Vísir - 26.05.1911, Síða 2
10
V I S I R
hún verði þá afhjúpuð 2. ágúst í
sumar.
Nýu frímerkin. Ekki verða þau
hátíðabrigði að þeim, sem til var
ætlast. Þau eru ekki fullgjörð enn
og koma ekki fyrr en seint og
síðarmeir. Að eins á að reyna að
Iáta 4 aura frímerkin ná hingað
fyrir 17. júní. Er þetta dárleg
frammistaða, hverjum sem það er
að kenna.
Skipafrjeiiir.
6/s Hólar komu í gær frá útl.
og Vík. í Vík var ekki hægt að;
flytja í land og fara þeir þangað
aftur í nóti Ef að ís leysir frá
Norðurlandi, fara þeir svo norður.
E/s Ceres fer til útl. á mánud.
E/s Vestri er inniteftur á Stein-.
grímsfirði. MikiII ís þar fyrir utan.
E/s Austri er á Seyðisfirði, komst
vel fyrir Langanes. Sagði minni ís
þar en áður.
ísl. Falk ætlaði norður að aust-
an en sneri við, við Langanes.
Vetrarvertíðin. Úr Iistanum
yfir skipin, þeim sem stóð í Vísi
14. þ. m. hafa failið 2 skip
Fríða með 28 þús.
og Björgvin — 35 —
Vildu blöðin, sem listann hafa tek-
ið upp — og getið heimildar —
athuga þetta.
Þjóðólfsuppoðið er ekki 9.
heldur 2. n. m.
Gefin saman: Björgvin Brynj.
Jónsson snikkari Bjargarstíg og ym.
Kristín María Guðmundsdóttir, 20.
Hjörtur Hansson verslm. hjá Bryde
og ym. Una Brandsdóttir, 24.
Dánir: Ekkja Guðrún Eiriks-
dóttir, Laugaveg 74, 58 ára. Dó 20.
maí úr hjartaslagi.
Jóhann Pjetur Ásmundsson tómt-
húsmaður, Klapparstíg 18, 58 ára.
Dó 20. maí.
I Frímerki i
j einkum þjónustufrímerki og J
| Brjefspjöld |
8 kaupir 8
J EINAR GUNNARSSON |
hæsta verði. ¥
Á afgr. Vísísis @
kl. 12—1.
aj
Símskeyfi.
Akureyri 26. maí.
Hjer er nú kuldatíð. ísrek er
töluvert úti fyrir og hafa hákarla-
skip ekki geta legið við veiðar þess-
vegna. Annars mikill hákall þegar
stund fæst til að liggja. Fiskiskip-
in hafa aflað vel.
Jörundur Eyafjarðarbáturinn bil-
aði út af Skaga og liggur inni á
Kájfshamarsvík.
Búist við að íþróttaflokkur all-
mikill komi suður á Jóns Sigurðs-
sonar hátíðina undir forustu Lár-
usar Rist.
Úr leikhusinu
skrifar einhver danskur »Ego« í síð-
asta Vísi og kvartar mest undan
því, að eigi hafi verið leikið á hljóð-
færi milli þátta, er þeir Danirnir
Boesen og har.s förunautar ljeku
»Et Dukkehjem«. Þettaer æðimikil
rangfærsla, því að þar var einmitt
leikið á strengleika bæði á undan
leiknum og á milli þáttanna.* Ego«
er því annaðhvort heyrnarlaus eða
hefur ekki verið inni milli þátta,
sem hann kveður þó óumflýjanlegt.
Það er öðru máli að gegna, að
þessi hljóðfærasláttur hefði að lík-
indum ekki þótt merkilegur, ef ís-
lendingar hefði í hlut átt, og þess
vil jeg geta í sambandi hjer við, að
í Lundúnum er ekki leyft að hafa
tvöfaldan flibba við kjól (eavning
dress), en »man er ogsaa paa ís-
land«.
Það er vert eftirtektar, að leikara-
flokkur Boesens kveðst hafa einka-
rjett til að sýna Ieik þennan. Hví
hafa íslendingar ekki fyrst fengið
að vita um þetta einkaleyfi, eða er
það Stórdaninn, sem tekur sjer
þennan rjett hjer, af þvi að hann
hefur hann í »Provinserne«?
Halldórr.
V ersl u narf rj etti r.
Samkvæmt verslunarskýrslu, er
ritstj. »Þjv « barst frá Kaupmanna-
höfn í máí, voíu söluhorfur, að
því er helstu íslenskar afurðir
snertir, sem hjer segir:
Saltfískur. Málfiskur, besta teg-
und, hefur selst á 70—75 kr.
skpd.—Smáfiskur á 60—65 kr.—
ísa á 50—55 kr.— Langa, besta
teg., á 65 kr. skpd. eða þar um.
— Keila á 40—45 kr. — Upsi á
32 kr. skpd. eða þar um.
F.ngin eftirspurn eftir hnakka-
skýldum fiski sem stendur og því
eigi auðið að gera ráð fyrir hærra
verði fyrir hann, en fyrir óknakka-
skýldan. v
Deyfð yfir markaðinum, enda
lítið, sem að berst sem stendur.
Fyrirframsala til Spánar hefur
epn eigi átt sjer stað, enn þess
verður þó væntanlega skamt að
bíða, að eitthvað frettist.
Harðfiskur. Lítið um sölu. —
Reynt að selja hann fyrir 70 kr.
skpd., og er talið, að hærraVerð
fáist eigi.
Yfirleitt verður að ráða frá því,
að verka harðfisk, þar sem fáir
hirða nú orðið um hann, margt
ódýrt fáanlegt ámarkaðinum, sem
neytt er í hans stað, enda eigi á
það treystandi, að verðið hækki.
Eins og Norðmenn verka hann,
selst hann betur, og eftirspurnin
þó sem stendur alls engin.
Lýsi. Verðið viðunanlegt, að
minsta kosti meðan ekki berst
neitt á markaðinn til viðbótar.—
Sennilegt,’að þá dofni yfir söl-
unni.
Ljóst hákarialýsi selst nú á 43
—45 kr., en dökt þorskalýsi á
42 kr., eða þar um, og ljóst á
hjer um bil 45—46 kr. — Að því
er til meðalalýsis kemur, þá er
salan daufari, og verðið um 95
kr., alt miðað við 210 pd.
Sild. Síld seldist síðast á 8 kr.
50 a., en óseldar Iiggja nú um
1000 tn., sem fyr greint verðfæst
eigi fyrir.
Sundmagar. Af þeim er eigi
um neina sölu að ræða, sem
stendur.
/Hrogn. Engin sala, sem stend-
ur. — Áskildar 40 kr.fyrir birgð-
ir, sem hjer eru, en boðfæstvíst
eigi hærra, en 34 kr. (fyrir 240 pd.)
Selskinn. Selskinn hafa verið
seld fyrir fram á 5 kr. 25 a. hver.
Æðardúnn. Fyrir hann voru
síðast borgaðar 12V2 kr., en eigi
var það besta tegund, ogmáenn
gera ráð fyrir 13—14 kr. fyrirvel
hreinsaðan dún, bestu tegundar.
Þjóðviljinn.
Hvar á forseta-líkneskið
að standaP
Seinustu blöðin telja það núfast-
ráðið, eða því sem næst, að Iíkn-