Tíminn - 12.06.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.06.1964, Blaðsíða 2
King handtekinn í Florida Á fundi með blaðamönnum: Egil Ahfsen frá norska Alþýðusambandinu, Jakob Gíslason r&forkumálastjóri og John Andrésen frá norska vinnuveitendasambandinu. (Tímamynd, GB). Ráðstefna um hagræðingu í islenzku atvinnulífí FIMMTUDAGUR, 11. júní. NTB-Washington. — Banda- ríska utanríbisráðuneytið lil- kynnti í kvóKi, að Bandaríkin muni halda áíram könnunar- flugi sínu yfir Krukkusléttu. NTB-Washington. — Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dana, sagði i dag, að nauðsyn- legt væri að vernda einingu Vesturveldanna. NTB-Stokkhólmi. — Stór- njósnarinn Stig Wennerstróm verður dæmdur á morgun. Tal- ið er líklegt. að hann fái ævl- langan fangelsisdóm. NTB-Pretoiia. — Á morgun fellur dómur f máli Nelsoi Mandela og félaga hans. — Flokksþing sósialdemókrata f Svíþjóð skoraði í dag á Suður Afríkustjórn að ikoma í veg fyrir dauðadóm. NTB-Nýju öelhi. — Shastri, forsætisráðherra Indlands, sagð ist í dag viljn reyna að jafna deilur Indlands við Pakistan og Kínverska Alþýðulýðveldið. NTB-Frankfurt. — Vitni i Auschwitz-réttarhöldunum sagði í dag. að einn SS-mann- anna hefði notað nýfædd börr. sem brennslueíni við upphitun fangabúðanna NTB-Luxemburg. — Æðsta- ráð Kola- og stálsamsteypu E\r ópu mun reyna að ná samkomu lagi við helzlíi stálframleiðeml ur utan samsteypunnar u:n samræmingu toila á stálvörum NTB-Tel Aviv. — Fram- kvæmdum við að veita vatninu úr Genesarei-vatni í NegQ'*'- eyðimörkina miðar vel áfraim. Áveituskurðiirinn er nú kom- inn í nágrenni Tel Aviv. NTB-London. — Sara, dóttir Churchills, íyrrverandi forsæt isráðherra Breta, var dæmd í sektir í dag fyrir drykkjuskap og ólæti á alinannafæri. NTB-Aþena — ÁTTA NATO ríki hafa undirritað samning um að koma á fót æfingastöð fyrir eldflaugar á grísku eyi- unni Krít. NTB-New Tork. — Fjögur Afríku- og Asíurlki skoruðu í gær á Öryggisráð Samcinuðu þjóðanna að gangast fyrir því, að S.-Afríka verði sett í við- skiptabann. Málið verður rætt síðdegis á morgun. NTB-New York. — Haust- íundi allsherjarþings SÞ hefur verið frestaö til 10. nóvember vegna kosninganna í Bretlandi og Bandaríkju.rum í haust. NTB-Rio de Janeiro. — Lög- reglan í Rio de Janeiro í Braz- iiíu hóf í dag herferð gegn þeim bifreiðastjórum, sem leggja bflum símim rangt. — Hleypti hún loftinu úr dekkj unum hjá þeim. GB-Reykjavík, 11. júní Umræðuþing um hagræðingu í íslenzku atvinnulífi var haldið að Hótel Bifröst í Borgarfirði fyrri hluta vikunnar á vegum Stjórnun arfélags íslands, að því er forvíg- ismenn sögðu fréttamönnum frá í morgun, þar sem og voru við- staddir forustumenn launþega- sambandanna og vinnuveitenda, og enn fremur tveir erlendir sér- fræðingar, sem sóttu ráðstefnuna að tilhlutan ASÍ og vinnuveitenda sambandsins, þeir Egil Ahlsen for Krjúl-Bolungarvík, 10. júní Sjómannadagurinn rann upp í Bolungarvík í blíðskaparveðri. Há- tíðahöldin hófust með því að sjó- menn söfnuðust saman á Öldu- brjótnum kl. 10 um morguninn og gengu fylktu liði til kirkju og hlýddu þar á messu sóknarprests- ins. Að messu lokinni héldu sjó- menn í kirkjugarðinn og var blóm sveigur lagður á minnisvarða drukknaðra sjómanna. Klukkan tvö um daginn hófst svo kapp- róður Sjómannadagsins, þar sem þátt tóku fjórar sveitir. Sigurveg- ari í kappróðri skipshafna varð skipshöfnin á mótorbátnum Einari Hálfdáns, fyrirliði var Hálfdán Einarsson, en sigurvegari í kapp-; róðri landssveita varð róðrarsveit | in frá hraðfrystihúsi Bolungar víkur. Klukkan fjögur hófst kapp beiting og sigurvegari þar varð: Hörður Snorrason. Er þetta ann- j að skiptið í röð, sem Hörður vinn-! ur þessa keppni, en verðlaunin fyrir beitingarkeppnina er bikar, sem vinnst til eignar, ef sami mað urnn hlýtur hann þrisvar í röð. Kvöldskemmtun hófst svo um kvöldið í Félagsheimili Bolungar- víkur með því að Gísli Hjartar- son hélt tölu og setti skemmtun ina. Tveir aldraðir sjómenn voru heiðraðir með heiðursmerki Sjó- mannadagsins, þeir Páll Þórmunds son og Stefán Ólafsson, en báðir þessir menn eiga 39 ára starfs- feril að baki á sjónum. Þá var Einari Guðfinnssyni afhent sér- stakt heiðursmerki Sjómannadags ins, en hann á um þessar mundir 40 ára starfsafmæli sem útgerðar stöðumaður hagræðingadeildar norska alþýðusambandsins. John og Andersen frá norska vinnuveitenodasambandinu, til að kynna íslendingum hagræð- ingu í Noregi, sem þar var skipu lögð fyrir minnst þrjátíu árum. Markmið ráðstefnunnar í Bifröst var að kanna, hvar íslendingar væru á vegi staddir í hagræðing- armálum almennt, í samanburði við grannþjóðirnar, einkum Norð menn. Og í öðru lagi að gera álykt anir um, hvemig íslendingar geti maður hér í byggðarlaginu. Þakk- aði Einar sér sýndan sóma og vel- vildarhug af hálfu sjómanna. Að- alræðu dagsins hélt Gunnar Ragn- arsson, skólastjóri, og hinn aldni sjómaður Finnbogi Bernódusson, las upp úr hinu merka safni sínu ýmsan fróðleik frá fyrri dögum. Að lokum söng Karvel Tómasson ! lögregluþjónn gamanvísur. Síðan ! var dansað fram eftir nóttu og er | það almannarómur, að Sjómanna- \ dagshátíðin hafi farið fram með ! mesta sóma. á árangursríkastan hátt og á sem stytztum tíma stofnað til varan- legrar starfsemi á sviði hagræð- ingar í þágu atvinnulífsins. Hinir norsku sérfræðingar voru aðal- ræðumenn ráðstefnunnar, fluttu báðir erindi báða umræðudaga þingsins, en aðrir ræðumenn voru Sveinn Björnsson framkvæmda- stjóri IMSÍ, Sigurður Ingimundar- son forstöðumaður verkstjórnar- námskeiða, Benedikt Gunnarsson deildarstjóri IKO, Björn Svein- björnsson iðnaðarverkfræðingur, Egill Ingibergsson verkfræðingur, Glúmur G. Björnsson skrifstofu- stjóri, Guðmundur Einarsson fram kvæmdastjóri, Helgi H. Bergs framkvstj., Helgi G. Þórðarson forstjóri og Jón E. Böðvarsson iðn aðarverkfræðingur. Einar Bjarna- son ríkisendurskoðandi, Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar, Egill Guttormsson stórkaupmaður, Óskar Hallgrímsson rafvirki, Gísli V. Einarsson viðskiptafr. og Gunn- ar Friðriksson forstjóri. Þá fóru fram hópumræður, og voru starfandi sex umræðuhópar, sem tóku mál til skipulegrar um- ræðu, hagræðingu í ýmsum at- vinnugreinum. Eitt hið eftirtekt- arverðasta umræðuefni ráðstefn- unnar var rammasamningur um Framhald é 15. síSu NTB-St. Augustine, 11. júní Bandaríski blökkumanna- leiðtoginn dr. Martin Luther King, var handtekinn í bæn- um St. Augustine í Florida í dag, þegar hann neitaði að hverfa burt af tröppum veit- ingahúss, þar sem einungis hvítir menn fá inngöngu. — Kynþáttaóeirðir hafa verið harðar í St. Augustine síðustu tvo daga, og King sagði í dag, að hann ætlaði að biðja John- son forseta um að senda sam- bandsherlið til bæjarins til þess að koma á friði. Martin Luther King og nokkr- ir félagar hans reyndu að komast inn í veitingahúúð, setp aðeins er ætlað hvítum viðskiptavinum, en forstjórinn stöðvaði þá í dyrun- um. Þeir fóru þá út á tröppur veitingahússins og neituðu að fara þaðan. Forstjórinn lét þá kalla á lögregluna, og var Luther King og félagar hans handteknir og farið með þá niður á lögreglu- stöð bæjarins . Undanfarin tvö kvöld hafa orð- ið harðar kynþáttaóeirðir í St. Augustine. Blökkumenn hafa far- ið í kröfugöngur til þess að sýna stuðning sinn við borgararéttinda frumvarpið, sem nú er til um- ræðu í Öldungadeild Bandaríkja- þings. Hvítir menn hafa í bæði skiptin ráðizt á biökkumenn mað grjótkasti og lögreglan síðan bætzt í hópinn með táragas- sprengjur og hunda. Áður en Luther King var hand teíkinn í dag, hafði hann sagt, að hann ætlaði að biðja Johnson for- seta um að senda sambandsherlið til bæjarins, til þess að koma á friði í bænum. Keflavíkurganga 21. júní Miðnefnd Samtaka hemámsand- stæðinga samþykkti nýlega að efna til Keflavíkurgöngu sunnu- daginn 21. júní og útifundar í Reykjavík að kvöldi þess dags. Jafnframt var ákveðið að efna í sumar til fundahalda víða um land til undirbúnings Landsfundi her- námsandstæðinga, sem haldinn verður við Mývatn helgina 5.—6. september n.k. Hlutafélagið HAMAR, sem hefur urrboð fyrir Deutz-vélar hér á landi hefur tvo viðge-’ða'bíla sem stöðugt eru á ferðinni um landið og veita eigerdum Deutz-dráttarvéla viðgerðarþjónustu. Um þessai mundir er t. d. bjllinn í Dölunum, og fer þaðan austur í Húnavatnssýslur. Fyrir nokkru var staddur hér á landi fulltrúi frá verksmlðjunum, og fór hann um landið með sundurtekna og skorna Deutz-vél til að sýna h!na einstöku vél- arhluta. Hér á myndinni er hann nð kenna á námskeiði f Reykjavík, sem haldið var fyrlr vlfgerðamenn Deutz- véla. — 16. október \ haust mynu Deutz-verksmiðjurnar halda upp á 100 ára afmæli sitt en þær eru lang- | stærstu dráttarvélaframleiðendur í Þýzkalandi með um 33 þúsund manna starfslið. Vegíeg sjómannahá- tíð í Bolungarvík 2 T f M I N N, föstudagur, 12. |úní 1964.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.