Tíminn - 23.12.1964, Síða 5

Tíminn - 23.12.1964, Síða 5
5 MIÐVIKUDAGUR 23. desember 1964 Otgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Kitstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti /. Af- greiSslusimi 12323. Auglýsingasími 19523 ASrar skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 90,00 á mán innanlands — f lausasölu kr. 5,00 eint. — PrentsmiSjan EDDA h.f. Útvarpsumræðurnar • ÚtvarpsumræSurnar, sem fóru fram um söluskatts- h^kkunina, báru þess ljósan vott, að ráðherrarnir fundu, að : ir hafa slæman málstað. Ræður þeirra voru að lang- mescu leyti afsakanir og vörn. Þeir sneyddu vandlega hjá því að svara aðaládeilum andstæðinganna. í þess stað drógu þeir fram alls konar aukaatriði til þess að draga athygli frá því, sem mestu máli skiptir. Öll meginatriðin í ræðum Framsóknarmanna stóðu óhögguð í lok um- ræðnanna, og höfðu ráðherrarnir þó haft góðan tíma til að svara þeim, þar sem Framsóknarmenn voru fyrstir í umræðunum. Eftir þessar umræður er mönnum það vissulega ljósar en áður, að ríkisstjórnin hefur brugðizt aðalloforði sínu sem fjallaði um stöðvun dýrtíðarinnar, eins fullkom- lega og verða má. Stjórnarferill hennar er óslitin ganga gengisfellinga og skattahækkana, sem hefur dregið slóð verðhækkana og kauphækkana á eftir sér. Af hálfu rík- isstjórnarinnar hefur þess verið gætt, að verðhækkan- irnar yrðu alltaf meiri en kauphækkanirnar. í þessu hækkunarkapphlaupi hefur ríkisstjórnin sjálf greini- lega haft forystuna, því að ekkert hefur hækkað meira en álögur og útgjöld ríkisins. Loforð sitt um að vinna að stöðvun dýrtíðarinnar hefur ríkisstjórnin efnt þannig, að óðaverðbólga hefur aldrei verið þvílík sem í valdatíð hennar- Ýmsir munu hafa verið farnir að gera sér vonir um, að ríkisstjórnin væri að snúa af þessari braut, er hún samdi við verkalýðsfélögin á síðastliðnu sumri. Með því var skapaður möguleiki til stöðvunar. En ríkisstjórnin reynd- ist síður e nsvo á því að vilja nota hann- í satð þess grípur hún til hækkunar á söluskattinum til þess að tryggja greiðsluafgang hjá ríkissjóði. Afleiðing þess er ný verðhækkunar- og kauphækkunaralda, sem enginn sér fyrir endann á. Með þessum verknaði ríkisstjórnarinnar er líka algerlega kippt grunninum undan samkomulaginu við verkalýðshreyfinguna, en það byggðist vitanlega öðru fremur á því, að ríkisstjórnin hækkaði ekki skattana, og hleypti við það nýju dýrtíðarflóði af stað. Það er engu líkara en ríkisstjórnin sé að keppast við að reyna að svíkja sem mest aðalloforð sitt, stöðvun dýrtíð- arinnar. í hvaða öðru landi sem er myndi það vera talið pólitískt siðleysi, ef ríkisstjórnin træði þannig á höfuð- loforði sínu- Slík stjórn myndi telja sig til neydda að segja af sér. En hér er slíku ekki til að dreifa. Stjórnin situr sem fastast, því að henni finnst ekkert athugavert við það, að svikin séu hátíðlega gefin fyrirheit. Það mátti þó Ólafur Thors eiga, að hann dró sig í hlé, þegar hon- um mistókst stöðvunartilraunin í fyrra. Segja má því, að hér komi einn öðrum meiri. Uppgötvun Emils Emil Jónsson segist hafa uppgötvað það, að bændur séu mestu gróðamenn landsins. Því verði að gera ráð- stafanir til að skerða kjör þeirra. Hins vegar hafi stór- braskarar og fjáraflamenn höfuðstaðarins það sízt of gott. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Emil gerir slíka upp- götvun Hann lét Hafnarfjarðarbæ stofna fyrir nokkrum árum stórbú, sem átti að sanna, að bændur væru óþarfir. Það væri fróðlegt, ef Emil birti upplýsingar um búskap- inn 1 Krýsuvík, og sannaði með því, að landbúnaðurinn væri illa rekinn, en gróði bænda þó mikill Á einhverju slíku hlýtur maðurinn að byggja uppgötvun sína! TIMINN Um bakdyr með jólapela Kafli úr þingræðu Skúla Guðmundssonar um söluskatfsmáliS 19. des. 1964. i í Hvernig taka stjórnarflokk- arnir því, þegar andstæðingar þeirra leggja fram breytingar tillögur við fjárlagafrumvarp- ið, sem stefna að því að bæta hag ríkissjóðs? Um þetta vil ég nefna dæmi. Við 2. umræðu fjárlaganna fyrir fáum dögum, bar ég fram breytingartillögu. Hún var um það, að Áfengis- og Tóbaksverzl un ríkisins skyldi hætta að selja mönnum áfengi og tóbak með kostnaðarverði. — Sá ó- siður hefur legið hér í landi um alllangt skeið, að nokkrir menn, þar á meðal æðstu valda menn í þjóðfélaginu, svo sem ráðherrarnir, hafa fengið vör ur hjá Áfengis- og Tóbaksverzl- uninni til eigin nota fyrir kostn aðarverð, en mjög mikill mun- ur er á kostnaðarverði og út- söluverði á þessum einkasölu- vörum. Forsetar Alþingis hafa einnig notið þessara fríðinda hjá einkasölunni, en þó eru þau takmörkunum háð hiá deildarforsetum og varaforset um þingsins. Með tillögu minni var stefnt að því, að allir lands menn skyldu búa við sömu við skiptakjör hjá þessari ríkis- verzlun, sem er augljóst rétt- Iætismál. Og einnig mátti vænta þess, að samþykkt til- lögunnar hefði í för með sér auknar tekjur í ríkissjóð af verzlunarrekstrinum. En hvemig var tillögunni tek ið? Var því ekki fagnað af ríkis stjóminni og stuðningsflokkum hennar, þcgar flutt var tillagá um að bæta hag ríkissjóðs? Nei, — langt frá því. Þegar tillagan kom fram á Alþingi, kom ólundarsvipur á hæstvirta ráðherra, og sá sviput birtist einnig fljótlega á ásjónum ann arra þingmanna stjómar- flokkanna. Þar með var um- hyggja þeirra fyrir ríkissjóði skyndilega rokin út í veður og vind. — Þeir greiddu allir, stjórnarflokksmenn á þingi. hver einasti, atkvæði gegn til- lögu minni. Það kom fyrir ekki þó að styrkþegum Áfengis- og Tóbaksverzlunarinnar, ráðherr um og þingforsetum, væri bent á ákvæði í þingsköpum, sem leggur bann við því að þing- maður greiði atkvæði með fjár veitingu til sjálfs sín. En það voru einmitt atkvæði styrkþega siálfra á Alþingi, sém réðu úr- slitum um það að tillaga mín var talin felld. Af hveriu stafar þetta? Er hagur þessara manna svo bág borinn, að þeir geti ekki borgað sama verð og aðrir landsmenn fyrir vörur sem þeir kaupa hjá einkasölum ríkisins? Ekki verður fallizt á að svo sé. Ráð herrar vorir fengu verulega kaunhækkun í fyrra. eins og aðrir opinbenr starfsmenn. Eg tel, að þeir hafi átt að fá þessa kauphækkun, því að ráðherra iaun höfðu lengi verið óeðliiega lág hér á landi. í samanburði MMMtKMIMMM SKÚLI GUÐMUNDSSON við launagreiðslur til ýmissa annarra. f fjárlagafrumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir að ráðherralaun verði alls 1 millj. 872 þús. kr. á næsta ári, 1965. Sé deilt í þessa upphæð með ráðherra- töl'unni 7, koma um 267 þús. kr. í hlut hvers þeirra. Þessi laun eru rúmlega 150 þús. kr. hærri á hvern mann en ráðherralaun in voru fyrir 6 árum. Og eftir að ráðherramir hafa fengið þessa launaviðbót, held ég að óhætt sé að álykta, að þeir geti keypt mat og drykk og aðrar nauðsynjar handa sér og sín- um, án þess að njóta fram- færslustyrks frá einni af stofn unum ríkisins. En ríkisstjórnin og stuðnings flokkar hennar eru á öðru máli. Atkvæðagreiðslan á Alþingi um tillögu mína leiðir í ljós, að ráðherrarnir og allir stuðn ingsmenn þeirra á þingi líta svo á, að ráðherrum og þing forsetum sé alveg nauðsynlegt að hafa greiðan aðgang að á- fengi hjá ríkiseinkasölunni, til þess að hressa sig á því annað veifið, eftir amstur dægranna. Víst er það, að ráðherrar hafa í mörgu að snúast, og oft er þeim vandi á höndum. Starf þeirra getur oft verið dálítið 'ýjandi. Trúlega eru þeir líka mestir ferðamenn allra íslend inga, núverandi ráðherrgr yor- ir, a.m.k. sumir þeirra. Það er löng leið frá íslandi til Japan og Kína, og þó að farið sé i flugvélum, geta slíkar langferð ir verið þreytandi og tekið á taugarnar. Auk slíkra ferða- laga um óravegu, eru svo ákaf lega tíðar ferðir ráðherranna héðan til annarra Evrópulanda og Ameríku. — f því sambandi rná minnast þess, að þegar einn af ráðherrunum koin úr síðustu Norðurlandaferð sinni fyrir nokkrum dögum, var hann ó- venjulega léttbrýnn. Hann hafði sem sé orðið fyrir stór happi á ferðalaginu, fundið nýj an skatt, sem ekki var farið að nota hér á landi. Stjómin á aðeins eftir að finna fallegt íslenzkt nafn á skattinn. — Og hver vill svo halda því fram, að allar fyrirmannaferðirnar til útlanda séu þýðingarlausar? i Stjórnarflokksmenn á Al- “ þingi, 32 að tölu, eru ekki að- £ eins sammála um það, að ráð B herrar og forsetar þurfi að hafa I greiðan aðgang að áfengi hjá B einkasölunni. Þeir eru líka all £ ir hjartanlega sammála um að áfengið, sem þessir menn kaupa þurfi að vera hræódýrt, þannig að þeir borgi aðeins lítinn hluta af því verði, sem aðrir viðskiptamenn greiða fyrir sömu vörutegundir. Sú nauðsyn er að þeirra dómi svo rík, að fyrir henni verður annað að þoka, og þá er ekki vcrið að hugsa um ríkisfjárhirzluna. Víst mætti spyrja þessa menn, hvers vegna þeir setja 9 dálitlar fjárveitingar inn á fjár jj lögin til eflingar bindindis- S starfsemi í landinu, úr því að H þeir telja áfengið svo nauð- u synlega neyzluvöru, að sjálf- sagt sé að veita æðstu mönnum þjóðarinnar opinberan styrk til að kaupa það og drekka. — Það sýnist ekki gott samræmi í þessu. Jólin eru bráðum komin. Það er oft mikið verzlað á jólaföst unni, og jafnvel meira en á öðrum tímum árs. Þá kaupa menn ýmiskonar varning, og ekki verður því neitað, að rnargir fara gálauslega með peninga. Þeir meta lítils þær litlu krónur, sem stöðugt eru að verða minni og minni, vegna aðgerða yfirvaldanna. Til dæm is um óviturlega peningaeyðslu eru kaup manna á áfengi og tóbaki. Sjálfsagt er mikil ös í vínbúðum ríkisins þessa dag ana. — En dálítill hópur við skiptamanna fer bakdyramegin inn í þær búðir. Skyldu það vera svonefndir rónar, sem ekki vilja sýna sig á almanna færi við aðaldyr hinna fínu búða? Nei, — ekki verður þessi hópur talinn í þeim flokki manna. f þessum hópi eru fín ir menn, ráðherrar og forsetar. Það eru þeir, sem laumast inn um bakdyrnar til þess að krækja sér í glaðning, fyrir ósköp litla borgun. Og m. a. 1 til þess, að slíkar bakdyraferð ir þeirra og sérstæðu viðskipti geti haldið áfram, á nú að hækka stórlega söluskatt á nauð synjavörum almennings. Þannig er jólaboðskapur ríkisstjórnarinnar á því Herr- ans ári 1964.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.