Vísir - 02.07.1911, Blaðsíða 1

Vísir - 02.07.1911, Blaðsíða 1
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., niiðvd., fimtud. og föstud. Surtnud. 2. júlí 1911. Þingmaríumessa. Sól í hádegisstað kl. 12,32‘. Háflóð kl. Q,43‘ árd. og kl. 10,8‘ síðd. Háfjara kl. 3,55‘ síðd. Veðráita í dag. Loftvog £ •< Vindhraði ! Veðurlag Reykjavik 760,2 + 9,0 N 1 Heiðsk. Isafjörður 762,1 0 Ljettsk. Blönduós 161,3 -i 3,1 N 2 Skýað Akurevri 760,9 -f- 4.9iNMA 4 Hálfsk. Grímsst. 725.5 -+- 0,0 N 1 Skýað Seyðisfj. ?58,6 -+- 5,6 NA 6 Hríð Þórshöfn 753,8 + 8,6 NNV 4 Skýað Skýringar: N = norð- eða norðan, A = aust- eða austan, S = suð- eða sunnan, V = vest- eða vestan. Vindhæð er talin í stigum þannig: 0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 = go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6= stinningslcaldi, 7 = snarpur vindur, 8 = hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 = ofsaveður, 12 = fárviðri. y Ur bænum. Söngskemtunin í Bárubúð. Fröken hiilen Schultz söng í Báru- búð í gærkveldi, svo sem til stóð. Þar voru sæti öll skipuð og nokkrir stóðu. Söngurinn var hinn prýðilegasti og varð gerður mikiil rómur að. Frökeuin varð stundum að syngja upp aftur svo að klappinu linnti. Þrjú íslensk lög söng hún með íslenskum texta og bar svo vel fram að ekki var hægt að heyra að útlendingur væri. Lögfræðispróf við Hafnarhá- skóla tók Sigurður Lýðsson 13, þ. m. og hlaut 1. einkun. Heimspekispróf tóku nýlega við Hafnarháskóla Brynjólfur Árnason og Ólafur Jónsson, báöir með 1. einkun. Læknispróf tólc Guðmundur Thoroddsen við Hafnarháskóla 29. f. m. með 1. einkun. Læknispróf fók 29. f. m. við 25 blöðin frá 25. júní. kosta: Á 3krifst. 50 a. Send út um landöO au,— Einst.blöð 3 a. Læknaskólann Pjetur Thoroddsen með II. betri einkunn. Með Ceres komu auk þeirra sem áður eru nefndir Sigurður Hjörleifsson ritstjóri með frú, fer hann nú að virma í peningamála- nefndinni, Iögfræðingarnir Oddur Hermannsson og Sigurður Sigurðs- son, Ólafur Johnsen yfirkennari, ýmsir stúdentar o. fl. Ceres fór aftur í nótt (121/.,) til útlanda. Stjörmmierki vantaði við einn stúdentinn í síðasta blaði. það var Vilhelm Jakobsson. Hann var utanskóla sveinn. var haldinn í gær. JónsSigurðssonarnefndin(meiri hluti hennar) spurðist fyrir um hvort myndin mætti standa á Lækj- artorgi. Bæarstjórnin svaraði þessu ekki en sendi nefndinni í þess stað álit sitt um staðinn. Næturvörður var kosinn. Vísir hefur ekki frjett hver hann er, en þess var getið að annar maður varð fyrir valinu en bæarfógeti benti á og er ráðstöfun sú undarleg þar sem næturvörðurinn er honum und- irgefinn. Slátrunarleyfi fjekkSiggeirkaup- maður Torfason og var ekki íeitað álits heiibrigðisnefndar um það mál, þó bæarreglugerðin geri ráð fyrir því. Lárus H. Bjarnason gerði nokkrar fyrirspurnir tll borgarstjóra og var út af einni þeirra samþykt sú ályktun frá Halldóri Jónssyni að hann (L. H. B.) liefði engin fund- arspjöll gert á síðasta bæarstjörnar- fundi aftur var feld ályktun frá sama um að víta borgarstjóra fyrir að hafa sagt manni utan bæarstjórn- ar frá hvað fram fór á síðasta bæ- arstj Srnarfundi. Afgr. áhominuáHotel Island 1-3 og 5-7. Óskað að fá augl. sem tímanlegast. Floíi Bandaríkjaherskipa kom í vor til Norðurevrópu. Fyrst til Þýskalands, þá til Danmerkur og er nú sem stendur í Svíþjóð. Yfirforingi þessa flota heitir Bad- gers og er stunduin nokkuð utan við sig það kemur sjer víst betur að hann er ekki í hernaði hjer. — í Kaupmannahöfn hafði hann boð mikið úti á skipi sínu og bað menn þar að drekka minni þýska hersins. Nýlega koniu til hans í Stokk- hólmi tveir verkræðingar ug báðu um leyfi að fá að skoða skipið Hann gaf þeim nafnspjald sitt með árituðu leyfi fyrir 2 clanska verk- fræðinga að sjá skipið. Menn telja því að hann sje nú búinn að átta sig á því að liann sje kominn til Danmerkur! Hftjskotna fugla svo sem Hrafna Sjósvölur Teistur, Vali Skrofur Toppskarfa Hvítmáfa Álkur Himbrima Flórgoða og Hringvíur kaupir EINAR GUNNARSSON, Pósthússtræti 14 A.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.