Alþýðublaðið - 10.05.1957, Side 3
Föstudagxir 10. maí 1957
A I þ ý S u bJ a 8 i 5
rrw
Í|8HÍa ^0^na^ur I*feyris5i(0fur
Áformaö að stofna húseígendafélög' í kaupstöðum.
Á AÐALFIJNDI Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur í
Tjarnarcafé mánudagskvöldið 6. maí s.I. flutti formaður, Jón
Sigtryggsson, dómvörður, skýrslu um síörf félagsins á árinu
1956, en framkvæmdastjóri frá s.l. áramótum, Páll S. Pálsson,
hrl., skýrði frá félagsstarfinu síðustu mánuðkia. Gjaklkeri fé-
lagsins, Jón G. Jónsson verksmiðjustjóri, gerði fundinum grein
fyrir fjárhagsafkomu félagsins s.l. ár.
Félagsstarfið er í örum vexti*
Hefur félagið áformað að fara
inn á þær brautir, að starfa
sem almennt „neytendafélagu
íbuðaeigenda, og má í því sam-
bandi benda á starf þess að
brunatryggingarmálum og bar-
áttu þess síðustu máunðina fyr
ar lækkuðum kyndingarkostn-
aði ölíukyntra húsa, auk þess
sem félagið nú sem fyrr hefur
vakandi auga með öllum sam-
þykktum og lögum, er snerta
hagsmuni fasteignaeigenda.
370 NYIR FÉLAGAR
Á 3 MÁNUBUM
Félagsmönnum fer svo ört
fjölgandi um þessar mundir, að
sl. 3 mánuði hafa um 370 manns
gengið í félagið, og eru félags-
menn nú á 2. þúsund talsins.
Áherzla hefur verið lögð á
það, að veita húseigendum í
öðrum kaupstöðum aðstoð til
stofnunar húseigendafélaga
þar og áforinað er að stofna
hið fyrsía til Iandssambands
húseigenda, m. a. með hlið-
sjón af því að slíkt landssam-
band verði þátttakandi í Norð
urlandasamtökum húseig-
enda.
Fundurinn var fjölmennur
og urðu miklar umræður um
skýrslu félagsstjórnarínnar og
framtíðarstarf félagsins.
STJÓRNARKOSNING
Að umræðum loknum fór
fram. stjórnarkosning. Jón Sig-
tryggsson fráfarandi formaður
baðst eindregið undan endur-
kosningu, og var Hjörtur Hjart-
arson forstjóri kjörinn formað-
ur félagsins. Ólafur Jóhannes-
son kaupmaður og Alfreð Guð-
mundsson skrifstofustjóri voru
endurkosnir sem meðstjórnend
nr til næstu tveggja ára, en fyr-
ír eru í stjórninni Jón G. Jóns-
son verksmiðjustjóri og Jón
Guðmundsson fulltrúi.
Ákveðið var að halda fram-
haldsaðalfund innan skamms
og taka þar til umræðu ýms
löggjafamál, sem nú eru efst á
baugi og snerta fasteignaeig-
endur öðrum fremur.
Dtti)i)i}!}i}.i}.is.i}i)i}Zii}r ■
Anglýsið
( Albýðublaðina
ttizifrl2r'Cr<r'b'0-Ctxt?r'Q?r'ír-Cr $
l»ing EvrópuráSs-
ins samþ. fækkun
í Brefaher
Strassbourg í gær. —
ÞING EVRÓPURÁÐSINS
felldi í dag álvktunartillögu,
sem gekk gegn samþykkt ráð-
herranefndarinnar, og var á þá
leið að veita samþykki sitt %dð
fækkunina í her Stóra-Bret-
lands. Ályktunartillagan, sem
borin \rar fram af fulltrúum
Italíu, Frakklands og Benelux-
landanna, var felld með 31 at-
kvæði gegn 27.
apótekara og lyfja-
fræðijiga.
AÐALFUNDUR lyfjafræð-
ingafélags íslands var haldinn
fyrir skömmu. Formaður gat
þess í skýrslu sinni, að s. 1. sum
ar hefði félagið boðið hingað
til lands rektor danska lyfja-
fræðingaháskólans dr. phil.
Carl Faurholt og konu hans.
Hefðu þau hjónin dvalizt hér í
hálfan mánuð og ferðast um
landið í boði félagsins. Hann
gat þess og að á árinu hefði
tekið til starfa „Lífeyrissjóður
apótekara og lyfjafræðinga11,
sem verða myndi til mikilla
hagsbóta fyrir félagsmenn,
Stjórn félagsins var endur-
kosin en hana skipa lyfjafræð-
ingarnir Kjartan Gunnarsson
formaður, Steinar Björnsson
ritari og Ásgeir Ásgeirsson
gjaldkeri. Félagar eru nú um
50 talsins. Félagið verður 25
ára í haust.
hfipf gefa skólanum veglega
veggmynd af Inga Þ. Gíslasyni.
NEMENDASAMBAND Verzl
unarskóla íslands hélt nýlega
aðalfund sinn í félagsheimili
verzlunarmanna að Vonarstr. 4.
Formaður sambandsins, Jó-
hann J. R-agnarsson, flutti
skýrslu fráfarandi stjórnar og
minntist sérstaklega Inga Þ.
Gíslasonar, íslenzku- og stærð-
fræðikennara í Verzlunarskól-
anum, er lézt sl. vetur, og
skýrði frá því, að stjórn og full
trúaráð nemendasambandsins
hefðu ákveðið að heiðra minn-
ingu hans með þ%'í að gefa skól-
anum veglegan veggskjöld með
mynd af hinum látna. Lét form.
þess get.ið, að undirtektir eldri
nemenda við þetta mál hefðu
verið mjög góðar svo sem
vænta mátti, og fjárfra.mlög
væru þegar farin að berast.
290 NEMENÐUR
BRAUTSKRÁDIR
Verzlunarskólinn hefur nú
brautskráð um 2000 nemendur
og hefur stjórnin unnið að því
að efla tengsl þeirra við sam-
bandiö með það m. a. fyrir aug-
um að geta veitt skólanum lið
í baráttunni fyrir lausn hús-
næðisvandamála hans, en þau
þarfnast mjög skjótrar og var-
anlegrar úrlausnar.
í stjórn NSVÍ voru kosnir:
Jóhann J. Ragnarsson stud. jur.
formaður, Árnj G. Finnsson
stud. jur., Kristinn Hallsson
óperusöngvari, Már Elíasson
hagfræðingur, Njáll Þorsteins-
son nemandi, Ólafur Egilsson
stud. jur., Sverrir Bergmann
stud. med., Örn Valdimarsson
skrifstofum. og Þorsteinn Guð-
laugsson stud. oecon.
Verð 135,00, 148,00, 160.00
brúnir með leðursóla
Athugilí verð ©g vörugæSi.
Felld niSur giöld fyrir; símfsl, er
aí þvír sl menn iá skökb
Samþykkt Neyíemíasamtakanna um bæjarsímann. !
Yefnaðarvörukaupm&nn
vilja frjátsan innfluln-
ing á pótskum karl-
mannaföfum.
VEGNA samþykktar Félags-
ísl. iðnrekenda frá 27. apríl s.l.
um innflutning erlends iðn-
varnings, sem valdi „óeðlilegri
samkeppni frá erlendum aðil-
um“ og skrifa dagblaðanna um
að pólsk karlmannaföt séu seld
á undirvirði (dumping), tekur
stjórn Félags vefnaðarvöru-
kaupmanna fram eftirfarandi:
Þótt smávægilegur innflutn-
ingur á ódýrum pólskum föt-
um hafi átt sér stað, er ekki
um ,,dumping“ að ræða. Félag
ið telur að hágsmunum neyt-
enda sé bezt borgið með frjáls-
um innflutningi frá sem flest-
um löndum og sem skapar inn
lendum iðnaði hæfilegt aðhald
í yerði og gæðum. Vér teljum
að innlend framleiðsla sé þeg-
ar nægilega vernduð með háum
aðflutningsgjöldum og beinum
og óbeinum innflutningshöml-
um á erlendum iðnvarningi.
STJÓRN Neytendasamtak-
anna samþykkti eftirfarandi á-
lyktun á fundi sínum 4. maí
1957:
„Vegna þeirrar óánægju,
sem ríkt hefur yfir þjónustu
Bæjarsímans í Reykjavík, og
komið hefur víða fram opinber
lega og einnig í umkvörtunum,
sem beint hefur verið til Neyt-
endasamtakanna, vill stjórn
þeirra hér með láta í ljós álit
sitt á því máli.
Truflanir þær, sem orðið
hafa í kerfi bæjarsímans að
undanförnu, eiga sér að sjálf-
sögðu eðlilegar orsakir vegna
þeirra breytinga og aukninga á
kerfinu, s.em í framkvæmd eru.
Hitt ber aftur á móti að átelja,
að símanúmer eru gerð óvirk,
án þess að símnotendum sé til-
kynnt það, og þeim þannig vald-
ið óþægindum að óþörfu. Svo
sem kunnugt er hefur það einn
ig valdið símnotendum erfið-
leikum og töfum, að sjálfvirka
stöðin hefur skipt rangt, svo
að fólk hefur fengið skökk núm
er æ ofan í æ og því orðið að
hringja miklu oftar en eðlilegt
var. Hefði það þá átt að vera
sjálfsagt að fella niður gjald
fyrir aukasamtöl, meðan ekki
var hægt að mæla þau með
neinni sanngirni. Það var þó
ekki gert, heldur var símnotend
um gert að greiða þeim mun
hærra gjald, sem þeim voru
gerð meiri óþægindi. Þótt skilj
anlegt geti verið, að bæjarsím-
ann skorti fé, þá eru slíkar fjár
öflunarleiðir með öllu óafsak-
anlegar.
Stjórn Neytendasamtakanna
vill jafnframt leyfa sér að gagn
rýna innheimtukeríi bæjarsím-
ans. Það er algerlega óviðun-
andi, að bæjarbúum sé stefnt
þúsundum saman á einn stað
mánaðarlega til að greiða gjöld
til bæjarsímans á ahnennum
vinnutíma. ög til að herða á
þessari smölun símnotenda er
síma þeirra lokað vægðarlaust
vegna hinna óverulegustu upp-
hæða. Telur stjórn Neytenda-
samtakanna, að símnotendur
geti ekki látið bjóða sér slíkt
Neyíendasamíekin og
öllu lengur og reiðubúin að
vinna að því, að kröfum símnot-
enda verði fylgt eftir. r
St j órn IN ey tendasamtakanná
er þeirr'ar skoðunar, að lág-
markskröfur símnotenda hljóti
að vera, áð innheimta símgjalda
eigi sér stað á hentugri tímum
og fleiri'stöðum en nú er, aíS
ekki sé lokað síma vegna ó-
greiddra smáupphæða, og aS
greiðslur, sem bæjarsíminn
krefst áf símnotendum, séu í
samræmi við þá þjónustu, sera
innt er af hendi. Má í því sam-
bandi nefna kostnað við flutn-
ing á símatækjum milli íbúða
og margt fleira.
Að lokum leyfir stjórn Neyt-
endasamtakanna sér að minna
á það, að bæjarstjórn Reýkja-
víkur samþykkti með sam-
hljóða atkvæðum 15. marz 1956
tillögu þéss efnis, að gjaldskrár,
tekjur -,jbg gjöld bæjarsímáns
yrðu tekin til athugunar með
tilliti t'il hagsmuna símnotenda
í Reykjavík. Stjórn Neytenda-
samtakanna álítur þá athug'un
mjög tímabæra.“ [
Sveinn Ásgeirsson j
(formaður).
í. ma\ á isafirði
í
súra mjélkin
GarÖastræti 6.
Ný frímerki
í GÆR voru gefin út þrjú ný
frímerki, jökulmerki, með
sömu mynd og flugfrímerkin
frá 1952, en flugvélin felld burt
af hverju merki.
Verðgildi merkjanna eru 2
kr. grænt, 3 kr. blátt og 10 kr.
brúnt.
Frímerkin eru teiknuð af
Stefáni Jónssyni og prentuð
hjá firmanu Thomas de la Rue
& Co., Lad., London,
A FUNDI sínum 4. maí 1957
samþykkti stjórrs Neytenda-
samtakanna eftirfarandi álykt-
un:
„Vegna fjölmargra umkvart-
ana, sem skrifstofu Neytenda-
samtakanna bárust um tíma
eigi alls löngu yfir súrri mjólk,
sem seld væri í mjólkurbúðum
bæjarins, vill stjórn Neytenda-
samtakaima ekki láta hjá líða
að segja álit sitt á því máli.
Telur hún, að Mjólkursamsöl-
unni hafi skilyrðislaust borið
að tilkynna það, þegar er þess
varð vart, að mjólkin væri göll-
uð að þessu leyti, svo að neyt-
endur vissu, að hvaða kaupum
þeir gengju, og í öðru lagi að
lækka verð mjólkurinnar, svo
sem þykir sjálfsögð krafa til
allra, er reynast hafa gallaða
vöru til sölu.
Jafnfamt vill stjórn Neyt-
endasamtakanna taka það fram,
að skrifstofu þeirra hafa mjög
sjaldan borizt kvartanir vegna
lélegra gæða þeirra vara, er
Mjólkursamsalan hefur á boð-
s.tólum, og telur hún óhætt að
fullyrða. að þær séu yfirleitt
mjög vandaðar.“
EINS og undanfarin ár þá
gengust stéttarfélögin á ísa-
firði, sem eru innan Alþýðu-
sambantlsins, fyrir hátíðahöld-
um 1. máí.
Skemmtun var í Alþýðuhús-
inu og hófst hún kl. 3,45 e. Ii,
Mikill- mannfjöldi sótti
skemmtunina, eða eins og hús-
rúm framast leyfði.
Björgvin Sighvatsson, for-
seti Alþýðusambands Vest-
fjarða, setti skemmtunina fyr-
ir hönd undirbúningsnefndar-
inna. ■%
Skemmtiatriðin voru þessi:
Lúðrasveit ísafjarðar, undir
stjórn Harry Herlufsen lék.
Ræðu flutti Jón H. Guðmunds-
son, formaður Sjómannafélags
ísfirðina. Samleikur á gítar og-
mandólín, Pétur Pálsson og
Guðni Ihgibjartsson léku. Upp-
lestur. Sigurður Kristjánsson,
Ásbyrgi, -las upp gamankvæði
um ísfirzka menn og máleíhi.
Fimm 13 ■ ára telpur sungu og'
léku á gítar. Að síðustu var
sýnd kvikmyndin „Sálsjúka.
banfóstran“. Um kvöldið var
dansleikur á vegum stéttafé-
laganna í Alþýðuhúsinu. Merki.
dagsins voru seld á götum bcej-
arins allán daginn.
C Björgvin.
—..... *■■ — ... —
Eg fpfar veria greia
Jérdanjumönnum téif
marka.
SAMKVÆMT áður gerðuni
samningi ’ eru Egyptar skuld-
bundnir til að greiða Jórdaníu-
ríi tólf i milljónir egypzkra
marka í stað þess stuðningss
sem Bretar höfðu veitt því.
Nú krefjast Egyptar, Sýrlend
inga og Saudi-Arabar að fá að
vita skilyrði Bandaríkjamanna
fyrir lánum og styrk til Jórdán-
íu, og segjast Egyptar telja sig
lausa allrá mála, ef skilyrðin
feli í sér skerðingu á sjálfstæði
Jórdana. '
Þar eð egypzka pundið hef-
ur fallið um þriðjung í verði,
voru Jórdanir sjálfir ekki sera
ánægðastir með samningana.