Tíminn - 26.05.1964, Qupperneq 2
4
l mor
Mánudagur, 25. maí.
NTB-Vientiane. — Pathet
Lao-kommúnistar héldu í dag
áfram sókn sinni á Krukku-
slétt'u og hafa unnió flestar
stöðvar hlutlausra þar.
NTB-Peking. — Aðalmál-
gagn kínverskra kommúnista.
„Dagblað alþýðunnar", skrifaði
í dag, að tillaga Bandaríkjanna
um að fá SÞ með í friðarstarf-
ið í Suðaustur-Asíu, væri illvil;
uð.
NTB-New York. — Blaðið
New York Times skrifar í dag,
að Sovétríkin undirbúi að senda
mannað geimfar til tunglsins.
NTB-Georgetown. — Á mánu
dagsnóttina voru 40 hús brennd
í fimm þorpum í Brezku Gui-
ana.
NTB-Cairo. — Nikita Krust-
joff hefur Iokið 16 daga heim
sókn sinni í Arabíska Sambands
lýðvcldinu og hefur veitt land-
inu 252 milljón rúbla lán til
langs tíma.
NTBOsló. — Gerhard Schröd
er, utanríkisráðherra V-Þýzka-
lands, kom í dag í þriggja
daga heimsókn til Noregs.
NTB-Durban. — Albert Lut
uli, sem fengið hefur friðar-
verðla'un Nóbels, hefur á ný
verið settur í fimm ára stofu-
fangelsi í Suður-Afríku.
NTB-Hannover. — Fimm
Austur-Þjóðverjar flúðu yfir til
V-Þýzkalands um helgina.
Einn þeirra missti annan fót-
inn, þegar hann lenti á neðan
jarðarsprengju.
NTB-London. — Dóttir Mar-
grétar prinsessu og Snowdons
lávarðar, sem fæddist 1. maí
s. I., verður skírð Sarah Fran-
ces Elizabeth.
NTB-Berlín. — A-þýzki
'kommúnistaleiðtoginn Walter
Ulbricht fer í opinbera heim
sókn til Moskvu á föstudaginn
NTB-Belgrad. — Nokkuð
harður jarðskjálftakippur varð
í norðu’-'-1"*- ■'""óslavíu í dag.
Skewi- ” ’-'-'-av á eign
um. c"
NTB-Moskvu. — Sovétska ut
anrikisráðuneytið hélt í kvöld
veizlu fyrir sendiherra fslands,
Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur
og FinnJands í Moskvu. Margir
helztu Jistamenn Sovétríkjanna
voru viðstaddir.
NTB-New York — Bretar
iýstu í dag yfir stuðningi sín-
um við tillögu Bandaríkjanna
um, að Sameinuðu þjóðimar
taki þátt í því að endurheimta
frið í Indó-Kína.
NTB-Róm. — Ákveðið var i'
dag að halda nýjan fund milli
Austurríkis og ftalíu um Týrol-
van-damálið einhverntíma
seinná i sumar.
DASSAULTFUNDIN
NTB-París, 25. maí
Þrír þeírra, sem rændu frú
Madeleine Dassault s. s. laugar-
dagsnótt, hafa verið handteknir af
Madeleine Dassault
lögreglunni í París, en fjórði mað
urinn kom sér undan í stolnum
bfl. Frú Dassault fannst í gær á
bóndabæ um 50 km fyirr norðan
París.
Frú Daussault sagði lögreglunni
að hún hefði verið flutt til bónda
bæjarins strax eftir ránið aðfara-
nótt laugardagsins. Eigandi bónda-
bæjarins heitir Mathieu Costa. —
Hann er frá Korsíku og vel þekkt-
ur í undirheimum Frakklands.
Hinir tveir, sem handteknir hafa
verið, eru bræður, Gabriel og
Gaston Darmon.
Frú Dassault sagði, að ráns-
mennimir hefðu verið fjórir og
að allt hefði virtzt sMpxflagt. Þeir
komust út úr París áður en lög-
reglan gat komið á ströngu eftir-
liti á öllum vegum út úr borg-
inni. MiWð lögreglulið tók þátt í
leitinni, sem er talin sú mesta í
sögu frönsku lögreglunnar í seinni
tíð.
Frú Madeleine Dassault er gift
Marcel Dassault, sem framleiðir
m. a. flugvélar, á banka og gefur
út frægt kvennablað. Hann er þing
maður og ákafur stuðningsmaður
de Gaulles forseta.
Slökkvlliðlð að störfum vlð Trésmlð|una h.f. (Tímamynd—GE).
ELDUR Á VERKSTÆÐI
Barry Goldwater sagðist í gær vilja
Kjarnasprengjur
- Vietnam
NTB-Washington, 2'5. maí.
Öfgafulli öldungadeildarþing-
maðurinn Barry Goldwater, sem
er einn líklegasti frambjóðandi
republikana við forsetakosningarn-
ar í haust, sagði í gær, að nota
ætti litlar kjarnorkusprengjur í
Suður-Víetnam til þess að út-
rýma skóginum þar og afhjúpa
samgönguæðarnar, sem Viet Cong
kommúnistar fara um.
Goldwater sagði einnig, að;
Bandaríkjamenn yrðu að sprengja j
upp brýr, vegi og járnbrautarlín-!
ur, sem notaðar eru til þess að j
flytja vistir frá Norður-Víetnam I
og Kínverska Alþýðulýðveldinu til
Viet Cong-herliðsins. Goldwater,
sem talaði í sjónvarp, kvað auð-
velt að framkvæma áætlun sína og
ásakaði um leið Johnson forseta
fyrir að vera óákveðinn í afstöðu
sinni til Vietnam-vandamálsins.
„Fyrsta ákvörðunin, sem við
verðum að taka, er að við eigum
að vinna stríðið“ — sagði hann.
„Við erum með öðrum orðum ekki
í Suður-Víetnam sem ráðgjafar.
Drengirnir okkar eru þar og þeir
eru skotnir niður af kommúnist-
um. Bandaríkin reka varnarstríð
í Suður-Víetnam. Slíka styrjöld
er aldrei hægt að vinna“, — sagði
Goldwater.
KJ-Reykjavík, 25. maí
Aðfaranótt sunnudagsins veitti
vegfarandi, er leið átti um Vestur-
götu, langt gengin í þrjú, athygli
reyk sem lagði úr húsi því er
Bræðumir Ormson hafa aðsetur
sitt í neðst í götunni. Slökkvilið-
ið kom fljótlega á vettvang og
tókst að kæfa eldinn á um Mukku
tíma. Eldurinn kom upp í þurrk-
skáp á stilliverkstæðinu, en náði
aldrei verulegri útbreiðslu. Verk-
stæðiplássið varð allt svart af sóti
og reyk, og þar með dýrmætar
vélar verkstæðisins. Flestar þeirra
reyndust óskemmdar þegar búið
var að hreinsa þær upp og athuga.
Inni a stilliverksfæSinu, þar sem eldsupptokin voru. (Tímamynd—KJ).
2 ára barn drukknar
Eldur í trésmiðju
KJ-Reykjavfk, 25. maí
Um Mukkan tíu á laugardags-
kvöldið var elds vart í Trésmiðj-
unni h.f. í Brautanholti 30. Starfs
maður fyrirtækisins átti þá leið
þar uin og heyrði snark í eldi.
Mestar skemmdirnar urðu af vatni
og reyk, vegna slökfcvistarfsins,
en nálægt eldsupptökunum voru
eldfim efni. Talið er að eldsupp-
tök hafi verið í hraðsuðukatli, er
sMlinn hafði verið eftir í sam-
bandi.
HF-Reykjavík, 25. maí
Tveggja ára drengur, Sigurdór
Sverrisson, féll á laugardaginn i
Hvolsá að Bessatungu í Saurbæ
og drukknaði. Sigurdór, sem er
sonur Arndísar Þórðardóttur í
Bessatungu, var ásamt öðrum böm
um að leika sér við ána, sem er
djúp og straumhörð. Strax og votn
aðist að hann hafði fallið í ána
kom bæjarfólMð á vettvang og
bjargaði baminu upp úr ánni og
hóf lífgunartilraunir, en allt kom
fyrir ekki. Þegar héraðslæknir-
inn, Þórhallur Ólafsson kom á
staðinn, var drengurinn látinn.
VEIÐIFERO TIL GRÆNLANDS
Ferðaskrifstofah SUNNA hefir
tekið á leigu eina af millilanda-
flugvélum Flugfélags ísands, h.f.
í tveggja daga veiði- og kynnis-
ferð til Grænlands um aðra helgi,
6. og 7. júní. Flogið verður héðan
klukkan sjö á laugardagsmorgun
og farið vestur yfir meginjökul
Grænlands og lent eftir um það
bil fjögurra stunda flug á flug-
vellinum við Eiríksfjörð á Vest-
urströnd Grænlands. Þar verður
búið á hóteli dönsku Grænlands-
verzlunarinnar. Þarna við Eiríks-
fjörð era tvær frægar lax- og
silungsveiðiár, og hefir verið afl-
að veiðileyfa fyrir alla þátttak-
endur að vild þar í ánum, en um
þetta leyti árs er fiskigengd hvað
mest í árnar á Vesturströnd Græn
lands.
Þeir, sem ekM óska að eyða
öllum timanum við lax- og silungs-
veiðar, eiga þess kost að fara með
bát til hinna fomu íslendinga-
byggða. að Bröttuhlíð þar sem Ei-
ríkur rauði bjó handan fjarðar-
ins og víðar þar um byggðirnar,
m.a. til Garða. Auk þess gefst
tækifæri til að ganga á fjöll og
jökul en landslag er rómað fyrir
náttúrufegurð á þessum slóðum og
hrikaleg hin ósnortna náttúra
Grænlands.
f fyrra var danskur ferðamanna-
hópur við veiðar í ánum við Ei-
ríksfjörð og kom heim með 1800
fiska eftir tvo daga.
Með þessari stuttu Grænlands-
ferð gefst fólkj kostur á að heirn-
sækja Grænland, kynnast þar
hinni stórbrotnu og fögru náttúru,
skoða fornar byggðir fslendinga
og veiða í lax- og silungsveiðiár.
SlökkvlllSsmenn hafa relst upp stiga vlð Liósheima 20. (Tímamynd—KJ)
ELDUR í HÁHÝSI
KJ-Reykjavík, 25. maí
íbúarnir í Ljósheimum 20 fundu
reykjalykt leggja út úr einni íbúð
inni þar í stigahúsinu um hálf
fimm á sunnudaginn, og kölluðu
á slökkviliðið. íbúðin var mann-
laus, og varð því að brjóta hana
upp til að finna orsaWr reyksins.
Búið var að hífa brunaslöngur
þarna upp á fimmtuhæðina og bú-
ist við öflu hinu versta er íbúðin
yrði opnuð, en þá kom í ljós að
eldurinn var utan dyra í mottu
sem var á svölum íbúðarinnar.
T f M I N N, þriðjudagur 2&. n»f 1964- —