Alþýðublaðið - 30.03.1947, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur, 30. marz 1947.
Glæsileg kvöldskemmtun í Sjálfstæðishúsinu 1.
apríl, þriðjudagskvöld.
Kl. 9: Listdans: Ungfrú Sigríður Ármann, undir-
leik annast Fritz Weisshappel.
Einsöngur: Ungfrú Nanna Egilsdóttir. Við
hljóðfærið: Dr. V. Urbantschitsch.
Kl. 10 verður dregið í happdrætti Hallveigar-
staða. Lárus Ingólfsson leikari 'lýsir happ-
drættismununum.
D A N S .
Hverjum aðgöngumiða fylgir einn happdrættis-
seðill og gildir hann í senn í happdrætti Hall-
veigarstaða og í happdrætti kvöldsins, en þar er
vinningurinn skreytt karfa með ýmis konar góð-
gæti, þ. á. m. kampavínsflösku.
Aðgöngumiðar seldir í Sjálfstæðishúsinu
frá klukkan 4 á mánudag.
Fj áröfiunarnefnd Hallveigarstaða.
félagsins Framtíðin
um 40 þúsund kr.
AÐALFUNDUR Verka-
Írvennáféla|gsins Framtíðar-
innar. í Hafnarfirði var hald-
ínn síðastliðinn mánudag.
Tfiignir félagsins eru nú um
40 þúsundir.
Stjórnina skipa sömu kon-
•»ur og áður, að undanteknum
igjaldkera félagsins., Höllu
Magnúsdóttur, sem haðst
íundan endurkosningu.
Stjórnin er því þannig
«kipuð nú: Sigurrós Sveins-
-dóttir, formaður, Sigríður
Erlendsdóttir, ritari, Ásta
<Gruðmundsdóttir, fjármála-
jdtari, Guðrún Eliasdóttir,
gjaldkeri og Guðrún Niku-
-iásdóttir, varaformiaður.
í sfyflu málí.
jPúsningasandur.
i Fínn og grófur skelja-
«
l sandur.
I Möl.
u
o
a
\ GUÐMUNDUK
u
u
l MAGNÚSSON,
u
i Kirkjuvegi 16. Hafnar-
■
• firði. — Sími 9199.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Dr. Helgi Pjefurss 75 ára.
„Advance in science
comes by laying brick
upon brick“. — J. S.
Huxley.
í GÆR héldu utanríkis-
málaráðherrar fjórveldanna
stuttan fund i Moskva og
urðu ásáttir um að verja
þeim dögum, sem eftir eru
til páska helgarinnar til þess
að ræða þrjú aðalatriði frið
arsamninganna við Þýzka-
land: 1) efnahagslega sam-
einingu landsins og í sam-
bandi við hana skaðabóta-
kröfurnar; 2) stjórnarfars-
lega framtíð Þýzkalands og
3) útrýmingu nazismans og
hemaðarandans.
ÓLGAN á hernámssvæði
Breta á Þýzkalandi breiðist
út. Námumenn í Ruhrhérað
inu neita að fara niður í nám
umar, nema bætt sé úr mat
arskortinum. Fjölmennur
útifundur var í gær haldinn
í Dortmund. Matarskortur er
nú einnig sagður mjög til-
finnanlegur á hemáms-
svæði Breta í Berlín.
AÐSTOÐARHERMÁLA-
RÁÐHERRA pólsku stjórn-
arinnar var myrtur í gær-
morgun á ferðalagi um aust
urhémð Póllands. Sagt er að
morðinginn sé meðlimur í
ukrainskri ofbeldishreyf-
ingu.
ÍJ1
HINN ÁRLEGI KAPP-
RÓÐUR háskólanna í Cam-
bridge og Oxford fór fram í
gær. Cambridge sigraði' og
varð kapplið hans hálfri
mínútu á undan að markinu.
FYRIR FIMM ARUM sið-
an, er dr. Helgi var sjötugur,
skrifaði ég greinarstúf fyrir
Alþýðublaðið og driap þar á
sumt af þvi nýja, sem hann
hafði fundið og fyrstur skil-
ið í jarðfræði íslands. Eigi
skal nú mikið að því vikið
aftur hér. Væri ég spurður,
hverjar uppgötvanir doktors
Helga muni mikilsverðastar
fyrir íslenzkar jarðfræði-
rannsóknir, vissi ég vart
hverju svara skyldi. Er það
lausn hans á myndun mikils
hluta móbergsmyndunarinn-
ar? Er það uppgötyun hans
á þvi, að Tjörneslögin séu
millilög í basaltmynduninni
og ráðning hans á aldursaf-
stöðu þeirra itil móbergsins?
Eru það óyggjandi sannanir
hans fyrir því, að fleiri en
ein ísöld hafi herjað ísland
á pleistocen? Er það skiln-
ingur hans á þvi, hversu
millilög basaltmyndunarinn-
ar, jafnt þau eldri sem yngri,
eru stórfróðleg til rannsókn
ar og að startigrafía lands-
ins verður aldrei ráðin til
hlitar án rækilegrar könnun
ar á þessum millilögum?
Svona mætti lengi spyrja. Ég
veit ekki hvert þessara af-
reka skal metast miest. En
hvert þeirra sem er, myndi
nægja, hvar í heimi sem
væri, til að skipa þeim, sem
hefði leyst þau, i flokk með
hinum stóru í sögu jarðfræð
innar.
Mér finnst það einkenn-
andi fyrir jarðfræðinýjung-
ar doktors Helga, að um leið
og þær eru lausn á torráðn-
um vandamálum, benda þær
á ný og lokkandi verkefni
til úrlausnar. Það er ekkert
undarlegt, jafnmörg meginat
riði í jarðfræði landsins og
'hann hefur leitt í ljós, þó
discordance komi stundum
fram milli hans og annarra,
sem vinna og hafa unnið að
rannsókn landsins og það oft
afburðavel. Við slíku má
alltaf búast, þegar fleiri en
einn grípa á sama vand-
leysta málinu, og það sem er
rangt, verður alltaf mislægt
við hið rétta. Hitt er svo
annað mál, að yfirgnæfandi
likur benda til þess að hin
suðræna quercus sé borin og
barnfædd í því, sem nú er
millilög hinnar elztu basalt-
myndunar þessa lands, og
vitað er það fyrir víst, að
portlandia hefur flúið ís-
land vegna hita; það hvort-
tveggja sýnir, hversu fá-
dæma erfitt það er að vera
spámaður í sínu eigin föður
landi.
Jóhannes Áskehson.
Listdansarar stofna
með sér fél
FÉLAG ÍSLENZKRA LIST
DANSARA var stofnað hér
i bæ 14. þ m. og er tilgang-
ur félagsins að gæta sameig-
inlegra hagsmuna iðlenzkra
listdansara og vinna að efl-
ingu danslistarinnar hér á
landi. Frú Ásta Norðmann
er formaður félagsins, en
meðstjómendur frú Sif Þórs
og ungfrú Sigríður Ármann.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Messað kl. 2 e. h. Séra Krist-
inn Stefánsson.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 2 séra Garðar Þor-
steinsson.
1. apríl 1947
verður skrifstofa kirkjugarðanna í Reykjavík
flutt í hið nýja skrifstofuhús fyrir ofan útfarar
kapelluna í Fossvogi.
Fyrst um sinn verður skrifstofan opin alla
virka daga kl. 10—12 og 14—15, á laugardög-
um þó aðeins kl. 10—12. Sími skrifstofunnar er
7712.
Kirkjugarðsstjórnin í Reykjavík.
K. Zimsen.
Sigríðar Ármann og
Lárusar Ingólfssonar
Næsta sýning í Sjálf-
stæðishúsinu mánudags
kvöld klukkan 8.30.
(Húsið opnað kl. 8.00).
Samfelld sýning.
Ekki dansað á eftir.
Lægra verð.
Aðgöngumiðar í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 2—5
á morgun.
Hj álpræðisherinn
í Tjamarbíó
Pálmasunnudag kl. 11. s. d
Major Hilmar'Andresen
stjórnar, foringjar og her-
menn aðstoða.
Allir velkomnir!
Símanúmer vort er
Utan skrifstofutíma:
7566 — skrifstofur
7567 — teiknistofur
7568 — efnisvarsla
7569 Verkstjórar.
VÉLSMIÐJAN
HÉÐINN H.F.
fyrir börn og fullorðna,
fyrirliggjandi.
GEYSIR h.f.
Fatadeildin.
Sundbolir
Og
sundskýlur
fyhir böm,
fyrirliggjandi.
GEYSIR h.f.,
Fatadeildin.