Vísir - 07.04.1911, Side 1

Vísir - 07.04.1911, Side 1
Kemurvenjulegaút kl.ll árdegis sunnud. þriðjud., miðvd. fimtud. og föstud. 25 tJöðin frá 1. apr. kosta: Askrifst. 50 au. Sénd út um land 60 au. — Einst. blöð 3au. ! [Afgr' í Pósth.str. 14A. Opin mestan hluta dags. Óskað að fá augl. sem tírhanlcgast. Föstud. 7. apríl 1911. Sól i hádegisstað kl. 12,30“ Háflóð kl. 12,45“ síðd. Háfjara kl. 9,57“ síðd. Afmæll. Frú Thora L. Vilhelmína Oíslason. Póstar. E/s Ingólfur fer til Borgamess. Veðrátta í dag. Loftvog £ < Vindhraði Veðurlag Reykjavík 761,6 f 0,7 SV 6 Regn ísafj. 754,5 - 0,2 V 8 Hríð Bl.ós 758,4 - - 1.0 s 1 Skýjað Akureyri 755,9 - 6,2 ssv 8 Skýjað Orímsst. 722,0 - 6,5 sv 6 Skýjað Seyðisfj. Þorshöfn 761,5 774,7 - 8,7 k 6,7 sv VNV 5 3 Regn Skyjað Skýrlngar: N = norð- eða norðan, A = aust- eða austan, S = suð- eða sunnan, V = vest- eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þannig: 0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 = gola, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6= stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 = hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 = ofsaveður, 12 = fárviðri. Úr bænum. Kappglímur voru haldnar í Iðnó í gærkveldi að tilhlutun U. M. F. R. til ágóða fyrir minnisvarða Jóns Sig- urðssonar. Húsfyllir var og þótti hin besta skemtun. f I. (Ijettasta).fIokki vann Bjarni Magn- ússon, verslunarmaður. - II. og III. flokki Guðm. Sigurjóns- son og - IV. flokki Bjarni Bjarnason frá Auðsholti. Lyfjabúðin seld. Lyfsali Mich- ael Lund, sem hjer hefur dvalið nú um 9 ár hefur nýlegaselt lyfjabúð- ina með öllu til heyrandi öðrum dönskum manni, sem heitir P. O. Christensen. Tekur hinn nýi kaup- andi við nú í vor, en Lund fer után alfarinn og sest að í bænum Hobro (3600 íb.) á Jótlandi, þar sem hann tekur við lyfjabúð tengdaföður síns. Skipafrjettir. Botnvörpungar komnir: Valur með 5 þús. Snorri Sturluson með 9 þús. Nelson með 33 þús. Leigutrollari (Kolb.) með 32 þús. Fiskiskúturnar komnar: Guðrún Soffía með 8 þús. Ester með 12 l/2 þús. E/s Austri fórfrá Leith miðviku- dagsmorgun, hingað á leið E/s Sterling fór frá Leith mið- vikudagsmorgun, hingað á leið. AlUxx aj lawdi,. Prestkosning í Grundarþingum fór fram á mánudaginn og fjellu atkvæði svo: Sr. Þorsteinn Briem, aðstoðarprest- ur í Görðum hlaut 88 atkv. Sr. Jónr undur Júl. Halldórsson á Barði í Fljótum hlaut76 atkv. Sr. Sigurð- ur Guðmundsson á Ljósavatni hlaut 14 atkv. Varð kosningin ólögleg, þarsem enginn hlaut nægan atkvæða fjölda, en venjan er farin að gera það á- ákvæði óþarft. Þeim sem flest at- kvæði færer að jafnaði veitt embættið. Kjósendur eru þariia 269. Botnvörpungur. Nondu frá Grimsby strandaði í fyrri viku úti fyrir Garðskaga og björguðust menn. Geir, björgunarskipið fór þangað að freista að ná honum út, en hætti við, þar sem skipið var mjög brotið orðið. Fjárlögin eru til þriðju um- ræðu í neðri deild í dag. Loftskeytasamband við Vest- mannaeyar var fellt á fjáraukalögum ' í efri deild í gær með 7 : 6. Móti i loftskeytum voru konungkj. þing- | mennirnir og ráðherra. Lög frá alþingi. Þau eru nú orðin 9 alls og eru birt í Vísi í heilu lagi (þar af 5 í dag) nema lög um heyásetning, þar aðeins settar 2 greinarnar 1. og 5. Margar þingsályktunartillögur hafa og verið samþyktar, og þar á meðal þessi: Þingsályktunartillaga um stöðulögin. Neðri deild alþingis í ályktar, — jafnframt því sem sam- þykt er breyting á ýmsum atrið- um í stjórnarskrá um hin sjerstak- legu málefni íslands frá 5. jan. 1874 og stjornarskipunarlögum frá 3. okt. 1903 um breyting á nefndri stjórnarskrá, — að lýsa yfir því, með skírskotun til alþingissamþykt- ar frá 19. ágúsi 1871 (Alþingistíð- indi 1871, I, 905; II, 556— 558, 634), að lög um hina stjórnarlegu stöðu íslands í ríkinu frá 2. janúar síðastnefnt ár (1871) geti ekki við- urkenst skuldbindandi fyrir ísland. Var samþykt með öllum (24) atkvæðum. (Fáeinirþingmenngreiddu ekki atkvæði og töldust með meiri hlutanum). Nefndin í bannfrestunarmál- inu. Kosin í efri deild: Lárus H. Bjarnason Sjera Sigurður Stefánsson Steingrímur Jónsson Sigurður Hjörleifsson Stefán Stefánsson. Botnvörpusektir írikissjöð Dana. | Þeir sem greiddu því atkvæði að | */s botnvörpusekta yrðu látnir renna í ríkisjóð Dana (viö 2. umr. fjárlag- anna í neðri deild) voru: Eggert Pálson Björn Jónson Hannes Hafstein Jóhannes Jóhannesson i Jón frá Múla i Jón Magnúson Ólafur Briem og Pjetur Jónsson Hjer er greinileg framför í þíng- innu, því á síðasta þíngi voru að- eina 4, sem greiddu þessu atkvæði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.