Alþýðublaðið - 07.01.1955, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 07.01.1955, Qupperneq 5
Föstudagnr 7. janúar 1955 ALÞÝÐUELAÐ!© TELGANGURINN er sá að leitast við með nokkrum orð- um að gera fyrst grein fyrir aðalelnkennum spámannanna <og skýra jafnframt frá því, sem greinir þá frá öðrum. Síð- an verður vikið að skáldunum og reynt að benda á einstök atriði í sálarlífi þe.rra. Mun þá sýna sig, að ýmislegt er þeim sameiginlegt, skáldunum og íSpámönnunum. Svipuð sálræn fyrirbæri koma fram hjá hvor um tveggja. Sálarástand skáldsins, er hann yrkir, er að ýmsu áiþekkt sálarástandi spá- mannsins, er hann veitir við- töku guðmælunum og flytur 'þau. Mismunurinn á innihaldi hvors um sig, guðmælanna annars vegar.og skáldverkanna hins vegar, er að sjálfsögðu augljós. Eðlilegt er. að: spurt sé: Hvað er spámaður? Það er engan veginn eijns auðvelt að svara þeirri spurn- Sngu og virzt gæti í fljótu bragði. Það er þvert á móti erfitt að finna nákvæma og við unandi skilgrein'.ngu á því hugtaki. Það liggur að vísu beint við að segja — og' ér í sjálfu sér rétt, að spámaður sé ..maður trúarinnar“ — homo religiosus —. spámennirnir eru ekki stjórnmálamenn, sið- bótamenn, hugsuðir eða heim- spekingar. Lærdómur eða vís- índi einkenna þá ekki, en stundum geta þeir jafr.framt verig rithöfundar og skáld. En enginn spámaður hefur komið fram án þess, að hann vær: fulltrúi og talsmaður einhverr ar trúar eða trúarbragða. Spá- menn eru gæddir þeim hæfi- leika að geta á sérstæðan og á- hrifaríkan hátt öðlazt snert-; ingu við guðdóminn. Þeir fá vitranir frá þeirri veröld, sem þeir kenna við guðdóminn. Þeir öðlast trúarlega reynslu, sem veldur því, að ævi þeirra og líf beinist inn á aðrar braut ir en ella myndi. Til eru þeir, sem að vísu Séra Guðmundur Sveinsson: grem hafa öðlazt snertingu við guð- j dóminn og mikla trúarreynslu ; án þess að verða spámenn þar , fyrir. Það, sem skilur á milli 1 slíkra og spámannanna, er. að hinir síðarnefndu. eiga að tak- * ast það hlutverk á hendur að birta öðrum reynslu sína Trú- arreynslan má ekki verða þeirra eigin eign eingöngu, ef ( svo mætti komast að orði. Þeir j eiga ekki éinir að njóta henn- ' ar. Spámannsins er ekki að ■, njóta, heldur að gefa. Þaðj fyrsta, sem þannig verður sagt um spámanninn, er, að hann er boðberi. En boðskapur spámannsins er . ekki hans eigin. Hann er gjöf guðdómsins. Spámaðurinn bendir ævinlega til annars meiri, sem stendur bak við hann og býður, hvað boða skuli. Æðri vitund og máttugri talar geg.num hann. Hann tal- ar í umþoði annars eða. á veg- um . þess, sem heíur k?.Ilað hann til þjónustu við sig og hefur hann á valdi sínu. Spá- maðurinn er þess fullviss, að o.rð hans og hug.sanir eru ekki runnar frá honum sjálfum. heldur f-engnar að gjöf. Hugs- uðurinn vinnur á verkstæði skynseminnar, mættj segja, og hann notar hugsunma sem tæki. Hann raðar hugmynduxn saman í kerfi eftir reglum rþk- hyggjunnar og dregur ályktán' ir af gefnum forsendum. Sþá- maðurihn er hvorki grúskaran um. líkur né vísindamann.n- um. Hæfileiki hans og náðar- gáfa er að taka á mót: því, sem honum er gefið af Guði. Þess vegna eru orð hans máttugri en annarra manna, af því að hann birtir og boðar v.ilja Guðs, sem öðrum er dulinn. En boðskapur spámannsins GREIN ÞESSI fjallar um samanburð á spámönnum og skáldunum og Ieiðir í ljós, að ýmislegt er eameigin- legt með þeim. Svipuð sálræn fyrirbæri koma fram hjá báðum, því að sálarástand skáldsins, er hann yrkir, er að mörgu Ieytj áþekkt sálarástandi spámannsins,. er hann veitir viðtöku guðmæíimum og fiytur þau. 'Í þessum fyrri hluta greinarinnar er svarað spurningunni, hvað sé spámaður, en í síðari hluta hennar er vikið að skáld- unum og bent á einstök atriði í sálarlífi þeirra. Séra Guðmundur Sveinsson. og þó einkum framsétning er önnur og ólík kenrarans, sem fylgir ákveðnum rgelum í kennslu sinni. Hann á 'heldnr ekkert skylt við 'predikarann, sem leítast við að hafa áhríf á áhejTendur sína með því að skýra og útlista ák^eðinn texta. Hann er ekki sem fagn aðarboðberinn (evangelisti), sem flytur boðskap, „keryg- ma“, um eitíhvað, sem gerzt hefur. Hann er ekki votturinn, sem ber vitni um það, sem hann hefur sjáífur séð og rejmt. Þeir. sem nú hafa verið nefndir, láta aliir stjórnast af rólegri íhugun og unxhugsun fyrst og fremst, en ■ spámaður- inn stjórnast — eftir eigin urn mælum — af ,.andanum“ eða guðdóminum, — við myndum segja — ómótstæðúegum inn- blæstri. Það má að vísh skiígreina orðið „innblástur“ á ýmsan hátt. En næst hinu sanna mun sú skilgreining komast. að inn blástur sé í því. fþlginn, að hug myndir og kenndir hópast að meðvitundinni, en sá,; sem fvr- ir slíkri reynsjR verðm-, finnst hann sjálfur vera hlutlaus á- heyrandi og jafnframt á valdi annars og ekkert fá, ,að gert annað en hlusta og hlýða. Slík er að minnsta kosti revnsla spá mannanna af innbiæstrinum. Þegar innblásturinn hefui' náð nægilegum stvrkleik í verður hann að leiðslu („eks- tasis“). Ekki hafa íræðimenn orði'ð á eitt sáttir um það, hver.su skilgreina skuli orð'ð eða hugtakið „ekstasis". Stund um hafa menn byggt skilgreín ínguna á merkingu sjálfs’ orðs- ins ■„ekstasis“. sem er grískt Leiðslan er þá látin tákna sál- rænt ástand. sem einkennist af þeirri undarlegu tilfinningu, að svo er sem sálin yfírgefi lílu amann í fullri vöku og steíni för um framandi heima, én g'lat: sambandi við fvrra urp- hverfi sitt. En gríska orðlð ,.ekstasis“ þýðir nSnast: „Það að stíga Út úr sjálfum sér.“ Hefur verið þýtt „frá-séf- numning“. En þessi skilgrein- ing er ekkí fullnægjandi. Þessi tilfinning, sem nú var lýsf, getur, að því er tahð er, verið til staðar án þess, að um raun- verulegan ..ekstasls'* sé að ræða, og orsakast af öðrum —- að vísu skyldum.— hræringum í sálarlífinu. Önnur og eldri skilgreining á hugtakinu er sú, að „ekstas- is“ sé í raun og veru hið sama o.g það .sálræna ástand, seip nefnt hefur veríð I.upio myst- ica“, — hin leyndardómsfulla sameining. „Unilo.. imystiea" éinkennist "afs;þeirri tilfinn- ingu trúarhrifníngarinnar, að sálin virðist fullkomlega Sam- stillast og sameinast guðdóm- inum. í ólý'sanlegr'i sælu og lelðslú hverfur- ,sálin í skaut guðdórnsins og meðvitundin máist út í alverurmi. — En þessi skilgreínlng cr sömuleið- is ófuHnægjandi. „Unio myst- ica“ ,sem sálrænt ástand'bygg- ist nefnilega fyrst og fpemst á ákveðnum trúarhugmyndum: Guð er alveran eða- alvitundjn, og sál mannsins er einn hlutl hennar, eins og neist: af eldin- um, dropi úr hafinu. Sú hug- myn.d kemur einkar glöggt fram hjá Einari skáldi Bene- diktssyni í þessum Ijóðlinum: „En ínnst-a hræring hugar naxns hún hverfa skal, til upphafs síns, sem báran endurheímt í hafið. —“ En „ekstasis“ er:hins vegar al- gengt meðal trúflokka, sem hvorki aðhyllast né þekkja Framháld á 7. síðu. í FJÖLLUM og frumskóg- «m Bolivíu, Brasiiíu. Ecuador og Perú búa margir hínna :nn faéddu í þorpum við næsta frumstæð lífskjör, og eru flest þessi þorp svo smá, að þau hafa ekki verið staðsett á meinu landabréfi. En sum þess ara þorpa búa yfir. læknis- fræðilegum léyndardómum, sem ef til vill myndu, — hvort sem þeirra er að leíta í jarð- veginum, vátninu, fæðunni, — eða jafnvel líkama eða sál íbú- anna, — valda gerbyltingu í læknisfræði, ef takast mætti að finna á þeim raunhæfa skýr ingu. íbúar þessara þorpa virðast nefnilega með öllu, eða að mestu leyt,i vera haldnir ó- næmi gagnvart ýmsum þeim sjúkdómum, sem læknar og þeilsufræðingar um víða ver- öld heyja nú harðasta baráttu við. Meðal þeirra sjúkdóma má nefna hjartabilun. krabba- mein, malaríu, súllave'ki, tann skemmdir og geðveiki. ABKOMUMENN LÆKNAST Allt í kringum þessi þorp, jafnvel í : næsta nágrenni þeirra, valda þessir sömu sjúk- ‘dómar kvölum og da'uða. Þorpsbúar lifa yfirleitt. Við ikjör, sern við mundum tæpast kalla mannsæmandi. og þrifn- aði er þar vægast sagt mjög á- bótavant. Þegar aðkomumað- TIL eru staðir, þar sem j fólk virðist með öllu ónærtúý fyrir vissum sjúkdómum, ogj veit enginn enu af hverjuS það ónæmi stafar. Frá þessuS Ssegir í eftirfarandí greinS jeftir bandaríska vísinda-1) manninn Eugene Payne, en^ hún ér þýdd úr tímaritinuj „Week“. ; ur, er þjáist af einhverjum næmum sjúkdómi, sem óþekkt ur er í viðkomandi þorpum, kemur þangað, væri aðiens rök rétt að álykta, að slík heimsókn mynd; vekja drepsótt meðal í- búanna En þ.ví fer fjarri. Hins vegar eru þess dæmi, að áð- komumaður hefur orðið heil- brigður eftir nokkra dvöl í þorpinu. Hvers vegna? Á rannsoknarferð minni um Ecuador kom ég í hérað eitt í austurhlíðum Andesfjalla,. er Loja nefnist. Heyvði ég þar sagt frá brezkum verkfræð- ingi, sem lengi hafði þjáðst aí of háum blóðþvýstingi og snert af hjartabilun, og gátu læknar ekki veitt honum neina meinabót. Þótti fuRvist, að hann mundi verða óvinnufær með öllu það sem eftir vær; ævinnar. Sökum þess hve all- ar lífsnauðsynjar eru ódýrar í Loja, auk þess sem landslags- fegurð er þar mikil og loftslag heilnæmt, fluttist hann þang- að og hugðist dveljast þar það sem hann kynni að eiga ólifað. Eg heimsótti mann þennan. Mér til undrunar virtisr hann fílhraustur. Hjartað virtist í bezta lagi og blóðþrýstingur- inn eðliiegur. Hann sagði mér, að þegar hann dveldist í Loja. kenndi hann sér ekki nokkurs meins, en um leið cg hann færi út fyrir héraðstakmörkin, sækti í sama horf og fyrr. ,.Af hverju hyggið þér að þetta stafi?“, spurði hann. Væri þarna um eitt og ein- stakt dæmi að ræða, mundi maður álíta, að einhver óskilj- anlegur beygur, sem sækti að viðkomandi, þegar hann væri staddur utan héraðsins, væri hin raunverulega sjúkdómsor- sök. En nú vill svo tli, að hjartasjúkdómar eru með öllu óþekktir meðal íbúanna í þessu héraði, sem er 4400 fer- mílur að flatarmáli. Og hjarta bilaðir aðkomumenn, sem setj- ast þar að, hljóta oft varan- lega meinabót. Að öðru Jeyti er Loja ekki nein Paradís, hvað almenna heilbrigði snertir. Fólk þar þjá ist af malaríu, kóleru og tauga veiki. Og í næstu héruðum þjáist fólk af hjartasjúkdóm- um eins og annars staðar. Framhald á 7, síðu. . Snííiingur í heimsókn -- FSÐL-UTONLEIKAR FIÐLU SNILLIN G URINN Isaac Stern hélt tónleika í Austurbæjarbíói s.l. miðviku- dag á vegum Tónl.starfélags- ins. Honum var afburða vel tekið, og fengu :nerm minna að heyra en þeir vildu, vegna þess hve tíminn er takmarkað ur af kvikmvndasýningunni, er fylgir á eftir. Um leik Isaacs Sternes er það að segja, að hann er vafalaust sá bezti, er hér hefur hevrzt. Maðurinn er virtuos af hæsta gráðu og er eng:n goðgá að nefna hann í söma andrá og aðra mestu. snillinga fiðkmnar. Fiðlan hans* syngur ýmist blítt eða sterkt með meira valdi en við eigum að venjast hér á landi. Efnisskráin var mjög fjöl- breytt. Þarna voru gömlu meistararnir og hinir nýju, eins og Prokofieff, og var allt spilað af sömu snillinni. Fyrsta verkið á efnisskránni var Ada- gio eftir Haydn, en síðan kom Sónata í d-moll op. 108, nr. 3 eftir Brahms, fagurt verk og vel flutt bæði af fiðlu og píanói. Síðasta verkið fyrir hlé var Chaconne eftir Bach, sem leikið er án undirleiks. Þessu virtuosaverki skilaði Stern af afburða tækni og mik illi tilfinningu. Eftir hlé Iék Stern sónötu í f-moll, op. 80 eftir Prokofieff, sem er athvglisvert verk og gerir miklar kröfur til ílytj- endanna. Var verkið flutt af snilli, ýmist með gneistandi krafti eða undraverðri blíðu. í Rondo Mozarts í útsetningu Kreislers vár -vlrtuositetið í algleymingi og sama má eegja1 um hið gullfagra lag La Fon- taine d’Arethuse. eftir Szyman owski. í hinni frægu Campan- ellu eftir Paganini var flutn- ingurinn og túlkunin slík, að vart er hægt að ímynda sér, að Paganini hafi sjálfur leikið hana betur. — Sem aukalag Iék Stern Valse sentimentale eftir Tchaikowski, og hefðu á- heyrendúr gjarna viljað heyra meira, ef tíminn hefði levfti Undirleikari Sterns er Alex- ander Zakin, sem leikið hefur undir með honum í mörg ár: eru þeir því mjög vel samæfð- ir og þekkja vel hvor annan. Var. samleikur þeirra hrnn: prýðilegasti. Má segja, að Tónlistarfélag- ið fari vel af stað á nýju ári að bjóða upp á slíkan afburðat listamann sem Isaac Stern. , I ' G. G. ■ \

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.