Vísir - 25.08.1911, Page 1
115
9
VISIR
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud.
þrjðjud., miðvd., finitud. og föstud.
25 biöðin frá 8. ágúst. kosta: Á skrifst. 50 a.
Send út um landóO au. — Einst.blöð 3 a.
Afgr. á horninu á Hotel Island 1-3 og 5-7.
Óskað að fá augl. semtímanlegast.
BíblMyrirlestur í „Siloam“
Sunnudag kl. 6V2 síðdegis.
J. C. Raft frá Kaupmannahöfn talar (með túlk) um efnið:
Þúsundára-ríkið eða friðar-ríkið. Verður það á himni
eða hjer á jörðu? Hvenær hefst það?
Allir velkomnir.
Föstud. 25. ágúst 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12 29‘
Háflóð kl. 6,8‘ árd. og kl. 6,27‘ síðd.
Háfjara kl. 12,20“ síðd.
Afmæli f dag.
J. J. Lambertsen, kaupmaður.
Afmæli á morgun.
Frú Kristbjörg Einarsdóttir.
Frú Málfríður Jónsdóttir
Sæmundur Bjarnhjeðinsson, læknir.
Póstar í dag.
Austri fer í hringferð.
Ingólfur til óg frá Oarði.
Ask fer til útlanda.
Póstvagn kemur frá Ægissíðu.
Póstar á morgun.
Póstvagn fer til Þingvalla.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Veðrátta dag.
Loftvog E Vindhraði Veðurlag
Reykjavík 756,6 1- 7,0 0 Ljettsk.
Isafjörður 759,5 - 6,3 0 Skýað
Blönduós 760,2 - 5,1 N 1 Skýað
Akureyri 758,4 5,0 NV ' 1 Regn
Grímsst. 723,0 4,2 0 Alsk.
Seyðisfj. 757,9 - 6,3 10,5 0 Alsk.
Þórshöfn 648,7 - ANA 4 Regn
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = iogn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8=
hvassviðri, 9 = stormur, 10= rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
y
Ur bænum.
Lavoasier, frakkneska herskipið,
sem hjer hefir legið nokkra daga,
fer í nótt áleiðis til Dublin. Tekur
póst í kveld.
Austri fór í dag umhverfis land
og með honum Jón Ólafsson ritstj.
til Austfjarða. Sig. Guðmundsson
cand. nng. til Sauðárkróks, Ólafur
Björnsson ritstj.og Sig.Guðmundsson
afgreiðslumaður umhverfis land.
Andrjes Fjeldsted augnlæknir
er nýkominn úr lækningaferð sinni
umhverfis land.
Arsæll Arnason bókbindari fór
ekki erlendis með Sterling síðast,
svo sem Vísirsagði, eftir afgr. Thore-
fjelagsins. Aftur fór bróðir hans
Þórhallur bakari.
"\ltatv aj lawdv.
Veitingahús brennur. Um síð-
ustu helgi brann veitingahúsið á
Hvammstanga. Allstórt hús, nýlega
byggt.
Róstusamt hefir verið á Siglu-
firði þetta sumarið, en fram úr
keyrði á mánudaginn var. Þá höfðu
Norðmenn tekið sjer ríflega neðan
í því, og gengu um þorpið með
ópum og óhljóðum og Ijetu ófrið-
lega. Lenti víða með þeim í handa-
Iögmáli, en íslendingar höfðu forð-
að sjer í húsin og er Norðmenn
leituðu þangað voru þau harðlokuð.
Ekki var opnað þó þeir skoruðu á
menn að opna fyrir sjer og tóku
þeir þá að brjóta það sem hægast
var að vinna á og voru fáar rúður
heilar í þorpinu eftir það kveld.
Eins brutu þeir grindur og annað
er fyrir fanst. Hjálpar var leitað til
Akureyrar.
Norðmenn vissu (símleiðis) að
Valurinn var við Færeyar í símlagn-
inga stússi r'þar og höfðu ekkert
að óttast.
Þessi varðskipsræfill er verri n
gagnslaust.
Halldór Steinsen læknir í Ólafs-
vík fjell af hesti og meiddist mjög
á höfði. Er á batavegi.
Verslunarhús brenna. Á Una-
ósi við Hjeraðsfl. brann fyrir skömmu
verslunarhús fjelagsins »Framtíðin«,
sem liefur aðalstöð sína á Seyðis-
firði, en útibú þarna. í húsinu var
bæði íbúð og sölubúð og var nær
engu bjargað úr sölubúðinni en
nokkru úr íbúðinni. Vörugeymslu-
hús átti verslunin þar nálægt og
sakaði þau ekki.
Enn hefur ekki frjettst um upp-
tök eldsins eða hve miklu skaðinn
Karl XII
Yar hanii kvenmaður?
---- Frh.
Aurell tekur það fram, að þótt
engar þær sagnir sem til eru af
Karli XII. gjöri kynferði hans að
umtalsefni, þá sjeu þó allir sagna-
ritarar sammála um þær staðreynd-
ir, er benda í þá átt að gjöra það
mál efasamt.
Karl XII. fæddist árið 1692. Karl
XI. faðir hans hafði lengi þráð að
eignast son, er gæti orðið eftir-
maður hans. Aurell sýnir nú fram
á með rökum, að hefði nú kon-
ungi fæðst dóttir, þá hefði hann
og hirðin vel getað látið það ber-
ast út að sveinbarn hefði fæðst.
Það er alkunna, að faðir Karls XII.
var aðal-kennari hans, og að allt
mögulegt var gjört til þessaðgjöra
hinn unga prins harðgjörðan. Hann
var látinn iðka likamsæfingar og
veiðiskap timunum saman og fekk
með því móti þá stálhreysti, sem
kom honum að svo góðu liði í
svaðilförum hans seinna á æfinni.
Þegar Karl XII. var 15 ára gam-
all dó faðir hans, og tók hann þá
við konungdómi í Svíþjóð. Allar
mögulegar tilraunir voru gjörðar til
ið fá hann til að kvongast. En
hinn ungi konungur var ekki ein-
ungis ófáanlegur til að giftast, held-
ur var ekki einu sinni nokkurn
tíma við kvenmann kendur. Vol-
taire lýsir Karli XII. þannig: »Hinn
ungi konungur var meðalmaður á
hæð og göfugmannlegur ásýndum.
Hann hafði fagurt enni, stór blá
augu, sem blíðan skein út úr, vel
skapað nef og yfir liöfuð andlits-
lit, sem hver fögur kona gat öf-
undað hann af.« Þessa Iýsingu hef-
Voltaire eftir forsætisráðherra Karls
XII. og aðrir sagnaritarar eru hon-
um sammála, og taka það fram, að
þó líkanú konungs væri vöðvastælt-
ur þá hafi hann þó meir líkst konu
en karli, og að hár hafi hann haft
bæði mikið og frítt. Nl.
nemur.