Tíminn - 26.05.1964, Síða 16
Þriðjudagur 26. maí 1964
115. tbl.
48. árg.
ÆVINTYRI SOGD
Á TÓNLEIKUNUM
GB-Reykjavík, 25. maí
Fimmtu tónleikar fyrir styrkt-
arfélaga Tónlistarfélagsins á þessu
ári verða haldnir í Austurbæjar-
ÍMói í kvöld og endurteknir ami-
fcð kvöld (þriðjudag), þar sem
koma fram þrír bandarískir lista-
menn, sem ncfnast „The Lyric
Trio“.
Listamenn þessir eru fiðluleik-
arinn Robert Mann og kona hans
Lucy Rowan leikkona, og Leonid
Hambro píanóleikari. Þeir Mann
og Hambro leika sónötu nr. 40 í
B-dúr, K. 454 eftir Mozart og
sónötu nr. 9 í A-dúr, op. 47 eftir
Beethoven. En þriðja verkið er
eftir fiðluleikarann, Robert Mann,
sem hann hefur samið við þrjú
ævintýr, sem frú Luy Rowan seg-
ir fram með undirleik hinna. —
Ævintýrin eru Keisarinn og næt-
urgalinn og Prinsessan á baun-
inni eftir H. C. Andersen og
Hvernig kokið var til í hvalnum
eftir Rudyard Kipling.
ENGAN FISK AÐ FA
FB-Reykjavík, 25. maí
Húsmæður í Reykjavík hafa
kvartað undan því að undanförnu,
að ekki fengist fiskur í fiskbúð-
unum. Við hringdum í Fiskmið-
stöðina, sem sér um fiskdreifing-
una, og fengum þær upplýsingar,
að lítið hcfði verið um fisk sið-
ustu tvær vikurnar. Stafar þetta
aðallega af því, að vetrarvertíð er
lokið, og ekki enn búið að ákveða
hvort vcitt verði leyfi til veiða
með snurvoð. Því eru það aðeins
færa- og humarbátar, sem koma
með fisk að landi, og afli hefur
verið tregur hjá færabátunum
Humarveiðin er hafin, og koma
humarbátar oftast með eitthvað
lítils háttar af fiski með humrin-
um. Þessi fiskur líkar aftur á móti
ekki sérlega vel, og þykir Ijótur,
enda vilja menn helzt ekki kaupa
hann, ef eitthvað annað fæst.
Fiskmiðstöðin, sem dreifir fiski
í flestallar fiskbúðir í Reykjavík,
fær aflann af Guðmundi góða, sem
eingöngu veiðir fyrir hana, og
auk þess það sem kemur af fiski
á einum 5—6 humarbátum. Guð-
mundur góði hefur verið að veið-
um við Ingólfshöfða að undan-
förnu, og er þetta allt til þess að
Framhald á 15. slðu
Pálína Jónmundsdóttir fegurðardrottning íslands 1964
STANGAVBDI SKEMMTI-
LEGUST
HF-Reykjavík, 25. maí.
Pálína Jónmundsdóttir, 21
árs gamall Reykvíkingur, var
kjörin ungfrú ísland árið 1964
á Hótel Sögu á laugardags-
kvö'Idið. Númer tvö varð Eliza.
bet Ottósdóttir, þriðja varð
Gígja Hermannsdóttir, fjórða
Rósa Einarsdóttir, fimmta Mar-
grét Vilbergsdóttiir og sjötta
Þorbjörg Bernliard. Pálína
Jónmundsdóttir er dökk á brún
og brá, há og grannvaxin, og
er útskrifuð úr fjórða bekk
Verzlunairskólans. Hún tók sér
frí úr vinnunni í dag til að
hvíla sig eftir keppnina og ta'la
við blaðamenn.
— Hvar hefurðu unnið, Pál-
ína, síðan þú útskrifaðist úr
Verzlunarskólanum?
— Ég fór til Noregs sumar-
ið á eftir og vann á hóteli í
Bergen. Þegar ég kom heim,
byrjaði ég að vinna hjá H. Ól-
afsson og Bernhöft og hef unn-
ið þar síðan, þegar ég hef ver-
ið heima. í vetur var ég í Eng-
landi í sex vikur og var þá á
tízkuskóla Lucky Clayton.
— Lærðirðu mikið á þeim
skóla?
— Já, hann er góður. Ég út-
skrifaðist þaðan með a-eink-
unn, en einkunnirnar fara al-
veg niður í h. Ég lærði einnig
að snyrta mig hjá Helenu Rub-
instein.
— Hefurðu hugsað þér að
starfa sem fyrirsæta í fram-
tíðinni?
— Þetta er nú allt óráðið.
Ég hugsa að ég fari ekki á
Langasand í ár, ég er búin að
fá nóg af fegurðarsamkeppn
um i bili, en líklega mun ég
Framhaio a 15 síðu
MENN GETA FENGIÐ BIFREIÐA-
SKA77 1963 ENDURGREIDDAN
KJ-Reykjavík, 25. maí
Það er ekki oft sem þegnar |
þessa lands fá skatta endur-1 eins og nú á sér stað með bif-
greidda úr ríkiskassanum, I reiðaskattinn fyrir árið 1963.
Elizabet Ottósdóttir varð ungfrú Reykjavík 1964
í unglingavinnunni
Verkstjóri
HF-Reykjavík, 25. maí.
Elizabet Ottósdóttir, sem
varð nr. 2 í fegurðairsamkeppn
inni, og hlaut titilinn ungfrii
Reykjavík 1964, er há og grönn,
Ijóshærð og bláeygð, og því
dæmigerður fulltrúi hinnar
reorrænu fegurðar.^ Hún mun
kannske halda á Langasand
sumar, þar sem Pálína vill
helzt ekki fara. Elisabet lauk
dag prófum sínum upp úr 1-
bekk kennaraskólans, og hittu
blaðamenn hana heima, þar
sem hún sagðist vera að troða
öllum skólabókum niður í kjall
ara íyrir sumarið.
— Fékkstu ekki frestað próf-
inu, sem þú áttir að taka á
laugardagsmorguninn?
— Nei, skólastjórinn hringdi
í mig eftir að hafa lesið í blöð-
unum að ég ætlaði að reyna
að fresta því, og sagði að ég
yrði að taka það eftir sem áður
— Þetta hefur verið erfitt
tímabil, Elizabet. Hvernig ertu
annars af kvefinu?
— Ég er alveg búin að ná
mér, ég var verst á laugardags-
kvöldið. Svo var líka leiðinlegt,
að mamma skyldi ekki vera
heima, en hún fór til Noregs á
laugardaginn til að vera við
stödd skólaafmæli.
— Ertu ekki himinlifandi
yfir úrslitunum?
— Jú, ég bjóst aldrei við
þessu.
— Hefurðu hugsað þér, að
fara í einhverja tízkuskóla eða
gerast fyrirsæta?
— Nei, ég hef ekki beint á-
huga á því, ég var að vísu í
þrjár vikur á undan keppninni
í tízkuskólanum hjá Sigríði
Gunnarsdóttur.
— Hvað ætlarðu að gera i
sumar?
— Ég verð verkstjóri í ung-
lingavinnu borgarinnar.
— En hvað gerirðu, þegar
þú átt frí frá vinnunni, skólan-
um og fegurðasamkeppnum?
— Ég hef mjög mikla á-
nægju af músik, og svo hef ég
gaman af að synda.
Bifreiðaskattur hefur alltaf
fram að þessu verið greiddur, eft
irá, en nú hefur þessu verið breytt
og á að greiða hann fyrirfram.
j Þetta gerir það að verkum að þeir
sem einhverra hluta vegna eru
búnir að greiða skattinn fyrir ár-
ið 1963, fá hann endurgreiddan
gegn því að framvísa kvittun fyrir
greiðslu hans.
En þegar menn selja bíla
sína, er í flestum tilfellum
gengið þannig frá að þeir greiða
bifreiðaskattinn af bílnum fram
að þeim degi er sala fer fram, og
greiða því skattinn eftirá. Allir
þeir sem þetta hafa gert frá ára-
mótum, og fram til fyrsta maí geta
því fengið bifreiðaskattinn endur
greiddan í Reykjavík hjá toll-
stjóra, en annars staðar hjá við-
komandi yfirvöldum, gegn því að
framvísa kvittun fyrir greiðslu
skattsins.
Eigi viðkomandi aðili enn þá bíl
verður hann að sjálfsögðu að
greiða bifreiðaskatt fyrir árið
1964 áður en hann lætur skoða
bifreið sína, svo sem er með
tryggingargjöldin, þungaskattinn,
afnotagjöld að bílviðtækjum.