Alþýðublaðið - 27.04.1920, Page 1

Alþýðublaðið - 27.04.1920, Page 1
1920 frá Hássnm. Khöfn 2p. apríl. Rússnesk verzlunarsendinefnd ræðir við menn frá öllurn löndum Evrópu, sem' hagsmuna hafa að gæta í Rússlaádi, í maílok. Bent hefir verið á Kaupmanna- höfn sem miðstöð rússneskrar verzlunar. Khöfn, 26. apríl. Símað er frá Kristjaníu, að að- iflutningsbannið á ö!i, sem inni- heidur meira en 4.75% alkóhól, hsfi í gær verið numið úr gildi. [Þetta viðkemur ekki banninu gegn aðflutningi sterkra drykkjaj. Saa Hemo /uhriu. Khöfn 26. apríl. Símað frá San Remo, að Eng- landi séu falm meðráð með Me- sopotamfu og Gyðingalandi og Frakklandi með Syrlandi. Wilson beðinn um að vera gerðardómari f Armeníumálinu. Framvegis verður Gyðingaland þjóðarheimkynni Gyðinga. Allsherjarverkfall í Frakklandi? Khöfn 26. apríl. Símað er frá París, að búist sé við allsherjarverkfalli 1. maí. Mikill viðbúnaður er hafður, til þess að koma í veg fyrir það. Þriðjudaginn 27. apríl 93, tölubl. + Okkar hjartkæri sonur og fóstursonur, Viktor F. Múller, and- aðist á Landakotsspftala 25. þ. m. Jarðarförin ákveðin sfðar. Reykjavík 26. aprfl 1920. Ragnheiður Ólafsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Andres Jónsson. I Hássar og Jinnar. Khöfn 26. apríl. Fregn frá Helsingfors hermir, að Rússar hafi í bráðina bætt vopnahléssamningunum við Finna. Sýning á básáhðlinm. Bunaðarfélag íslands hefir gefið út sérprentun úr Búnaðarritinu, af grein með þessari fyrirsögn. Er þar skýrt frá því, að félagið hafi ákveðið »að halda sýningu vorið 1921, á allskonar verkfær- um og vinnutækjum, sem hafa verið notuð, og iíklegt er, að séu nothæf hér, við búnaðarstörf*. Er sízt vanþörf á slíkri sýningu, og líklegt, að hlutaðeigandi menn, og þeir, sem eitthvað geta lagt til málanna, geri sitt til þess, að gagn verði að henni. Það, hve lítið hefir verið gert að því, að kynna menn ýmsum verkfærum og reyna að samræma notkun þeirra, — kasta burtu því, sem óhæft var, en bæta það not- hæfa, — á ekki Iitla sök á því, hve skamt íslendingar eru komn- ir í öllum verklegum framkvæmd- um. Að láta alt drasla,.af því að faðir, afi og langafi og langalang- afi, komust svöna af, hefir verið alt of víðtekin regla. En sýning- ar, slfkar sem þessi, ættu að hafa stórkostlegt framfara- og menn- ingargildi, ekki sfzt, ef aimenn þátttaka yrði. Samanburður á verk- færunum er bráðnauðsynlegur, og hann fæst bezt á þennan hátt. Skrá yfir það, sem ætlast er til, að verði til sýnis, fylgir rit- gerðinni og eru hér sett flokka- nöfnin: Jarðyrkjuáhöld, heyvinnu- áhöld, flutningatæki, reiðskapur, girðingaefni, mjólkuráhöld, mat- reiðsluáhöld, áhöld við hirðingu og meðferð búfjár, rafmagnsáhöld, ýmisleg áhöld. Geta menn af þessu heildaryfirliti séð, að sýningin get- ur, með almennri þátttöku orðið allfjölbreytt og yfirgripsmikil, Má enginn, hvar sem er á laudinu, liggja á liði sínu, svo að sem mestur árangur geti orðið af sýn- ingunni. í niðurlagi greinarinnar segir: „Seinna verðá skipaðir menn, eða nefndir, til að sjá um undirbúning á hinum ýmsu deildum, og höf- um vér loforð um aðstoð ýmsra ágætra manna, til þeirra hluta. Útlend verzlunarhús hafa boðist til, að senda verkfæri á sýning- una. En íslendingar sjálfir mega eigi vera eltirbátar. Margt er hægt að búa til hér, og laga eftir staðháttum. Sýnið nú, hvað hægt er að gera, einnig á þessu sviði. Vér þurfum betri verkfæri, og — sýningin á að vekja menn tii umhugsunar, og benda á nýjar leiðir. Látum ná sjá, hvað vér getuin í þeim efn- um.« I. J.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.