Tíminn - 21.06.1964, Síða 13
SÉRFRÆÐINGUR
Framhaid ai 7 siðu.
ríkjunum og 342 í Argentínu
og 209 í Tyrklandi.
Á árunum 1948 til 1952 var
meðalaldur manna í Portúgal
49 ár á móti t.d. 71 í' Svíþjóð,
69 í Hollandi og 68 í Bretlandi.
Andstöðuleiðtoginn Cunha
Leal sagði í ræðu árið 1958:
„Ef við höldum sama hagvexti,
sem nú ákvarðar aukningu með
altekna hvers íbúa Portúgals og
ef við hugsum okkur lífskjör
í Bandaríkjunum myndu batna
2%minna á ári en nú mundi
það þó taka okkur heila öld að
ná fjórða hlutanum af meðal-
lífskjörum í Bandaríkjunum.“
Þessar ,tölur tala sínu máli.
Og þær segja, að bylting í
Portúgal hlýtur að koma í einni
eða annari mynd. Bók Delgados
segir nokkuð um það, hvers
vegna hún er ekki komin fyrir
löngu. Tjeká.
TÓNjLEIKAR
Framhald af 8. síðu.
hefur verið geymt í Landsbóka-
safninu í fjölda ára og var
mjög ánægjulegt að fá að
heyra það á þessum tímamótum
lýðveldisins. Verkið er sniðið í
stíl og anda Mendelsohns en
það er músikalskt tekið á efn-
inu og vinnubrögð góð innan
síns ramma. Strengjaleikararn-
ir spiluðu allvel en pianistinn
varð dálítið utangátta. Meiri
samæfing hefði ekki skaðað.
Hringspil eftir Pál P. Pálsson
var túlkað af þeim Ingvari
Jónassyni (fiðla), Einari G.
Sveinbjöimssyni (viola), Gunn-
ari Egilson (klarinett) og Sig-
urði Markússyni (fagott). Það
er ekki golt að átta sig á þess-
ari músík við fyrstu heyrn, en
þó var hægt að heyra, að hér
er alvarlegt tónskáld á ferðinni
og gæti ég trúað, að verkið
ynni á við nánari kynningu.
Þvi miður verður það varla
hægt að segja um næsta „verk“
á efnisskránni en það var
Sonorities eftir Magnús Bl. Jó-
hannsson, einhver mesta della,
sem hér hefur heyrzt og er þá
mikið sagt. Að endingu var
„leikið“ verk eftir Atla Heimi
Sveinsson^ sem hann kallar
Fönsun. Áður en verkið var
flutt, var lesið bréf frá höf-
undi, er Bryndís Schram las.
Þar lýsir höfundur því yfir, að
verk þetta sé ekki hugsað sem
músík, enda væri hvorki upp-
haf né endir á því. Ég ér alveg
á sama máli — músík var það
ekki — en mér er spurn: Hvað
átti þá þetta að vera? Atli
Heimir Sveinsson er gáfaður
upprennandi tónlistarmaður.
Mér finnst að hann ætti ekki að
vera að sóa sínum tíma né ann
arra í svona grín.
íslenzk ópera fruniflutt.
Síðustu hljómleikar Listahá-
tíðarinnar voru haldnir í Þjóðr
leikhúsinu þann 15. þ. mánað-
ar. Þar var frumflutt hvorki
meira né minna en fyrsta óper-
an, sem íslendingur hefur sam-
ið. Ef menn setja nafnið ópera
eingöngu í samband við óperu
tónskáld eins og Wagner og
Verdi, þá er þetta nýja verk
auðvitað engin ópera, svo ger-
óskylt er það allri 19. aldar
músík. En ópera er það engu
að síður, því að söguþráður er
þar (að vísu óskýr), sem er
sunginn (og talaður) með hljóð
færum, en þau eru: 3 píanó,
gítar, alt-saxófónn og slagverk.
Hér skal enginn dómur á
það lagður, hve gott verk þetta
er í sjálfu sér, en engum
leiddist á meðan uppfærslan
fór fram. Þorkell Sigurbjörns-
son er maður með miklar
músíkgáfur og líklegur til
stórra hluta. Ekki býst ég við
að verk þetta verði talið til
stórra hluta, en merkileg til-
raun er það og má búast við
ýmsu fróðlegu frá hendi Þor-
kels í framtíðinni.
Eygló Viktorsdóttir, Guð-
mundur Guðjónsson, Kristinn
Hallsson og Hjálmar Kjartans-
son ásamt kór stóðu sig ágæt-
lega undir góðri stjórn höfund-
ar. Eftir hlé spilaði Sinfóníu-
hljómsveitin forleik að Jóni
Arasyni eftir Karl 0. Runólfs-
son. Forleikur þessi er ágætt
leikhúsverk, dramatískt og
mjög áheyrilegur. Karl 0. Run-
ólfsson er eitt fremsta tón-
skáld okkar af eldri kynslóð-
inni og eru hugdettur hans oft
áhrifamiklar og skemmtilegar.
Að lokuni spilaði hljómsveitin
Sinfonietta seriosa eftir Jón
Nordal. Verk þetta var frum-
flutt fyrir nokkrum árum og
fór vel á því að enda hljómleik
ana á þessu afbragðsverki. Jón
Nordal er í allra fremstu röð
íslenzkra tónskálda, þar fer
saman frjór lieili, kunnáttusam
leg vinnubrögð og kultur, sem
aldrei bregzt og fer þetta verk
hans ekki varhluta af þessum
kostum. Breið sinfónísk lína
gengur í gegnum allt verkið.
Það er mjög „orkestralt“ og
verkar ákaflega lifandi og sann
færandi. Því miður vantar mik
ið á að okkar unga sinfóníu-
hljómsveit hafis það magn af
strengjum að verk þetta njóti
sín til fulls. Sérstaklega er
áberandi vöntun á fleiri selló-
um og bassaleikurum. Herra
Igor Buketoff stjórnaði báðum
þessum síðast töldu verkum af
alúð og skörungsskap.
Rögnvaldur Sigurjónsson.
RÆTT VIÐ MAGNÚS . . .
Frarohaja/ hj y s-iðu
um launum, því að árum sam-
an höfðu þeir unnið sitt starf
fyrir lítið sem ekki neitt. Það
er búið að sýna sig, að ópera á
álitlegan aðdáendahóp hér í
Reykjavík, miklu stærri en
nokkui gerði sér vonir um í
fyrstu. En hvað hefur verið
gert til að hlú að þ'/ fólki, sem
fórnað hefur miklum tíma og
fé til að læra sönglist? Hér eru
þeir flestir búsettir, en það
segir sig sjálft, að söngvarar
fara úi forminu, eins og það er
kallað. ef þeir fái ekki verkefni
nokkurn veginn að staðaldri
Og hins, vegar fara flestir
söngvarar batnandi, ef þeir
haf nóg fyrir stafni sem slíkir
Hér hefur verið venjan a7
setja á svið aðeins eina óperu
á vorin, þegar stuttur tími hef-
ur verið til stefnu;, bæði til æf-
inga og einnig til loka leikárs
ins. Þá eru söngvararnir keyrð-
ir áfram og njóta sín ekki allt
af uudir þeim kringumstæð-
um. Mér kemur í hug, að Þjóð-
leikhúsinu væri í lófa lagið a“
fastráða nokkra söngvara, æfa
tvær eða þrjár óperur og dreifa
sýningum með nokkru millibili
yfir leikárið. Með því næðist
betri árangur og mundi áreið-
anlega skapa góða aðsókn.
— Hvenær söngst þú síðast
hjá Þióðieikhúsinu?
— Ég hef aldrei sungið á
vegum Þjóðleikhússins. Þegar
ég söng í La Bohéme hér um
árið ''ar sú ópera flutt af Fé-
lagi íslenzkra einsöngvara er
ekki Þjóðleikhúsinu,
— Hvaða óperu langar þig
til að syngja í hér, eða hvaða
uppástungu hefurðu um að sett
verði hér á svið á næstunni?
— Lað eru að sjálfsögðu
margar óperur, sem koma til
greina En fyrst dettur mér í
hug ævintýri Hoffmanns eftir
Offehbach, ljómandi skemtileg
og vinsæl ópera og gott verk,
skal ég segja þér. Það þekki
ég, og mitt hlutverk í henni
tel ég eitt það bezta, sem ég
hef gert. Þessi ópera er mjög
mannírek, ég held að hér séu
SUF — SAM3AND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA
NORÐDRLANDAFERÐ
26. fúní — 17. júlí — 22 dagar
Glæsilegt ferÖalag um fegurstu hérutí Noregs ásamt dvol í Osló.
— Siglt til Kaupmannahafnar meS Kong Olav V. — Dvöl í Kaup-
mannahöfn — og í Gautaborg. — VertS kr. 14.845,—.
Upplýsingar um ferÖina veitir feríaskrifstofan LÖND & LEIÐIR.
Fararstjóri: Svavar Lárusson.
Malrósföt os kic'ar
frá 2—7 ára. Rauð og blá
DrengjajakkafSt
frá 6—13 ára
Drengjabuxur
gráar — bláar
Verð frá kr. 250,—
Drengjajakkar
frá 6—13 ára
mjög ódýrir
Gallabuxur, drengja-
peysur,
Vattera^ar unglinga-
úlpur
Drengjapeysur og
skyrtur
Telpupeysur
heilar og hnepptar
Fyrirliggjandi
Æðardúnsængur
Vöggusængur
Sængurver — Koddar
Æðardúnn — Fiður
Póstsendum.
Vesturgötu 12. Sími 13570
Sérleyfisferðir
Frá Reykjavík eftir hádegi um
Ölfus, Grímsnes, Laugarvatn,
Geysi, Gullfoss, Reykjavík.
Ferðir í Hrunamannahrepp
frá Reykjavík laugardaga,
frá Reykjafrík sunnudaga,
til Reykjavíkur sömu daga.
í mínum hringferðum fá far-
þegar að sjá fleira og fjölbreytt
ara, en á öðrum leiðum lands
ins, hátta svo í sinni Bændahöll
að kvöldi.
Bifreiðastöð íslands
Sími 18911
Ólafúr. Ketilsson
fyrir hendi raddir í öll aðal-
hlutverkin. Ég segi fyrir mig,
að ef Þjóðleikhúsið færi nú að
taka sig á, ráða söngvara og
gera einhver.ia alvöru úr ó-
peruf'.utningi, og mér byðist
þar starf, þá mundi ég ekki
hugsa mig tvisvar um. Og þetta
verður að gera til að láta ekki
vel menntaða söngkrafta, sem
hér eru fyrir hendi og gætu
hæglega fengið starf annars
staðar, fara í súginn.
kwikset
/acksets
Hinar vinsælu
amerísku skrár
fyrir úti- og inni-
hur(Jir eru
fallegar
ódýrar
traustar
Margar geríir
fyrirliggjandi
Hafnarstræti 23
iRóyal
INSTANT PUDDING
pil flLtlHG
Ungir og aldnir njóta þess að borða
köldu Royal búðingana.
Bragðtegundir: —
Súkkulaði. karamellu. vanillu og
jarðarberja.
FLUGSÝN h.f. Sími 1-8823
FLUGSKÓLI
Kennsla fyrir einkaflugpróf-atvinnuflugpróf.
Kennsla í: Næturflugi
Yfirlandsflugi
Blindflugi
Bókleg kennsla fyrir atvinnuflugpróf byrjar í nóv-
ember og er dagskóli.
Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf, vor og haust.
FLUGSYN h.f. Sími 1-8823
T í M I N N, sunnudaginn gl. júní 1964 —
s
í h )j iM| :' 1‘ ð >i n -I i# i N' ó| li K I H <t ' ’í í
13
f» ii >j'1 'tt.■ íí 4 í A.-'íln úi rt' íf'íf ii' ifc í'Í'i'í) H 4 i4jí ►; í ú /U í (>"i: