ eftir Schubert.
b) Suðrænar rósir, — vals
eftir Jóhann Strauss.
c) Tyr'kneskur marz eftir
Midhaelis.
20.50 Upplestur: Gyðingavan'da-
málið í Póllandi, bókarkafli
(Gunnar Benediktsson rit-
höfundur).
21.1t5 Lög leifein á orgel (plötur).
21.25 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son).
21.45 Norðurilandasöngmenn (plöt-
ur).
22.00 Fréttir.
Létt lög (plötur).
1 fréttinni
í (blaðinu í gær um drengina,
sem ■ slösuðust af völdum spreng-
ingar, hafði sú misslögn orðið, að
slysið 'hefði skeð í Hafnarfirði.
Það skeði á Knarrarnesi á Vatns-
leysuströnd, en hins vegar var
farið með drengina á sjúkrahús í
Hafnarfirði. ,
Leiðrétting.
í upphafi greinar Odds A. Sigur-
jónssonar um Völuspárútgáfu Ei-
ríks Kjerúltfs stóð, að hún hefði
feomið út seint á liðnum vetri, en
átti að vera snemma á liðnum
vetri.
Fyrirlestrar Mr. Edwin C. Bolt
hefjast í Guðspékifélagshúsinu
í kvöld kl. 9. stundvíslega. Fyrsta
fyrirlestur sinn kallar hann: Höf-
um við lifað áður á jörðinni? Næsti
fyrirlestur verður svo haldinn nk.
föstudagskvöld. Fólk er áminnt um
að koma tímanlega, .því aðsókn
mun mikil verða og alls ekki síðar
en kl. 9.
Ægir,
mánaðarrit fiskifélagsins, 5. hefti
þessa árgangs er nýkomið út. —
Það tflytur m. a. greinar eftir rit-
stjórann en nefnast: Nýsköpun og
hafnarframkvæmdir; Yfirlit um
vetrarvertíðina í Sunnilendinga-
fjórðungi 1946; Álagning á fisk
fluttan með flugvélum; Útvegur og
utanrífcisverzlun eftir Davíð Ólafs-
son; Leirhaifnarvík eftir Kristján
Kristjánsson; Verkefni, sem þarf
að leysa eftir Bergstein Á. Berg-
steinsson; Útgerð og aflabrögð í
maí 1946 og mar.gt fleira.
Es. Brúarfoss fer H!
Rússlands.
A KVEÐIÐ ER, að e.s. Brúar-
-f®- foss fari til Rússlands nú
á næstunni með hraðfrystan
fisk.
I fyrrakvöld lagði skipið af
stað til hafna Norður- og Aust-
urlands til þess að sækja fisk-
inn. Mun skipið taka 950—1000
smálestir fiskjar á 11 höfnum,
og mun sá leiðangur taka 8—10
daga. Til Rússlands mun það
fara um næst komandi mánaða-
mót.
Úfbreiðið
Alþýðublaðið
ALÞYÐUBLAPIÐ
Frá aðatfundi Læknafélags Islands.
Félagið leggnr til að byggt verði
hæli fyrir sjúkliiga með iangvinna
sjúkdóma.
------♦------
Ennfremur að Landsspítalinn verði stækk-
aður til muna að reist verði farsótta- ©g
sóttvarnarliiís.
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS var haldinn í há-
skólanum dagana 13. og 14. þ. m. Mörg mál voru tekin fyrir
og rædd og ályktanir gerðar, m. a. leggur félagið til, að reist verði
hæli fyrir sjúklinga, með langvinna sjúkdóma, ennfremur að Land-
spítalinn verði stækkaður til muna, að reist verði farsótta- og sótt-
varnahús og að iolts, að komið verði upp fávitahæli er rúmi allt að
100 fávita.
Fara hér á eftir helztu málin,
sem tekin voru til meðferðar á
fundinum:
1. Lögin um almannatrygging
ar, einkum kaflinn um heilsu-
. gæzlu. Allmiklar umræður urðu
um þau, en engin ályktun var
gerð. Hins vegar var kosin
þriggja manna nefnd til þess að
vera stjórnum læknafélaganna
til aðstoðar með tilliti til fram-
kvæmda þeirra.
2. Sjúkrahúsamálið: Á aðal-
fundi Læknafélags íslands 1944
hafði verið kosin 5 manna nefnd
til þess að rannsaka ástandið í
sjúkrahúsmálum landsins og
gera rökstuddar tillögur um
þau. Við athuganir sínar hafði
nefndin komist að þeirri niður-
stöðu að ekki væri ástæða til
þess fyrst um sinn að auka veru
lega við sjúkrahúsrými utan
Reykjavíkur, þegar lokið væri
þar byggingu þeirra sjúkrahúsa,
sem nú eru í smíðum eða áform-
uð. Reynsla undanfarinna ára
hefði sýnt að sjúkrahús víðsveg
á landinu hefðu notazt illa.
Nefndin taldi heppilegast, að
eitt fullkomið sjúkahús verði í
hverju læknishéraði og þar sem
sjúkrahús væri ekki fyrir hendi,
yrði komið upp sjúkraskýli er
rúmaði 2—4 sjúklinga.
Nefndin taldi Reykjavík þeg-
ar orðna miðstöð sjúkrahús-
lækninga í landinu. Myndi það
fara í vöxt að sjúklingar leituðu
þangað. Hins vegar væri þar til-
finnanlegur sjúkrarúmaskort-
ur, sem marka mætti meðal ann
ars af því, að sjúkrahúsin þar
skiluðu meira en 100% afköst-
um og fjöldi sjúklinga væri æf-
inlega á biðlista þeirra.
Nefndin bar fram eftirfar-
andi tillögur, sem hlutu sam-
þykki fundarins:
a. Stækkun verði gerð á Land-
I spítalanum, þannig, að lyf-
j læknisdeildin og handlæknis
? deildin rúmi 120—130 sjúkl-
inga hvor og auk þess verði
þar rúm fyrir 40—60 þörn.
b. Komið verði upp deild eða
sjúkrahúsi, er annist hand-
læknisaðgerðir vegna útvort-
is berkla, beinbrota og bækl-
unarsjúkdóma. Hæfileg
stærð mundi vera allt að 80
sjúkrarúm. í sambandi við
þessa deild þyrftu nauðsyn-
lega að fara fram æfinga-
lækningar, unz sjúklingarnir
gætu útskrifazt heim til sín
eða til annarrar hæfilegrar
stofnunar.
c. Reist verði hæli er taki við
sjúklingum með langvinna
sjúkdóma, er einkum þarfn-
ast hjúkrunar, en ekki vanda
samra læknisaðgerða á
sjúkrahúsum inni í bænum.
Þar ættu að fara fram vinnu-
lækningar, er gætu orðið vist
mönnum til stælingar og
þjálfunar, sem tengiliður
milli hælisvistar og starfs.
Vel mundi fara á því að þetta
hæli starfaði í tveim deild- :
um. Tæki önnur við fólki, er
ætla má, að yrði þar lang-
dvölum, en hin við fólki til
skemmri dvalar, t. d. í aftur-
bata eftir slys, eða skurðlækn
isaðgerðir á útlimum sbr. b.
Leggja ber áherzlu á, að slík
hæli yrðu reist utanbæjar, en
þó eigi mjög fjarri, svo að
vistmenn eigi kost sem
víðtækrasta starfsskilyrða.
Rekstur slíks hælis ætti að
geta orðið mun ódýrari en
venjulegra sjúkrahúsa. Örð-
ugt er að gera sér fulla grein
fyrir, hve stórt slíkt hæli
þyrfti að vera, en naumast
mætti það þó vera minna en
svo, að það rúmaði 70—80
vistmenn til að byrja með.
d. Byggt verði farsótta- og sótt-
varnahús, er rúmi 70—80
sjúklinga. Er þá gert ráð
fyrir, að 10—20 rúm verði
til ráðstöfunar fyrir berkla-
sjúklinga, sem eigi er unnt
að vista á heilsuhælum vegna
veikinda þeirra
e. Fjölgað verði sjúkrarúmum
fyrir geðveikt fólk, svo að
þau verði samtals allt að 400
fyrir allt landið. Auk þess
vaéri nauðsynlegt að sérdeild
væri komið upp vegna of-
drykkjufólks
f. Loks telur nefndin ríka á-
stæðu til að bera, að komið
verði upp fávitahæli fyrir
allt landið er rúmi allt að
100 fávita.
3. Samkvæmt tillögu for-
manns félagsins var ítrekuð
samþykkt frá aðalfundi 1944
um ýmis hlunnindi héraðs-
lækna.
Á fundinum voru flutt tvö
erindi. Hið fyrra þeirra flutti
dr. med. Óskar Þ. Þórðarson
um lyflæknismeðferð ulcussjúk
dómsins, en hið síðara Kristján
Þorvarðarson læknir um shock-
meðferð geðveikra
Fundarstjóri var Ingólfur
Gíslason, en fundarritari Hall-
dór Stefánsson.
Stjórn félagsins var endur-
kosin. Hana skipa: Magnús
Pétursson, formaður; Páll Sig-
urðsson, ritari og Karl Sig. Jón-
asson, gjaldkeri.
Allsbefjarmótið.
Framhald af 2- síðu.
Páll Jónsson, KR 2187 stig.
Brynj. Ingólfsson. KR 2107 stig.
Að mó't'inu loknu ó þriðju'-
dagskvöldið vonui. verðlaunaaf-
nendingar til einsta'k'liniga og
KR afhentur meistaramótsbik-
arinn.
I kvöld' er keppendum á
miótinu og starfsmönnnmi þess
þoðið til kaffidrykkju að Gamla
Garði.
Jarðarför konunnar minnar,
Jensínu Ingimundardóttur,
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 19. þ. m. og hefst með hús-
kveðju að heimili hennar, Ásvallagötu 6 klukkan 1 eftir hádegi.
At'hö'fninni í Fríkirkjunni verðux útvarpað.
Guðlaugur Ingimundarson.
Kðia deyr a! brana-
NNUR KONA SU, sem
brenndist í Grímsey á laug
ardaginn, er prímus sprakk,
lézí af sárum sínurn í fyrradag.
Konan hét Guðrún Indriða-
dóttir og var 67 ára að aldri.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu á sunnudaginn, voru kon-
urnar tvær, sem urðu fyrir
brunasárum og voru þær flutt-
ar í ílugvél til Akureyrar og
lagðar þar í sjúkrahús.
Sjávarútvegssýning'
Reykjavík síðari
EÐ BRÉFI dagsettu 17.
apríl sl. skipaði Áki Ja-
kobsson, atvinnumálaráðherra,
fimm menn í nefnd til að standa
fyrir sjávarútvegssýningu, er
ákveðið hefur verið að stofna til
í Reykjavík síðari hluta sum-
ars, Sýningu þessari er einkum
ætlað að skýra fyrir almenn-
ingi þýðingu sjávarútvegsins
fyrir þjóðina, sögu hans og nán-
ustu verkefni þjóðarinnar til
eflingar þessum atvinnuvegi.
Fiskimálanefnd hefur sam-
þykkt að leggja fram fé til sýn-
ingarinnar, allt að 50 þús. kr.
Þessir menn voru skipaðir í
nefndina:
Halldór Jónsson, framkv.stj.
Fiskimálanefndar, formaður,
Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri,
Jakob Hafstein, framkvæmda-
stjóri L.Í.Ú., Oddur Oddsson,
vélstjóri og Gils Guðmundsson,
ritstjóri.
Til að annast uppsetningu
sýningarinnar hefur verið ráð-
inn Jörundur Pálsson, teiknari-
Nefndin gerir ráð fyrir að
| sýningunni verði skipt í þrjár
| megingreinar, fortíð, nútíð og
framtíð, en þær skiptist síðan í
ýmsar undirdeildir. Síðar mun
verða gerð nánari grein fyrir
tilhögun sýningarinnar í ein-
Stökum atriðum.
Sýningarnefnd beinir þeim
tilmælum til manna, víðs vegar
um land, sem kunna að eiga í
fórum sínum álitlega sýningar-
muni, að þeir snúi sér til nefnd-
arinnar, og láti hana vita um
gripina og láni þá, meðan á sýn-
ingunni stendur. Koma þarna
jöfnum höndum til greina ýms-
ir gamlir hlutir, sem fyrst og
fremst hafa sögulegt verðmæti,
og model, teikningar eða lýs-
ingar á nýjum iðjuverum sjáv-
arútvegsins, skipum, hafnar-
gerðum og öðrum mannvirkj-
um.
Þeir, sem koma vilja orðum
til nefndarinnar, eru beðnir að
snúa sér til Jörundar Pálssonar,
Auglýsingaskrifstofu „E. K.“,
Austurstræti 12, Reykjavík.
Fyrsti báfurínn frá
Landssmlðjunni að
fara á síldveiðar.
P YRSTI BÁTURINN af f jór
* um, sem eru í smíðum hjá
Landssmiðjunni er nú kominn á
flot, og er verið að húa hann
til síldveiða. Hann mun, að öllu
forfallalausu, fara héðan norð-
ur í kvöld.
Við mælingu reyndist hann
vera 66,21 smálest. Hann er
20,4 m. langur, 5,16 m. breiður
og 2,59 m. djúpur. í bátnum er
193 ha. Allan diesel-aðalvél og
18 ha. Lister hjálparvél, (ljósa-
vél), vökvastýri, og allur frá-
gangur bátsins eins fullkominn
og kostur var á.
Báturinn hefur hlotið nafnið
Valur, E.A. 766. Eigandi báts-
ins mun verða h/f Ægir, Dal-
vík. Framkvæmdastjóri þess,
Ryel og skipstjóri bátsins, Berg
ur Lárusson munu veita honum
móttöku nú þegar. Landssmiðj-
an hefur alls samið um smíði'
12 báta af þessari stærð.
j Félagsiíf.
1
Ferðafélag Islands
rá'ðgerir að fara 2 skemimti-
ferðir um næstu helgi.
Að GuJilfoss og Geysi. Laigt af
stað ‘íd. 8 á sunnudagsmorg-
'uninn. Ek’ið austur Hellis-
heiði að Gui'ifossi og Geysi.
Ko.mlið við að BrúarMöðíuim.
í bakaléið fari.ð austur fyrir
Þingvallavatn um Þingvölil til
Reykjaví'kur. Sápa 'látin í
Geysi og reynt að ná fallegu
gosi.
Farmiiðar séu iteknir fyrir kl.
6 á föstudag.
Hin ferðin er austur í Þórs-
imörik. Laigt af stað 'kl. 3 síðd.
á laugardag og ekið að Stóru-
Mörk undir EyjafjöRuimi og
gis't þiar í ftj'ö'Iduan. Snemma á
sunnudiagsmorgu'n verður far-
ið ríðandi i.nn á Þórsanörk og
komið þaðan seinni part dags.
Ekið til 'Reykjaví'kur. Tjöld,
viðleguútbúnað og mat þarf
fólk að hafa imeð sér. Panitað-
ír far.miðar séu teknir fyrir
kl. 4 á fösfudag í skrifstofu
Kr. Ó. Skagfj'örð, Túngötu 5.