Tíminn - 03.07.1964, Blaðsíða 16
sabinavinnuskyrturnareru framleiddar úr vönduðum,
slitsterkum efnum. fyrir öll algeng störf til lands og sjdvar.
Nókvæmt stærðarkerfi, ásamt úrvals frágangi, tryggir
yður þægilega og endingargóða skyrtu.
FATAVERKSM IÐJ AN F í FA
CsjöfrT)
Fer vel með hendurnar, ilmar þægilega
pvottc
lögurlnn
er bezta
hjálpin
mín
Svissncskar borvélar
eins og tveggja hraða.
8—19 m/m.
Verðið mjög hagstætt.
IN N —
Seljavegi 2, sími 2 42 60
Víð seljum
NSU Rrinz 62
j Volvo station 62
Volvo 444 55
Opel Cadett station 64
j Opel Caravan 60 og 59
Taunus station 59, góður bíll
‘ Fiat 1800, fólksbíll, 60 model
j Chevrolet 59 Impala
i Ford station 55
! Mereedes Benz 220 53, mjög
góður
1 GMC-vatna- og fjallabifreið
með 17—20 manna húsi og
spilum.
SKÚLAGATA 5S —SlMt I5*1S
I
I
t
bílasiglft
GUOMUNDAP
Berstxirngötu 3 Simar 19032, 20070
Heím Ovalli aJ sölu aliaj teg
undij blfreiða
rökimi bífreJðiT i umboðssölu
örnggasts blónustan
GUÐMUNÐAR
Bergþörugötu 3 Slmar 19032, 20070
„Um héraðsbrest ei getur, þó
hrökkvi sprek í tvennt“. Þessi
sannorða lýsing skáldsins flaug
mér í hug, er ég heyrði andláts-
fregn Þórunnar G. Björnsdóttur
vinkonu minnar sem andaðist á
sjúkrahúsi Seyðisfjarðar þ. 15.
maí s.l. og ég nú með fáum
orðum vil minnast. Þórunn Guð-
björg Björnsdóttir — svo hét hún
fullu nafni — var fædd á Geldirigi
— nú Hlíðarenda — í Breiðdal
5. ágúst 1871, og vantaði því tæpa
3 mánuði til að vera 93
ára. Foreldrar hennar voru hjón-
in Björn Björnsson hagyrðingur
og smiður, og Björg Guðmunds-
dóttir saumakona af Geitdalsætt.
Voru þau bæði vinsæl og vel met-
in og af góðu og mikilhæfu al-
þýðufólki komin. Tóta Björns-
dóttir, en svo var hún jafnan
kölluð, ólst upp með foreldrum
sínum, á ýmsum bæjum hér í sveit
og átti hér lögheimili alla sína
ævi. Ekki fékk hún aðra menntun
í uppvexti, en þá tíðkaðist til und-
irbúnings fermingar, en hún var
sönghneigð. og hafði sérlega fall-
ega söngrödd, og þráði mjög í
æsku að læra að spila á orgel, var
svo langt komið, að faðir hennar
var búinn að koma henni fyrir
til náms í þeirri grein, en þá skall
ógæfan yfir. Hún veiktist og
þurfti til Reykjavíkur til upp-
skurðar og dvaldi þar á sjúkra-
húsi um tíma, þar með voru allar
hennar vonir um söngnám að
engu orðnar. Efnahagurinn leyfði
víst ekki meiri útgjöld, en sjúkra-
hússvisti kostaði. Þá voru engar
tryggingar né sjúkrasamlög, sem
tóku þátt í eða styrktu efnalítið
fólk í veikindatilfellum. Auk
þess varð hún fyrir því óhappi
meðan hún lá á sjúkrahúsinu að
jarðskjálftarnir miklu á Suður-
landi 1896 dundu yfir og varð
hún þá — og eflaust fleiri sjúkl-
ingar — svo yfir sig. hrædd að ég
held að óhætt sé að fullyrða, að
hún hafi aldrei beðið þess bætur,
a.m.k. var hún heilsuveil alla sína
löngu ævi, veiktist meðal annars
af liðagigt o.fl. sjúkdómum síðar á
ævinni.
En þrátt fyrir allt þetta var
hún sívinnandi — þegar heilsan
leyfði — því trúmennskan og
löngunin til að vera öðrum að líCt,
voru svo ríkir eðliskostir hennar
að hún mátti aldrei iðjulaus vera,
og marga nóttina sat hún með
prjónana sína, þegar hún gat ekki
sofið, enda veit ég að engipn hef-
ir komið tölu á þau feikn af plögg-
um og vettlingum sem hún prjón-
aði á ævi sinni. Hún var sérstak-
lega barngóð, og lagin að hæna
að sér börn enda dvaldist hún oft
á barnmörgum heimilum, og lund-
in var létt óg glöð, þrátt fyrir allt
heilsuleysið, og söngurinn ómaði
og hennar hljómfagra rödd, lífg-
aði allt í kringum hana. Fyrir
röskum 20 árum fluttist hún til
Seyðisfjarðar fyrst á elliheimili
þar, en svo fljótlega á sjúkrahúsið.
Þar naut hún hinnar beztu um-
önnunar til hinztu stundar 15. maí
eins og fyrr getur. Samkvæmt ósk
hennar var hún jöi'ðuð í Eydala-
kirkjugarði 23. s.m. Því miður
höguðu atvikin því svo að ég gat
ekki verið þar viðstödd Tóta mín!
Ég þakka þér af alhug fyrir alla
snúningana, öll handtökin er þú
vannst fyrir mig, alla glaðværð-
ina og ánægju er þú fluttir á mitt
heimili er þú dvaldir hjá mér fyrr
og síðar, það eru mér dýrmætar
endurminningar. Ég er þess full-
viss að heimkoma þín á land lífs-
ins hefur orðið þér farsæl, og
laun þín verða mikil fyrir tryggð
þína og fórnfýsi er þú sýndir mér
og öðrum hér í heimi. Guð blessi
þig á landi lífsins.
Vinkona.
FARÞE6AFLUG-FLUGSKOLI
1-8823
Atvlnnurekendur:
SparlC tlma og peninga — !át!8 okkur flytja
viSgerðarmenn ySar og varahlutl, örugg
þjónusta.
FLUGSYN
Tilboð éskast
í nokkrar fólksbiíreiðir, er verða sýndar í Rauðar-
árporti, mándaginn 6. júlí rl. 1 til 3.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri
kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
16
TÍIfflNN, föstudagúis 3. júU 1364 —