Alþýðublaðið - 20.11.1949, Qupperneq 1
Veðurhorfur;
Auilan kaídi. Úrkoiniílanst Iffir
og víðast JéttskýjaS.
Forustugrein;
XXX. árgaiigur.
Sunnudagur 20. nóv. 1949
261. tbl.
Þing sameinuðu þjóðanna í New York
Myndin var tekin á einum fyrsta fundi þess i haust, er þeir töluðu þar um ástand og horfur
í alþjóðastjórnmálum, Bevin, Vishinski og Kar.lelj, utanríkismálaráðherra Títós. Þeir þrír eru
au'ðkenndir nöfnrm á mvndinni
Á slóðum Bjarnar
kappa!
Merkiiegur forn-
ieifafundur í
Virginíu.
TVEIR amerískir forn-
leifafræðingar lögðu nýlega
á fundi fornleifafræðinga í
Bandaríkjunum fram
nokkra járnmuni, þar á
meðal skipasaum úr járni,
sem þeir fundu við Staunt-
onfljót í Viroiníu árið 1946.
Halda fornleifafræðingarnir
því fram, að þessir forngrip-
ir séu leifar af norrænu vík-
ingaskipi frá því um 1000
og sönnun þess, að norrænir
vikingar lváfi komið til Vir-
giníu um Bað leyti.
Enginn, sem skrifað hef-
ur um Vínlandsferðir Is-
lendinga, hefur látið í ljós
þá skoðun, að Vínlandsfar-
arnir hafi komizt svo langt
suður nieð austurströnd
Ameríku, að beir hafi komið
til Virriníu. En ve! mætti
þessi fornleifafundur þar
syðra gera söguna um för
Bjarnar Breiðvíkingakappa
til Hvítra manna Iands og
hvarf hans þar trúlegri en
almennt hefur verið álitið,
að hún væri, hingað til.
Landsmenn sækja fil fjárhagsráðs
um fjárfestingaleyfi fyrir 5672 fram-
kvæmdum, er mundu kosía 750 milj.
EF DÆMA MÁ eftir' umsóknum um fjárfestingaleyfi, sem
fjárhagsráði hafa borizt á þessu ári, hefur íslenzka þjóðin
fullan vilja á að koma upp mannvirkjum, sem mundu kosta
750 milljónir króna á þessu ári. Er það næstum ótrúlegt, að
sótt. skuli vera um svo miklar byggingar, þar sem þjóðartekj-
urnar eru almennt áætlaðar um 1200 milljónir, og ætti þjóðin
því samkvæmt umsóknunum til fjárliagsráðs að hafa hug á
að eyða meira en helmingi allra tekna sinna til ýmiss konar |
bygginga. Til þess að framkvæma allt það, sem sótt var um,
hefði þurft 152 900 lestir af sementi, en það er þrisvar sinnum
meira en unnt hefur verið að flytja inn síðusíu ár.
Um þessar gífurlegu um-
sóknir segir fjárhagsráð í yfir-
liti um fjárfestingamál, sem
gert var í síðast liðnum mán-
uði: Umsóknirnar ,,ættu að
sýna nokkurn veginn hver
vilji landsmanna hefur verið
til ýmiss konar framkvæmda
og vera mynd af því, sem byrj-
að hefði vrið á, ef engar höml-
ur hefðu verið á fjárfestingu.
Þó verður að skoða það með
varúð, því að bæði sækja
menn stundum um levfi ein-
mitt af bví að hömlur eru á, og
auk þess hafa ýmsir hug á
framkvæmdum, sem ekki verð-
ur úr af ýmsum ástæðum. En
þrátt fyrir allt þetta eru um-
sóknirnar yfirleitt spegilmynd
af vilja þjóðarinnar, bæði því
opinbera, félaga og einstak-
linga.“
Eftirfarandi yfirlit sýnir,
hvernig umsóknir þær, sem
fjárhagsráði hafa borizt í ár,
rkiptast milli hinna ýmsu fram-
kvæmda:
Tala Kostn.
umsókna millj.
íbúðarhús 2867 386,1
Útihús 1826 38,5
Verzl.byggingar 109 31,7
Olíustöðvar 67 11,1
Iðnfyrirtæki 186 47,9
Framl.fyrirtæki 131 48,4
Opinberar byggingar 318 91,2
Op. verkl. framkv. 168 94,4
Ailt tai um samstarf við fomsty*
menn Framsóknar er fjarstæöa.44
KOMMÚNISTÁR falast nú ákaft eftir þátttöku í svo-
kallaðri vinstri stjórn undir forsæti Hermanns Jónassonar,
og í fyrrakvöld létu þeir 34 fylgismenn sína í fulltrúaráði
verkalýðsfélaganna í Reykjavík samþykkja beina áskorun
lil Framsóknarflokksins, Alþýðuflokksins og „Sósialista-
flokksins“ um myndun slíkrar stjórnar, svo og fyrirheit
um að styðja hana.
Það söng öðru vísi í tálknum kommúnista, þegar páfi
þeirra, Brynjólfur Bjarnason, gaf út „fræðslurit“ sitt „um
þjóðfélagsmál 2: Samningarnir um vinstri stjóm“, árið
1943. Þar sagði Brynjólfur:
„Það er bezt að segja það strax, að allt tal um
samstarf milli Sósíalistaflokksins og forustumanna
Framsóknarflokksins, Ilermanns Jónassonar, Jónas-
ar Jónssonar og Eysteins Jónssonar er fjarstæða.
Það er fjarstæða vegna þess, að stefna Sósíalista-
flokksins og stefna þessarra manna eru algerar and-
stæður. Hermann Jónasson og Jónas Jónsson eru og
verða forvígismenn stríðsgróðavaldsins. Sósíalista-
flokkurinn er og verður fulltriii alþýðunnar til sjávar
og sveita. Ráð Framsóknarflokksins gegn dýrtíðinni
er kaupkúgun, þvingunarvinna, kaupþvingunarlög
og skipulagning atvinnuleysis. Þjóðin hefur allt of
dýrkeypta reynslu fyrir því, hvernig þessi ráð hafa
gefizt.“
Þannig talaði Brynjólfur Bjarnason, forustumaður
kommúnista, fyrir sex árum. Ekki er vitað til þess að
Framsóknarflokkurinn hafi tekið neinum breytingum til
batnaðar síðan; en engu að síður bjóða kommúnistar sig
nú Hermanni Jónassyni í samstjórn undir forsæti hans
og láta engan dag svo hjá líða, að þeir svívirði ekki Al-
þýðuflokkinn fyrir að vilja ekki vera með í slíkri stjórn!
m
Það eru heilindi þetta, eða hitt þó heldur!
Samtals 5672 749,4
Það er auðséð, að slík fjár-
festing, ef á öllu væri byrjað,
rnundi ekki ná neinni átt, og
mundi gjaldeyrir hvergi nærri
íirökkva til, svo að efnisskort-
ur og stöðvun flestra fram-
kvæmda mundi leiða af. Vafa-
Frámh. af 1. síðu.
laferli gep fyrrv. vara
forsæiisráðherra Búlgaráu
Sakaður um „títóisma“, en var fasisti,
segir biað Titós, og er nú kommúnisti!
, » --------------».......
„RUDE PRAVO“, aðalmálgagn tékkneska kommúnista-
flokksins, flutti há frétt fyrir nokkrum dögum, að fyrrverandi
varaforsætisráðherra Búlgaríu, Kostov, verði leiddur fyrir rétt
innan skanuns, sakaður um „títóisma“, svo og ýmsir fleiri af
áhrifamönnum húlgarska kommúnistaflokksins. Heimild blaðs-
ins fyrir fréttinni er útvarpið í Sofía, en samkvæmt upnlýsing-
um þess er Kostov og félögum hans gefið það að sök, að þeir
hafi unnið að því að spilla vináttu Rússlands og Búlgaríu og
koma ætílandi sínu undir yfirráð heimsveldissinna Vestur-
veldanna!
Forustumenn búlgarska aríu og kommúnistaflokkinn
kommúnistaflokksins hafa lýst þar í tilefni af málaferlunum
yfir því, að auðvitað muni gegn Kostov og þeim, sem séu
fjandmenn ,,alþýðulýðveldis- samsekir honum. „En þegar á-
ins“ í Búlgaríu nota tækifærið kæran verður gerð heyrinkunn
og hefja nýjar árásir í Búlg- Frb, a S. 6ÍSu