Tíminn - 26.05.1964, Qupperneq 3
<
Á VÍÐAVANGI
Prentarí efstur
á balletprófí
Þau þrjú stóðust II. stigs próflð á dögunum í Llstdansskóla Þióðleikhúss-
ins. Fremst Jyttc Moestrup, Margrét Brandsdóttir og Halldór Helgason.
TÍMA-mynd-GE, tekin í æfingasal Listdansskólans.
í NÝAFSTÖÐNU vorprófi í List
dansskóla Þjóðleikhússins hlauf
einn nemandi ágætiseinkunn, ung-
ur maður úr prentarastétt, Halldór
Helgason frá Húsavík, vélsetjari
að iðn, 23ja ára. Lét kennari hans,
ungfrú Elizabeth Hodgson ballett-
meistari, þess getið í viðtali við
Tímann, að frammistaða Halldórs
væri þeim mun athyglisverðari, að
hann hefði stundað ballettnám í
aðeins tvo vetur og ekki fengið
HALLDÓR HELGASON
neina tilsögn í því fyrr en í hitt
eðfyrra.
Þegar ungfrú Hodgson kom að
Listdansskólanum fyrir tveim ár
um, var tekið þar upn brezka ball-
ettkerfið svokallaða við kennslu,
og verður því haldið áfram þótt
ungfrúin hverfi nú frá kennslu við
skólann og haldi heim til London
Eftir kerfi þessu verður skólinn
hér þriggja ára skóli og tekin prof
fyrsta, annars og þriðja stigs, setm
verða jafngild prófum í brezku
ballettskólunum. Prófdómari kom
hingað frá Royal Academy of Danc
ing, Olga Cooper, og er hún einn
af prófdómurum þeirra stofnunar,
sem gegna eingöngu því starfi.
bæði í heimalandinu og þeim lönd
um úti um heim, þar sem kennt
er eftir hinu brezka kerfi. En höf
undur kerfisins er raunar dönsk
dansmær, Adeline Genee, sem
starfað hefur í London í fjölda
ára. í fyrravor var fyrst prófað
hér eftir kerfinu, það var I. stig'
próf, og stóðust það 14 af 18, sem
gengu undir það. Nú í vor fór frarn
I. og II. stigs próf. Níu stóðust I.
stigs próf af 16, sjö stúlkur og 2
piltar. Þau, sem stóðust, eru:
Auðbjörg Ögmundsdóttir, Guð-
rún Njálsdóttir, Soffía Bjarnleifs
dóttir, Kristín Bjarnadóttir, Vig-
dís Magnúsdóttir, Guðrún Antons-
dóttir, Ingigerður Guðinundsdótv-
ir, Einar Þorbergsson og Þórarinn
Baldvinsson. Var Þórarinn efstur
á því prófi.
Annars stigs próf stóðust Mar-
grét Brandsdóttir, Jytte Moestrup
og Halldór Helgason. Þess má
geta, að Margrét er systir Önnu
Brandsdóttur ballettmeyjar, sem
brautskráðist úr Listdansskólan-
um fyrir nokkrum árutn, kom oft
fram á sviði Þjóðleikhússins, fó’-
síðan til framhaldsnáms í Kaup-
mannahöfn og London og hefur
dansað í Tivoli í Höfn. Þær Mar-
grét og Jytte hafa lært ballett frá
því þær voru átta ára, fyrst hjá
Erik Bidsted, síðan hjá Elizabeth
Hodgson, og er Jytte nú ein af
dansmeyjunum í Sardasfurstinn-
unni í Þjóðleikhúsinu um þessar
mundir.
Þegar ég hitti Halldór Helga-
son á dögunum og spurði hann,
hvers vegna hann hefði fengið á-
huga á að læra ballett fyrst þeg-
ar hann var orðinn 21 árs, svaraði
hann:
„Ég sá José Greco og spænska
ballettflokkinn hans í Þjóðleikhús
inu fyrir tveim árum og varð ofsa
lega hrifinn. Þá datt mér í hug, að
gaman væri að reyna þetta, inn-
ritaðist í Listdansskólann um haust
ið, þótt ég byggist nú ekki við að
verða neinn afreksmaður á þessu
sviði. Annafs er ég þeirrar skoð
unar, að það sé ekki nauðsynlegt
fyrir stráka að hafa lært ballett.
frá blautu barnsbeini til að ná
góðum árangri. Ég held þeim sé
nóg að hafa stundað leikfimi og
frjálsar íþróttir að staðaldri íil
að halda skrokknum í góðri þjálf-
un, og það hef ég gert í mörg ár.
þó ekki með það fyrir augum aö
keppa eða setja met. En mér
fannst ég hafa góða undirstöðu
til að byrja ballettnám“.
— Hvenær byrjaðir þú prent-
nám?
„Þegar é‘g kom hingað til
Reykjavíkur 16 ára gamall. Ég
lærði í Félagsprentsmiðjunni, fór
vann þar við prentverk í hálft ár,
svo til Gautaborgar í Svíþjóð og
hélt svo heim. Þá vann ég um
tíma í prentsmiðju Alþýðublaðs
ins, en síðan hef ég verið í ísafold-
arprentsmiðju“.
— Hvort ætlarðu nú að sitja
áfram við setjaravélina eða snúa
þér að ballettinum af alvöru?
„Ég hef nú ákveðið að halda
til London í haust og vera þar
við ballettnám í eitt ár, því að
ungfrú Hodgson hefur hvatt mig
til þess og hefur boðizt til að
greiða götu mína úti í London og
verður komin þangað á undan mér.
Ég er viss um, að hún hafi unnið
Listdansskóla Þjóðleikhússins ó-
metanlegt gagn þann stutta tíma
sem hún hefur verið, og við nem-
endur hennar getum seint full-
goldið henni þá óeigingjörnu
vinnu sem hún hefur leyst af
hendi seint og snemma við að
segja okkur til. Þetta er dýrt nám
úti, og ég býst ekki við að geta
verið þar nema eitt ár. Másike
verð ég fær um, að því loknu, að
taka að mér kennslu í listdansi hér
heima. Annars 'er erfitt að spá
nokkru um það.
— Eru foreldrár þínir búsettir
hér í Reykjavík?
„Nei, þau eiga enn heima á
Húsavik, sömuleiðis systkin mín.
Meira að segja eldri bróðir minn,
sem orðinn var stúdent og byrj-
aður nám hér í háskólanum, —
venti sínu kvæði í kross, hélt
heim á Húsavík og stundar sjóinn,
háskólamenntaður óbreyttur sjó-
maður. Þetta bendir til þess, að
við bræðurnir séum nokkuð seinir
að ikomast á rétta hillu!“
Þrjú þúsund á biðlista
í DEGI á Akureyri segir svo
um húsnæðismáuin':
„SAMKVÆMT gildandi lög-
um, á Húsnæðismálastofnun
ríkisins að veita hverjum hús-
hyggjanda allt að 150 þús. kr.
lán. Eggert Þorstcinsson al-
þin'gismaður gerði húsnæði.s-
málin að umtalsefni í síðustu
útvanpsumræðum frá Alþingi
og lýsti öngþveitinu. Um 300
Iánaumsóknir lágu í vor fyrir
hjá Húsnæðismá'lastofnuninni,
og heilmingur þeirra var óaf-
greiddur. í vor hafði verið til-
kynnt háðtíðlega, að allar lána-
umsóknir, sem bærust eftir 31.
marz 1964 þyirftu engrar úr-
lausnar að vænta! Þannig er þá
komið. S'lík uppgjöf sem hér
um ræðir er hreint viðreisnar-
gjaldþrot í húsnæðismálum.
Vitað eir, að í landinu þarf að
byggja 1600—1800 íbúðir á ári.
150 þús. krónur
Hið opiríbera veitir aðeins
150 þús. kr. hámarksláir, og er
skylt að veita það út á hverja
íbúð. Þetta Ián er auðvitað
furðulega lágt, þegair þess er
gætt að íbúð í fjölbýlishúsi
kostar um 700 þús. kr. og
meira í einbýlishúsi. Það stóð
þó ekki á þessum lánum fyrir
kosningarnar síðustu, ef rétt
er munað, enda ekki nein tæpi-
tunga höfð um þennan mikils-
verða þátt „viðreisnarinnar“
þá. Síðan í marz 1963 til þessa
dags hefur aðeins ein útlilutun
farið fram, og það voru aðeins
20 milljónir, sem ríkisstjðirnin
útvegaði á þessu tímabiU.
300 milljónir
Nú vantar 300 miMj. kr., mið-
að við 1. marz s.l., til að upp-
fylla lánabeiðnir, sem hús-
byggjendur eiga rétt á, sam-
kvæmt lögunum. Eu nú eru
ekki kosningar fyrir dyirum,
eins og vorið 1963, en þá var
80 milljónum úthlutað og nógir
peningar til!
Húsaleiguokur
Byggingarkostnaður hefur
hækkað langt til um helming á
5 ára tímabili „viðreisnar-
stjómarinnar“. A'Mir sjá hve
vonlaust er fyrir fólk með
venjulegar launatekjur, að ætfla
að eignast eigið húsnæði, eins
og nú er komið. Og skammair-
legt er af hinu opinbera, að
star.'da ekki einu sinni við lög-
boðnar skuldbindingar í þessu
efni, — þótt húsnæðislánamál-
in hrökvi skammt.
Vorpróf í Listdansskólanum. Frá hægri: Olga Cooper prófdómari, Elizabeth Hodgson ballettmeistari og þrlr
nemendur. TÍMAMYND-GE.
1
HEIMA OG HEIMAN
LOKAD
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar
Sigurbjörns Sigurjónssonar
Byggingarfélagið BRIJ h.f.
Borgartúni 25.
Helmingshækkun
f skjóli hinna miklu erfið-
leika í húsnæðismá'lum láns-
fjárkreppumiar, húsnæðisskorts
ins og verðbólgunnar hefur
húsaleiguokrið ekki látið á sér
standa Það þarf engan að
undira þótt 'launafólk með miðl-
ungstekjuir sæki fast á um
bætt kjör. þegar vextirnir ein-
ir af sæmiiega góðri íbúð eða
einbýlishúsi eru 60—80 þús.
krá á ári ,og húsaleiga í slíku
húsnæði nokkru hærri. □
Frystihúsahurðir
Frostkiefahurðir — Kæliklefahurðir
Trésmiíja Þorkels Skúlasonar
Nýbýlaveg 6 — Sími 40175
3
T í M I N N, þriðjudagur 26. maf 1964.