Alþýðublaðið - 17.08.1956, Qupperneq 8
„Paradís44 listunnenda:
lliunái iiilafiiSíIn í Edínborg
Hamborgaróperan hefur þar sýniogar
TÍUNDA aiþjóðlega tónlistar- og leiklistarhátíðin í Ed-
mborg hefst á SHimudaginn kemur, Enn sem fyrr verfía þar
samankomnir faerustn iistamenn hvarvetna úr heiminum, og
' ragglaust fágætt úrval góðra hljómleika og leiksýninga. Búizt
er við gífuriegum fjöida ferðamanna til Edinborgar, mcðan
; Rátíðin stendur yfir. Henni lýkur 8. september.
Opnunarhljómleikar verða á
sunnudagsmorgun. Yerður þar
flutt 9. sinfónía Beethovens.
Royal Philharmonic Orchestra
Edinburgh Roýal Choral Union
ög einsöngvararnir Sylvia
Fisher, Nan .Merrimen, Richard
1 ILewis og Finninn Kim Borg
flytja verkið undir stjórn Sir
Thomas Beecham.
HLJOMSVEITIR
OG EINLEIKARAR
Auk Royal Philharmonic
Iteika á hátíðinni Fílharmoníu-
Biljómsveitin í Vínarborg, und-
iir stjórn Josef Krips, Sinfóníu-
Mjómsveitin í Boston, stjórn-
endur Charles Munch og Pierre
Monteux, London Mozart Play-
ers, Scottish National Orchest-
ya, BBC Scottish Orchestra og
National Youth Qrchestra of
Great Britain, stjórnandi Walt-
er Siisskind. Af kunnum kamm
ermúsíkflokkum rná nefna Ama
deus-strengjakvartettinn, Nýja
Edinborgar-kvartettinn og blás-
arasveitina úr Boston sinfóníu-
hljómsveitinni.
Af frægum einleikurum má
nefna fiðluleikarana Isaac
Stern og Wolfgang Schneider-
' ham, óbóleikarann Léon Goos-
ens, píanóleikarann Louis Kent
ner, Robert Casadesus, Myra
Hess og Carl Seeman og Gerald
Moore, sem kannski er kunn-
asti undirleikari, sem nú er
■uppi.
SÖN GLISTIN
Hamborgaróperan kemur á
hátíðina og sýnir Töfraflautuna
eftir Mozart, Rakarann frá Bag
dad eftir Cornelius, Salome eft-
ir Richard Strauss og Oedipus
konung og Mavra eftir Straw-
insky. Meðal stjórnenda Ham-
borgaróperunnar eru Leopold
Ludwig og Rudolf Kempe, og í
söngvaraflokknum heimskunn-
ir listamenn eins og söngkonurn
ar Anneliese Rothenberger,
Helga Pilarczyk og Siw Erics-
I dotter (sænsk) og bandaríski
barytoninn James Pease.
LIEDER-SÖNGUR
OG BALLETT
Af kunnum ieder-söngvurum
má nefna Gerard Husch og Irm
gard Seefried, sem bæði hafa
söngvakvöld á hátíðinni. Þá
kemur Sadler Wells-ballettinn
með Margot Fonteyn í broddi
fylkingar; meðal viðfangsefna
Svanavatnið eftir Tjaikovskij
og Coppelia við tónlist Delibes.
Framhald á 7. síðu.
Sovélríkjunum á
MOSKVA, fimmtudag (NTB).
Rithöfundar frá ýmsum hlutum
Sovétríkjanna hafa haldið opna
flokksfundi til þess að ræða á-
lyktun kommúnistaflokksins
um persónudýrkun og afleiðing
ar hennar, að því er segir í blaði
rithöfundafélagsins Líteraturn-
aja Gazeta. Á fundi þeim, sem
haldinn var í ríkinu Uzbekist-
an, sagði aðalræðumaðurinn, R.
Fajzi, að skaðlegar afleiðingar
persónudýrkunar, eins og snur-
fusun raunveruleikans, mál-
skrúð og lækkaðar kröfur til
listræns gildis, hefðu komið
fram í verkum rithöfunda í Uz-
bekistan. Einn af fundarmönn-
um, R. Sultanov, sagði, að per-
sónu Stalins hefði verið hömlu
laust hrósað í mörgum kvæð-
um. Rithöfundar, sem reyndu
að lýsa leiðtogum í verkum sín
um, lentu í mörgum erfiðleik-
um, — niðurstaðan væri ekki
lifandi baráttumenn, heldur
I helgimyndir.
Alberí hefur fekizt að skapa mikinn
r
l
200 dreogir í Hafnarfirði eru nú á knatt-
spyrnunámskeiði hjá Axel Andressyni
MIKIL SIGURGLEÐI ríkir nú í herbuðum hrafnfirskra
knattspyrnumanna eftir sigur Hafnfirðinga í fyrrakvöld í úr-
slitaleiknum í 2. deild. Með því að sigra ísfirðinga unnu þeir
sig upp í 1. deild. Er þetta fyrst og fremst einum manni að
jþakka, Albert Guðmundssyni, okkar frægasta knattspyrnu-
manni, en hann hefur þjálfað Hafnfirðinga sl. ár og tekizi að
koma þeim upp í 1. deild.
Alþýðublaðið átti í gær tal
við Albert og innti það eftir því,
hvort ekki væri ætlunin að
„halda upp á“ sigurinn. Sagði
hann, að það yrði vafalaust gert
á sinn hátt, það er með einu
hinna venjulegu kaffikvölda, er
hafnfirzku knattspyrnumenn-
irnir hefðu efnt til af og til sl.
ár.
Albert sagði, að einmitt í gær
væri nákvæmlega eitt ár liðið
frá því, að Hafnfirðingar hefðu
komið til sín og beðið sig að
annast þjálfun þeirra í knatt-
spyrnu. Sagðist Albert vissu-
lega ánægður með árangurinn.
Ekki hefði hann getað kosið
neinn betri ávöxt af starfinu
suður í Hafnarfirði en þann, að
sjá hafnfirzka liðið færast upp
í 1. deild í hóp sex beztu knatt-
spyrnuliða landsins.
ÁGÆT SKILYRÐI
Áusíur-Þjóðverjar óska effir að
laupa enn meiri ísfisk en álur
Togaraeigendor vilja frekar seija fisk-
inn ísvarinn erlendis en hér heima til
frystingar, þar eð þeir fá hærra verð þar
; FfeAMKVÆMDASTJÓRI FÍB er fyrir nokkru kominn
' heim frá Austur-Þýzkalandi, þar sem hann ræddi vifí xV-Þjófí-
verja um sölu á ísfiski héðan til A-Þýzkalands. Flutti hann
‘ FÍB þau skilaboð, að A-Þjóðverjar óskuðu enn eftir því, að ís-
fiskmagnið yrði aukið.
Upplýsingar þessar koma
‘ fram í fréttatilkynningu, er
‘ blaðinu hefur borizt frá FÍB.
!Þar segir einnig, að viðskipta-
• nefnd, er hingað hafi komið sl.
haust frá Austur-Þýzkalandi,
hafi óskað eftir því, að fá sem
mest af ísvörðum fiski, en
vegna mótmæla Sölumiðstöðv-
ar hraðfrystihúsanna hafi ekki
fengizt að semja um kaup á
nema um 20 förmum.
HÆRRA VERÐ FÆST
FYRIR ÍSFISK
FÍB bendir á, að mun hag-
Jcvæmara sé fyrir togaraeigend
ur að selja aflann ísvarinn í
Þýzkalandi en að selja hann til
frystingar innan lands, þar eð
mun hærra verð fáist fyrir afl-
ann erlendis en í frystihúsun-
um hér. Fyrir 250 smál. (1
farm) seldar í A-Þýzkalandi
fást 366 þús. kr. nettó, en fyrir
500 smál. (tvo farma) látin í
frystihús hér fást aðeins 285
þús. kr., segir FÍB. Segjast tog-
araeigendur ekki geta selt
frystihúsunum aflann meðan
verðið sé svona lágt þar, en
ekki muni á því standa er verð-
ið hækki. (Fréttatilkynning
FÍB, sem er svar til SH, mun
birtast í heild síðar í blaðinu.)
Albert sagði, að hin ákjósan-
legustu skilyrði til knattspyrnu
iðkana hefðu nú verið sköpuð í
Hafnarfirði. Völlurinn hefði
verið lagfærður og upp hefði
verið komið búningsklefum og
böðum. Ættu hafnfirzkir knatt-
spyrnumenn nú einnig talsvert
af áhöldum og nokkuð fé í
sjóði.
VAXANDI ÁHUGI
Knattspyrnuáhugi er nú orð-
inn mikill í Hafnarfirði og fer
vaxandi, sagði Albert. Þátttaka
í æfingum hefur verið mikil.
Ekki hafa æfingar verið fastar.
Stundum 2 í viku, stundum á
hverjum degi og t. d. á jóladag
og nýársmorgun sem aðra daga.
20—40 hafa mætt á 1. flokks
æfingum, en allt að 60 strákar
á æfingum yngri flokkanna.
200 Á NÁMSKEIÐIHJÁ AXEL
Albert kvaðst hafa ekið um
Hafnarfjörð skömmu eftir að
hann tók við þjálfarastarfinu og
dreift um 100 boltum um bæ-
inn til þess að yngri strákarnir
gætu byrjað að æfa. Hefur þetta
haft góðan árangur í för með
sér, því að sérstaklega mikill
knattspyrnuáhugi virðist nú
vera meðal yngstu drengjanna.
(Frh. á 7. síðu.)
FöstudagUr 17. ágúst 1056
Fulltrúar eigenda togaraos og vátrygg*
ingafélagsios koma hiogað
UNDANFARIÐ hafa dvaiizt hér á landi W. R. Smith, einm
af forstjórum St. Andrews Stream Company í Hull, sem átta
brezka togavann St. Crispin, er strandaði á Meðallandsfjöria
15. marz sl. og Oliver framkvæmdastjóri vátryggingaféiags
þess er togarinn var tryggður hjá. Komu þeir hingað tii þess
að heiðra Meðallendinga fyrir björgun skipverjanna af St,
Crispin.
Blaðinu barst í gær eftirfar-
andi fréttatilkynning frá SVFÍ:
FÆRÐAR G.TAFIR
Síðastliðinn laugardag voru
Meðallendingar þeir í björgun-
arsveit slysavarnafélagsins þar,
sem unnu að björgun skipverja
af brezka togaranum St. Cris-
pin, er strandaði í Meðallands-
fjöru 15. marz sl. heiðraðir með
heimsókn og veglegum gjöfum
af hinum brezku eigendum tog
arans og vátryggingarfélagsins,
en undanfarið hafa verið hér á
ferðalagi W. R. Smith, einn af
forstjórum St. Andrews Steam
ship Company í Hull, er átti
togarann og commander Oliver
framkvæmdastjóri The Hull
Steam trawlers owners Mutual
Insurance and Protecting Com-
pany, sem togarinn var vá-
tryggður hjá.
Tilgangur þeirra með förinni
hingað var að heiðra Meðal-
lendinga þá í björgunarsveit
slysavarnafélagsins, sem stóðu
að björguninni á mönnunum,
en flestir tóku þeir og einnig
þátt í björgun skípsins eftir á.
ATHÖFN í MEÐALLANÐI
Athöfn þessi fór fram í sam-
komuhúsinu í Meðallandi að
viðstöddum flestum byggðar-
manna. Geir Zoega forstjóri,
umboðsmaður vátryggingarfé-
lagsins hér, hafði þarna mjög
veglegt boð fyrir Meðallend-
ingana, hina erlendu gesti og
ýmsa fleiri. Viðstaddir voru og
forseti slysavarnafélagsins og
framkvæmdastjóri þess, einnig
formenn nálægari slysavarna-
deilda. Við þetta tækifæri af-
hentu hinir brezku forstjórar
björgunarmönnunum hverjum
og einum vandað ágrafið vind-
lingahylki úr silfri, en björgun-
armennirnir voru samtals 28 að
meðtöldum lækninum á Kirkju
bæjarklaustir og Valdimar Lár-
ussyni símastjóra, sem einnig
starfrækir loftskeyta- og radio-
miðunarstöð slysavarnafélags-
ins þar á staðnum, en Geir Zo-
éga ávarpaði hann þarna sem
hinn árvakra vökumann suður-
strandarinnar. Þá var og fjór-
um húsmæðrum í Meðallandi af
hentir vandaðir og áletraðir silf
urbakkar fyrir góðar móttökur
og umönnun á skipbrotsmönn-
unum. Fulltrúi brezka sendi-
ráðsins, sem þarna var, og báð-
ir hinir erlendu gestir fluttta
þarna erindi og lýstu þakklæti
sínu og hrifningu fyrir hina á-
gætu og vasklegu björgun á-
hafnarinnar og liðsinni við
hana.
Sigurgeir Jóhannsson, form,
björgunarsveitarinnar, flutti
(Frh. á 7. síðu.)
Oísahræðsla greip
grannnámu þeirrar,
600 verkamenn á öðru námasvæði lögðii;
niður vinnu. Heimta meira öryggi
MARCINELLE, fimmtudag. Ailir námumennirnir í stórri
kolanámu, ,sem liggur við hlið námu þeirrar. er lokaðist af
sprenginu í sl. viku„ þustu að útganginum úr námunni í morg
un, er þeir óttuðust, að gasefni, sem getur valdið sprenginu,
hefði borizt inn í námuna frá grannnámunni, ,þar sem búizf
er við, að 176 verkamenn hafi farizt.
Yfirverkfræðingurinn við
námuna fór sjálfur niður í göng
in til þess að ganga úr skugga
um hvort hættulegt væri að
vinna í námunni. Þegar hann
kom upp aftur, hélt hann því
fram, að ekki fyndist gas í nám
unni og verkamennirnir hefðu
verið gripnir ofsahræðslu.
BJÖRGUNARSTÖRF
IIALDA ÁFRAM
Björgunarstörfum er haldið
áfram í námunni, þar sem slys-
ið varð. Nýtt eldhaf kom um
tíma í veg fyrir að hægt væri
að grafa, en brátt var hægt að
halda starfinu áfram.
Einn af björgunarmönnunum
missti meðvitund í dag og var í
skyndi fluttur á sjúkrahús,
Hann er fjórði verkamaðurinn,
sem borinn er út úr námunni,
síðan björgunarstarfið hófst.
ÍTALIR SÆKJA HEIM
Talsmaður ítalska sendiráðs-
ins skýrði frá því í dag, að ó-
venjulegur fjöldi ítalskra verka
manna hefði síðustu daga sótt
um vegabréf til þess að fara
heim til ítalíu. Sendiráðið hef-
ur fengið 176 slíkar umsóknir 4
einum degi.
(Frh. á 7. síðu.)