Alþýðublaðið - 30.03.1947, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 30.03.1947, Blaðsíða 7
Surmudagur, 30. marz 1947. ai KirmiRi AfíiD 7 Bssrinn í dag. Næturlæknir er í Læknavarð stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Reykjavík- urapóteki. Næturakstur annast Hreyfill, sími 6633. Helgidagslæknir er Eggert Stein þórsson, Hávallagötu 24, sími 7269. Prentarar! Munið framhaldsaðalfund prentarafélagsins í dag kl. 2 í Alþýðuhúsinu við Hverfisg. 8. Á MORGUN: Næturakstur annast Hreyfill, sími 6633. Félag Suðurnesjamanna í Reykjavík. heldur skemmti fund í Tjarnarcafé annaðkvöld kl. 8,30. — Til skemmtunar verður myndasýning, félagsvist og bögglauppboð. (Framh. af 5. síðu.) fólk þaðan. Loftleiðir munu að minnsta kosti hafa Anson- flugvélina í íörum í allan dag, en ekki vissi1 félagið í gær, hvort það gæti látið fleiri flugvélar til þessara ferða. Félagslíf VALUR ÞEIR, SEM PANTAÐ hafa viðlegu í Valsskála yfir páskahelgina, sæki viku- miða í verzlunina Varmá n.k. mánudag frá kl. 10— 12 og 2 — 4. Barnastúkan Jólagjöf nr. 107 Fundur í dag kl. 4,30 í Templarahöllinnii Fríkirkju- veg 11. Fjölbreytt dagskrá. Geysileg umferð aust- ur yfir fjall. ÞEGAR FRÉTTIR af eld- gosinu bárust um bæinn í gær, tóku bifreiðar og alls konar farartæki, að streyma út úr bænum í áttina til heiðarbrúna og fjallavega, þair sem Hekla kynni að sjást vel. Ekki dró blíðviðri laug- ardagsins úr útrásinni, og upp úr hádeginu tóku bif- reiðar á leiðinni austur yfir fjall, að skipta hundruðum. Rak brátt að því, að bíla- lestin var nær óslitin frá bænum og austur að Kömb- um, og urðu víða slæmar um- ferðarteppur, einkum bar á þessu á hinni svo kölluðu vetrarbraut fyrir austan Skíðaskálann í Hveradölum. Mönnum ber ekki saman um, hversu mikill bílafjöldi hafi verið á vegunum í gær- dag. Hefur blaðið heyrt ýms- ar ágizkanir, allt frá 300 upp í 1500—2000. Flestir töldu sig hafa talið yfir 400 bif- reiðar frá Elliðaám að Kambabrún. Tók það að jafnaðl um 3 klukkustundir að komast frá Kambabrún til Reykjavíkur. ^ Allmikil hætta virtist um skeið vera á því, að umferð- arteppa þessi héldist fram á kvöld og slys, eða óþægindi gætu hlotizt af á þrörigum vegum í næturmyrkrinu, og varaði lögreglan bifreiða- stjóra við að fara austur .að nauðsynjalausu. Þó rættist úr þessu og taldi lögreglan seint í gærkvöldi, að lítil eða engin hætta væri á ferðum. í dag er aftur búizt við mjög mikilli umfeðra á vegunum. piysavarnafélagið !°0 i If ú i STRAX OG KUNNUGT .VARÐ inn Heklugosið í ]gærmorgun og augljóst |hve alvarlegt það var, 'sneri Stefán Jóhann Stef- >ánsson, forsætisráðherra, sér til Slysavamafélags íslands og Rauða kross ís- 'lands og mæltiak til þess að bæði þessi samtök veittu alla þá hjáip og ■aðstoð, sem nauðsynleg kynni að reynast. Urðu þau fúslega við þeim til- • mælum og sendu strax í gær mann austur til að jkynna sér ástandið. Aflinn í gær: Dagur 16; Jakob 13; Ásgeir 11; Græðir 9; Garðar 9; Gautur 8; Jón Þorláksson 8; Skíði 7; Skeggi 5; Heimaklettur 6; Suðri Gæzlumaður. 4; Eiríkur 3. ANNES Á HORNINU: Frh. af 4. síðu. úið til um 30 rétti úr síldinni ö’kkar. Sumir eru afbiirða ljúffengir, aðrir að mínum dómi algert óæti. Ég held að með ijverri máltíð, að minnsta kosti í matsöluhúsum, fylgi einn eða fleiri síldarréttir, enda fara Sví ar með síldina okkar eins og dýrmætasta sælgætið sem þeir eigi völ á. ÍSLENSKAR HÚSMÆÐUR kunna ekkert með síld að fara. Það sannfærðist ég um við mat- borðin í Stokkhólmi. Væri ékki reynandi fyrir okk- úr að læra af Svíum að mat- reiða íslenzka síld? Gætum við ekki uppgötvað nýja fæðiteg- und sem við framleiðum sjálf- jr? Vilja ekki skólamir taka þetta hlutverk að sér, kenna börnum og unglingum að mat- reiða þennan silfurfisk sem við veiðum árlega í tugmilljónatali? V’nnes á horninu. IHbreiðið Álþýðublaðið. Faðir okkar og tengdafaðir, Ágúst SÞórarinsson, andaðist að heimili sínu í Stykkishólmi aðfaranótt 27. hessa mánaðar. Börn og tengdabörn. I Þar eð ráðherra sjávarútvegsmála hefur með bréfi dags. 27. þ. m. falið oss að annast fram- kvæmd á óleystum verkefnum varðandi bygg- ingu hinna nýju síldarverksmiðja á Siglufirði og Skagaströnd, þá tilkynnist hér með, að héð- an í frá ber hlutaðeigendum að snúa sér til vor varðandi greiðslur og önnur erindi viðvíkjandi byggingamálum þessara verksmiðja. Reykjavík, 28. marz 1947. STJÓRN SÍLDARVERKSMIÐJA RÍKISINS. Kirkjugarðurinn í Fossvogi. Frá og með 1. apríl 1947 verður ganghliðinu á austurgirðingunni lokað kl. 17 alla virka daga vikunnar nema á laugardögum kl. 12. Á sunnu- dögum verður hliðið ekki opnað. Jafnframt þessu verður opnað ganghlið á norðurgirðing- unni og gengið um það frá kapellulóðinni. Verð- ur það hlið opið alla daga vikunnar og urngang- ur um kirkjugarðinn frjáls eftir sömu reglum og gilt hafa. Kirkjugarðsstjórnin í Reykjavík. K. Zimsen. 4- -------------------------——-----------♦ - Skemmtanir dagsim - i--------------------------—--——----------♦ Kvikmyndir: GAMLA BÍÓ: „Dalur örlag- anna“ Greer Garson, Gregory Peck, Donald Crisp og Lion- el Barrymore. — Sýnd kl. 9 „Hjónaskilnaðarborgin11. — Ann Southern, John Hodiak, Tom Drake og Ava Gardner. Sýnd kl. 5 og 7. NÝJA BÍÓ: ■— „Frumskógar- drottningin". — Edward Norris, Ruth Roman og Eddie Qullan. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ: „Klukkan kall- ar. Sýnd kl. 9. „Á sjó og landi“ Janet Blair, Alfred Drake og MarcPlatt — sýnd kl. 3 5 og 7. BÆJARBÍÓ: „í blíðu og stríðu" — Myrna Loy og Don Am- cesh. Sýnd kl. 7 og 9. HAFNARF.BÍÓ: „Milli tveggja elda“. Sýnd kl. 7 og 9. Söfn og sýningar.* SAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið kl. 13,30—15,30. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Opið kl. 13,30—-15,30. ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl. 13—15. MÁLVERKASÝNING: Þorvald- ar Skúlasonar í Listmanna- skálanum. Opin kl. 10—-10. Leikhúsin: jEIKFÉLAG RVÍKUR: „Ég man þá tíð: kl. 2 — „Bærinn okk- ar“ kl. 8. Samkomuhúsin: ' LIÐFLÚNGABÚÐ: Hall- veigarstaðakaffi kl. 2 e. h. — ' "■sleikur kl. 10 síðd. HÓTEL BORG: Opin frá kl. 9 ðd. INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9 íiljómsveit frá kl. 10 RÖÐULL: Gömlu dansarnir kl. 10. TJARNARCAFÉ: Dansað frá kl. 9—11,30. — Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar. ii-FE: Gomiu dansarnir : 1 10. G.T.-HÚSIÐ HAFNARF. Dans- að frá kl. 9—12. DÁLEIÐSLA: DÁ V ALDURINN Ernsto Wal- doza í Gamla Bíó kl. 3. Úívarpið: 14.00 Messa í Dómkirkjunni. Kristniboðsguðsþjónusta (séra Friðrik Friðriks- son. 18.30 Bamatími (Þorsteinn Ö. Stephensen o. fl.). 19.25 Tónleikar: Dauðraeyjan eftir Rachmaninoff (plöt- ur). 20.20 Tónleikar: Concerto grosso í g-moll eftir Vivaldi (plötur). 20.35 Minnzt 75 ára afmælis Helga Pjeturss: Upplest- ur., formálsorð og tón- leikar (Jóhannes Áskels- son, Vilhjálmur Þ. Gísla son o. fl.). 21.35 Tónleikar: Tónverk eftir Purcell og Boyce (plötur) glýsin frá Viðskiptaráði, um yfirfærslu á vinnulaunum. Viðskiptaráðið hefur ákveðið að veita framvegis þeim erlendium mönnum, sem hér dvelja og fengið hafa atvinnuleyfi hér á landi, leyfi til ,yfirfærslu á vinnulaunum, svo sem hér segir: 15 af hundraði af sannanlegum tekjum um- sækjanda, þó aldrei hærri upphæð en 300 ís- lenzkar krónur á mánuði. Reykjavík, 28. marz 1947. Viðskiptaráðið. INNILEGAR ÞAKKIR itil vina og vandamanna fyrir auðsýnda vinsemd á níræðisafmæli mínu 28. febrúar síðast liðinn. Guðrún Vigíúsdóttir, 1 I Desjamýri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.