Vísir - 26.07.1911, Blaðsíða 1
19
100 ,
VISIR
Kenmrvenjuleg'aút kl. 11 árdegis sunnud.
þrjðjud., niiðvd., fimtud. og föstud.
Miðvikud. 26. júlí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,34‘.
Háflóð kl. 5,46‘ árd. og kl. 6,10‘ síðd.
Háfjara kl. ll,52‘ árd.
Afmæll.
Jón Brynjólfsson kaupmaður.
Póstar f dag:
Ceres fer vestur (Póstur kl. 5).
Hafnarfjarðarpóstur kemur kl. 12 fer
kl. 4.
Álftanespóstur kemur og fer (um
kl. 12).
Póstar á morgun:
Ingólfur kemur úr Borgarnesi með
norðan- og vestanpóst.
Þingvallavagn kemur.
Veðrátta í dag.
Loftvog ‘43 r S3 '< Vindhraði j Veðurlag
Reykjavík 758,6 4- 7,8 N 4 Heiðsk.
Isafjörður 762,4 -f 5.0 NA 5 Regn
Blönduós 760,4 4- 3,6 N 1 Alsk.
Akureyri 758,9 4- 6,0 0 Þoka
Grímsst. 723,6 -t- 3,8 N 1 Alsk.
Seyðisfj. 758,2 -+- T4 3 Hálfsk
Þórshöfn 757,0 + 11,3 0 Skýað
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
aw aj
Hermann Styhr heitir maður
nokkur danskur, fjelagi Fabers
smjörkaupmanns. Hann kom
hingað með Sterling síðast og
fór austur í sýslur og heimsótti
helstu rjómabúin þar. Laugar-
daginn var hjelt liann fund með
rjómabústjórunum við Þjórsárbrú
og las þeim hvað honum þótti
miður fara á búunum. Hann fór
út aftur með Sterling.
Sigurður Sigurðsson consulent
hefur verið um 7 vikna tíma í
vor austur í sýslurn, einkum Rang-
árvalla og Skaftafells, alt austur
á Síðu, til þess að leiðbeina
bændum við ýms búnaðarstörf,
25 blööinfrá25. júní. kosta: Á skrifst .50a.
Sendútum landóO au.—Einst.blöð 3 a.
Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og5-7.
Oskað að fá augl. sem tímanlegast.
einkum áveitumælingar. Ána
Skálm í Landbroti hefur hann
skoðað og gefið ráð um varnir
gegn skemdum af henni með
flóðgörðum. Sömuleiðis athugaði
hann Svaðvælisá og Hofsá undir
Eyafjöllum, en taldi mjög kostn-
aðarsamt að verja skemdum af
þeim, þó joað væri kleyft.
Hann lætur illa af grassprettu, I
telur að töðubrestur verði mikill
og útjörð spretti laklega.
í byrjun næsta mánaðar fer
hann aftur austur til þess að
undirbúa Miklavatnsáveituna í
Flóanum (úr Þjórsá) og verður
þar ef til vill með honum Sigurður
Thoroddsen ingeniör.
Eyrarbakka 19. júli 1911.
Kuldar eru hjer miklir um nætur,
frost og snjór niður á heiðarbrún.
Stilt veður og þerrir á daginn. Fisk-
laust þó róið sje. Sláttur er byrjaður,
en spretta er ryr. Fundur var í fyrra-
dag á Kaldaðarnesi, sýslunefndamenn
og fleiri að koma sjer saman um
þingmannaefni fyrir sýsluna, hef ekki
frjett um það frekar enn.
Siifurberg, Kopar, Sínk.
Stuðlar heitir bær fyrir botni Reyð-
arfjarðar sunnanvert. Fjall er suður
af bænum og hefur fundist í því
bæði silfurberg, kopar og sínk. Eru
nú 4 menn að vinna þarna að stað-
aldri undir verkstjórn Norðmanns
nokkurs og verður þeim allmikið
ágengt.
Pjetur Bóasson sonur bóndans að
Stuðluni hefur verið hjer í bænum
nú nýskeð í erindum fyrir námu
þessa.
Augiýsingar
er s álfsagt að setja í Vís ,
&
þær eiga að útbreiðast vel
þær eiga að útbreiðast fijótf
þær eiga að lesast alment
Skemtiför.
Á sunnudaginn var fór uni 70
Goodtemplarar skemtiför fram á Sel-
tjarnarnes undir forustu Ólafs Jóns-
sonar lögregluþjóns. Þeir lögðuaf
stað hjeðan kl. 11 árd. í skrúðgöngu
og gekk hornaflokkurinn fyrir og
bljes svo að undir tók í borginni.
Menn staðnæmdust á Ráðagerðis-
bökkum. Setti Ó. J. hátíðina en ýms-
ir hjeldu ræður Pjetur Zophonias-
son talaði um regluna, Indriði Ein-
arsson um Seltyrninga, Sigurður
Vigfússon kennari um Vesturíslend-
inga. þá tóku menn að skemta sjer
með Ieikum, hlaupum og stökki og
var fjör mikið. Veitingar voru næg-
ar á staðnum og annaðist Hotel
lsland þær.
Veður var slæmt um daginn og
dró það mjög úr, þó bættust stöð-
ugt við hópinn og er heim var
haldið voru saman 130 manns. Á
heimleiðinni varð hlje á göngunni
hjá Mörk, þar er gamalmenni Rögn-
valdur að nafni hann hafði mikla
skemtun af hornablæstri og voru
fyrir liann spiluð nokkur lög.
Er heim kom, um kl. 5. varskemt-
uninni haldið áfram um stund í G.
T. húsinu, sungu þar Fóstbræður
og dans var stiginn.
Auditor.
Rctddir
almcnnings
Fisktorg.
Það er oft nægilegt að gera með
bæarbryggjuna þó ekki sje þar höfð
fisksala innanum farangurog ferða-
menn, sem koma og fara. Vildi
ekki einhver kunnugur maður at-
huga það mál í Vísi og benda á
heppilegan sölustað og reglur sem
setja þarf sölunni viðvíkjandi. Fyrir-
komulagið sem nú er á þessu er
ilt mjög og þyrfti bráðra bóta.
Ókunnugur.