Vísir


Vísir - 12.05.1911, Qupperneq 2

Vísir - 12.05.1911, Qupperneq 2
90 V I S I R E ií hið merkasta glæpa mál síðari tíma stendur yfir á Ítalíu. Um þrjátíu og sex menn hafa verið teknir fastir og ákærðir um fleiri liundruð glæpi. Glæpa- fjelag þetta kallast Camorra; og er ein deild Svarthandarfjelagsins. í fyrra sumar fanst foringi þessa fjelags, Gennaro Cooccolo myrtur ásamt konu sinni, og höfðu fjelagar hans unnið verkið, því þeir álitu, að hann stæði í sambandi við lögregl- u'na. — Meðal þeirra, sem nú eru í fangelsi, er prestur einn, sem á- kærður er um að hafa hylmað yfir með glæpaniönnum þessum, gegn gjöfum til kirkju sinnar. — lfinnig hefur foringi fjelags þessa, Enrico Alfonso, verið handsamaður. — Sá heitir Maresciallo Capizzutti, leyni- lögreglumaður, sem mest og best í hefur unnið að því, að þetta glæpa- i fjelag var handsamað. Gekk liann sjálfur í fjelagið og drýgði glæpi þá sem fyrir hann voru lagðir, uns | hann þóttist hafa fengið næg sönn- unargögn á fjelagið. Þá gerði hann lögreglunm aðvart og koin henni inn í sal þann, sem glæpamennirn- ir hjeldu fund, og þar, eflir harða viðureign, voru þessir 36 kumpán- ar handsamaðir. Á meðal annara glæpa á syndalista þessa glæpafje- lags eru 25 morð, og er því ekki j að undra þó mál þetta vekji eftir- t tekt. Dæmdur fyrip sakleyi . sannaðist á Andrew Toth frá Pittsburg í Bandaríkjunum ný- í verið. Hann hafði fyrir 20 ár- um verið sakaður um morð á fje- laga sínum, og fundinn sekur í þrátt fyrir að hann marg-neitaði að hafa verið á þeim stað, sem j morðið var framið. Hann var j dænidur í æfilangt fangelsi, og þar hefir hann setið þar til nú, I að sannanir fengust fyrir því, að har.n væri saklaus. — En bóta- laust varð hann að þola öll þessi árí hegningarhúsinu, og nú hent út í heiminn peningalausum, vin- lausum, förnum að heilsu og öldruðum, — þrátt fyrir það, þó hann bæði um að fá að dvelja það sem eftir væri æfinnar í fang- elsinu. Hann sagðist vera orð- inn siðum þess og háttum svo vanur, og hefði enga krafta að ryðja sjer nýja lífsbraut. — Orð hans höfðu engin áhrif, — rjett- lætinu var fullnækt með því að sleppa honum lausum, eftir tutt- ugu ára þrælkunarvinnu al-sak- lausum. Óeyrðirnar í Mexiko. Enn er barist þar í landi nætur og daga með litlura hvíldum. Svo er talið að stjórnarandstæðingar hafi 18 þúsundir inanna undir vopnum en stjórnin 23 þúsundir. Mjög hefur verið rætt um að Bandaríkin skærust hjer í leikinn, og virtist svo um tíma að það nyndi verða- Bandaríkjastjórnin heimtaði að ekki væri barist við landamærin, þar sem kúlur frá þeim orustum liöfðu valdið skemdum Bandaríkjamegin- Diaz forseti í Mexiko svaraði fullum j liálsi og varð við það að standa. Talið er að ekki veiti af 120 þúsund manna her til að skakka leikinn en Bandamenn hafa ekki nema 80 þúsundir hermanna og þar af 17 [ þúsundir fjærverandi. Kínverskjr sjóræningjar. í síðasta mánuði strandaði farþega- skipið »Asia« við norðurströnd eyarinnar Formosa á svokölluðum »Fingurbjörgum«. Þegar er skipið rakst á komu Kínverjar úr landi á meir en 100 bátum og ráku skip- verja þegar í laud. Yfirmenn skips- ins reyndu fyrst að verjast með vopnuni en Kínverjar höfðu náð einum hásetta á vald sitt og hótuðu að drepa hann ef ekki væri farið að vilja sínum. Skipverjar voru þá fluttir í land á bátum kínverja meðan skipið var rænt að öllu fjemætu Er í land kom urðu þeir að gjalda hátt gjald til að sleppa og vera fluttir út í annað skip sem þar var statt á leið til Shanghai. Meira af útl. frjittum í nœsta blaði' J Ur bænum. Veðráita í dag. Loftvog r '< Vindhraði Veðurlag Reykjavík 765,7 -j - 8,0 SA 5 Alsk. Isafj. 766,3 - r 5,8 0 Ljettsk. Bl.ós 768,1 -1 - 7,7 0 Skýjað Akureyri 767,0 1 - 9,0 0 Ljettsk. Grímsst. 732,8 - - 8,0 0 Heiðsk. Seyðisfj. 767,8 - 9,0 S 1 Ljettsk. Þorshöfn 766,9 H - 8,2 0 Allsk. Skýrmgar: N = norð- eða norðan, A = aust- eða austan, S = suð- eða sunnan, V = vest- eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þannig: 0 = logn, 1 = andvari, 2 = luil, 3 = go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6= stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 = hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 = ofsaveður, 12 = fárviðri. Skipafrjeiiir. Vesta var á Húsavík í gær, komst el fyrir Langanes, en all- mikill ís úti fyrir. Sjölin okkar verða allir að sjá áður en þeir festa kaup annarslaðar, og munuð þér fljótt sannfærast um að þau fást hvergi smekklegri né beiri. Verslunin Björn Kristjánsson. i i BI—-—H!--------------III Fiskiskúturnar eru nú óðum að koma inn. Þessar í gær og nótt. Björgvin Vertíðarafli 33 þús. Keflavík — 30 Geir — 45 Hildur — 40 — Langanes — 38l/2 — Botnia fór í gærkveldi og með henni fjöldi manns. Þar á meðal Guðm. Finnbogason magister, Halld. Vilhjálmsson skólastjóri með frú, frú J. Zimsen, Friis-Möller cand. pharm. og 17 vesturfarar. Úr ruslakistu Plausors. i. Yeisluspjöllin í Dal. Frh. »Ætli það sé ekki heldur skiln- aðarskrá frá amtinu, undirskrifuð af kónginum*, spurði Magnús. »Get- urðu ekki sjeð neitt nafn undir því«. >Nei, það sjest nú ekki. — En það dreifist ekkert út, gromsið. Jeg held þarna eru hrúgur af peningum, — já, ósköpin öll af peningum*. »Þá á jeg sjálfsagt«, sagði Gísli. »En það er þarna auður blettur í hrúgunni; það veit á einhverja óhamingju og peninga missi. »En þarna er lika langtum fleira, Jeg get fjandann ekki sjeð hvað

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.