Tíminn - 12.06.1964, Qupperneq 9

Tíminn - 12.06.1964, Qupperneq 9
I Islenzk íbúðar- hús síðustu iliil »* ’ MNMigi * *' - ' ' « ■WÍtMÍ iHlill ::'i£ «ws\sw sw«>\w.\w «uwi íi'riílvSíivlw&'t'i^ví Þessl einbýlishús standa vlS Dyngjuveg, Llndarbraui og Baugsveg, f þeirri röS taliS frá vinstri. arm íslenzkir arkitektar leggja það til Listahátíðarinnar 1964 að sýna úrvalsmyndir af ís- lenzkum íbúðarhúsum eftir stofnun lýðveldisins, það er sýning Arkitektafélags íslands í sýningarsalnum á 3. hæð að Laugavegi 26, og er hún opin daglega kl. 1—10 síðdegis, til 19 júní. Eg hitti þar sýningarnefnd ina að máli í fyrradag, en í hana voru kosnir arkitektarnir Hannes Davíðsson formaður, Guðmundur Kr. Kristinsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson, en þeim til aðstoðar var Jörund ur Pálsson. „Aðstaða okkar til að taka þátt i þessari hátíð er að því leyti lakari en annarra lista- manna, að þeir leggja fram sjálf verk sín til sýningar eða flutnings, en við verðum að láta okkur nægja að koma með Ijósmyndir af okkar verkum-‘ sagði Hannes Davíðsson arki- tekt. — Mundi það kannski sýna betur, ef þið hefðuð haft líkön af verkunum? „Það held ég varla“ anzaði Þorvaldur. „Því það er ekki ein hlltt að húsið sjáist eitt stakt, jafnvel í krók og kring, heldur hvernig það stendur í umhverf inu, lóðin og afstaðan til ann arra húsa í kring.“ Sýnmgarmyndir eru á þrem ur >eggjum, í salnum, einn veggurinn hefur þó sérstöðu, því að þar hangir aðeins vtíftk eins manns. En um verk hinna vitnin vaknar um það, eftir hvern hvert hús sé, er það að fara ■ geitarhús að leita ullar. Og einu upplýsingarnar, sem fylgja hverri mynd, er nafn götunnar. en númer fylgir ekki. Ég spyr þá félaga, hverju þetta sæti. „Við litum svo á, að það skipti ekki höfuðmáli að nafn höfundar fylgdi hverju verki, heldur það að verkin út af fyrir sig sýnflu ótruflað af nafni eða númeri, að þau hafi til að bera sérkenni, sem að einhverju leyti er þróun fram á við í byggingarlist. það getur síðan hver [yrir sig farið í götuna, sem húsin standa við, fundið það þar sjálfur, það er jafnvel æskilegast, þvi þar á húsið að njóta sín miklu betur en hér á þessum vegg“ segir Hannes. — En hér sést þó eitt nafn, er það í heiðursskyni við Sig- valda Thordarson? „Já, þessi veggur hefur, tvenns konar tilgang. Það er fyrst og fremst, að við höfum kosið að votta minningu Sig- valda Thordarson virðingu og þökk fyrir góða samvinnu með því að láta einungis teikningu eftir hann vera á veggnum. Hins vegar á þessi veggur að sýna það frá upphafi til enda, hvernig hústeikning er unnin. Allar teikningarnar á veggnum eru af einu og sama húsinu, sem stendur við Ægissíðu. Hér er frumskissa og líkan af því, og síðan teikmngar af öllu hús- inu í hólf og gólf, og ljósmynd af húsinu fullgerðu.“ — Eru þessar byggingar valdar í áraröð frá 1944? „Nei, það er ekki tekið svo Framhalo á 13 siðu er það að segja, að þegar for Grein ogmyndir G.B. Þessar sambyggingar bera sannarlega annan svip en hinn endalausi húsveggur í Austurbænum, sem reistur var fyrir 30—40 árum. Hér eru raunar stórir veggfletir, en ýmsum brögðum er beitt til að brjóta hina stóru fleti, svo húsið öðlast líf á að sjá. Þessl hús standa viS Skaftahlíð og Álftamýri. Hér standa þeir sýningarfélagar hjá Sigvaldavegg, sem þeir hafa helgað minningu Sigvalda Thordar- son, er lézt í vetur, með því að þekja vegginn öllum teikningum að einu íbúðarhús’ eftir hann. NeSst t. v. er grunnflatarteikning og útlltsmynd af húsinu, sem er 150 ferm. hús við Ægisjíðu. En þelr félag- ar eru, taldlr frá vinstri: Þorvaldur S. Þorvaldsso.i, Guðmundur Kr. Kristinsson, Hannes Davíðsson og Jörundur Pálsson. Það værl synd að segia, að öll nýtízkuhús séu elns. TII að finna þessl og skoða í krók og kring, verða menn að fara í Skildlnganes, Laugalæk, Skeiðarvog og á Kleppsveg, þvf að via þæ> götur standa þessl hús, en númer eru ekki gefin upp að sinni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.