Alþýðublaðið - 06.01.1928, Qupperneq 4
s
ALÞÝÐUBUAÐIÐ
ur þessi tekið, og ekki hafði
hann annað siglingatækja með sér
en venjuiegt vasaúx, áttavita,
hrmgfaia og sjókort. Ekki manna
hafði hann með séi, en hund og
kött. Köttinn tók út í ofviðxi á
ieiöinni.
Um daginii og vföginia.
Næturlæknir
pr í nótt Níels P. Dungal, Að-
alstræti 11, sími 1518.
Slys á sjö.
Pýzkur togari kotni iiér inn í
gær meö slasaðan 1. vélstjóra.
Háfði vélstj. mist f.raman af tveim
fingrum.
Vikivakar.
Vikivakallokkur uiigmennafél-
agsins «Velvakandi», sem Helgi
Valtýsson forstjóri hefir æft, mun
bráðlega hafa álfadanz á iþrótta-
vellinum. Þeim, er þetta rítar, hefur
gefíst kostur á að sjá æfingar
flokksins og fundist mikið um.
Raunar skortir nokkuð á, að flokk-
urinn sé enn þá svo æfður/sem
æskilegt væri, en með prýði
stígur hann samt vikivakana. Eru
þeir mjög faliegir og skemtiiegir
og má segja, að vel horfi þarna
um viðreisn gamallar og þjóð-
legrar skemtunar. Á fiokkurinn og
hinn áhugasami stjórnandi hans
þakkir skyldar fyrir framtak og
dugriað.
Gengi í dag:
Sterlingspund
Doliar
100 k:r. danskar
100 k:r. sænskar
100 kr. norskar
100 frankar franskir
100 gyllini hollenzk
100 guilmörk þýzk
kr. 22,15
4,54'vi
121,74
(22,41
120,88
18,02
183,52
108,47
Frá Stykkishólmi
var blaðinu símað í gær, að
nokkur kaupþræta væri þar miili
verkamanna og atvinnurekenda.
Vilja atvinnurekendur lækka kaup
verkamanna um 5 aura á klst. í
almennri dagvinnu, en um 9 aura
í uppskipunarvinnu. Varð að sam-
komulagi milli aðila að fela sýslu-
rnanni að tilnefna sáttasemjara, til
að reyna að miðla ínálum, en
hami hefir ekkert gert enn þá.
Er slík leið mjög vafasöm fyrir
verkanxenn, og væri ekki ráðlegt
af verklýðsfélögum víðar um
landið að taka til slíkra ráða.
Heilsufar er yfirleitt g^-ft í Stykk-
ishöhni. Vinnureitingur liefir ver-
ið þar við grjótnám. Bátar hafa
róiö og fisltað þolanlega, og
gæftir voru góðar til nýjárs.
B. Choen
kaupmaöur í Hull, sem mörg-
um sjómönnum er að góðu kunn-
ur, er nú fluttur fiá Fish-street
að 8 Trinity-House-Lane, eins og
auglýst er í blaðinu i dag.
Jólatrésskemtun
Stjörnufél. og Guðspekifél.
verður haldin sunnud. 8. jan. og
byrjar kl. 4 síðd. .Vegna rúmh
leysis 'hafa að eins þeir f'ullor&nir
félagar aðgang, sem nauðsynlega
þurfa að fylgja minstu börnunum
Áætlun „Esju“ breytt.
„Esja“ fer hringferö vestur og
norður um land og viðkonrustaðir
\'erða Isafjörður, Siglufjörður.
Akureyri, Köpasker, Vopnafjörð-
ur, Seyðisfjörður, Mjóifjörður,
Norðf jörður, Reyðarfjörður, Djúpi,-
vogur og Vestinannaeyjar. óvíst
um Fáskrúðsfjörð.
Húsmæðrafræðsla.
í nefnd til að gera tiliögur um
framtíðartilhögun húsmæðra-
fræðslu hafa verið skipuð af
Búnaðarfélagi Islands Sigurður
Sigurðsson búnaðarmálastjóri og
frúrnar Ragnhildur Pétursdóttir
og Guðrún Briem.
Veðrið.
Hiti 0—12 stiga frost. Hvtergi
hvass nema í Vestmannaeyjum.
Logn á Isafirði. Horfur: Vestan
átt um land alt. Allhvass á Suö-
vesturlandi. Él á Vestur og Suð-
vesturlandi. Annarsstaðar bjart
veður.
Sígurður Eggerz ihaldsmaður
Jón Kjartansson hefir dregiö
Sigurð Eggerz í dilk íhaldsins.
Hvort Eggerz hefir ráfað rólegur
í skrefi Jóns, eða hvort hann
hefir spyrnt fótum í jörðu, er
Alþý&ublaöinu ekki kunnugt.
Togararnir.
1 morgun kom „Apríi" af veið-
um með 850 kassa ísftekjar.
„Skallagrímur“ kom frá Englandi
í morgun.
ísfisksaia.
„Valpole" seldi afla sinn í Eng-
landi fyrir 1270 stpd., „Maí“ fyr-
ir 1070 og „Skúli. fógeti“ fyrir
2420 stpd.
Að gefnu tilefni
skal það tekið fram, að grein-
inni „íhaldið og Öddfelíowar"
var alls ekki beint áð Hjálpræðis-
hernum. ihaldið á ísafirði beið
lægri hluta í sanmingum viö
æðsta mann Hersins þar, sem
fyrst og frernst tók tillit til þeirr-
ar skyfdu, sem á honunr In íldi
gagnvart yiirboðurum sínum.
kr. á dag með hverju gamal-
Pess skal getiö, að í fyrstu var
ákveðið, að liærinn greiddi 2,00
Rega-
kápur
fyrir konur
og karla,
Sjámaimamadressui1 ódýr
astar á Freyjugötu 8. Simi 1615.
Nokkvii* duglegii" drengir og
telpur óskast tiL.að sel a nýlt viku-
liefti. Konii á Frakkastíg 24 eftir kl.
1 á morgun (laugardag) Há sölulaun.
Útsála á brauðum og kökum
írá Alþýðubrauðgerðinni er - á
Framnesvegi 23.
Munið eftir hinu fjölbreytta
úrvali af veggmyndum is-
lenzkum og útlendum. Skipa~
myndir og fl. Sporöskjurammar
Freyjugötu. 11, sími 2105. Myndir
innrammaðar á sama stað.
Hólaprentsmiðjan, Hafnarstræt*
18, prentar smekklegast og ódýr-
ast kranzaborða, erfiljóð og alla
smáprentun, sími 2170.
Sokkar — Sokkar — Sokkar
frá prjónastofunni Malin eru ís-
lenzkir, endingarbeztir, hlýjastlr
menini, en ekki 2,50, eins og stóð
í greiniirini.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.
Wiiliam le Queux; Njósnarinn mikli.
Það var mér hugfróun, þar sem ég sat
í hægindastólnuin mínunr í hinum undar-
lega sjónleik eða þó heldur feluleik, sem ég
lék aðalhiutverkíð i, að Hodder njösnari
hafði ekki fengið nasasjón af neinu
þvj, er gæti beinlínis varpað grun
á hana, -— stúlkuna, sem ég hafði lofað að
vernda og hjálpa eftir mætti og ég fann
betur og betur að ég unni af lífi og sál.
Já; nú var ég í tyrsta skifti á valdi til-
finmnga minna.
Mér var ijóst, að afstaða mín gagnvart
þessu máli var alvarleg, og að ég gat verið
— ég hefi nú gert mér far urn að búast
ávalt fyrst og fremst við því versta í
meira en lítiili hiættu.
Ég vissi,, hver moröinginn var, en ég var
hundinn loforði þagnarinnar. Þó varð ég aö
játa, að ég vlssi í iraumnni ekki enn þá, hver
eða hvað hún eiginlega var, að því undan-
skildu, að andlitsfegurö liennar, yndislegu
hreyfingarnar hennar; létta, frjálsa, snyrti,-
lega láthragðið hennar hafði töfrað mig. En
þvílík hörmung! Eins og margir menn, ef
til vill, hafði ég veriö sem vax ,í hvítu,
smáu höndunum hennar. Bæn hennar hafði
bókstaflega brætt míg. Hún hafði varpað
sjáifri sér, lífi sínu, heiðri sínum á með-
aumkun mína; og ég hafði veitt henni bæn-
heyrslu. Að eins ég vissi um ieyndardóm
mörðsins á manninum Mr. White, sem var
áiitinn bæði glæpamaður og alis ekki- hvítur
maður.
Hinum daglegltt störfum njósnara eru. sam-
fara ekki svo Jitlar hættur og á stundum
æsing ogl „s)>enningur“, en aldrei hafðá nein
ráðgáta eins fjötrað og flækt huga minn
og þessi
Hver var Clare?
Um það snérist þungamiðja ráðgátunnar.
Samkvæmt frásögn Burtons var það nú
augijóst orðdð, að hún hafði heifmsótt þenna
Whiiie og rætt eitt eða annað við hann í
gistihúsi jjvi, er hann dvaldist í. Hún hafði
jafnvel notað saina nafnið þar,- sem hún
lrauö mér að kalla sig, og eimnitt ]>að gerði
miig hræddan um ,að lögreglan gæti haft
'hendur í hári hennar. Sannarlega haf&i ég
lofað henni að halda nafni hennar eins og
ölfu öðru henni viðkomrandi leyndu, en það
feit vissulega svo út, að óaðgætni hennar
eða hir&uleysi að jiessu leyti myndi verða
heiuii til falis.
Eða þá hitt: Var maðurinn austurlenzpur
eða var hann hvítur maður? VissuLega var
maðurinn, sem ég fann dauðan, eins hvítur
á liörund og ég sjálfur. Hins vegar var maö-
urinn Henry White, gestur Victoríu-hótels-
ins, áreiðanlega ekki hvítur inaður.
Þegar eimhver maðiui’ hefir verið varaður
við einhverri stúiku og gefur að/íröruninni
engan gaum, þá gerir hann stundum sjálfan
sig að asna, — og hvað var nú líklegra en ég
færi sömu för?
Stundirnar liðu dauðajmgular, og ég mint-
sit aftur og aftur orða vinar rníns, Gtörges
Kirkwopds. Hafði hann ekfci sagt, að hún
myndi vera, þegar til kæmi, ekkert annað en
æfintýradrós? Og það virtist helzt, sem orð1
hans væru dagsönn.
Dómgreind mín var í ramninni þauiæfð
af margra ára reynslu við marg]>ættar flækj-
ur, sem ég oft — og enginn annar — gat
leyst. Ég kunni að hugsa, og nú á þessuin
eyðilegu og döpru næturstundum fór ég
í huganum yfir alt, er við hafði borið frá
þeirri ógleymaniegu stund, er ég fyrst mætti
Clare Stanway í járnbrautarlestinni, og
sérhvaö, sem á daga okkar dreif á j>eim
thna, ásamt varúð hennar o.g frábærlega
gætni i því, hvernig hún hagaði oröimi sín-
arn og duldi mig gaumgæfilega þess, hver