Alþýðublaðið - 30.03.1947, Side 6
.6
ALÞÝÐUBLAÐIÐi
Sunnudagur, 30. marz 1947,
3 NYJA Blð Sí
Frumskógar-
droltningin
(Jungle Queen)
Æævintýrarík og spenn-
andi myndi í tveimur kölf
um.
Aðalhlutverk:
Edward Norris.
Ruth Roman.
Eddie Quillan.
Fyrxi kaflinn sýndur í
dag kl. 3, 5, 7 og 9. Jj
Síðasta Sinn.
Bönnuð börnum yngri
en 16 ára.
Sala hefsit kl. 11 f. H.
Síðari hluti sýndur
á morgun. (Mánudag) kl.
5, 7. 9.
8 BÆJARBfÖ 8
Hafnarfirði
í biiu og síríðu
(„So goes my Love“)
Bráðskemmtileg og vel
leikin mynd.
Aðalhlutverk:
MYRNA LOY
DON AMECHE
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sími 9184.
GAMLA BIÖ SS
(The Valley of Decision)
Stórfengleg Metro Gold
wyn Mayer kvikmynd,
gerð eftir skáldsögu Mar-
cia Davenpart.
Aðalhlutverkin leika:
GREER GARSON
GREGORY PECK
Donald Crisp
Linoel Barrymore
Sýnd kl. 9.
Hjónaskiinaðarborgin.
Amerísk kvikmynd.
ANN SOTHERN
JOHN HODIAK
TOM DRAKE
AVA GARDNER
Sala hefst kl. 11 f. h.
Sýnd kl. 5 og 7.
3 TJARNARBIO ð
Klukkan kallar
(For Whom the Bell Tolls)
Stórmynd í eðlilegum lit-
um
Ingrid Bergman
Gary Cooper
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 9.
A sjé og landi
(Tars and Spars).
Amerísk músik- og gaman
mynd.
Marc Platt
Janet Blair
Alfred Drake
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
HMLVEIGAR5TAÐAKAFFI
býður Verkakvennafélagið Framsókn bæjarbúum upp
á sunnudaginn 30. marz kl. 2,30 í Breiðfirðingabúð.
Á borðið verður hlaðið ýmsu góðgæti, svo sem seyddu
rúgbrauði og hangikjöti, pönnukökum með, rjóma og
margt fleira, sem of langt yrði upp að telja.
I Breiðfirðingabúð drekka. allir eftirmiðdagskaffi.
Með því styrkið þið gott málefni.
NEFNDIN.
Auglýsið í Alþýðublaðinu
Nýju og gömlu dansarnir í G.T.-húsinu
í kvöld kl. 10. —
i B Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30 e. h.
Gina Kaus:
SLEPP! ÞER
Albert sá andlit sem lítið
var við, með langt hvasst nef
og gisið hár, sem var farið
að grána.
„Ég giftist honum til að
losna úr þessari eymd“, sagði
hún. „En ég var ekki ham-
ingjusöm með honum“.
„Var ekki herra Simrock
vænn maður?“ spurði Albert
til að segja eitthvað.
„O jú, jú, hann var það að
vissu leyti. Hann var bara
svo hræði'lega afbrýðisamur:
Hann fyrirgaf mér það aldrei,
að hann tók mig úr söngleika
húsinu.
í fyrstu sagði hann að það
gerði ekkert til, en seinna
varð hann afbrýðisamur út í
fólk, sem ég hafði átt saman
við að sælda áður en ég hitti
hann.
Platan á grammófóninum
var á enda. „Á ég að spila
aðra?“ spurði Melanía.
Albert hélt, að tími væri
væri til kominn að fara aft-
ur í réttinn. Melanía leit á
klukkuna. Hún var hálf tíu.
„Við getum hringt þang-
að, til að vita vissu okkar“,
sagði hann. Hún hringdi
sjálf. „Það er minnst einn
klukkutími þangað til enn-
þá“, sagði hún.
„Aumingja maðurinn“,
sagði Albert.
„Að hugsa sér, hvernig
hann hefur setið og beðið eft
ir úrskurðinum alla þessa
tíma — hugsað um hve óend-
anlega löng hver mínúta hef-
ur verið.“
„En ef hann hefur drepið
konuna sína, finnst yður
víst ekki honum vera vork-
unn?“ spurði Melanía.
„Jú það finnst mér. Mað-
ur hlítur alltaf að vorkenna
vansælum manni þó að hann
kunni að hafa gert eitthvað
rangt. En ég trúi því ekki að
hann hafi gert það.“
„Hvers vegna kennið þér
ekkert í brjósti um mig þeg-
ar þér látið yður svona annt
um allt ógæfusamt fólk?“
spurði Melanía skyndilega.
Albert starði ruglaður á
hana, .„Eruð þér vansæl?“
spurði hann eins og bjáni.
„Þér — hversvegna eruð þér
það?“
„Já ég er vansæl. Ég hefi
verið það svo lengi, sem ég
man. Ér ekki hægt að vera
vansæll nema hafa drepið
einhvern? Ég er svo ein-
mana -— er það ekki nóg?“
Hún leit á hann og stóru aug
un, ‘sem hann enn var hálf-
smeikur við, voru full af tár-
um.
Það var einkennilegt en
tárin eru líkust því að vera
úr gleri.
„Ég á engan sannan vin.
Ég á marga góða kunningja,
en það er ekki það sama. Og
svo þekki-ég marga menn,
sem vi'lja gjarnan eiga mök
við mig. Til dæmis Oberwald
forstjóri, sem þér kynntust
nýlega. En ég kæri mig ann-
ast ekkert um að gifta mig
aftur. Ég er svo hrædd um,
að það verði gamla sagan
upp á nýtt með afbrýðisemi
og eilífri tortryggni — ég er
hrædd við þessa svokölluðu
ást — getið þér skilið mig?
„Já það er ábyggilegt að
ég get það“, sagði Albert af
lifandi áhuga.
„Getum við ekki orðið vin-
ir—?
Ég á við, getum við ekki
verið saman reglulega oft og
sagt hvoru öðru allt án þess
að óttast hvað hitt kann að
hugsa? Get ég sagt yður frá
öllum mínum slæmu eigin-
leikum líka, án þess þér
munuð dæma mig og fyrir-
líta — en bara vorkenna
mér?“
Hún sat beint á móti hon-
um á lága skemmlinum. Hann
horfði á svart gljáandi hárið,
hann sá litla andlitið á henni,
sem var blóðrjótt af hugar-
æsingu, og hjarta hans var
barmafullt af þeirri vorkunn
semi sem hún bað hann um.
„Með ánægju“, sagði hann,
„Með mestu ánægju“.
„Þá skulum við drekka
„dús“, sagði hún og stökk á
fætur. „Það er bara okkar á
milli. Þegar við erum meðal
annars fólks þá þérumst við.
En þegar við erum ein þá þú-
umst við og spjöllum saman •
eins og gamlir vinir, sem
hafa gengið saman í skóla —
með olnbogana út úr“.
Hún sótti vínflösku og tvö
glös, fýllti þau og skálaði við
hann.
„Þér verðið að tæma glas-
ið“. sagði hún, „og svo verð-
ið þér að kyssa mig.“
Hún drakk fyrst í botn.
Með tóma glasið í hendinni
stóð hún og beið eftir að hann
yrði búinn. Síðan setti hún
bæði glösin í vínskápinn.
Hann fór ákaflega hjá sér
af því að hann átti að kyssa
hana.
„Þarna!“ sagði hún og
benti á hægri vangann. Hann
laut niður og beindi vörum
sínum varlega að fínlegu
lautinni undir hægra kinn-
beini. Um leið snéri hún til
höfðinu svo að hann hitti
munn hennar. Hún tók báð-
um örmum um háls honum
og sleppti honum ekki.
Morguninn eftir las hann
í blöðunum að Albert
Spengler var sekur um morð
á konu sinni og dæmdur í
tuttugu ára fangelsi.
Dómurinn hafði fallið kl.
hálftíu um kvöldið.
VII.
Fritz frændi varð orsök
fyrstu deilunnar milli þeirra.
Samt, sem áður leið honum
hálf illa allt kvöldið hjá Fritz
frænda, og ekki batnaði það
þegar Fritz og Marta spurðu
auðvitað eftir frú Simrock.
Hann svaraði svo klaufalega
þegar hann var að reyna að
koma ekki upp um neitt, að
bæði skildu undir eins hvern
ig allt var í pottnn búið.
„Ef þú saknar hennar, þá
skilurðu að þú getur bara
hringt í hana“, sagði Fritz
frændi góðlátlega.
- Myndasaga Alþýðublaðsins: Örn elding -
' /" íwmv. s<ou- cusa&ttenJ \tvi?eatening yoo?l
\ WíAAKríRríWYOU SUWYj ríýTr*', 4
CYN: Bff^pu^ð^ogná'okKur, lús-
uga bryggjtfföftán^þín. Hjálp-
aðu-"CTkknr“Tipp'''t'"há;t!Tinr*'
TWITT: Ógna ykkur? Ég er að
fara frá ykkur. 0rn er nógu
mikill loftbelgur >tií;'áð •'ÍhkMá
i ( jníölq) »óvoll
ykkur báðum á floti.
'T'&rft’: Svo þakka ógi-^srinJnæg-cmbiEðíN: Hvað éf.fáð þéí? Fáb'ðu ;á
: *fna'jþ eftir hcn‘úffi,‘íh'anh! é,i‘''áS'•k'vetf^'
ao tai o ■ ;Oé.ðf-~~os,Rí
Eg kemst auðveldlega til suð- ur augsýn.
urhafsins. ÖRN: Usss! Vertu grafkyrr, Cynl