Tíminn - 17.04.1964, Qupperneq 6
NIXITA KRUSTJOFF
ÞEGAR sá orðrómur barst út
fyrir nokkrum dögum, að Nik
ita Krustjofí væri látinn, sló
óhug á marga, og flestir biðu
kvíðafullir eftir að fá vitneskju
um, hvort þetta væri rétt.
Ástæðan var sú, að Krustjoff cT
nú í hugum manna sá leiðtogi
Sovétríkjanna, sem bezt hefur
gert sér grein fyrir háska kjarn
orkustyrjaldar og hefur því í
alvöru tnarkað þá stefnu, að
kommúnistaríkin og lýðræðisrík
in eigi að keppa á grundveili
friðar, en ekki styrjaldar. Eng-
hm getur sagt það fyrir frara,
hvaða afleiðingar fráfall Krust
joffs getur haft á stjórn Sovét-
ríkjanna, — hvort eftirmaður
hann eða eftinmenn muni held
ur etarfa í anda hans eða Stal-
ins. Að sönnu bendir fleira til,
að þeir muni frekar starfa f
anda Krustjoffs, þvl það hentar
tvfmælalaust betur hagsmun-
nm Sovétrfkjanna. Þetta get-
«r þó enginn sagt með vissu,
®g þvi myndi fráfall Krustjoffs
nú skapa óvissu og óhug, eins
og flugufréttin um fráfall hans
lekkH avo glðggt 1 Ijós.
í þeara sambandi getur það
kannske verið mðnnum nokkur
huggun, að meðan Stalfn lifði,
■Ogðu margir, að það skapaði
▼íst öryggi, að hann héldi um
atjóraartauma Sovétríkjanna.
Stafín tefldi að vísu djarft, en
hann vaeri þó nógu hygginn til
að hætta ekki á styrjöld. Þetta
aama segja menn um Krustjoff
nd. Vonandi mun einnig verða
haegt að segja svipað um eftir
mann hans eða eftirmenn, því
að fyrst og síðast er það
Ifklegt tíl að vaka fyrir þeim,
irvað sé Sovétríkjunum fyrir
beztu. Meðan lýðræðisrfkin eru
nógu samhent, er ólfklegt að
Sovétríkin hefji árás, hvaöa
valdhafar, sem verða þar. Hitt
verður aldrei sagt, hvers kapp
gjamir valdamenn geta freist
azt til, ef keppinautarnir eru
veikir fyrir.
KRUSTJOFF hefur verið
valdamesti maður Sovétríkj-
anna síðan Stalín féll frá eða
í rúman áratug. Völd hans
hafa sennilega aldrei verið
eins miMl og vðld Lenins og
Stalíns voru. Hann hefur orð
ið að taka meira tillit til sam-
verkamanna sinna en þeir.
Hann hefur oft innan flokksins
þurft að sigla milli skers og
báru og hefur sýnt mikla hæfi
leika sem stjómandi í þeim
efnum. Þótt hann sé vafalaust
ráðrfkur, getur hann bersýni-
lega einnig sveigt til og samið.
Án þessara eiginleika, h^fði
hann ekki náð eins langt og
raun ber vitni.
Hér hefur áður verið vikið
að þvf, að Krustjoff hefur ekap
að sér meiri tiltrú út á við en
aðrir leiðtogar Sovétrfkjanna.
Það stafar að vissu leyti af
því, að hann hefur gert sér
grein fyrir tortímingu kjarn-
orkustyrjaldar. Að vissu marki
stafar það einnig af því, að
Krustjoff hefur unnið að nán-
ari skiptum við vestrænar þjóð
ir. Ef til vill, er munurinn á
Krustjoff og Stalín ekki sízt sá,
að Krustjoff er Evrópumaður,
en það var Stalín ekki. Krust-
joff minnir á vissan hátt á Pét
ur mikla. Hann flnnur tengslin
við vestrið, og vill læra ýmis-
legt af því, sem hann álítur til
fyrirmyndar. Hann virðist einn
ig gera sér fulla grein fyr:r
hinni hugsanlegu hættu að aust
an, sem Rússar fengu oft að
kenna á fyrr á öldum. í valda
tfð hans hafa því skiptin við
vestrænu löndin færzt á marg-
an hátt í skaplegra horf en áð-
ur var.
Merkilegustu störf sfn, ‘hef
ur þó Krustjoff unnið heima
fyrir. Það er ekki ósennilegt,’
að þessa áratugar, sem hann
hefur stjómað Rússlandi, verði
minnzt sem eins bezta tíma í
sögu þess. Því verður ekki á
móti mælt, að hann hefur færf
Rússland nær því að vera rétt
arríM en það nokkru sinni var
í tíð Stalíns eða keisaranna. í
stjóraartfð hans hafa lífskjör
almennings óneitanlega farið
batnandi í Sovétrfkjunum og
eru nú betri en nokkru sinni
fyrr, þótt enn sé langt frá því,
að þau séu sambærileg við kjör
manna í Norður-Ameríku og
flestum löndum Vestur-Evrópu.
En óneitanlega hefur þó miðað
í rétta átt í þvf efni. Krustjoff
hefur ekki aðeins verið for-
ustumaður á stjóramálasviðinu,
heldur einnig á vettvangi verk-
legra framkvæmda og oft sýnt,
að hann er óragur við að
leggja inn á nýjar brautir. Sumt
hefur honum heppnazt vel, eins
og í sambandi við geimrann-
sókniraar, en annað miður, eins
og í sambandi við hina stór-
felldu nýrækt á eyðisvæðum
austan Úralfjalla. EkM er ó-
sennilegt, að Krustjoff eigi
eftir að leggja inn á alveg nýj
ar leiðir í landbúnaðarmálum,
ef hann heldur um stjórnvöl-
inn góða stund enn. Til þess
benda nokkur seinustu ummæli
hans, m. a. þess efnis, að þar
verði að sækja fyrirmyndir til
vestrænna þjóða.
Á UNDANFÖRNUM árum
hafa verið skrifaðar margar
ævisögur um Krustjoff, en það
gildir undantekningarlaust um
þær allar, að þær hafa verið
eftir hðfunda vestan tjalds og
gefnar út þar. Það tíðkast enn
ekM í Sovétrlkjunum að skrifa
bækur um forustumenn þar, en
þó eru rússnesk blöð farin að
segja heldur meira frá æviferli
forustumanna kommúnista en
áður, en samt ekM nema í stór-
um dráttum. Það gildir mjög
um þær ævisögur Krustjoffs,
sem hafa verið gefnar út vestan
tjalds, að þær eru ósammála
um ýmis veigamikil atriði og
oftast skrifaðar af kulda í garð
hans. Höfundamir hafa auð-
sjáanlega orðið að fara meira
og minna eftir sögusögnum og
hæpnum heimildum. Þessvegna
er örðugt að rekja æviferil
Krustjoffs, nema í stórum dráít
um.
Samkvæmt opinberum rúss-
neskum heimildum erKrustjoff
fæddur 17. apríl 1894 i sveita
þorpinu Kalinovka, sem er
skammt frá Kursk. Þetta er
eitt af fátækustu sveitahéruð-
um í Sovétríkjunum. Sam-
kvæmt opinberum heimildum,
var afi Krustjoffs efnalítill smá
bóndi, en faðir hans gat ekkert
jarðnæði fengið og gerðist því
námumaður. Krustjoff ólst upp
í miMll fátækt og vann fyrir
sér sem smaladrengur, jafn-
hiiða og hann sótti bamaskóla
í þorpinu. Fimmtán ára gatn-
all byrjaði hann að vinna sem
námumaður með föður sínum.
Þá vinnu stundaði hann, unz
hann gekk í flokk kommúnista
eftir byltinguna 1917, en þá var
hann orðinn 23 ára gamall-
Ekki er kunnugt um, að hann
hafi verið orðinn kommúnisti
áður, en hins vegar hafði hann
verið riðinn við verkföll. Það
þótti fljótt sýna sig, að hann
var góður sMpuleggjari, og því
studdi flokkurinn hann til nokk
urs verHegs náms og geröi
hann síðan að aðstoðarfram-
kvæmdastjóra við námurekstur.
Fljótlega hækkaði hann meira
í tign. Árið 1929 var hann send
ur til náms á tækniskóla i
Moskvu og gat sér þar þann
orðstír, að hann var tveimur
árum seinna gerður fram-
kvæmdastjóri flokksdeildarinn
ar í Moskvu. Því starfi gegndi
hann næstu sjö árin, ásamt
mörgum trúnaðarstörfum öðr-
um i flokknum. Hann þóttl ekki
aðeins reynast dugandi áróðurs
maður og flokkslegur sHpu-
leggjari, heldur ðtull forystu-
maður á sviði verklegra fram
kvæmda, sem hann lét mjög
til sín taka. Árið 1938 var hann
enn hækkaður í tign og sHpað
ur framfcvæmdastjóri kommún-
istaflokksins í Ukrainu. Þvi
starfí gegndi hann næstu þrjú
árin og hlaut miMð orð fyrir
athafnasemi á sviði verMegra
mála. Hann endursHpulagðÍ
flest atvinnumál Ukrainu og
þótti ná góðum árangri í sam-
anburði við aðra landshluta. Á
styrjaldarárunum gegndi hann
ýmsum miMlvægum störfum
fyrir flokkinn á vígstöðvunum.
Þegar striðinu lauk, tók hann
aftur við starfi sínu í Ukrainu
og skipulagði endurreisnarstarf
ið þar. Árið 1949 var hann
kvaddur til Moskvu og falin
störf þar. Ýmsir töldu þetta
merM þess, að Stalín vildi ekM
gera hann of voldugan í Ukra-
inu, en auk þess mun hafa ver-
ið kalt á milli hans og Beria.
Krustjoff tókst þó að halda til-
trú Stalins og var hann einn
af framkvæmdastjórum komm- 0
únistaflokks Sovétríkjanna, er
Stalín féll frá. Hann varð þá 1
aðalframkvæmdastjóri flokks- fi
ins, en Malenkoff varð forsætis- 0
ráðherra, en þeir höfðu þá ver- 0
ið keppinautar um skeið. Smá
saman tókst Krustjoff að ýta H
Malenkoff og öðrum keppinaut
um sínum til hliðar, en oft
mun hafa munað litlu, að þeir
yrðu honum hlutskarpari. Síð-
an 1958 hefur Krustjoff verið
bæði aðalframkvæmdastjóri
flokksins og forsætisráðherra
ríkisins og þannig óumdeilan-
lega valdamesti maður Sovét-
ríkjanna.
UM það verður ekki deilt,
að Krustjoff var um langt skeið
einn helzti samverkamaður
Stalíns og þurfti á ýmsum svið
um að framfylgja hinni óhugn-
anlegu stefnu hans. Hinu verð
ur hins vegar ekki neitað, að
Krustjoff hefur notað völd sín
til að taka upp aðra stefnu
stórum geðfelldari.. Hin blinda
foringjadýrkun og óhugnanleg
í'ramhald á 11. síðu.
Þessl mynd var tekln i áffúMmánuSI ( fyrra, þegar Dean Rusk, utan ríklsráSherra Bamdarfkianna, heimsóttl Sovétrfkin. Þarna ræSast
þelr vlS Krustfoff og Rutk, m meS þelm er Cromyko, utanrfklsráS herra Sovétrfk|anna.
I ®
T ( M I N N, föstudagur 17. aprfl 1964.