Alþýðublaðið - 27.05.1956, Qupperneq 2
2
Alfoýiti blaSið
Sunnudagur 27. maí 1958
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
$
Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður.
Alþýðuflokksféiag HafnarfjarSar
heldur fund í Alþýðuhúsinu mánudaginn 28. þ. m. klukkan 8,30 e. h.
Dagskrá:
Stjórnmálaviðhorfið og alþingiskos'ningarnar:
Framsögumaður Emif Jónsson. Margir aðrir ræðumenn.
Félagar fjöimennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Slmgur FóstbrœÖra
KARLAKÓEINN Fóstbræður
hélt samsöng í Austurbæjarbíói
s.l. miðvikudag. Söngskráin að
þessu sinni var allólík því, sem
slíkar eru vanar að vera hjá
karlakórum. Nú heyrðist ekki
lengur neitt af hinum ,,gömlu,
góðu“ norrænu karlakórslögum,
en í staðinn mynduðu þættir úr
óperum aðaluppistöðuna í söng
skránni. Á fyrri hluta söng-
skrárinnar voru tvö erlend lög
og lög eftir Jón Nordal og Pál
ísólfsson.
Nýbreytni sú, sem Fóstbræð-
ur hafa tekið upp í vali við-
fangsefna og hófst í fyrra með
flutningi á kór úr Fidelio eftir
Beethoven, er mjög athyglis-
verð og góðra gjalda verð. Hins
ber að geta, að ekki er alveg
víst, að allir, sem sækja karla-
kórstónleika, kunni að meta
hana. Virðist ekki úr vegi að
taka nokkurt tillit til gamalla
styrktarfélaga og hafa t.d. nokk
urn hluta söngskrárinnar af
léttara taginu. Pi,óm var ekki
byggð á einni nóttu og ekki
mun reynast kleift að gjör-
breyta smekk fólks á svip-
stundu.
Þess er annars skemmst að
geta, að söngur kórsins var yfir-
leitt afburða góður. Bæði er
það, að kórinn er verulega „fínt
instrúment11 og svo er hann sér-
lega vel þjálfaður og virðist
söngstjóranum takast framúr-
skarandi vel að „leika á það
instrúment“.
Á fyrri hluta söngskrárinnar
voru tvö erlend lög, Glocken-
lied eftir Lendvai og rússneskt
þjóðlag. Hvort tveggja mjög
vel sungið. Þá voru þrjú lög úr
lagaflokki yfir miðaldakveð-
skap eftir Jón Nordal. Lögin
eru mjög athyglisverð, og þó
einkum hin tvö seinni, sem eru
sérlega skemmtileg. Ekki munu
þau þó vera létt til söngs. Loks
var ágætt lag eftir Pál ísólfs-
son við kvæðið Brim eftir Einar
Benediktsson. Fer þar samarí.
falleg laglína og afar skemmti-
leg úrvinnsla.
Á síðari hluta söngskrárinn-
ar voru svo korar og einsöngv*
ar úr óperum. Fyrst var sungið
upphaf 1. þáttar óperunnar H
Trovatore eftir Verdi og söng
Kristinn Hallsson þar hlutverk;
Fernandos. Er mér næst áð á-
líta, að þarna hafi verið há*
punktur hljómleikanna. Sam-
vinna kórs og einsöngvara var
lýtalaus, kórinn ágætur pg
Kristinn virðist vera sívaxandi
í list sinni. Þá var sungið upp-
haf 4. þáttar sömu óperu og
sungu nú einsönginn þau Þuríð-
ur Pálsdóttir og Einar Kristjánsí
son. Nu flutti kórinn tvöfaldjras
kór úr Hollendingnum fijúg-
andi eftir Wagner. Loks voril
fluttir þættir úr Töfraflaut-
uhni eftir Mozart og voru ein-
söngvarar Þuríour Pálsdóttir,
Kristinn Hallsson og Sigurður
Björnsson og loks flutti kórinn;
prestakórinn — O, Isis und Osl?
is .— úr sömu óperu.
. Samsöng-ur-■ þessi var mjög
ánægjulegur og færði mönnurrp,
áþreyfanlega heim sanninn um
það, að karlakórssöngur þarf
ekki að vera neitt „at“, eins og
sumir þeir, sem hafa haft horns
í síðu þessarar þjóðlegu íþrótt-
ar, hafa viljað vera láta. Á kór-
inn þakkir skilið fyrir vandaða
söngskrá og vel flutta, en hins
vegar er e.t.v. ekki vert að fars
of geyst í að endurbæta heim-
,inn.
Undirleikari kórsins á tón-
leikum þessum var Ásgeir Beint
teinsson og leysti hann það verlí
Framhald á 7. síðu.
Vér viljum benda húsmæðrtmu m á:
SPAGHETTI í TÓMATSÓSU
ÍSKREM í DÓSUM
EPLAEDÍK
MAKKARÓNUR í TÓMATSÓSU
PIPAREÓT í GLÖSUM
SÓSUR, FJÖLDI TEGUNDA,
O. M. FL.
Allar þessar vömr eru með liinu heimsþekkta White Rose merki
í DAG er sunnudagurinn 27.
maí 1956,
FLUGFEBÐIR
Flugfélag íslands h.f.
Míllilandaflugvélin Gullfaxi
er væntanleg til Reykjavíkur kl.
15.15 í dag frá Hamborg og
Kaupmannahöfn. Flugvélin fer
áleiðis til Osló og Kaupmanna-
hafnar kl. 16,30.
Millilandaflugvélin Sólfaxi er
væntanleg til Reykjavíkur kl.
17,45 í dag frá Kaupmannahöfn.
Flugvélin fer áleiðis til Thule á
Grænlandi kl. 19,00.
Innanlandsflug; í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), ísafjarðar og Vestm.-
eyja. — Á morgun er ráðgert að
íljúga til Akureyrar (3 ferðir),
Bíldudals, Egilsstaða, Fagurhóls
mýrar, Ilornafjarðar, ísafjarðar,
Kópaskers, Patreksfjarðar qí£
Vestmannaeyjá (2 ferðir).
BEÚÐKAUP
í dag verða gefin saman S
hjónaband af séra Jóni Auðuns
ungfrú Kristín Kristjánsdóttírt
og Stefán Árnason verzlunarm.
Heimili brúðhjónanna verðuii
að Skeiðarvogi 7 F.
FUNDIE
Kvenréttindafélag íslands
heldur fund annað kvöld kl. 8,39
í Aðalstræti 12. Fundarefni ver3
ur ýmis félagsmál.
kaupið mæðrablómið
í DAG!
Listasafn Einars Jónssonar
er opið á sunnudögum og mið-
vikudögum kl. 1,30—3,30,
COA MAgtgN 7OONOr'-t StUOlO’S;
eilífð, „Mér þykir mjög fyrir
þessu“, sagði Shor Nun frá
Valerun, „þetta var í sjálfu sér
mér að kenna. Ég hefði átt að
vera búinn að kenna þér að
nota þrýstilofsskammbyssuna.
En nú veiztu hvernig hún er
notuð!“ bætti hann við og hló.
Þeir gengu nú inn í geimfarið,
og Jón gætti þess vel að kunna
fótum sínum forráð. Það leyndi
sér ekki að Þrumufieygurinn
var illa leikinn, og gerðist Jón
svipþungur, er hann sá vegsum
merkin. „Þú skalt engu kvíða“,
sagði Shor Nun. „Þeir verða
ekki lengi að kippa þessu í lag,
tæknisérfræðingarnir okkar.“
Jóni Stormi létti stórum, þeg
ar hann stóð aftur á þiljum
geimfarsins. Þessi svifferð hans
jiafði raunar ekki staðið nema
nokkrar m'ínútur, en honum
Jþótti sem það hefði verið heil
Sparisjóður Kópávogs
er opinn virka daga kl. 5—7,
nema laugardaga, kl. 1.30—
3.30.
Útvarpið
9.30 Fréttir og morguntónleik-
ar.
11.00 Messa í Hallgrímskirkju.
(Séra Sigurjón Árnason.)
15.15 Miðdegistónleikar.
18.30 Barnatími.
20.20 Tónleikar; Svíta eftir Cou-
perin (plötúr).
20.35 Steinn Steinarr skáld og
ljóð hans: Bókmenntakynn-
ing stúdentaráðs liáskóíans
(hljóðrituð á segulband í há-
tíðasal skólans 22. f.m.j.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.05 Danslög (plötur).
23.30 Dagskrárlok. „