Alþýðublaðið - 27.04.1920, Side 3

Alþýðublaðið - 27.04.1920, Side 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 E.s. Borg fer héðan um miðja vikuna til Ísaíjarðar, Yestmannaeyja og Bretlands. Vörur til ísafjarðar og Vestmannaeyja afhendisf í dag. H.f. Eimskipafólag- íslands. Alþýðublaðið er ódýrasta, fjölbreyttasta og bezta dagblað landsins? Kaupið það og lesið, þá getið þið aldrei án þess rerið. Gamall borgari í bæaum sagði nýlega: „Allir vita, hverju bær inn sleppir, ef Z'msen fellur, en þó Sig. Eggerz sé óreyndur mað ur, geta allir virt þ»ð við hann, að hann er heiðarlegur maður*. Leitt er fyrir Knút, að nú skuli lítið ráðið af íóiki i bæjarvínnuna, því hann hefði e. t. v. getað feng- ið sér nokkur atkvæði, því tii margs er honum trúandi. Einn af oss. Öliæfa. Það spurðist úti í bæ sfðastl. miðvikudag, að heill bekkur í Mentaskólanum hefði, meðan tfm ar stóðu yfir, setið og drukkið, óáreittir af kennurunum, sem senni- lega hafa ekki vitað neitt um hvað fram fór. Vér skulum að minsta kosti ætla, að svo hafi verið. Eg ,hefi reynt að spyrjast fyrir um þetta, og allir, sem eg hefi átt tal við og voru í skóla þann dag, hafa staðfest það. Um kvöldið og nóttiaa var vetrarkveðja í skólan- um, og var þar drukkið þétt. Er ekki kominn tími til að at- huga ástand skólans og stjórn hans, þegar virðingarleysi pilta fyrir kennurum er komið á svo hátt stig, að þeir brjóta landslög í sjálfum skólanum svo að segja fyrir augum þeirra. Sýnir þetta ekki, að þörf er á að herða bann- lögin svo, að piltar, sem njóta gjafkenslu við Menta- og Haskól- ann, sjái sér ekki fært að mis- bjóða svo almennu velsæmi, sem þeir hafa gert seinni hluta þessa vetrar. Q- Alpbl. þykir þetta ótrúlegt, en þar sem það hefir enga ástæðu til þess að rengja höf,, vildi það ekki neita honum um rúm í blað- inu. Því þetta er of alvarlegt mál til að þegja það í hel, ef satt er. Nýleg dyratjöld til sölu, með tækifærisverði. Hverfis- gata 80, útbygging. Ðuddu tapaðist á Sutnar- daginn fyrsta. Skilst gegn fundar- launum til Páls Hafliðasonar, Lind- argötu I F. Nýr grammofon með 15 plötum og frakki til sölu með tækifærisverði á afgr. Alþbl. Hrað gerist í Síberíu? Nú fyrir nokkrum dögum kom skeyti þess efnis, að Japanar og Rússar hefða samið frið í Síberíu. Japanar höfðu fyrir skömmu sent þangað 3 herdeildir og Kínverjar 4 í samráði við Japana (20 þús. manns í hverri herdeild). Ókunnugt er hvort verulegir bardagar hafi átt sér þar stað. Nýr stjó^umálaflokkur í Bretlaudi? Eins og kunnugt er, situr Lloyd George og ráðuneyti hans við völd fyrir tilstyrk sambandsflokks- ins (Coalition). Hefir flokkur þessi stöðugt rýrnað við hverjar nýjar aukakosnjngar. En við kosningu Asquits mun þó flokkurinn hafa fengið versta höggið. Var því haldið að Lloyd George mundi mynda nýjan flokk, er bráðlega kæmi í dagsljósið. Verði í honum íhaldsmenn, nokkrir liberalir úr sambandsflokknum og hægfara verkamenn. Stefnuskrá flokksins kvað vera samin, og er haldið að hún muni verða íhaldssamari en áður. En enn þá er ekkert víst um hvort flokksmyndun þessi tekst eða ekki. Kailnamfot blá og mislit, saumuð á vinnustofu minni, seljast nú ódýi*t Suðm, Sígurðsson klœðskeri Pvottasápur og Handsápur er bezt að kaupa í verzlun Símonar Jónssonar Laugaveg 12. Simi 221. Afgreiðsla blaðsins er í Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti og Hverfisgötu. Sími 988. Auglýsingum sé skilað þangað eða f Gutenberg í síðasta lagi kl. 10, þann dag, sem þær eiga að koma í blaðið. Telpu, röska og góða, vant- ar okkur í sumar. Guðrún og Steindór. Grettisgötu io, uppi. Kvenn- og barnafatnaðir ódýrastir á Laugaveg 70.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.