Alþýðublaðið - 21.11.1953, Page 7

Alþýðublaðið - 21.11.1953, Page 7
jLaugardagur 21. nóv. 1953. ALÞÝÐUBLAÐIÐ Mái' og menning tók upp þá nýbreytni í fyrra að gefa út í einu lagi níu bækur, sem félagsmönnum var gefinn kostur á að velja um, þrjár eða fleiri, fyrir einstaklega lágt verð. Þessi nýjung vakti athygli og hlaut vinsældir félagsmanna, og sumar bækur úr þeim flokki eru nú með öllu ófáanlegar. í gær kom út nýr bókaflokkur, jafnvel enn fjölbreyttari að efni og glæsilegri að frágangi. BÆKURNAR EEU ÞESSAR: 1. ¥«sSS®o.dinpr eftir Lúðvík Ki'istjánsson. I riti þessu, sem verð- ur í tveimur bindum er rakin saga hinnar stórmerku framfara- og menningarvakning- ar í Breiðafirði og á Vestfjörðum á tíma- bili-nu 1830—1860. — Hér sjáum við fólkið. sem stóð að baki Jóni Sigurðs- syni °g skóp sögu aldarinnar. Höfundur bókarinnar, Lúðvík Krist- jánsson ritstjóri Ægis. er kunnur fyrir ritstörf sín, ekki sízt hina vinsælu sevi- sögu Knuds Zimsen, Við fjörð og vík og Úr bæ í borg. 2, íslenzka þjóðveldið r eftir Björn Þorsteinsson. Þjóðveldið forna er glæsilegasta tímabil ís- lenzkrar þjóðarsögu — Bókin rekur þróun þess í skýrum drátt- um fram til ársins 1264 og bregður á það Ijósi nýrrar þekkingar í sagnfræði og þjóðfélagsvísindum. — Höfundur þessa rits, Björn Þorsteinsson er orðinn kunn- ur bæði sem fræðimaður og rithöfund- ur. Að loknu prófi í íslenzkum fræð- um hér við háskólann stundaði hann framhaldSnám í sagnfræði í Bretlandi og hefur gert merkilegar rannsók-air á verzlunarviðskiptum íslands og Bret- lands fyrr á öldum. svari fsiff er sfufl skáldsaga eftir Agnar Þórðarson. Þessi nýja skáldsaga Agnars gerist í Reykja- vík á okkar dögum. Höfuðpersónan er ung- ur maður af borgara- ættum sem tekur við fyrirtæki eftir föður sinn og kemst að því að hann hefur verið flæktur í fjármálahneyksli og í rauninni aldirei verið frjáls maður.Son urinn á um að velja að halda. áfram á sömu braut eða veita viðspyrnu og fá uppreist fyrir minningu ioður sins. 4. HliarbræÓur eftir Eyjólf Guðmundsson Eyjólfur Guðmundsson á Hvoli er þjóð- kunnur fyrir endurminningar sínar, rit- in Afi og amma, Pabbi og mamma og Lengi man til iítilla stunda. Nú kem- ur í ljós að harya heíur einnig fengizt við skáldskap. Frumdrögin að sögunni Illíðarbræður hefur Eyjólfur gert laust eftir aldamótin, en endurritað hana fyr- ir nokkrum árum. Hún gerist í sveit nálægt aldamótum og segir frá árekstr- um sem áttu sér stað milli gamla og nýja tímans um það leyti sem ung- mennafélagshreyfingin með ýmsum nýj - ungum var að berast út í sveitirnar. eftir Helga Hálfdánarson. Höfundur er íslenzkum lesendum að. góðn kunnur, þótt ekki hafi enn birzt á vprenti nema fá sýnishorn af kvæð- um hans, margir hyggja gott til að fá fleira að sjá frá he'íidi þessa orðhaga og formsnjalla skálds. í ljóðaþýðingum Helga er leitað víða til fangs, en sér- stöku ástfóstri hefur hann tekið við stórskáldin ensku á fyrra helmingi 19. aldar, Keats, Shelly, Byron og Wods- worth, og íslenzkað sum af mestu og frægustu kvæðum þeirra. Einnig hef- ur hann þýtt nokkrar af sonnettum Shakespeares, og þrjú af leikritum hans, en söngvar úr þeim og fleiri leik- ritum Shakespeares eru í bókinni. 6, írskar fornsögur, þýddar og valdar a£ Hermanni Pálssyni. írskar og’ íslenzkar fornsögur skipa önd- vegissess. í miðaldabók me'nntum Evrópu. — Fræðimenn hafa fært að því skynsamleg rök » ® að íslenzk sagnalist eigi rætur sínar að rekja til írlandsí enda yrði uppruni hennar torskýrður með öðrum hætti. — írskar íornsögur eru hér i fyrsta sinn kynntar íslenzkum lesendum, og þýddar beint úr frummál- inu. Hermann Pálsson, norrænufræðing- ur og lektor við háskólann í Edinborg, mun vera fyrsti íslendingurinn, sem lagt hefur stund á keltnesk fræði. Hann hefur valið sögurnar til útgáfu og ritar ýtarlegan inngang að bókinni um írsk- ar fornbókmenntir. 7. eftir Peter Cotes og Thelma Nikulaus. Margar bækur hafa verið ritaðar um þenn an einstæða snilling, vinsælasta lista- mann sem uppi hefur verið. Bók sú, er i^ú kemur á íslenzku, er ein hin nýjasta, gefin út í Lundúnum 1951. Skiptist hún í tvo meginþætti, sá fyrri er ævisaga Chaplins, mjög sögu- leg, sá síðari fjallar um list hans. Þá eru í bókinni margar ljósmyndir úr kvikmyndum Chaplins og einkalífi, skrá yfir allar kvikmyndir hans og synis- horn úr ritum hans. — Magnús Kjart- ansson ritstjóri, hefur þýtt bókina. skáldsaga eftir Pjotr Pavlenko. Ný sovétskáldsaga, sem gefur ljósa hug- mynd um það mikla átak er sovétþjóðirnar gerðu til að reisa land sitt úr i’ústum eftir ‘ síðustu heimsstyrjöld. -Höfundurinn hlaut fyrir hana Stálin- verðlaun 1947. Hún hefur verið þýtt á ýmiss erlend mál. — Geir Kristjánsson riístjóri MÍR þýddi söguna úr frum- málinu. 9, Talað viö dýrin. eftir Konrad Z. Lorenz. Plér er á ferðinni ó- venju merkilegt og skemmtilegt rit, er kom fyrst út á þýzku 1950, en hefur síðan verið þýtt á mörg mál og hvarvetna orðið mjög vinsælt. Höfundurinn er austur- -^Crískur og einn kunnasti dýrafræðingur sem nú er uppi. — Allt er hann segir frá, birtist í nýju ljósi, fær líf og lit, jafnvel nokkrir smáfiskar í keri verða heill heimur furðuverks. — Símon Jóh. Ágústsson prófessor hefur þýtt bókina og Finnur Guðmundsson náttúrufræð- rngur, ritar formála fyrir henni. Hitt er skreytt fjölmörgum skemmtilegum teikningum eftir höfundinn. hefur opnað nnum a Skólavörðustíg 21 iíið inn í nýju verzlunina - Skoðið nýja bókaflokkinn Mál og menning Skólavörðustíg 21, sími 5055.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.