Alþýðublaðið - 27.11.1949, Blaðsíða 7
Sunnutlagur 27. nóv. 1949
ALÞYÐUBLAÐIÐ
7
Vormaður hniginn í valinn
Frh. af 5. síðu.
henni lærdóma til varnaðar eða
dáða. Sumir Íslandssögutímar
hans orkuðu meira á mig en
nokkur önnur kennsla, sem ég
hef notið, og hef ég þó verið í
ýmsum skólum síðan. — Hann
lagði einnig mikla rækt við
móðurmálskennsluna og náði
þar góðum árangri.
Ég efast ekki um það, að
sumarstarf Gunnlaugs var hon-
um styrkur í kennslunm. Bar-
átta hans við uppblástur og
sandfok veitti honum andlegan j
þrótt, svo að hann endurnýjað- j
ist sumar hvert. Hann kynntist i
landinu gjor og sá verkefnin
blasa við, og hann var knúður
til að tala um þau og kenna um
þau.
Gunnlaugur hafði líka óbil-
andi trú á aukinni menntun
öllum til handa. Sjálfur hafði
hann brotizt í að fara í Flens-
borgarskólann af næsta litlum
efnum, húnvetnskur bóndason,
sem vel þekkti hin kröppustu
kjör. Þótt hann kynni vel að
meta dýrmæti þeirrar baráttu,
er erfiðleikar veita æskumönn-
um, skildi hann mæta vel, hve
oft miklir og góðir hæfileikar
höfðu farið í súginn vegna
þrúgandi aðstæðna og ónógra
efna. Og hann neitaði harclega
forréttindum nokkrum tii
handa.
Af sama toga var spunnin
umhyggja hans fýrir bókasafn-
inu í Hafnarfirði, en hann
stuðlaði mjög að stofnun þess,
og alla ævi var það hans óska-
barn. Sjálfur hafði hann kynnzt
bókaleysi fróðleiksfúsra ung-
linga, og hann trúði því, að
Elíkt almenningsbókasafn gæti
verið allri alþýðu hinh mesti '
og bezti menntgjafi. Því leit
hann alltaf á bókasafnið sem
merka menningarstofnun og
vildi veg þess sem mestan í
einu og öllu. -Fram á síðustu
stundu barðist hann fyrir því,
að bað vrði rekið á hinn mynd-
arlegasta hátt.
Gunnlaugur Kristmundsson
var jafnaðarmaður að lífsskoð-
un. Hygg ég, að þar hafi miklu.
_____ Félagslíf _________
Æskulýðsvika
KFU Mog KFU K
Samkðoma 'í kvöld kl. 8,30.
Ástráður Sigursteindórsson
cand. theol. talar.
VALUR.
Félagsheimilið verður fyrst
um sinn opið félagsmönnum
þriðjudaga og föstudaga frá
klukkan 8 e. h.
■RIKISINS
Áætlunarferð til Breiðafjarð-
ar og Vestfjarða hinn 29. þ.
m. Tekið á móti flutningi á
morgun.
.S.
til Vestmannaeyja á þriðju-
dögum og föstudögum. Tekiö
á móti flutningi alla virka
daga.
úm ráðið hið góða hjartalag og
umhyggja hans fyrir því að
koma öllu og öllum til nokkurs
þroska. Hann var sameignar-
og samvinnumaður, og hann
hafði þá bjargföstu skoðun, að
gæði þessa lands yrðu mest og
bezt hagnýtt með því, að allir
iégðust á eitt, ynnu saman og
ættu saman og skiptu afrakstr-
inum sem jafnast. Oft vitnaði
hann til þessa erindis Matthí-
asar:
Græðum saman mein og mein,
metumst ei við grannann,
fellum saman stein við stein,
styðjum hverjir annan,
plöntum, vökvum rein við rein,
ræktin skapar framann.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman!
Og þetta var honum lifandi
boðskapur. Hin nánu kynni
hans af alþýðufólki bæði til
ojávar og sveita kenndu hon-
um, að þetta fólk hafði í raun-
inni sömu hagsmuna að gæta.
Þess vegna harmaði hann það
oft, að þetta fólk bæri ekki
gæfu til að snúa bökum saman
í þjóðmálabaráttunni og ráða'
sameiginlega fram úr vanda-
málunum.
Þó að Gunnlaugur gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Alþðuflokkinn í Hafnarfirði og
sæti m. a. 8 ár í bæjarstjórn,
og innti þau störf vel af hendi,
var það samt ekki eðli hans að
vera flokksbundinn. En hann'
kunni vel að meta gildi sam-
takanna, og því vildi hann ekki
skorast úr leik.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman!
var orðtak hans. Samt var
hann maður sjálfráður í ríkum
mæli og skapferli hans var
þann veg farið, að hann kaus
heldur að vera öllum .óháður.
Það lýsir Gunnlaugi vel, að
hann var í rauninni betri liðs-
maður, meðan flokkurinn var í
minnihluta. — Að sumrinu var
hann líka tíðum á ferðaiögum
um byggðir og óbyggðir, oft
oinri saman á hestum sínum,
og _þá fæddust með honum
hugsanir, sem bornar voru uppi
af frjálsræði og hindrunarleysi.
Því átti hann örðugra með að
Ciætta sig við refskák dægur-
málanna og erjur stjórnmál-
anna. Samherjar hans og vinir
skildu þetta vel qg mátu hann
jafnmikils, þótt hann væri þeim
ekki ætíð í öllu sammála. Þeir
vissu, að neistinn bió með hon-
um, að hann trúði jafnan á
hinn góða málstaðinn.
Ekki var Gunnlaugur trú-
maður á kirkjulega vísu, og
kreddumaður var hann enginn.
En fáa hef ég þekkt, sem meira
mátu Jesú Krist en hann. Það
var ekki helgiveran Kristur
eða goðsagnapersónan, sem
hann mat. Þa3 var á öðru leyt-
inu karlmennið Kristur, sem
barðist liiklaust og af heilagri
vandlætingu gegn hvers konar
svikagyllingu, rótfúa, yfirdreps
skap og sýndargæðum, en á
hinu leytinu ljúfménnið Krist-
úr, sem tók málstað olnboga-
barna og smælingja, fann til
með lítilmagnanum og léði
bjargarlausum huggun og
þrólt. Það gilti hann einu,
hvort Kristur var sonur guðs
eða manns, það var kenning
hans, sem máli skipti, og að
menn breyttu eftir herini. Og
’.nér er nær að halaa, að Gunn-
Laugi hafi þótt gott til þess að
hyggja, að sjálfur guðsneist-
inn og andi réttlætisins skyldi
persónugervast í syni fátæka
timburmannsins í Nasaret.
Honum þótti áreiðanlega gott
að vera í sálufélagi við þann
Krist.
Gunnlaugur Kristmundsson
var lágur maður vexti, en þétt-
ur á velli og svipmikill og karl-
tnenni hið mesta í lund. Hann
var vinfastur og trygglyndur,
en fljótur að skipta skapi og
viðmótið ekki alltaf þægilegt.
En undir niðri var hann við-
kvæmur og einlægur. Bágindi
runnu honum einatt til rifja.
aumt mátti hann ekki sjá, og
tíðum var honum ofraun að
tala um mál, sem lágu honum
ríkt á hjarta. Til þess að leyna
ríkum tilfinningum og bljúgri
lund steypti hann alla jafna
vfir sig hörðum skrápi, og
kunnu menn misjafnlega að
þola, eins og gengur. En vinir
hans vissu, að hann beitti
broddunum til að dylja við-
kvæmnina, sem eigi veröur á
torgum borin. Við börn var
hann hlýr í viðmóti, spaugsam-
ur og glaðsinna. — Hin síðari
ár átti hann við mikla van-
heilsu að stríða og háði það
honum við störf, sem hann
hefði kpsið að vinna að, þótt
ævistarfinu væri í rauninni
lokið.
Gunnlaugur Kristmundsson
kvæntist aldrei og á enga af-
komendur. Ég harma það nú
við brottför hans. Hann mun
að vísu lifa í verkum sínum
Ianga stund, margháttaðra
starfa hans mun gæta lengi hér
í Hafnarfírði, og nýtt gróðurlíf
úti um allar byggðir landsins
mun bera elju hans og ástund-
un órækt Vitni. — En ég harma
það eigi að síður, að hinir
miklu mannkostir lians, ráð-
deildarsemin og trúmennskan,
karlmennskan og þrótturinn,
ásamt hlýjunni inni fyrir,
hinn óskaddaði íslenzki kjarni,
skúli ekki erfast frá kyni til
kyns. — Það er þjóðinni skaði.
En þegar ég nú kveð Gunn-
laug hinztu kveðjunni, vildi
ég að lokum mega segja það,
að ánægður yndi ég við rnitt
ævistarf, ef nemendur mínir
iiugsuðu eins hlýtt til mín, er
tímar líða, og ég Iref jafnan
hugsað og mun jafnan hugsa
til þessa gamla og góða læri-
föður míns.
Stefán Júlíusson.
Jarðarför móð.ur okkar,
Gu$rúnar Jóhannsdóttur,
Urðarstíg 5,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. þ. m. kl. 2.
Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir hönd systkinanna.
\ Jóhann G. Gíslason.
Vefnaðarvðrur
frá Ítalíu.
FOÐUR
FLÓNEL
KJÓLAEFNI
SKYRTUEFNI
G ARDÍNUEFNI
VÍNNUFATAEFNI
BÓMULLAREFNI
margs konar.
FLJÓT AFGREIÐSLA GEGN
NAUÐSYNLEGUM LEYFUM.
Kristján G. Gíslason & Co. h.í
UTLEND
VÍNBER
verða seld i eins kíló skömmtum, verð kr. 28,00
pr. ílógr. mánudaginn 28. nóv. kl. 10 árdegis frá
Einholti 8 og Vesturgötu 20, Norðurstígsmegin.
FÉLAG MATVÖRUKAUPMANNA.
rnabækur
Bókaútgáfan Björk hefur nýlega sent frá sér þrjár barnabækur. Prentaðar í litum
og vandaðar að öllum frágangi.
1. Baragsi og flugan,
eftir Jens Sigsgaard, höfund bókarinnar, Palli var einn í heimimim, er út kom
í fyrra. Sú bók hefur komið út á 15 tungumálum og alls staðar hlotið fádæma
vinsældir. íslenzk börn tóku henni einnig af miklum fögnuði.
Bangsi og flugan er einkum ætluð yngstu lesendunum og mun áreið-
anlega njóta hylli þeirra. Louis Moe, hinn viðkunni teiknari, gerði myndirnar,
en önnúr síðan er jafnan mynd. V erð kr. 5,00.
2. Börsiisi hasis Bsmba,
er framhald hinnar afar vinsælu barnabókar, Bambi, sem kom út fyrir nokkr-
um árum.. Stefán Júlíusson íslenzkaði. Margar myndir prýða bókina. Verð -kr.
8.00.
3; Nú er gaman,
safn 10 smásagna, er Vilbergur Júlíusson hefur safnað og endursagt. Sumar sög
urriar hafa birtzt áður t. d. Pétur ánægði og Pétur önngi, Grísinn, sem vildi þvo
sér, Kata í kolakompunni og Undra’lugvélin.
Allar eru sögurnar bráðskemm'egar o'g myndum prýddar. Verð kr. 12.00.,
Bækurnar fást í næstu bókaverzlun.
Bókaúfgáfan BJðRK.