Tíminn - 22.10.1964, Qupperneq 13
I
ÚLYMPfULEIKARNIR í TÓKÍÚ
Sigraði aftur í
maraþonhlaupinu!
- og fékk bezta tíma, sem náðst hefur á vegalengdinni
Aldrei fyrr í sögu Ólympíuleikanna hefur sami maður sigrað tvívegis í
erffðustu keppni leikanha, maraþonhlaupinu, en það skeði einmitt í gær,
þegar Ethiópíumaðurinn Abebe Bikila sigraði öðru sinni í þessu erfiða
hlaupi og hljóp vegalengdina á skemmri tíma en nokkru sinni hefur
náðst, en heimsmet á vegalengdinni er ekki skráð. í Róm hljóp Bikila ber
fættur, algerlega óþekktur, og sigraði með yfirburðum og í Tókíó í gær,
ðflum kunnur, voru taugar hans í lagi og eftir 20 km. var enginn vafi á þv>
hver myndi sigra í þessu hlaupi. Yfir millj. manna fögnuðu Bikila á hinni
42.6 km. löngu vegalengd og þegar hann kom inn á Ólympíuleikvanginn
langt á undan öðrum keppendum, ætlaði fagnaðarlátum aldrei að linna.
Hann var 1200 metrum á undan næsta manni í mark — og þegar þessi líf- ^
vörður Abessínukeisara kemur aftur heim bíða hans gull og grænir skógar
í maraþonhlaupinu hófu 68
fceppendur hlsupiB og eftir tvo
hringi á vellinum sveigðu hlaup-
aramir gegnum hliðin og ót á as
faltgötur Tokíóborgar. Bifcila hljóp
á skóm, aldrei þessu vant, en á æf
ingum áður eins og myndin sýnir,
að baki. Þegar út af vellinum kom ,
tók ástralski heimsmethafinn í 10 p
km. hlaupi, Ron Clarke, forustuna,
og hafði hana eftir fimm km. á ’
tíma, sem ísl. fimm km. hlauparar
mættu vera ánægðir 'með. Hogan,;
írlandi, og Túnisbúinn fylgdu1
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
hljóp hann berfættur eins og þeg-1 honum. Eftir 10 km. var Clarke
ar hann sigraði í Róm. Túnismað J enn fyrstur, en Hogan og þessi
urinn Boubaker var fyrstur í stórkostlegi Bikila hlupu samsíða
gegnum hliðið og það var í þving j honum — og síðan byrjaði lífvörð
andi hita, sem hlaupararnir áttu ! urinn stnám saman að komast fram
eftir að leggja hina erfiðu raun í úr hinum —fyrst 100 m. og svo
Úrslit í 200 m. flugsundi karla komu á óvart, kannski vegna
þess að Bandaríkjamenn sigruðu ekki. Átján ára Ástralíu-
búi, Kevin John Berry varð sigurvegari og til þess að hljóta
gullið varð hann auðvitað að setja heimsmet og það tókst.
Tími hans var 2:06.6 mín. — og þeir sem sigurstranglegast-
ir voru taldir fyrir úrslitasundið, m. a. Bandaríkjamaðurinn
Barie, varð að sætt sig við silfrið í þessari grein að því að
haldið var fyrir leikana, bandarsíku grein. Myndin sýnir Berry
í sigursundinu. Ljósmynd UPI.
lengdist bilið. Clarke var enn
næstur honum — og rétt á eftir
honum var Indíáninn Bill Mills
sigurvegarinn í 10 km. hlaupinu á
leikunum. — Gat hann komið til
greina?
Nei, Bikila, hélt sama hraðan
um þar til hann sleit marksnúruna,
og það var hraði, sem enginn ann
ar réði við, 1200 metrum á undan
næsta manni sleit hann marksnúr
una, að því er virtist óþreyttur
eftir mesta maraþonhlaup sögunn
ar. Margir gáfust upp í hitanum
og þeim hraða sem Bikila setti.
Landi hans Mamo Wolde, 4. mað
ur í 10 km. — og Hogan og Baik
ov, Sovét, hættu ásamt mörgum
öðrum —og löngu eftir að Bikila
hafði hlaupið í mark birtist næsti
maður á leikvanginum. Það var
Japani og fögnuður áhorfenda var
óstjórnlegur. En rétt á eftir birt
: Bikila á æfingu i Tokíó.
j mynd Politiken.
ist sterfcur Breti, sem tókst auð-
veldlega að ná Japananum og kom
ast framúr honum á þessum
spretti á hlaupabrautinni. Og í
fjórða sæti varð annar Breti —
já, það er seigla í þeim — og
í sjötta sæti Bandaríkjamaður,
sem mörg undanfarin ár hefur
dvalið á Bretlandseyjum og æft
þar — en ekki litið ættland sitt,
þótt hann keppti fyrir Bandarík-
in. En þrátt fyrir þetta var sigur
inn Eþhiópíu — sem í annað skipt
ið vegna Bikila kemst á blað á
Ólympíuleikum — en ekki Bret-
lands. Úrslit:
1. Bikila Abebe, Eþiópía 2.12.11.2
2. Benjamin Basil Heatley, Bretl.
2.16.19.2
3. Kokiohi Tsuburaya, Japan
2.16.22.8
4. B. Leonard Kilby, Bretl.
2.17.02.4
5. K. Sueto, Ungverjal. 2.17.55.8
6. L. Edelen, USA 2.18.12.49
★ Það er ekki aðeins hlaup-
arinn Peter Snell, sem vakið
hefur athygli á landi sfnu á
Ólympíuleikunum í Tokfó. í
gær sigraði Nýja-Sjáland í sigl
ingakeppninni „Hollendingur-
inn fljúgandi“, en önnur verð-
laun hlaut Bretland, Bandarík
in þau þriðju og Danir voru
fjórðu í röðinni á undan Sovét
ríkjunum.
★ í fimleikakeppni sveita
sigraði sovézka sveitin í kvenna
flokki. Tékkneska sveitin varð
í öðru sæti, sú japanáka í
þriðja og í áttunda sæti urðu
sænsku stúlkurnar.
★ Japaninn Takehide Nakat
ini átti í engum erfiðleikum
með að sigra í léttvigt í judo —
sem nú er í fyrsta skipti keppn
isgrein á Ólympíuleikum. Silfur
verðlaun hlaut óvænt Sviss-
lendingurinn E. Haenni og
bronsinu urðu að deila tveir
frá Sovétríkjunum.
★ Danir hlutu sín önnur gull-
verðlaun á leikunum í gær, þeg
ar Danmörk var í fyrsta sæti
í siglingum „Drekaklassanum".
Þýzkaland varð í öðru sæti og
Bandaríkin í þriðja.
★ í þriðju siglingakeppninni
unnu Þjóðverjar með 1300 stig
um á undan næstu sveit. Banda
rikjunum. Danmörk hlaut þar
þriðja sæti og Ný-Sjálendingar
hið fjórða.
★ Ein þeirra, sem varð fyrir
mestum vonbrigðum á Ólympíu
leikunum var þýzka stúlkan
Jutte Heine, Evrópumeistari í
200 m. hlaupi. Eftir að hafa
þjófstartað tvívegis var henni
vísað úr keppninni — og það í
undanrás.
★ Japanir geta gert þá kröfu
nú, að hafa á að skipa því fólki,
sem mestan áhuga hefur fyrir
íþróttum. Einföld dæmi: í rign
ingu og stormi sáu 50.000
manns undankeppnina í spjót-
kasti og jafnmargir áhorfendur
voru í undanrásum í 100 m.
hlaupi. í stangarstökkinu voru
12 þúsund áhorfendur á vellin
um þar til keppni lauk kl. 10
um kvöldið og á sunnudag var
ekfci einn einasti ólympíumeist
ari krýndur og þó voru 50 þús.
und áhorfendur á leikvangin-
um.
★ Þegar tíðindin bárust til
Mantymoel — 4 þús. manna
fjallabæ í Wales, að Lynn
Davies hefði sigrað í langstökki
í Ólympíuleikunum — messaði
presturinn í bænum og talaði
nær eingöngu um fordæmi Dav
ies og eftir messúna hlupu
börn bæjarins um bæinn svo
allir mættu vita, að íþróttamað
ur staðarins „var sá bezti i
heimi“.
★ Elvir Ozolina, meistari í
spjótkasti kvenna á Ólympíu
leikunum í Róm, varð aðeins í
fimmta sæti í Tokíó. Daginn
eftir fór hún til hárskera sov-
ézka flokksins og bað hann um
að klippa af sér allt hárið. Hann
reyndi að fá hana til þess að
skipta um sfeoðun, en þá greip
Ozolína klippurnar og áður en
nokkur gat stöðvað hana klippti
hún stóra lokka úr hinu fagra
kastaníubrúna hári sínu. Eftir
Framhald á 15. síðii.