Vísir - 16.07.1911, Blaðsíða 1
VÍSIR
13
Kemurvenjulegautkl.il árdegis sunnud.
þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud.
25 blöðin frá25. júní. kosta: Á skrifst. 50a.
SendútumlandóO au.— Einst.blöð 3 a.
Afgr. áhorninuáHotel Island 1-3 og5-7.
Óskað að fá augl. semtímanlegast.
Sunnud. 16. júlí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,34'.
Háflóð kl. 8,22' árd. og kl. 8,41'síðd.
Háfjara kl. 2,34' síðd.
Afmælf.
Sigurður Thoroddsen ingeniör.
[FlóttiMúhameds fráMekku til Medínu
622,byrjartímatalMúhamedstrúarmanna]
Póstar á morgun:
Ingólfur til og frá Borgarnesi.
Ask norður um land til útlanda.
Perwie kemur að sunnan.
Veðráíta í dag.
bjo o > ^- jj « h. .c
43 o £ >< -a c lO
-J > >
Reykjavík 763,2 + 9,8 0 Alsk.
Isafjörður 765,0 -f-10,0 4- 8,0 0 Hálfsk
Blönduós 765,7 0 Skýað
Akureyri 765,6 -f 9,0 SSA 2 Hálfsk.
Grímsst. 730.0 -tr 8,0 SV 0 I.jettsk.
Seyðisfj. 764,9 -t- 8,6 3 Heiðsk.
Þórshöfn 762,0 + 8,2 N 4 Skýað
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Úr bænum.
5880 brjef og brjefspjöld settu
ferðamennirnir á Cincinnati í póst
hjer daginn sem þeir stóðu við.
Flora kom kring um Iand 13.
þ. m. með 20—30 farþega. Meðal
Jón Björnsson kanpm. með frú, Jón
H. ísleifsson cand. polyt,. Páll Bergs-
son kaupm. frá Ólafsfirði, Ásgeir
Pjetursson kaupm. frá Akureyri,
o. fl.
Sterling kom á föstudaginn með
um 50 farþega: Paul Hermann,
Pjetur Jónsson söngvara, Jón Sig-
urðssn fráKallaðarnesi, Guðm. Hlíð-
dal verkfr. með fjölskyldu sinni,
Jón Stefánsson málari (frá Sauðár-
krók), Guðm. Ólafsson cand. juris.,
Jón Sívertsen verslm, Júlíus Hav-
steen stud. juris, SamúelThorsteins-
son stud. polyt., Christensen Iyfsali,
hinn nýi eigandi lyfjabúðarinnar,
frúrnar Georgia Björnsson og Aal-
Hansen, jungfr. Guðrfður Jóhanns-
dóttir o. fl.
Botnia kom í gær. Allmargir
farþegar: Ditlev Thomsen, læknarn-
ir Gunnlaugur Claessen og Guð-
mundur Thoroddsen frá Khöfn.
Jón Þórarinsson fræðsulmálastj. og
Grímur Jónsson frá fsafirði o. m. fl.
"Vltati aj t&ndx.
Akureyri 7. júlí.
Veðrátta. t>urkamir hjer norð-
anlands halda áfram, horfurnar
með grassprettu vondar, þessa
viku vestanátt og hlýindi.
Þorskafli á djúpmiðum Eya-
fjarðar og Siglufjarðar allgóður.
Alt sem fiskast vænt.
Sláttur byrjar alment um þessa
helgi þótt grasið sje lítið.
Ullarverð er nú ákveðið hjer
á Akureyri 80 aura pundið gegn
vörum og upp í skuldir, og 70
aura gegn percingum. Á Suður-
landi er verð á hvítri ull 65 aura.
Horfurnar með sölu á ull er-
lendis alt annað en góðar. Kaup-
menn fá þar eigí viðunandi boð
hvorki á ull eða fisk.
»Vesta« er hjer á útleið á
áætlunardegi. Pað eykur eigi
svo lítið'vinsældir Sameinaðafje-
lagsins hjer við -land, hve skip
þeirra venjulegast fylgja vel áætl-
un. (Norðri.)
f »GjalIarhorni« ersagtfráþví
22. f. m. að Guðmundur Friðjóns-
son á Sandi hafa á tímabilinu frá
páskum til krossmessu í vor ofið
170 álnir vaðmála.
»Þetta höfum vjer fyrir líftórunni
út við Skjálfanda« bætir skáldið við.
Snjóasamt er víða í Þingeyar-
sýslu svo að þar hlýtur að vera ágæt
útbeit fyrir sauðfje ef nokkuð má
r£ða af niðurlagi eftirfarandi setning-
ar, sem tekin er úr grein í Gjallar-
horni 22. f. m. /
»Vjer alþýðumennirnir tökum yrkis-
efnið upp úr jarðveginum sem vjer
heyjum á og snjónatn sem vjer beit-
utn fjenu a.« V.
Gránufjelagið. Aðalfundurþess
var haldinn á Akureyri 30. f. m.
Var samþykt að reyna að selja
eignir fjelagsins þannig að allar
skuldir þess borguðust og hlut-
hafar fengju 15 kr. fyrir hluta-
brjefin.
Svo fór um sjóferð þá!
Þyngsti hrútur á landinu.
Jón. H. Þorbergsson fjárræktar-
maður segir svo frá í ferðasögu
sinni í Norðra 7. þ. m.:
»k Öngulsstöðum [í Eyafirði]
er hrúturinn Þór, sem er þyngst-
ur allra hrúta á landinu. Hann
er frá Páli Jónssyni þegar hann
bjó á Litlu-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði. Hrútur þessi er og ætt-
aður frá Sauðfjárbúi Suður-Þing-
eyinga eða frá Sigfúsi Jónssyni
á Halldórsstöðum.
Þegar Þór var lamb vóg hann
110 pd. v. g. 220 pd. tvæv. 250
þrev. 260 pd. En þannig mæld-
ist mjer hann: gildl. aftan við
bóga 48", hæð á herðakamp og
malir 34", bakbreid 8" lengd mala
13" lengd hriggjar 14" lengd
brjóstk. 13", Þessi hrútur er sá
gildasti, hæsti og lengsti hrútur
sem eg hefi mælt. En mælt hef
jeg hrút sem hefur 9" breitt bak,
og er það mikill galli á Pór að
hann hefur ekki betra bak.«
Notið SUNPSKÁLANN
LUNDI
er seldur í dag. TÚNGÖTU 6