Tíminn - 24.07.1964, Page 16
Föstudagur 24. júlí 1964
165. tbl.
48. árg.
EIRÍKUR ALBERTSSON viS bllinn sinn.
(Tímamynd, KJ).
MED FULLAN BIL AF HLÆJANDI
SJÓMANNSKONUM Á PALLINUM
KH-Reykjavík, 23. júlí.
Margt getur skemmtilegt
skeð í ferðum um landið, jafn
vel — og kannski ekki sízt —
í stórum Bedford vörubíl. Það
er að minnsta kosti álit Eiríks
Albertssonar á Y-1246. Hann
keyrir hjá Þrótti og segir, að
það gerist eitthvað skemmti-
legt í hverri ferð. — Heldurðu
til dæmis ekki, að það sé
skemmtilegt að taka fullan bíl
af hiáturmildum og fjörugum
sjómannskonum á pallinn hjá
sér, eins og ég gerði í síðustu
ferð?, sagði Eiríkur í viðtali
við Tímann í dag.
Og það var nú einmitt til-
efni viðtalsins. Við heyrðum, að
Eiríkur hefði tvisvar sinnum á
ferð sinni frá Vestfjörðum til
Reykjavíkur um siðustu helgi
tekið að sér hlutverk hins
miskunnsama Samverja og tek
ið ógangfæra bíla á pallinn.
— Segðu okkur söguna, Ei-
ríkur.
— Ég var á leið frá Vest-
fjörðum til Reykjavíkur á
sunnudag og ók þá fram á bil-
aðan fólksbíl, Ford Comet, á
Þingmannaheiðinni. Kúplingin
hafði bilað, og fólkið var him-
inlifandi að sjá mig, eða öllu
heldur líklega bílinn, því að
á þessari leið má það teljast
einstök heppni að fá slíka
hjálp. Nú, svo tók ég Fordinn
á pallinn með öllu í, fimm
kátum konum og tveimur karl
mönnum. Og þetta er al-
skemmtilegasti farmur, sem ég
hef nokkurn tíma flutt.
— Á hvaða leið var fólkið?
— Þetta var Páll Friðberts-
son, útgerðarmaður á Súganda-
firði, sem var þarna að flytja
sjómannskonur til fundar við
eiginmenn sína, en þeir eru
nú sem óðast að veiða síldina.
Hann á bátana Ólaf Friðberts-
son, Friðbert Guðmundsson og
Sif, og á það víst ærið oft til
að færa sjómönnunum eigin-
konurnar. Ég geri ráð fyrir, að
hann sé mjög vinsæll fyrir
bragðið. Hann var líka með
Fólksvagn á sínum vegum, fuil
an af sjómannskonum, en hann
þurfti nú ekki hjálpar við.
— Og hvar sturtaðirðu af?
— Ég fór með þau til
Blönduóss og hefði helzt vilj-
að flytja þau alla leið á Nes-
kaupstað, þetta var svo fjör-
ugt fólk. Ég heyrði stöðugt
hlátrasköllin í gegnum vélar-
Framh. á bls
Slýið
greint
EJ-Reykjavík, 23. júlí.
Fiskideild Atvinnndeildar Há-
skólans liefur nú lokið rannsókn
á sýnishomum af slýi því, sem
undanfarið hefur lagzt í vörpur
Vestmannaeyjabáta og stöðvað
alla humarveiði.
Rannsóknin leiddi í ljós, áð
meginuppstaðan í slýitru er slím-
kenndur vefur úr lægri dýrtnn,
se:n ekki er unnt að greina tíl
ákveðinnar tegundar vegna þess,
hve vefurinn er kraminn og sund-
urtættur. Að ytra útliti er þetta
sem brúnar trefjar, og stafar lit-
urinn að nokkru leyti af botn-
leðju, en einnig af svifþörungum,
sem setzt hafa í slýið.
Pramhalo » 15. si8u.
IITANFERÐ S.U.F.
Norðurlanda- og Þýzkalands-
ferð SUF. Önnur utanlandsferð
Sambands ungra Framsóknar-
man'na á þessu sumri, hefst 6-
ágúst íi'æstkomandi og tekur 22
daga. Uppselt er í upphaflega á-
ætlaðan sætafjölda, en af fimm
viðbótarsætum, sem fengizt liafa,
eru tvö enn laus. Þeint, sem áhuga
kynmi að hafa, er bent á að snúa
sér til ferðaskrifstofunnar Lönd
og leiðir, sem gefur allar nánari
upplýsingar.
Fyrsti bilBinn yfir
Tungnaáákláfnum
^ Nýl vatnsgeymirinn á Vopna-
firSi. (Tímamynd-FB).
VOPNFIRÐINCAR FA VATN
FB-Vopnafirði, 23. júli. Þegar lindin þornaði upp, var, dal, en þessi tilraun varð til einsk-
Vopnfirðingar hafa lengi búið fenginn bor og byrjað að bora I is, því að ekkert vatn fannst. í
v'ið töluverðan neyzluvatnsskort, eftir neyzluvatni inni í Vesturár-I Framhaio a 15 siSu
úr því ætti nú að rætast, þair eð
þeir hafa Iátið bora eftir vatni inn'i
í Vesturárdal og eru þar að auki
búnir að láta reisa annan vatns-
geymi skammt frá þorpinu, en báð-
ir geymarnir samanlagt eiga að
taka um 550—600 tonn af vatni.
Til skamms tíma hafa Vopnfirð-Í
ingar fengið neyzluvatn sitt úr lind j
einni, en í fyrrasumar hvarf lindin j
gersamlega um tíma, og varð þá
heldur lítið um vatn á meðan.'
Einn vatnsgeymir hefur þó verið á
Vopnafirði síðustu tíu árin,
skammt utan við þorpið, og tekur
hann milli 250—300 tonn af vatni.
HE-Akureyri, HF-Reykjavík,
23. júlí.
f gær fór fyrsti bíllinn yfir
Tungnaá með kláfferjunni, sem
þar hefur verið sett upp. Þetta
var jeppi Ólafs Gíslasonar í Húna-
koti í Þykkvabæ. Tíminn skýrði
frá því fyrradag, að nyrzti hluti
Sprengisandsleiðar hefði mikið
verið lagfærður, og nú hefur Vega
málaskrifstofan á Akureyri látið
merkja ýmsa staði á Sprengisands
Iciðinni og sett þar upp vegvísa.
Frá Tungnaá og niður að Þor-
móðsstöðum, sem er yzti bær I
Sölvadal, eru 205 kílómetrar, sam
kvæmt útreikingum Halldórs Ey-
jólfssonar frá Rauðalæk, sem ný
kominn er úr Sprengisandsferð
til Akureyrar.
Komið hefur fyrir, að ferðalang
ar, sem ætlað hafa Sprengisands
leiðina, hafa villzt hjá Fjórðungs-
vatni, því að þar er um tvær leið
ir að velja, Illugaversleið og
Framh. á bls 16
NetaverkstæSiS í byggingu.
(Timamynd-FB).
Byggt netaverkstæði með fullkomnum eldvörnum
EJ-Reykjavik, ÞJ-Neskaup-
stað, 23. júlí.
Friðrik Vilhjálmsson, neta-
gerðarmaður á Neskaupstað, er
að smíða nýtt mjög fullkomið
netaverkstæði fyrir um 3.7
milljónir. Hann hefur nú verk
stæði sitt í eldgömlu timbur-
húsi og hefur stuntkim haft þar
net fyrir 12 milljónir. Þarna
er að sjálfsögðu mikil eldhætta,
og í nýja verkstæðinu ætlar
liann að hafa brunavarnakerfi,
sem er alveg nýtt af nálinni.
Friðrik hóf byggingu nýja
netaverkstæðisins laust fyrir
miðjan júní s. 1., og verður
grunnflötur byggingarinnar 450
fermetrar, en húsið allt 5230
rúmmetrar. Það verður tvær
hæðir með porti og risi.
Aðalnótageymslan verður á
neðri hæð hússins, sem er
mjög stór og rúmgóð með 5
metra undir loft. Vinnusalirn
ir verða þrír og allir stað-
settir á miðhæðinni. Verða
tveir vinnusalanna með 300 fer
metra grunnflöt, en sá þriðji
Framhalo t> 15 sfðu