Tíminn - 24.07.1964, Page 2
r
FIMMTUDAGUR, 23. júlí.
NTB-París. — De Gaulle,
Frakklandsforseti, sagSi á blaSa
mannafundi í dag, aS forystu-
hlutvcrki Bandaríkjanna, gagn-
vart Evrópu, væri nú lokið og
það væri eingöngu hlutverk
Evrópuþjóðanna sjálfra að gera
út um mál sín, án íhlutunar
Bandaríkjanna. Þá sagðist for-
setinn ekki vera trúaður á
Bandaríki Evrópu, en að sjálf-
sögffu réðu ríki því sjálf, hvort
þau afsöluðu sér sjálfstæði sínu
til að ganga inn í stærri heild.
Aðspurður sagðist de Gaulle
ekki álíta, að lausn fyndist á
Vietnam-málinu, þótt Banda-
ríkjamenn réðust inn í N.-Viet-
nam.
NTB-London. — U Thant,
framkvæmdastjóri SÞ, sem um
þessar mundir dvelur í Lundún
um til viðræðna við brezku
stjórhina, sendi Kýpurstjórn
orðsendingu í dag, þar sem
hann fer þess á leit, að hún
hætti að leggja hindranir fyrir
gæzlulið SÞ í störfum þeirra.
Afskipti stjórnarinnar af ferð-
utn gæzluliðsins um eyna brjóta
raunverulega í bága við samn-
inga stjórnarinnar og SÞ og
spilli stórlega fyrir gæzlustarf-
inu.
NTB-Beirut. — Varaforseti
Arabíska sjamhandslýðveldis-
ins, Abdél Hakim Amcr, sagði
í útyarpsviðtali í dag, að landið
ráði nú yfir öflugum flugskeyt
um í landher, flota og flugher.
Amer, sem er næst æðsti yfir-
maður alls hcraflans sagði enn
fremur, að flugherinn hefði yf-
ir að ráða nýtízkulegustu orr-
ustuþotu sem nú væri til í heim
inum.
NTB-Bukavu. — Moise
Tshombe, forsætisráðherra Kon
gó, sagði í ræðu í Bakavu í
Kongó í dag, að hann teldi það
höfuðverkefni sitt að kcma ein
ingu á meðal íbúa Kongó. Ég
er maður friðarins, en ekki
stríðsmaður, sagði Tshombe. —
Kongóbúar verða að leggjast á
eitt og rétta hver öðrum bróð-
urhönd til þess að búa í haginn
fyrir komandi kynslóðir í land
inu, sagði forsætisráðherrann.
NTB-Lourenco Marques. —
Americo Thomas, forseti Portú
gal kom í dag til hafnarborgar-
innar Lourenco Marques í Por-
túgalska Mozembique og var
ákaflega fagnað af um 50.000
manns. Fóik brauzt í gegnum
varnarveggi lögrcglunnar til
þess að geta komizt að forset-
anum og tekið í hönd hans og
skapaðist af þessu nokkuð
öngþveiti.
NTB-Moskvu. — Moskvu-blað
ið Pravda skýrir frá því í dag.
að þrír sovézkir borgarar hafi
verið dæmdir til dauða fyrir að
hafa myrt marga menn og
brennt hús til grunna, til þess
að leyna öðrum afbrotum
NTB-Hannover. — Tveir A.-
Þjóðverjar flýðu í nótt yfir
borgarmörkin i Berlín nálægt
Neðri-Sachsen.
ÖFSAMENN AÐ BAKI OEIRBUNUM?
NTB-New York, 23. júlí. [
1908 LEIÐTOGAR allra helztu ‘
samtaka blökkumanna í Banda-'
ríkjunum kröfðust þess í dag, að
lögreglustjórinn í New York, yrði
rekinn úr stöðu sinni, vegna
þeirra hrottalegu aðferða, sem lög
reglan hefur beitt gegn mótmæla-,
aðgerðum blökkum. í Harlem og ,
Brookl. síðustu daga. Einnig er
krafizt, að lögregluforingjarnir,
sem sérstaklega stiórna aðgerðun-
um verði sviptir stöðum sínum.
Þjófnaðarbylgja gekk yfir í
Brooklyn í nótt og í morgun og
beitti lögreglan skotvopnum gegn
þeim, sem staðnir voru að verki.
Þrír blökkumenn særðust af þess-
um sökum.
Alls konar sögusagnir hafa ver-
ið á kreiki um, að kommúnistar
stæðu á bak við óeirðimar, en einn
aðalforingi blökkumanna, Roy j
Wilkins, vísaði þessum sögum á-1
kveðið heim til föðurhúsanna í
dag. Þá halda sumir því fram, að
öfgamenn til hægri hafi sett þess-
ar óeirðir á svið. Þótt sagnir þess-
ar séu allar óstaðfestar, hefur FBI
bandaríska alríkislögreglan nú
fengið skipun um að rannsaka
hvað hæft sé í þessum orðrómi. -
Bandaríski kommúnistaflokkur-
inn hefur ákveðið neitað að standa
hér á nokkurn hátt að baki og era
því hægrisinnaðir öfgamenn frek-
ar undir grun nú.
Eins og kunnugt er hófust ó-
eirðirnar síðastliðinn fimmtudag,
er lögreglumaður, óeinkennis-
klæddur, skaut 15 ára blökku-
dreng til bana, til að verjast árás
hans með hníf, að því er lögreglu
imaðurinn segir.
Formaður Core-samtakanna, sem
berjast fyrir jafnrétti hvítra
manna og svartra sagði hins vegar
í dag, að hann hefði í höndunum
sannanir fyrir því, að drengurinn
hefði alls ekki verið með neinn
hníf á sér, þegar hann var skotinn.
ÁTJÁNMYRTIR
NTB-Singapore, 23. júlí. | insð Tun Abdul Razak, sagði að
KYNÞÁTTA-óeirðimar blossuðu | loknum stjórnarfundi í Kuala
upp á nýjan leik í Singapore í
dag. Sex menn voru barðir í hel
eða stungnir hnífum, en mörg
hundruð manns hafa særzt í hinum
blóðugu átökum milli Malaja og
Kínverja. Alls hefur lögreglan
handtekið rúmlega 12 hundruð
manns, flesta fyrir brot á útgöngu
banninu, sem sett hefur verið í
borginni. Alls hafa 18 menn verið
myrtir í óeirðunum síðustu daga.
í dag var banninu aflétt í þrjár
og hálfa klukkustund til þ'ess áð
borgarbúar gætu farið út og áfl-
að sér nauðsynja. Talsmaður her-
stjórnarinnar sagði í dag, að ef
lögregla og hermenn hefðu ekki
gripið inn í með ákveðnum að-
gerðum þegar í stað, hefði orðið
blóðug borgarastyrjöld.
Unglingar fara nú með öskrum
um göturnar, vopnaðir flöskum og
steinum og er óttazt, að til frekari
hryðjuverka dragi. Starfandi for-1
sætisráðherra Malaysiu-sambands-1
DRATTARVELARSLYS
Það slys varð í ísafirði á þriðju
daginn, að dráttarvél valt út af
vegarbrún, en á dráttarvélinni
voru tvær 14 ára gamlar telpur,
og meiddist önnur þeirra eitthvað
smávegis .Hún skall með höfuðið
í grjót og missti meðvitund þó
nokkra stund. Svanur Sveinsson,
læknir á Reykhólum, gerði að
sárum hennar
Lumpur í dag, að nauðsynlegt yrði
að grípa til öflugra hernaðarlegra
öryggisráðstafana í Singapore, ef
svo heldur áfram, sem nú horfir.
MYNDIN er tekin á flugvellinum í Varsjá í Póllandl, af nokkrum helztu
kommúnistalelðtogum heimsins, sem komu þangað tll að vera viðstaddir
hátíðahöld í sambandi við, að 20 ár eru liðin frá frelsun Póllands og kom-
múnistastjórnin var mynduð. Á MYNDINNI sjást talið frá vlnstri: Walter
Ulbricht, leiðtogi austur-þýzka kommúnistaflokkslns, Vladislav Gomulka,
foringi pólska kommúnlstaflokkslns, Josef Cyrankiewlcz, forsætisráð-
herra Póllands, Antonin Novotni, forseti Tékkóslóvakíu og Nikita Krústjoff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna. — Hátíðahöldunum er nú loklð og héldu
flestir erlendu gestirnir heim í gær.
DRYKKJA OG SLACSMAL A
GÖTUM SEYÐISFJARDAR
Jón Gíslason látinn
Síðdegis í gær andaðist hinn1
kunni athafnamaður í Hafnarfirði, j
Jón Gíslason, eftir stutta legu á!
sjúkrahúsi.
EJ-Reykjavík, 23. júlí.
ÞAÐ sem af er þessari viku, hef
ur hálfgert hernaðarástand ríkt á
Seyðisfirði vegna landlegunnar. —
Dansleikur hefur verið haldinn á
hverju kvöldi, enginn hörgull virð
ist á áfengi, og drukkið fólk lief-
ur farið með ólátum og slagsmál-
um um götur bæjarins, allt fram
undir morgun, svo að ekki er um
svefnfrið að ræða. Á mánudaginn
lézt norskur vélstjóri af svefn-
pilluáti, í fyrrinótt voru tveir norsk
ir sjómenn slegnir illilega og
liggja nú á sjúkrahúsi, annar rif-
beinsbrotinn og mjög marinn, og
norskir hermenn hafa ásamt öðr-
um gengið um götur fram undir
morgun, barið á glugga í íbúðar-
húsum og haft önnur ólæti í
frammi. Aðeins 4 lögreglumenn
eru á staðnum, og löggæzla því al-
giörlega ófullnægjandi.
„Þetta er verra en á hernáms-
árunurn", sagði fréttaritari blaðs-
ins um ólætin á Seyðisfirði í þess-
ari viku. Landlega hefur verið frá
því á sunnudag og dansleikur á
hverju kvöldi. 500—600 aðkomu-
menn búa í verbúðunum á Seyðis-
firði, og þegar mest var, voru um
200 skip, innlend og erlend, í
Dauðaslys
EJ-Reykjavík, ÓH-Þórshöfn.
23. júlí.
Það slys varð á bænum Hvammi
í Þistilfirði síðdegis í gær, að rúm-
lega þriggja ára gamall drengur,
Yignir Arason, féll aftur af
vörubíl og lézt samstundis .
Vignir litli var, ásamt föður sín-
um og öðrum manni, á vörubíl á
túninu á Hvammi .Verið var að
hirða hey og bfllinn notaður við
flutningana. Vignir og hjálpar-
I maðurinn voru uppi á palli bílsins,
(en faðirinn sat undir stýri og
var að aka bílnum aftur á bak.
Vildi það þá til, að Vignir féll
aftur af bílnum og varð undir
öðru afturhjóli hans. Lézt hann
samstundis.
Foreldrar Vignis voru Ari Aðal-
björnsson, bóndi í Hvammi, og
kona hans, Hanna Sigfúsdóttir.
höfn. Dansleikur hefur verið á
hverju kvöldi í félagsheimilinu,
Herðubreið, sem með góðu móti
tekur um 250 manns, en í það hef-
ur stundum verið troðið fast að
helmingi fleira fólki. Enginn hörg
ull virðist á áfengi, þótt áfengis-
verzlunin sé lokuð í landlegum, því
að ýmsir birgja sig rækilega upp
af áfengi eða panta það frá Rvík,
og selja síðan á svörtum markaði.
Er því mjög létt verk að útvega
sér flösku, en verðið hefur farið,
að vitað er, upp í 700 krónur fyr-
ir brennivínsflöskuna.
Mestu ólætin og slagsmálin hafa
venjulega hafizt að dansleikjun-
um loknum. Gengur þó drukkið
fólk um göturnar með söng og
barsmíðum. Þótt íslendingarnir
séu engir englar, eru Norðmenn-
irnir harðastir 1 slagsmálunum,
og berjast þá innbyrðis. f fyrri-
nótt varð að flytja tvo þeirra á
sjúkrahús. Annar þeirra var bar-
inn harkalega af félögum sínum
fyrir utan samkomuhúsið. Hann
rifbeinsbrotnaði og er auk þess
mjög marinn á kvið og síðu. —
Hinn Norðmaðurinn hlaut aðeins
minni háttar meiðsli.
Kvöldið áður hafði vélstjórinn
á síldarflutningaskipinu Askvik,
sem lá við bryggju síldarbræðsl-
unnar, gleypt mikið af svefnpill-
um, svo að félagar hans ákváðu
að ná í lækni. Leituðu þeir um
stund að síma og kom starfsmað-
ur síldarbræðslunnar þeim til
hjálpar. Nokkuð erfitt var að ná
í bíl til að flytja manninn, svo að
dálítil stund leið, þar til hann
komst á sjúkrahús, þar sem dælt
var upp úr honum. Mun hann að-
eins hafa komizt til meðvitundar,
en ekki var hægt að bjarga lífi
hans.
Norskir hermenn af eftirlitsskip
inu „Valkyrja" höfðu sig mjög í
frammi á Seyðisfirði síðustu næt-
ur og tóku þátt í ólátunum. Voru
þeir drukknir á götunum í ein-
kennisbúningum sínum, börðu á
glugga hjá fólki um hánótt og
fram undir morgun, stálu þremur
síldartunnum á einu planinu og
Framh. á bls 15
SILOAR-
AFLINN
Fimmtudaginn 23. júlí: Hagstætt
veður var á síldarmiðunum s.
1. sólarhring. Skipin vora eink-
um að veiðum um 80 mílur AaN
frá Langanesi og í Norðfjarðár-
og Reyðarfjarðardýpi. Sfldarleit-
inni var kunnugt um afla 30 skipa
samtals 14.900 mál og tn.
Sigurður Bjarnason EA 600,
Jörundur II RE 700, Skarðsvík
SIí 1100, Guðbjartur Kristján ÍS
600, Einar Hálfdáns ÍS 600, Sæ-
þór ÓF 200, Súlan EA 450, Haf-
rún ÍS 1100, Framnes ÍS 300,
Hólmanes 300, Gjafar VE 350,
Jörundur III RE 550, Gunnar SU
500, Gullfaxi NK 600, Baldur EA
200, Jón á Stapa SH 500, Stjarnan
KE 550, Oddgeir ÞH 700, Helga
RE 300, Ólafur Bekkur ÓF 300,
Páll Pálsson ÍS 150, Sólfari AK
500, Björgúlfur EA 500, Sigrún
AK 450, Gylfi II EA 500, Guð-
björg ÓF 300, Guðbjörg GK 300.
Ásþór RE 600, Björg SU 400,
Sunnutindur SU 700.
T I M I N N, föstudagur 24. |úll 1964. —
T