Alþýðublaðið - 29.09.1950, Side 7

Alþýðublaðið - 29.09.1950, Side 7
Föstudagur 29. sept. 1950, ALÞÝÐUBLAÐIÖ 7 til Vestjnannaeyja á morgun. Tekið á móti flutningi í dag. i FÉLAOSLÍF KOLVIÐARHÓLL. Sjálfboða- vinna að Kolviðarhóli um helgina. Lagt af stað frá Varðarhúsinu kl. 2 e. h. á laugardag. Skíðadeild ÍR. ♦ Minningarsjóður Sig- riðar Halldórsdóftur. Skemmtun í G.T.-húsinu í kvöld kl. 8. Ræða: Jón Gunnlaugsson fulltrúi. Upplestur: Anna Stína. Gamanvísur: Alfreð Andrés- son leikari. Einsöngur: Guðm. Jónsson söngvari. DANS. Aðgöngumiðar við innganginn. Nefndin. Unglinga vantar til að selja happdrættis- miða. Miðarnir afgreiddir í Lækjarbúðinni við Kalk ofnsveg. (Næstu dyr við Ferðaskrifstofu ríkisins.) Bandalag æskulýðsfélaga Reykjavíkur. 5TRAUJÁRN Straujánr ný gerð er kom- in. Verð kr. 195,00. Véla- og raftækjaverzlunin. Tryggvag. 23. Sími 81279. i Smurt brauð og snittur. Til í búðinni allan dag- inn. — Komið og'veljið eða símið. Síld & Fiskur. Útbreiðið Aiþýðublaðið berklavarnadagsins og tíma- riíið Reykjalundur selt á sunnudag ---:----o*—_— _. jj Næstá átak ScfÆLS, er að könia upp vinnuskálunri að Reykialunds, -----------------+------- BERKLAVARNADAGURINN er á sunudaginn kemur, og verða þá merki dagsins og tímarjtið „Reykjalundur“ selt á göt- um bæjarins og úti um allt land til ágóða fyrir starfsemi SíBS, en næsta átak þess er að koma upp fullkomnum vinnu- skálum að Reykjalundi í stað þeirra mjög óíullkomnu liúsa- kynna, sem nokkur hluti iðnaðarstarfseminnar er nú rckinn í. Merki berklavarnardagsins verða tölusett og gilda sem htppdrættismiðar, en vinning urinn í happdrætíinu er farseð ill með Gullfossi á næsta sumri til og frá Kaupmanna- höfn. Þá kemur þriðji árgang- ur tímaritsins „Reykjalund- ur“. út á berklavarnadaginn og verður tímaritið selt á göt- unum, en í því eru ýmsar greinar um starfsemina að Reykjalundi og myndir það- an, auk margs fleira efnis. Þá er í ritinu söngur SÍBS, en það er nýtt lag eftir Oddgeir Kristjánsson í Vestmannaeyj- um, er var í fyrsta sinn flutt við setningu landsþings sam- bandsins í sumar. Að Reykjalundi dveljast nú 36 vistmenn, auk annars starfs fólks, sem er um 25. Þegar vinnuskálarnir verða komnir upp, losnar nokkurt vistmanna pláss í aðalbyggingunni, þann ig að vistmannatalan getur orðið um 100. Nú eru sauma- ctofur, skermagerð og vinnu- vettlingagerð starfræktar í þrem stofum í efstu hæð aðal- byggingarinnar, en þessi her- bergi eru ætluð til íbúðar, þegar unnt t-r að losa þau. Það, sem mesta nauðsyn krefur, er að koma upp vinnu- skálum fyrir tréverkstæðið og bólstrun, en það hvort tveggja fer nú fram í mjög ófullkomnu húsnæði — gömlu hermanna- skálunum, en járnsmíðaverk- stæðið er aftur á móti í kjall- ara aðalbyggingarinnar og þarf að flytjast. Ætlunin er þó að byggia alls 5—6 vinnuskála, þannig að allur iðnaðurinn geti farið fram í þeim. Ráð- gert er að vinnuskálarnir verði allir um 6000 fermetrar að stærð. Síðast liðin tvö ár hef- ur fjárhagsráð synjað um byggingarleyfi, en forstöðu- menn Reykjalundar vænta bess fastlega, að það sjái sér fært að veita leyfi að minnsta kosti til nokkurs hluta af skál- anum. Á Reykjalundi er nú rekinn fiölbreyttur iðnaður og iðja. Má þar nefna trésmíðina og járnsmíðina, en þessi tvö verk stæði framleiða borð og stóla fyrir alla barnaskóla landsins og enn fremur borð og stóla fyrir veitingastofur og fleira Þá er Reykjalundur eini stað- urinn á landlnu, sem framleið ir bólstruð húsgögn; þar er full komin skermagerð, stór sauma stofa, vinnuvettlingagerð, bók btnd og leikfangagerð. Allur þessi rekstur hefur gengið með mikilli prýði og skilað ágóða, en á síðasta sumri dró nokkuð úr framleiðslunni vegna efn- isskorts. Að lokum má geta þess, að á Reykjalundi starfar sérstak- ur iðnskóli, þannig að vist- menn geta lokið þar iðnnámi í þeim greinum, unnar eru. Skólinn tekur til starfa nú upp úr mánaðarmótunum og munu verða 4 kennarar við hann í vetur. Enn fremur verða nám- skeið í bókfærslu og fleiru. Förstöðumenn SÍBS vænta þess, að Reykvíkingar og aðr- ir landsmenn bregðist enn vel við, og styrki málefni berkla- sjúklinga á sunnudaginn kem ur, enda hefur þjóðin þrásinn- is sýnt hug sinn til stofnunar- innar. 10.000 KRÓNA GJÖF í GÆR Einmitt í gærdag, er blaða- menn voru staddir að Reykja- lundi í viðtali við forráðamenn SÍBS, var þar stödd kona norð an úr Skagafirði, og var hún þar komin til bess að færa vinnuheimilinu 10.000 krónur að gjöf. Fer gjafabréf hennar hér á eftir: ,,Ég hef ákveðið fyrir nokkru að gefa nokkra fjárupphæð til líknarstarfsemi í minningu um foreldra mína, Þorbjörgu Ingibjörgu Ólafsdóttur og Svein Guðmundsson. Þau bjuggu í Bjarnastaðahlíð í Vesturdal í Skagafjarðarsýslu um 35 ára skeið. frá 1870. Signuðust þau 15 börn og kom ust 12 til fullorðinsára. Eru nú 8 á lífi, ég yngst. Nú hef ég fylgzt með starfi Reykja- lundar og séð, hve óeigin- gjarnt og göfugt mannúðar- starf þar hefur verið unnið með stofnun þess félagsskap- ar. Læt ég hér með fylgja 10 000 krónur til minningar um mína ástkæru foreldra. Guð blessi starf ykkar. Guðrún Þ. Sveinsdóttir kennslukona. Sauðárkróki11. Tveir nýir leikskolar Framhald af 1. síðu. voru þau Jónas B. Jónsson fræðslufulltrúi og Þórhildur Ólafsdóttir forstöðukona. IIús- gögn smíðaði Friðrik Þorsteins son. MJÓLK FÆST í SKÓLUNUM í leikskólum dveljast börn við leik og starf tíma úr degin- um, og eiga að hafa með sér nesti að heiman. Nú þykir það hins vegar óþægilegt fyrir svo lítil börn, sem í leikskólum dveljast, að hafa meðferðis mjólk á flösku, og hefur Sum- argjöf því ákveðið að fá senda beint í skólann ifijólk á pela- flöskum handa börnVnum til hagræðis fyrir þau og foreldra þeirra. Þurfa aðstandendur barnanna þá aðeins aj greiða fyrir dvöl þeirra þeim mun meira sem verði mjólkurinnar nemur. Úibreiðið Alþýðubiaðið r:Í Jarðarför hjartkæru eiginkonu minnar, -SesseljÞí'SigTÍðar Þorkelsdóítur, fer fram frá Fossvdgskapellu laugardaginn 30. sept. kl. 11 f. h. Vilhjálmur Eyjólt'Sson. ' Höfum fyrirliggjandi fjaðrir og fjaðrablöð í Dodge, Austin, Jeppa, G.M.C., Chevrolet og fleiri gerðir bifreiða. Upplýsingar í sölunefndarskemmunum við Tivoli. Sími 5948. Frá Bamavinaiélaginu Sumargjöf Fyrstu dagana í október verður nýr leikskóli opn- aður í DRAFNARBORG við DRAFNARSTÍG. Umsóknir sendist skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 12, næstu daga. Sími 6479. Ný bók Spennandi og fróðleg saga um sjúkt ástalíf. Bókin er 236 bls. á stærð í stóru broti og prentuð með smáletri. — Upplag mjög lítið. Verð kr. 40,00, innb. kr. 55,00. Prenismiðja Ausiurlands h.f. Hverfisgötu 78. Dí Ærkjöt Alikálfakjöt Kýrkjöt Hangikjöt Frysfihúsið Herðubreið, Sími 2678. Albvðublaðið vantar unglinga eða fullorðið fólk, til að bera út blaðið í þessi hverfi: VOGAHVERFI SKJÓLIN Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.