Tíminn - 01.05.1964, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.05.1964, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR 108. tbl. — Föstudagur 1. maí 1964 — 48. árg. A varp verkalýðsmálanefndar Framsóknarfíokksins DAGVINNULAUN D VÆNLEGRAR Á hátíðis- og baráttudegi verkalýðsins, 1. maí, flytur Verkalýðsmálanefnd Framsóknarflokksins verkalýðsstéttun- um í landinu hugheilar hamingjuóskir, og hvetur til samstilltrar sóknar fyrir hagsmuna- og réttindamálum þessara stétta. í því efni vill nefndin einkum minna á eftirtalin baráttumál, sem hún telur brýn og tímabær eins og nú horfir: # Vinnustéttunum verði tryggð full hlutdeild í vexti þjóðarteknanna, en mjög skortir á, að svo hafi verið undan- farin ár. Misskipting þjóðarteknanna hefur og vaxið að miklum mun, og verður að snúa frá þeirri landsmálastefnu til meira jafnræðis. Launþegasamtökin verði styrkt til þess að koma á fót eigin hagfræðistofnun til þess að fylgjast með þróun mála á þessu sviði. # Unnið verði markvisst gegn vaxandi dýrtíð og verðbólgu og snúið frá þeirri stjórnarstefnu, að verðlag hækki jafn- an meira en kaupgjald, eins og nú er, þar sem kaupgjald hefur hækkað um 55% en verðlag um 84% -íðustu fjór- um árum. Jafnvægi í þessum.efnum verði meðal annars náð með því að lækka vexti og hætta að legg' ^yzluskatta langt úr hófi fram, eins og gert hefur verið á síðustu árum. # Stefnt verði að styttingu daglegs vinnutíma, sem nú er óhóflega langur, með beim hætti, aðtekjur eð'ilegs vinnu- dags nægi til lífvænlegrar afkomu, en séu ekki örbirgðarkjör, eins og opinberar skýrslur staðfesta nú. Því er eitt meginverkefni verkalýðsbaráttunnar í dag að ná því marki, að lægstu daglaun vinnandi manns dugi til mannsæmandi afkomu meðalfjölskyldu. # Lögð verði áherzla á það í næstu kaupsamningum að koma á verðtryggingu launanna, og á þann hátt gert mögu- legt að gera samninga og tryggja vinnufrið til lengri tíma, en verið hefur. # Gert verði nýtt og stórfellt átak til þess að afla öllum borgurum þjóðfélagsins viðunandi húsnæðis með greiðslu- kjörum, sem þeir rísa undir. í þessum efnum hefur átt sér stað mikil öfugþróun á undanförnum árum, eins og sívax- andi húsnæðisskortur, óhóflegur byggingakostnaður og stóraukið íbúðabrask ber vott um. Séð verði. um. að bygginga- lán geti orðið a.m.k. tveir þrið;u af byggingarkostnaði, og lánin til langs tíma, eins og gert er ráð fyrir í tillögum Fram- sóknarmanna á Alþingi. # Unnið verði að endurbótum á tryggingakerfinu, m.a. á þann hátt, að allir geti orðið aðnjótandi stórhækkaðra ellilauna og lífeyris, og stofnaður verði almennur lífeyrissjóður eins og Framsóknarflokkurinn hefur lagt til á Alþingi. # Verkalýðsnefndin skorar á launastéttirnar að standa öruggan vörð um félagafrelsið og óskertan samningsrétt en gegn allri lögþvingun, afskiptum og hefndarráðstöfunum ríkisvaldsins. Tilraunir ríkisstjórnarinnar á s.l. hausti voru alvarleg áminning um aukna varðstöðu í þessum efnum, og fordæmir verkalýðsnefndin harðlega lögþvinganir þær, sem ríkisstjórnin reyndi þá að koma fram á Alþingi. Minnir nefndin á, að opinberir starfsmenn hafa fengið að reyna eftirminnilega, hvernig gr að búa við skertan samningsrétt og gerðardóm. # Verkalýðsnefnd Framsóknarflokksins hvetur til sem allra beztrar einingar og samstöðu allra félagasamtaka launastéttanna í landinu í kjarabaráttunni og telur það vænlegast til árangurs. Þess vegna telur hún ástæðu til að harma, að ekki skuli nú vera fylgt þeirri venju að bjóða opinberum starfsmönnum þátttöku í l.-maí hátíðahöldunum í Reykjavík eða hátíðadagskrá útvarpsins, og einnig gengið fram hjá forseta Alþýðusambands íslands. # Verkalýðsnefnd Framsóknarflokksins heitir á verkalýðsstéttirnar, samtök þeirra og íslenzku þjóðin? alla, að standa saman í órofa heild um sjálfstæði þjóðarinnar, vernda menningu hennar og þjóðerni og óskertan rétt yfir auðlindum og framleiðslutækjum, landi og fiskimiðum. Með baráttukveðju á hátíðisdegi verkalýðsstéttanna. Verkalýðsnefnd Framsóknarflokksins. Ármann Magnusson Ásbjörn Pálsson J'aði Olafsscn Jóhann P. Einarsson Jón Bjarnason Jón Jónasson Ásgeir Sigurðsson Borgþór Sigfússon Hannes Jónsson Hjörtur Hjartarson Jón Reynir Einarsson Jón D. Guðmundsson KHstinn Gunnlaugsson r.árus Sigfússon Markús Stefánsson Rúrik Kristjánsson Óðinn Rögiivaldsson < Sigurður Sigurjónsson Páll Eyjólfsson Stefán E. Jónsson t>ínhnrri Sigur'baldursscm Örn Einarsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.