Tíminn - 24.07.1964, Page 6
RITSTJÓRI OLGA 'ÁGÚSTSDÓTTIR
BorÖa ekki hafragraut
nema fá selssvið með
Litið inn á Reykhólum hjá Steinunni Hjálmarsdóttur og Tómasi Sigurgeirssyni.
Á Reyk-hólum í Barðastranda-
sýslu búa hjónin Steinunn
Hjálmarsdóttir og Tómas Sigur-
geirsson. Þar var áður fornt höfuð
ból og ber margt þess menjar.
Húsfreyjan sýnir komufótki stað-
inn og verður fyrst á vegi okkar
timburkirkja 100 ára gömul, sem
stendur vestan við bæinn. Hún
var orðin alltof lítil og léleg svo að
ráðizt var í að byggja nýja
kirkju fyrir nokkrum árum. Nýjýa
kirkjan er byggð upp á hóln-
um þar sem gamli bærinn stóð áð
ur og sést turninn á henni gnæfa
við himinn úr nærliggjandi sveit
um. Hér á Reykhólum er læknis-
setur, prestssetur og barnaskóli,
auk þess er landnám ríkisins með
tilraunir hérna rétt fyrir ofan. En
það sem ég hefi einna mestan
áhuga fyrir eru hverirnir, segir
Steinunn húsfreyja. Hér er mik-
ið jarðhitasvæði og er synd- hve
því er lítill gaumur gefinn.
Skammt fyrir neðan bæinn eru
nokkrir hverir og komum við fyrst
að Grettislaug Það bullar og sýð-
ur vatnið 102 stiga heitt og er ég
vön að baka í honum brauð. Það
genr enginn hér nema ég, það
er synd að nota ekki það sem guð
og náttúran gefa rnanni. Eg er
lika vön að sjóða hangikjöt og
þvo þvott í hvernum. Grettislaug
hefur verið svona síðan 1920 og
er hlaðið í kringum hana, það má
líka sjá móta fyrir hornsteinunum
að sundlauginni sem Grettir bað-
aði sig í. i
— Einu sinni átti ég eldavél
sem hafði geymir er tók 2 fötur
af vatni, heldur húsfreyja áfram,
og var ég vön að sækja í þær sjóð
andi heitt hveravatnið á veturnar,
Steinunn Hjálmarsdóttir og Tómas Sigurgeirsson.
Hverabrauð
Steinunnar
Steinunnar á Reykhólum.
Blandið einum disk af hveiti
kiíði saman við hverja 2 diska
af rúgmjöli. Setjið saman við
örlítið sykur, salt og natron og
hellið á það sjóðandi vatni, og
hnoðið brauðið. Ef til er súr-
imjólk eða mysa þá blanda ég
örlitlum sopa saman við. Læt
svo þetta bíða í troginu og
breiði yfir, það er svo hnoðað
eflir nokkra tíma. Set svo
brauðið í emeleraða fötu og
baka það í hvernum í 2 sólar
hringa. Það verður að vera tré
hiemmur ofan á fötunni, ann
ars rennur vatnið niður á brauð
ið og allt verður rennandi
blautt.
það var oft erfitt að komast með
þær heim í krapahríð, en með
þessu móti hafði ég alltaf sjóðandi
heitt vatn heima. Nú eru þeir
farnir að leggja hitaleiðslu í hús-
in og er það mikil bót frá því sem
áður var. Miðhverinn er mikið not
aður af konunum til þvotta og
stendur alltaf til að byggt verði
þvottahús við hann fyrir okkur,
en framkvæmdirnar vilja dragast
á langinn.
Næst verður fyrir okkur Innsti-
hver, en úr honum er heita vatnið
leitt í sundlaugina. Inn í afgirtu
svæði eru nokkrir hverir og kál-
garður húsfreyju .Þar hafa hænsn
in hreiðrað um sig i blómkálinu
og hleypur Steinunn og stuggar
þeim burtu Þetta eru skólahænsnin
segir hún til skýringar, en þau eru
eign skólastjórans og hefur hann
þau í kjallaranum í skólahúsinu.
' í þessum hver er ég vön að
sjóða kjöt, hann er hæfilega stór
til þess. Nú er klukkan orðin átta
og ef ég set hangiketið í hann
núna, þá verður það tilbúið klukk
an 11 í kvöld. Heljarmikill stein-
pottur stendur rétt hjá hvernum
og er hann geymdur þar svo að
fljótlegt sé að grípa til hans þeg-
ar þarf að setja kjötið yfir
Eftir að hafa litast um, á staðn
um er okkur boðið upp á kaffi. í
eldhúsinu spjöllum við yfir kaffi-
bollunum um gamla og nýja tím-
ann. Á Reykhólum var mikið út
ræði áður fyrr og bera gamlar
naustir því merki. Allar afurðir
voru fluttar á sjó, en nú liggur góð
ur bílvegur um sveitina og eru
fastar áætlunarferðir. Æðarvarp
er þar töluvert og svo er mikið
um sel. Selveiðarnar voru þó með
minna móti í ár. Það var einhver
meinvættur sem herjaði á selinn
og styggði hann, svo að hann leit-
aði í burtu, við höldum að þetta
hafi verið búrhveli. Við höfum
alltáf selsvíð á börðum hérna, ég
kann nú ekki við að bera þau
fram með kaffinu, en ég hef séð
það gert einu sinni á æfinni og
hefði ekki trúað því nema af því
að ég sá það sjálf, segir húsfreyja
það hefur líklegast verið að því
að ekkert annað hefur verið til
á heimilinu.
— Eg ætla að bjóða ykkur upp
á hverabrauð, sem ég er ný búin
að baka í hvernum hérna fyrir neð
an. Eg hef mína aðferð við að laga
brauðið og er hún ekkert leynd-
armál.
Á kvöldverðarborðinu eru súrs-
uð selssvið, það er nokkuð, sem
ekki sézt á hverju borði nú á dög-
um, en var þó algengur matur
áður fyrr. Fólkið mitt borðar ekki
hafragrautinn sinn nema að fá
selsvið með.
Selsvið, loppan sézt greinilega.
— Ekki er hægt að segja að þau
lokki svona fyrst í stað, loppan
liggur á diski fyrir framan mig og
líkist einna helzt hálf krepptum
hnefa. Það er greinilegt fingralag
á henni og meira að segja neglur.
Eftir að hafa komið niður fyrsta
bitanum er löngunin í seissvið
orðin svo sterk að ég get hugsað
mér að eta alla loppuna. í sann-
leika sagt, þetta er herramansmat-
ur.
— Hann Tómas minn er vanur
að svíða selssviðin fyrir mig á vor
in og svo legg ég þau í súr, það er
allur galdurinn, segir Steinunn.
Hér birtum við uppskrift af
hverabrauðinu hennar, sem allir
lofuðu og luku við, svo að hún
þurfti að fara að baka meira,
I ásamt uppskrift af selssviðum sem
við fundum í matreiðslubók.
O. a.
Þarna sr hverabrauð bakað.
Ljósmyndir: Olga Ágústsdóttir.
Súr sels-
svið
Selshaus er sviðinn yfir eldi.
hreifarnir sömuleiðis, en gæta
verður þess, að svíða hreifana
a járnteinum, sem þenja út
fitina, svo að þeir svíðist jafnt.
Sviðin liggi í köldu vatni yfir-
nóttina, skafin, þvegin og soð-
in eins og önnur svið, te'kin upp
úr og kæld og látin í góðan súr
Einnig má borða sviðin ný, og
þvkir hvort tveggja herra-
mannsmatur Selkjötið má mat
húa á margvíslegan hátt Venju
legast er var. að sjóða það
saltvatni með spikinu. Einn
ig má búa tii úr því alls konar
kiötrétti eins og úr öðru kjöti
»r áður en það ei notað. verð
m það að liggja í saltvatni eða
ediksvatni yfir nóttina svo að
hióðið síist út úr kjötinu Spik
ið af selnum er saltað Þa^
verður að vera sterkur pæk'i' .
á því Síðan er það soðið or !
borðað með soðnum fiski
t
T I M I N N, föstudagur 24. júlj 1964.