Tíminn - 17.04.1964, Qupperneq 9

Tíminn - 17.04.1964, Qupperneq 9
STEINGRÍMUR HERMANNSSON: RAUNVÍSINDI OG TÆKNI HVAD ER FRAMLEIDNI? i Orðlfl framleiðni er ná mikið notað, bæði aí ráðamönmum og jafnvel almenningi, einkum þegar rætt er um að auka þurfi þjóðar framleiðsluna og bæta lífskjörin. ÍÞó mun það vera staðreynd, að hugtakið er iðulega notað í vafa Bamri merWngu, enda ekW óeðli- legt, því ■ það er tiltölulega nýtt og hefur lítið verið skilgreint fyr- ir a’menning og notkun þess jafn vel nokkuð á reiW á meðal fræði- manna. Margir gera sér ekW heldur grein fyrir hinum mjög mikiivæga þætti auWnnar framleiðni, bætts sWpulags, nýrrar tækni, þekWng ar og vísinda fyrir hagvöxt og bætt lífskjör. Þetta hefur einnig til skamms tíma verið nokkuð um deilt á meðal kunnáttumanna, en þjóðhagsleg þýðing þessara þátta er nú viðurkennd orðin og fer Btððugt vaxandi. Samnefnari fyrir þessa þætti hag vaxtarins er einnig mjög á reiW. Eðlilégt virðist að telja vísindin, rannsóknarstarfsemina og aukna þekWngu grundvallarhvatann, en oft er árangurinn þó aðeins nefnd nr bætt skipulag og ný tækni, eða eingöngu auWn framleiðni, enda er það hinn áþreifanlegi þáttur í hagvextinum sjálfum. Á fundi Félags ungra Framsókn armanna í Reykjavík 17. marz s. 1. flutti Sveinn Bjömsson, verkfræð ingur, framkvæmdastjóri Iðnaðar málastofnunar fslands, mjög fróð legt erindi, sem hann nefndi „Hag vöxtur — hagræðing“. Umræðu- efni þettá á erindi til allra lands- manna og er fyrri hluti þess, sem fjallar um hagvöxtinn, því birtur hér á eftir efnislega, en nokkuð siyttur, en seinni hlutinn, sem fjallar um leiðir til þess að aufca hagvöxtinn, hagræðinguna, mun verða birtur í næsta þætti raunvís inda og tækni. Nú hefur Sveinn Bjömsson orðið: Hagvöxtur Á sama hátt og stjómendur iðn- fyrirtækja, útgerðarmenn, bændur og aðrir atvinnurekendur þurfa að gera sér grein fyrir afkomu og þróun starfsemi sinnar, verða stjórnarvöld og þjóðfélagsþegnar að geta gert sér grein fyrir þróun þjóðarbúskaparins. Vegna ófull- kominna þjóðhagsreikninga hefur þetta til skamms tíma reynzt erf- itt hér á landi, tölulegar upplýsing ar hafa verið ónákvæmar og af skornum skammti. Hin síðustu ár hefur nokkuð verið úr þessu bætt, og nú liggja fyrir þjóðhagsreikn- ingar fyrir árið 1945—1962. Eðlilegt er að skyggnzt sé á bak við tölumar og athugað hvað af þeim megi læra. f þeim efnum lítur eflaust hver að vissu marki silfrið sínum augum eftir stjórn- málaviðhorfi og er ekki ætlunin að fara út í þá sálma hér. Til staðreyndar telst það hins vegar, að aflabrögð ráða miklu um hag- vöxtinn frá einu ári til annars og sömuleiðis að hagvöxtur hefur verið tiltölulega hægur á íslandi samanborið við lönd Vestur-Evr- ópu á áðurgreindu tímabili. Þrátt fyrir miklar rannsóknir í ýrrrsum löndum, eru menn ekki á eitt sáttir um crsakasamhengi hag vaxtar yfirleitt, og er því ekki að undra þótt óvissa ríki í þessum efnum hér, þar sem upplýsingar um vöxt einstakra atvinnugreina og framleiðniþróun era takmarkað ar. Það er þó mjög mikilvægt, að við skiljum þetta orsakasamhengi, því þá mun okkur ganga betur að ná örutn og traustum vexti þjóðarframleiðslunnar, setn hlýtur ávallt að vera eitt meginmarkmið okkar í efnahagsmálum. Að mínu áliti hefur verið treyst alltof mikið á fjárfestingu í at- vinnutækjum sem hagvaxtargjafa, og er kominn tími til að sá hugs unarháttur breytist. Við greiningu hagvaxtar hafa einkum þrír þættir verið lagðir til grundvallar: f fyrsta lagi fjölg un vinnandi fólks, í öðru lagi auk- in fjárfesting í atvinnutækjum (framleiðslufjármunum) og í þriðja lagi bætt sWpulag og ný tækni (sem í skýrslu þeirri, sem vitnað er í hér á eftir er einu nafni nefnt framleiðni (produWivi tet)). Nýlega hafa farið fram í Banda ríkjum Norður-Ameríku rannsókn ir, þar sem einkum hefur verið leit azt við að kryfja til mergjar þriðja þáttinn, sem sagt framleiðn ina í efnahagslífinu (eða bætt skipulag og ný tækni). Ljóst er, að framleiðslumagn hefur vaxið tiltölulega mfWn hraðar en vinnu afl og fjármagn og er skýringar- innar að leita í þessum þriðja þætti, sem erfiðast hefur reynzt að átta sig á. Umræddar rannsókn ir hafa því beinzt að þessu sleipa ■hugtaW framleiðni og því, hvers vegna framleiðslumagnið hafi vax ið svo stórkostlega á hverja ein- ingu vinnuafls og fjármagns sem raun ber vitni. Þessar rannsóknir hafa farið fram á vegum National Bureau of Eeonomic Research und ir stjórn John W. Kendrick og hafa niðurstöður þeirra verið birt ar í bók eftir hann, sem nefnist Productivity Trends in the Unit ed States. f rauninni ná þessar rannsóknir yfir tímabilið 1870— 1959, en hér verður tímabilið 1929 —1959 aðallega gert að umræðu- efni- Vinnuafl. Samkvæmt niðurstöð- unum hefur heildartala vinnu- stunda allra launþega aukizt ár- lega á þessu tímabili sem svarar 0,6% og er talið, að þetta geri um 16% af vaxtarhlutfalli heiid arframleiðslunnar. Fjármagn. Miðað við 6töðugt gildi peninga kemur í Ijós, að efn islegt magn bygginga, vélbúnaðar og birgða jókst um 2% á ári síð- ustu þrjá áratugina og að næst- um allur sá ávinningur atti sér stað á tímabilinu eftir heimsstyrj- öldina síðari. Niðurstaðan verður, að fjármagnið hafi lagt til 15% af heildarhagvextinum miðað við magn og óbreytt gæði. Samkvæmt þessu verða aðeins 31% af raunverulegum hagvexti síðustu 30 ára útskýrð með magn- aukningu framleiðsluþáttanna tveggja, vinnuafls og fjármagns. Þau 69%, sem eftir eru, stafa af aukinni framleiðni, sem notað er hér í mjög víðtækri meriringu. í niðurstöðum hinna nýju rann- sókna hafa sumir af hinum mikil- vægu þáttum framleiðninnar verið einangraðir og metnir. Efnisnýting hefur auWzt um 0.5 á ári síðan 1929 að því er talið er. 5% af hagvextinum eiga því rætur sínar að rekja til hagkvæm- ari efnisnýtingar. Markaðsaðstæður. Þegar mark- aðir stækka, geta framleiðendur og vöradreifendur komið á fjölda framleiðslu og stórmarkaðsdreif- ingu. Samkvæmt áætlun stafa 1 stórum dráttum utn 9% af hag- vextinum af slíkum aðgerðum. Betri ráðstöfun vinnuafls og fjár magns hefur haft áhrif á hagvöxt- inn. Að vísu kunna höft að tak- markanir á samkeppni að hafa dregið mjög úr þessum ávinningi, en telja má þó að 4% af hagvextin um eigi rætur slnar að rekja til áhrifa meiri nýtingar vinnuafls og fjármagns. Gæði vinnunnar er unnt að bæta með skipulagðri fræðslu, verkþjálf un og með því að auka vinnuat- orkuna. Gildi skipulagðrar fræðslu, er vinnuaflið hefur notið, hefur vax ið utn 4% árlega. Áætlanir um framlag fræðslunnar til hagvaxt arins ná allt upp í 23%, en þeir, sem varkárari eru í mati telja það um 8%. Gildi verkþjálfunar birtist í hinni vaxandi áherzlu, sem í at- vinnulífinu er lögð á bætta mennt- un, yfir 5% á ári að því er ein áætlun hermir. Verkbjálfunin gæti þannig útskýrt 11% af hagvextin- um. Á síðustu þremur áratugum hef ui nokkuð af styttingu vinnutím- ans verið bætt upp með aukinni atorku við vinnuna, bæði vegna minni þreytu og af öðram ástæð- um, og gæti þetta framlag verið sem svarar 2% af hagvextinum. Aðrar orsaWr hagvaxtarins. Þættir þeir, sem hér hafa verið taldir, gera samanlagt grein fyrir 70% af vextinum í framleiðslu Bandaríkjanna á vörum og þjón- ustu á undanförnum þremur ára- tugum. En þeim 30% sem eftir era, verður enn ekki sWpað niður á sérstaka þætti. Nokkuð á ef- laust rætur sínar að rekja til auk- inna gæða fjármagnsins. Þegar tek ið hefur verið tillit til almennrár verðhækkunnar fæst meira fyrir hvern dollar, sem eytt er til fram leiðslutækja í dag en áður var. Þessar breytingar á gæðum fjár- magnsins verða þó ekki mældar með tiltsekum tölfræðilegum að- ferðum. Endurbætur á stjórnunaraðferð um hafa einnig miWlvægan en að vísu ómælanlegan þátt í vextinum. Dæmi þess er lækkun á hlutfalli birgða gagnvart sölu. Síðast en ekW sfzt hefur aukin 'visinda- og rannsóknarstarfsemi með sköpun nýrra vörategunda, hráefna og tækni verið óaðsWljan legur hluti af hagvextinum. Út- gjöld einkaframtaksins á þessu sviði hafa t. d. tvöfaldazt á árun- um 1953—1961. Samt sem áður er ekW um að ræða öraggan mæli- kvarða á framlag rannsóknarstarf- seminnar til hagvaxtarins. Þótt þróun atvinnulífs Banda- ríkjamanna sé sennilega í' fáum atriðum sambærileg þróun okkar atvinnulífs, má draga vissar ályW- anir af niðurstöðum hinnar banda rísku rannsóknar. Þannig er aug- ljóst, að fjármagnið eitt er vafa- samur hestur að veðja á til auk- ins hagvaxtar, þótt það verði að telja. ómissandi. Hlutir eins og bætt efnisnýting, bætt nýting vinnuafls og fjánmagns, auWn tæknimenntun og verkþjálfun, bættar stjórnunaraðferðir og rneiri • rannsóknarstarfsemi eru allt atriði, sem skipta miklu máli fyrir hagvöxtinn, hvort heldur um er að ræða lítið þjóðfélag eða stórt. Framleiðni. Vikið verður að hugtakinu fram leiðni, sem ég mun nota í nokkuð þrengri merWngu en gert var í sambandi við ofangreindar rann- sóknir. FramleiðnL Frá lokum sfðari heimsstyrjald- ar hafa m. a. Vestur-Evrópuþjóð- irnar lagt síaukna áherzlu á að kanna nýtingu hinna ýmsu þátta framleiðslunnar, þ. e. a. s. vinnu- afls, hráefnis, orku, fjármagns, o. s. frv. Má segja, að áhugi haíi skapazt eftir styrjöldina þegar evrópskir stjómendur fyrirtækja og verkalýðsleiðtogar kynntust bandarískri verkmenningu sg rekstrartækni. Algengt reyndist t d., að í bandarískum iðnaði fram- leiddi hver verkamaður tvisvar til fimm sinnum meira verðmæti en starfsbróðir hans f Evrópu á sama tíma. Oft var þetta vegna um- fangsmiWllar vélvæðingar og sjálf virkni eins og t. d. í bílaiðnaðin- um, þar sem hinn geysistóri mark aður leyfði slíkt, en víðast hvar vegna fullkominnar iðnrekstrar- tækni, sem hnitmiðaði vinnu-, efn is- og orkusparnað samfara há- marks nýtingu á framleiðslutækj- um. Hér fékkst skýringin á miklu betri lífskjörum Bandarfkjamanna en Evrópubúa. Nýting framleiðsluþáttanna er einu nafni kölluð produktivitet á erlendum málum, en á fslenzku framleiðni. Hugtakið hefur verið skilgreint á ýmsa vegu og hefur orðið umfangsmiWð og verðugt rannsóknarefni hagfræðinga og verkfræðinga í mörgum löndum. Framleiðnin er fólgin í nýtingu framleiðsluþáttanna og ákveðst sem reikningsleg stærð með hhit- fallinu á milli heildarmagns eða verðmætis tilteWnnar framleiðslu og magns hvers framleiðsluþáttar, sem til þurfti. Almennt talað, get- um við táknað þetta með hlutfall- inu framleiðsluverðmæti -------------------- = framleiðni tilkostnaður Sérhver ráðstöfun, sem eykur telj arann, þ. e. framleiðsluverðmætið meira en tilsvarandi þætti í nefn aranum, þ. e- tilkostnaðinn, eykur framleiðnina. Þetta hlutfall gefur til kynna heildarframleiðnina. Að sjálfsögðu samanstendur til- kostnaðurinn af mörgum þáttum, svo sem efni, vinnu, orku og ýmsu fleira og er í sjálfu sér ekkert því til fyrirstöðu að reikna framleiðn ina út fyrir hvern og einn þeirra. í stað heildartilkostnaðar í nefn- aranum kæmi þá t. d. vinnustunda fjöldi, kílóvattastundir eða Wlóa- fjöldi af hráefni eftir því, hvort það væri heldur nýting vinnunnar, orkunnar eða hráefnis, sem við vildum gera okkur grein fyrir. Venjulega er það framleiðni vinn- unnar, sem mestnr áhugi beinist að, því að í henni endurspeglast heildarframleiðni og jafnframt möguleikar til bættrar afkomu. Með aukinni framleiðni er í dag legu tali átt við að framleiða meiri eða verðmeiri vöra með sama eða lækkuðum tilkostnaði. Enn virðast menn hér á landi ekW gera sér almennt grein fyrir gildi framleiðni í atvinnurekstri fyrir efnahagsþróun og lífskjör, þótt hér sé raunveralega um und- irstöðuatriði að ræða. Sífellt er talað um að auka framleiðsluna og afköstin og þá tíðum gengið fram hjá þeirri staðreynd, að það er ekki einungis magnið sem ákveður lifskjörin, heldur miklu fremur verðmætisaukningin, þegar allur tilkostnaður hefur verið dreginn frá. Eg hef leitazt við að sýna fram á, að bætt lífskjör eru beinlínis háð aukinni framleiðni í atvinnu- vegum okkar. Nú vaknar sú spurn ing, hvaða leiðir eru færar til þess að auka framleiðnina og hvaða aðilar það eru, sem eiga að láta það stórmál til sín taka. Um það verður rætt í seinni hluta þessa erindis. V í M I N N, föstudagur 17. apríl 1964. 9

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.