Vísir - 13.06.1911, Síða 3
V í S I R
59
ósekju, en sannleikann er best að
segja, og ekki vil jeg hrósa þeim
fyrir lesti jieirra. Jeg flutti farangur
minn á Bergstaðastræti 30 og yfir-
frakka minn skildi jeg eftir í for-
stofu hússins, en eftir Iítinn tíma
var búið að stela honum, og býst
jeg ekki við að sjá hann framar.
Mjer er kunnugt um það, að ís-
Iendingum er Ijúft að' heyra sjer
hrósað í úlenskum og íslenskum
blöðum eða tímaritum, en vilji þeir
ekki ætlast til, að fá hól fyrir lesti 3
sína, sýnist mjer ekki framkoma
landa minna í þessu efni vera sæmi-
leg. Hjer eiga þó ekki allir óskilið
mál, því fer fjarri.
Óskandi væri að landar vorir
hegðuðu sjer ekki þannig framveg-
is og síst við útlenda ferðamenn,
því það er þjóðinni til vansa.
Ó,J.
===== i
Þekkingarskortur.
_____ i
Reykjavík 8. jání 1911 j
Hr. ritstjóri!
Jeg vænti þess að þjer viljið gjöra j
svo vel að ljá neðanskráðri grein
minni rúm í yðar heiðraða blað
»Vísir«.
ií ';-V
Einhver Ego hefur í ísafold 30 j
maí þ. á. gert sjer til stór-skammar. |
Hann er þar að uppnefna og hníta j
í danskt stórskáld Erik Bögh(1822 j
—1899). Hann hlýtur að vera mik-
ill sómamaður!! þessi Ego, þar er
hann ræðst á menn er þeir Iiggja
varnarlausir í gröfinni í fjarlægu
Iandi. — Já, og það stórskáld eins
og Bögh. Ego segir Bögh »úreltan«
vera og kveður findni hans »rista
grunt«. Þetta er ósatt. Enginn
rjettlátur dómari getur með glaðri
samvisku sagt siígt um Bögh. Því
margir, og þar á meðal áreiðanlega
Ego sjálfur, hefur víst gott af að
Iesa fyndnis- og spakmælisstökur,
gleðileiki og sögur Eriks Böghs.
En Ego lætur sjer ekki nægja að
kveða slíkan sleggjudóm upp yfir
Bögh. Hann fer að uppnefna hann
og kalla hann »Bauk«. Þá keyrir
fram úr öllu hófi. Þetta hlýtur að
mæta fyrirlitningu hvers manns.
Hitt er fyrirgefanlegt — og þó tæp-
ast úr því Ego er á annað borð að
rita í blöðin — að hann hefur ekk-
ert vit á því,< sem hann ritar um. ;
Jeg enda svo línur þessar með því, i
að óska að eitthvað nytara komi frá I
Ego, næst þegar ritsýkin kvelur hann !
um of.
Hafliði.
Borgarmál.
Mjög er jeg þakklátur Búa fyrir
undirtektir hans við grein mína í
Vísi og svo er um marga fleiri hjer
í borginni.
Mjög góð tillaga að hver fái 5
vallardagsláttur að byrja með til þess
að yrkja hjer í mýrunum. Sömu-
leiðis að kallaður væri saman borg-
arafundur til þess að ræða ýms áríð-
andi bæarmál.
Jeg vildi þá einnig að bæarstjórn-
in hefði ritara, sem skrifuðu ræður
manna, svo sem á alþingi og lægju
þær frammi almenningi til ílits, svo
að við borgararnir hefðum svart á
hvítu tillögur fulltrúanna bæði þær
sem til gagns miða og hinar sem
okkur eru til skaða og skammar.
Búi tekur það rjettilega fram að
misjafnir menn sitji í bæarstjórninni.
Yogin.
Barnavinur spurði í Vísi sfðast
tveggja spurninga. Hinni fyrri vil
jeg svara honum því sem hann hefði
átt að geta svarað sjer sjálfur. Það
er gott þegar einhverjir gleðjast og
enginn vel upp alinn — barn eða
fullorðinn — hryggist af því að
vita aðra gleðjast. Ef að Barnavin-
ur færi að brjóta til mergjar hugs-
un þá, sem virðist liggja bak við
spurningu hans þá kæniist hann
fljótt í ógöngur með hana. Vildi
hann ekki athuga það? Hinni spurn-
ingunni hef jeg ekki kunnugleika
til að svara, en sennilegast er að
fátœkurn börnum hafi verið ætluð
skemtunin og því hafi gefendur
snúið sjer til fátækranefndar hjer,
með valið.
Suðri.
zx vafw\e^ kimsms.
x&\zx ^ostav aSems \S liv.
$u\ks^povste\v\ssov\
Bankastræti 12-
Hjer um daginn hjelt Bríet því
fram f bæarstjórninni að nægilegt
kaup handa verkmönnum við
hafngerðina væri 15—20 aurar um
tímann, en því mótmælti L. H. Bjarna-
son, enda mun hann vera einhver
praktiskasti bæarfulltrúinn.
Jeg held að Bríetu okkar væri sæmra
að sitja við sitt alþekta Kvennablað.
Kannske Páll okkar borgarstjóri,
sem sagt er að væri henni sammála
með 15—20 au. kaupgjöldin gæti verið
hjá henni skrifari fyrir samskonar
kaup.
Það dugar ekki að ganga hugs-
analaust framhjá útlitinu sem nú
er í landinu okkar. En hvað á að
gera annað en það, sem Búi bend-
ir á?
10/6 ’ll. Borgarí.
Útgefandi:
EINAR OLINNARSSON, Cand. phil.
er sjálfsagt að setja í Vísi,
þær eiga að útbreiðast vel
þær eiga að útbreiðast fljóit
þær eiga að lesast alment
Magnús Sigurðsson
Yfirrjettarmálaflutningsmaður
Aðalstrœti 18
Venjulega heima kl. 10—11 árd.
kl. 5—6 síðd.
Talsími 124.
PRENTSMIÐJA D. ÖSTLUNDS