Alþýðublaðið - 24.12.1952, Síða 4

Alþýðublaðið - 24.12.1952, Síða 4
 Sæmundur Eyjólfsson: ENGIN HÁTÍÐ er meiri fagn- aðarhátíð en jólahátíðín. Hún er móðir allra annarra hátíða, því hún er haldin í minningu þess, sem er upphaf hins mikla gleðiboðskapar, — í minningu þess, að f-relsari mann- anna fæddist í heiminn. Á engri há- tíð er eins mikið um. dýrðir og á jólunum. Allir fagna komu jólanna, og allir kosta kapps um að hafa þá svo mikla viðhöfn og svo mikinn fögnuð. sem föng eru á. En einkum eru það börnin, sem hlakka mjög til jólanna. „Kátt er á jólunum, — koma þau senn,“ segja börnin, þegar jólin . nálgast. Löngu, löngu áður en jólin koma spyrja tíörnin bvort nú sé langt til jólanna, og ef illa liggur á þeim, þegar jólin eru í nánd, þarf oft eigi annað en kveða við þau þessavgömlu vísu: „Það skal gefa börnum brauð, að bíta í á jólunum; kertaljós og klæðin rauð, svo komist þau úr bólunum, væna flís af feitum sauð, er fjalla gekk a hólunum. Nú er hún gamla Grýla dauð; gafst hún upp á róluaten." Dagana fyrir jólin hafa allir nóg að starfa, að búa allt sem bezt undir hátíðahaldið.Þá er allur bærinn þveg- inn og öll húsgögn og allur fatnað- ur. í gamla daga var miklu minna fengizt við þvotta en nú á tímum. Það var eigi sjaldgæft, áð bærinn væri sjaldan eða aldrei þveginn nema fyrir jólin, — en þá þótti sjálf- sagt að, gera það. Sumir gamlir menn vildu aldrei láta þvo askinn sinn, nema fyrir jólin. Þeir trúðu því, að það spillti auðsæld þeirra, ef askurinn væri þveginn; kö'lluðu þeir bað að „þvo af sér auðinn“, En ávallit létu þeir þvo askinn fyrir jól- Höfundur hinnar fróðlegu og slcemmtilegu ritgerðar, sem hér fer á eft.ir, Sæmundur Eyjólfsson, var fæddur 1861 í Sveinatungu í Norðurárdál. Hann nam búfræði í Ólafsdal, gekk síðan í i.ærða skól- ann og því n'æst prestaskólann, lauk.guðfræðiprófi 1891. Á náms- árum sínum starfaði hann sem bú- fræðingur á vcgum Búnaðarfélags íslands, og varci órið 1392 ráðu-. nautur félagsins. — Hann andað- jst vorið 1896, aðeins 85 ára gam- all. Sæmundur Eyjólfáson var skáld- mæltur vel og á.g'ætiega r.itfær. Liggja eftir hann. nokkrar rnerkar ritgerðir um ýmis atr.iði úr menn- ingarsögu þjóðarinnar. Greinin „Kátt er á jólunum“ birtist árið 1891 í Kirkjublaði Þórhalls Bjarn- arsonar, síðar biskups. Þótt ótrú- legt megi virðast, vakti grein þessi nokkrar deilur. Þrön.gsýnir menn í trúarefnujn töldu Kirkjublaðið hafa með birtingu herrnar gerzt „málgagn hjátrúarinnar“ o.g orðið sér til vanza með því að birta svo ,,óandlega“ ritgförð. Svaraði Þór- hal’lur Bjarnarson aðfinnslum þessum vel og röggsamlega, taldi Kirkjublaðinu feng að hinni skemmtilegu grein Sæmundar. in, bví það þótti óhæfa, að eta úr óþvegnum aski á svo dýrlegri hátíð sem jólahátíðin er. Oft voru menn í sömu flíkinni allt árið, og létu aldrei þvo hana nema fyrir jólin, en það þótti ósæmilegt, að nokkur hlut- ur væri óþveginn á jólunum, — þá varð allt að vera hreint. Einu sinni var kerling, sem hafði gengið með sarna faldinn á hverjum degi allt árið og aldrei þvegið hann. En þegar hún sauð hangikjötið til jólanna, tók hún sig til og þvoði faldinn upp úr hangikjötssoðinu, þurrkaði hann síðan og setti hann svo upp á jól- unum. Þegar karlinn, bóndi hennar, sá hana með faldinn nýþveginn, seg- ir hann: „Já, já! Mér þ.ykir þú vera farin að halda þér til, kelli mín! --ý ■* Satt er það, einatt er munur að sjá það, sem hreint er.“ Nokkru fyrir jólin eru jólakértin steypt. Á Þorláksmessu er soðið hangikjöt til jólanna. Þá er og góðui’ og gamall siður í sveitinni, að gera ósköpin öll af lummum fyrir jólin- Það er og gamall siður, að skera kind á aðfangadaginn, til þess a'ð fólkið skuli fá nýtt kjöt á jólanótt- ina. Er venjulega valin tii þess feh og fönguleg ær og' kölluð ,,jólaærin‘ • Einlcum eru allir rnjög önnum kafnir sjálfan aðfangadaginn. Alh þarf að vera undribúið áður en há- tíðin kemur. Fyrir dagsetur verða allir að hafa hvegið sér og kemh1 hár sitt. Þá ver'ða og allir að hafa klæðzt sínum bezta búningi. Þega1' rökkva tekur fara klukkurnar a® hljóma við hverja kirkju og kalla tu aftansöngs, — kalla, að allir komi 1 ? hús Drottins til þess að heyra hin’) himneska jólaboðskap um „frið 11 jörðu og velþóknun yfir mönniiH' um“. Hafa feá allir ærinn að starfíh því nú er bess skammt að bíða, aD dagurinn renni undir og hin helg'? nótt birtist í allri sinni dýrð. ViD þessa síðustu undirbúningsstund 11 hin forna vísa: „Hátíð fer að höndum ein, - hana vér allir prýðum. Lýðurinn tendri ljósin hrein, líður að tíðum, líður að helgum tíðum.“ Og svo lcoma jólin. „Gleðileg j^' Gleðilegá hátíð!“ hljómar þá á hvef manns vörum. Og þá er fagurt að litast í liíbýlum mannanna. M1 er sópað og prýtt, þvx alls staðar loi

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.