Vísir - 09.08.1911, Blaðsíða 1
108
2
VISIR
Kennirvenjulegaút kl.ll árdegis sunnud.
þrjðjud., niiövd., fimtud. og föstud.
Miðvikud. 9. ágúst 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12.33‘
Háflóð kl. 4,59‘ árd. og 5,16 síðd.
Háfjara kl. 11,11' árd. og 11,38 síðd.
Afmæll á morgun.
Frú Flora Zimsen.
Frú Inger Östlund.
Jóhannes-Sigfússon, kennari.
Jón Ouðmundsson, póstur.
Þórður Qeirson, nætnrv.
t i i
Póstvagn kemur frá Þingvöllum.
Veðrátta í dag.
Loftvog r Vindhraði Veðurlag
Reykjavik 756,3 + 9,0 sv 4 Skýað
lsafjörður 759,9 -j- 5.5 NA 3 Alsk.
Blönduós 758,9 4- 5,2 V 3 Regn
Akureyri 757,4 -f 8,4 NNV 3 Þoka
Grímsst. 722,5 —1—1 ,5 0 Skýað
Seyðisfj. 756,5 -+- 7,3 0 Þoka
Þórshöfn 761,0 -1-11,0 0 Regn
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
gola, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
"\Xtaw aj tauöu
Úr Ljósavatnsskarði er skrifað
20. f. m.:
>Fastur í ístaði.
Hjer á dögunum kom Arngrímur
bóndi Einarsson á Ljósavatni úr kaup-
stað af Akureyri. Hann var samferða
Mývetningum. Þegar kom austar-
lega í skarðið, milli Litlutjarna og
Kross, voru samferðamennirni lítið
eitt á undan. Hestur Arngríms hras-
aði, svo að bóndi fjell af baki, en
var fastur í ístaðinu. Hesturinn fæld-
ist og dró hann eftir sjer all-langan
spöl. Arngrímur fekk ekki losað
sig, en gat fyrst haldið sjer krept-
um uns orkuna þraut, drógust þá
fötin fram fyrir höfuðið og stansaði
hesturinn ekki fyrr en samferðamenn-
irnir urðu varir við, hvað á seyði
var. — Arngrímur var þá meðvit-
undarlaus, bakið alblóðugt og sárin
full af mold, en brotið herðablaöið.
25 blöðin frá 8. ágúst. kosta: Á skrifst. 50 a.
Send út um landóO au.— Einst.blöð 3 a.
Afgr. áhorninuáHotel Island 1-3 og5-7.
Óskað að fá augl. semtímanlegast.
Hið fyrsta, sem hann heyrði, er
hann raknaði við, var það, að annar
förunautur hans sagði: »Það verður
nú víst ekki Iöng stund þangað til
hann gefur upp öndina.« — —-
Nú var símað til Sigurmundar
læknis á Breiðumýri og brá hann
við hvatlega, fægði sárin og bjó um.
Eftir þriggja vikna tíma mátti heita,
að Arngrímur væri albata; þótti furðu
vel rætast úr, svo ægilegt sem áfall-
ið var í fyrstu. Arngrímur er harð-
ger maður og hraustur. — Reyk-
víkingar kannast við son hans:
Glímu-Kára frá Ljósavatni, sem þátt
tók í kappglímunni syðra löjúnís. 1.
Grasmaðkur er mesta land-
plága í ýmsum sveitum norður
hjer. í Bárðardal hefur ormurinn
etið hvert laufblað af fjalldrapa,
víði og birkikjarri, svo að á sum-
um jörðum er enginn hagi fyrir
nokkra skepnu og hafa sumir
bændur orðið að hætta við að
færafráám,af því að beitilandið er
gersamlega eyðilagt. Afám dögum
fer þessi ófögnuður yfir stór svæði
og laufgrænn haginn verður að
blágrárri eyðimörk, þar sem ekki
sjest grænt strá. — Þessi plága
hefur líka gengið í Kelduhverfi
og nokkuð í Laxárdal og við Mý-
vatn. — — Jeg nefndi þennan
maðk áðan grasmaðk, en í raun
rjettri væri rjettara að kenna hann
við skóg, því að þessi maðkur er
áreiganlega annarar tegundar en
grasmaðkur sá, sem mest spillir
túnum og legst hann mest á hrís
og kvistlendi.— En því miður er
þetta efni gersamlega órannsakað
og mönnum allsendis ókunnugt
um eðli og lífsskilyrði þessa ill-
yrmis.
Veðrátta er nú heldur mislynd.
Um daginn voru óvenjumiklir hit-
ar, en nú eru kuldastormar norð-
an og snjókoma á fjölium. Gras-
spretta er víðast ofurljeleg. Lík-
legt, að miklu fje verði lógað í
haust.«
Mokfiski varí Vestmannaeyjum
fyrir helgina.
Símon á Seiforsi segir, að lax-
gegnd sje nú mjög mikil í Ölfusá,
en áin sje svo þykk af gruggi,
að enginn lax komist upp fyrir
Selfors. Kveður hann grugg þetta
munu stafa af eldsumbrotum uppi
í öræfum, en ekki hefur þeirra
orðið vart úr bygð að öðru leyti,
svo kunnugt sje.
»Koparnámurnar« í Vest-
mannaeyjum hafa reynst ómerki-
Iegar, eða helst alls engar, heldur
er nú sagt, að kopar-vottur sá er
þar fanst, hafi verið í grjóti, sem
útlend skip muni hafa haft í kjal-
festi og kastað fyrir borð.
1
Ur bænum.
Sr. Árni Björnsson á Sauðár-
króki hefur dvalist hjer nokkra
daga og hafa ýmsir Templarar
haldið honum samsæti.
Úthey er selt á 3l/2 eyri pundið
þessa dagana hjer í bænum.
Jxí úUöwdvxm.
Kólera hefur stungið sjer niður
í Mnr York öðru hverju í sumar,
en læknum tekist að hamla útbreiðslu
i hennar með ströngu eftirliti og ein-
angrun sjúklinga. Als hafa veikst
þar 18 menn og 5 þeirra dáið.
Sóttin hefur borist út frá Suður-Ítalíu.
Þar hefur hún legið í landi síðan í
fyrra og verið því hættulegri fyrir
þá sök, að reynt hefir verið að halda
henni leyndri. Frá 8. júní til 20.
júlí, í sumar telja opinberar skýrsl-
ur að sýkst hafi þar 900 menn, og
af þeim látist á þriðja hundrað. Aðrir
segja, að sóttin hafi gripið miklu
meira um sig og jafnvel drepið
þúsundir manna í Palermo-borg
einni saman.