Alþýðublaðið - 24.12.1948, Síða 10

Alþýðublaðið - 24.12.1948, Síða 10
... j - . .. , .ý f jóldblað Alþýdublaðsins ' CCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCSCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCC^^ Afgreiðslur: Borgartúni 3 Grettisgötu 31 Laugaveg 20 B Austurgptu 28 Hafnarfirði Símar: 7260 7263 ' 4263 ■ ÞVOTTAMIÐ S T O Ð I N ÞVOTTAHÚS KEMISK HREINSUN FATAVIÐGERÐ tCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCC >CCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCx>CCCCCCCCCCC^ um áður neytt, lenti saman í maga; hljóp ólga mikil í allt saman. Rop- arnir drundu án afláts og gestirnir stundu, „nabeira, nabeira" hver í kapp við annan, en það þýðir ,;tungan í mér stendur upp á endann", eða með öðitum orðum, að viðkomandi hafi etið sig mettan. Og mett vorum við. Við húktum í sessi og létum mag- ann hvíla á lærunum; við áttum næsta örðugt með að þvo hendur okkar úr mundlauginni og, svitinn rann í striðum straumum um bak og brjóst. Eflaust hefur gerjunin unnið sitt starf í innyflunum; ég fann til nokkurs konar ölvunaráhrifa og þjáð- ist um hríð af æðisgengnum hiksta, sem vakti mikinn fögnuð allra við- staddra, er litu á hiksta minn sem skemmtiatriði. Og nú reis Jósúa nokkur á fætur og hugðist einnig skemmta gestum og heimamönnum. Hann hóf trumbu- dansinn, sem ég að vísu hafði séð nokkrum sinnum áður; en alltaf var jafn furðulegur í mínum augum. Trumban er ekki annað en þunnt eltiskinn, strengt á viðarhring iítinn og er stutt skefti á hringnum. Sá, sem dansar, hefur trumbustautinn í annarri hendi og trumbuna í hinni, og afmarkar hljómfall söngsins með því að slá á trunfbuhringinn. Hann stígur ekki dansinn, heldur hreyfir líkamann með ýmsu móti eftir hljóð- fallinu, en söngúrinn er æði til- breytingasnauður að tónavali og læt- ur manni kynlega í eyrum. Jósúa reyndi af fremsta megni að gera dans sinn sem tilkomumestan og sparaði ekki tilþrifin. .,,A-aj-a-ja . . .“ Þannig hljóðar viðlag flestra dans- kvæðanna, en sjálft kvæðið var ort af tilefni dagsins um leið og það var sungið. Það var langloka mikil og lýsti dyggðum og dáðum afmælis- barnsins; var sagt frá því, að það hefði fellt hvítabirni og rostunga og veitt mergð sela, eignazt marga syni og tekið þátt í svaðilförum og leið- angursferðum með kravdlunökkum. Jósúa söng, knúði trumbuna. fetti sig; sveigði og beygði og var erfiði mik- ið, enda gljáði því sem næst nakinn skrokkur hans af svita, hann blós og hvæsti af mæði og brauzt ólgan í sál hans og innyflum út í margvísleg- um hljómum og hljóðum, sem ekki gátu beinlínis talizt til söngs, en juku mjög á skemmtunina. Hófst nú gleði mikil, hver trumbudansarinn tók við af öðrum og gekk svo lengi nætur, unz við að síðustu hnigum út af og héldum áfram dansgleðinni í ríki draumanna. ,S S S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Þú verður að koma heim undir eins, góði! Annars fer allur grauturinn upp úr pottinum. — Ég er nefnilega vant við látin. S S s s s s s s s s s s s s s s s s s •S s s s

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.